Þjóðviljinn - 15.02.1963, Blaðsíða 1
Fösíudagur 15. febrúar 1963 — 28. árgangur — 38. tölublað.
Eyjakennarar í stríBi
vegna uppbótar á laun
8
&
í fyrrakvöld hófst í Lídó Skákkeppni stofnana og er
það í fjórða sinn sem hún er háð. 44 sveitir taka þátt í
mótinu og skiptast þær í 7 riðla, 6 í hverjum nema 7
í tveim þeim efstu. Er sveitunum skipt niður í riðlana eft-
ir úrslitum í síðustu keppni. 4 menn eru í hverri sveit
og voru það því alls 168 skákmenn sem tefldu í Lídó og
skákirnar 84. í efri riðlunum eru margir þekktustu skák-
menn landsins meðal keppenda en smærri spámennirnir
skipa neðri flokkana. Úrslit 1. umferðar eru birt á 2.
síðu blaðsins í dag.
Allir kennarar við barnaskólann og gagnfræða-
skólann í Vestmannaeyjum hafa ákveðið að hætta
allri yfirvinnu frá næstu mánaðamótum ef þeir
fá ekki greidda svokallaða staðaruppbót.
í gagnfræðaskólanum
hefur skólastjórinn til-
Málið komið til
saksóknara
1 fyrradag Iauk i Vest-
mannaeyjum réttarhöldun-
um í máli skipstjórans á
Sævaldi SU 2. Dómur var
þó ekki feiiur í málinu þar
á staðnum heldur voru
málsgögn send saksóknara
rikisins til athugunar.
Þjóðviljinn snéri sér í
gær til saksóknara og spurð-
ist fyrir um málið. Voru
málsgögnin þá enn ekki
komin til hans en voru á
Iciðinni. Sagði saksóknari
að úrskurður myndi felld-
ur um það hjá embættinu,
hvemig haga bæri máls-
höfðun þegar að lokinni at-
hugun málsgagna.
kynnt ennfremur, að
þriðjabekkjardeildirnar í
gkólanum verði lagðar
niður um næstu mánaða-
mót og er landsprófs-
deildin meðal þessara
deilda skólans.
Forsaga þessara átaka er í
stuttu máli þannig:
Þegar skólarnir voru að byrja
í haust, lagði Karl Guðjónsson
fram tjllögu í fræðsluráði, að
það legði til við bæjarstjóm, að
kennurum yrðu greiddar kr.
1000.00 á mánuði sem staðarupp-
bót eins og tíðkanlegt er til
dæmis á Selfossi, í Njarðvíkum,
Keflavík og fleiri stöðum.
Fræðsluráð hafði þessa til-
lögu í salti um skeið, en gerði
að lokum einróma samþykkt til
bæjarstjórnar, að þetta yrði gert'.
Bæjarstjórinn í Vestmanneyj-
um, Guðlaugur Gíslason, hefur
hinsvegar aldrei látjð þessa sam-
So vétríkin kaupa 12
þús. tonn freðsíldar
1 gær barst Þjóðviljanum eft-
irfarandi fréttatilkynning frá
Sölumiðstöð hraðfrysthúsanna og
Sjávarafurðadeild Sambands (s-
lenzkra samvinnufélaga um sö'.u
á freðsíld til Sovétríkjanna:
—O—
Þriðjudaginn 12. febrúar 1963
var undirritaður í Reykjavík
samningur milli Sölumiðstöðvar
hraðfrystihúsanna og Sjávaraf-
urðadeildar Sambands íslenzkra
samvinnufélaga annars vegar og
Sovétríkjanna hins vegar um
sölu á frystri síld til viðkom-
andi lands árið 1963.
Samkvæmt samningnum kaupa
Sovétríkin 12.000 tonn af freð-
síld á S53:0:0 tonnið cif Eystra-
saltshöfn. Afskipanir eiga að fara
fram á tímabilinu febrúar til
júní. Gengið er út frá að búk-
fita sé að minnsta kosti 10%-
Af hálfu S.H. og S.Í.S. unnu
að þessum samningum þeir Árni
Finnbjömsson, sölustjóri og Val-
garð J. Ólafsson, framkvæmda-
stjóri.
þykkt fræðsluráðs koma til af-
greiðslu í bæjarstjórn eða bæj-
arráði.
Þá flutti Karl tillögu í bæjar-
stjórn, að þessi staðaruppbót
yrði greidd kennurum og var hún
felld með fjórum atkvæðum
gegn fjórum.
Kennarasamtökin telja sig
þannig aldrei hafa fengið neitt
svar við málaleitun sinn um
þetta og aldrei neina afgreiðslu
á tillögu fræðsluráðs og hafa
kennarar í bamaskólanum og
gagnfræðaskólanum ákveðið að
hætta allir yfirvinnu frá næstu
mánaðamótum, fái þeir ekki
jákvæðar undirtektir og niður-
felling þriðjubekkjadeilda í gagn-
fræðaskólanum er einnjg gerð
til þess að knýja fram samþykkt
frá bæjarstjóm.
Þannig sverfur nú til stáls
milli kennarasamtakanna í Eyj-
um og bæjarstjómarmeirihluta
íhaldsins, sem virðist hafa of-
arlega í huga gamalgróna kenn-
ingu að bókvitið verði ekki látið
í askana og unglingar og böm
séu betur geymd \ frysthúsum
staðarins.
Á eindálka myndinni sést Pétur Jónsson, einn af starfsmönnum mótsins, blaða i plöggum sínum. A
þrídálka myndinni sjást 3 af skákmönnum Útvarpsins. Næstur á myndinni er Baldur Pálmason að
hugsa Ieik, þá er Jón Magnússon, sýnilega að skoða' stöðuna hjá Baldri, og Ioks Sigþór Marinós-
son. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Tillögur ríkisstíórnarinnar
um beina kauplækkun
Eins og áður hefur verið skýrt frá hér í blaðinu
felur tilboð ríkisstjórnarinnar í sér beina LAUNA-
LÆKKUN til ýmissa opinberra starfsmanna. Hef-
ur ríkisstjórnin nú séð þann kost vænstan að
breyta tilboði sínu um átta lægstu flokkana, eins
og sagt var frá í blaðinu í gær, en þrátt fyrir
þá breytingu standa enn lækkunartillögur hjá
ýmsum hópum. Hér skulu rakin nokkur dæmi.
Afgreiðslumenn á skrifstof-
um, sem starfa samkvæmt 12
launaflokki, fá nú í kaup kr.
Asíuinflúenzufaraldur
herjar í Bandaríkjunum
Fyrir nokkru kom upp inflú-
enzufaraldur í Bandaríkjunum og
mun hann nú vera orðinn allút-
breiddur, einkum í austurríkjun-
um. Er hér um að ræða svokall-
aða Asíuinflúenzu.
Þjóðviljinn sneri sér 1 gær td
landlæknis og spurðist fyrir um
það hvort nokkrar ráðstafanir
hefðu verið gerðar til þess að
koma í veg fyrir að veikin bær-
ist hingað til lands. Svaraði
landlæknir því til, að eftir þeim
upplýsingum sem hann hefði feng-
ið væri hér ekki um sérlega skæð-
an faraldur að ræða og he’fðu enn
ekki verið gerðar neinar sérstak-
ar ráðstafanir fil þess að hindra
það að veikin bærist hingað.
5.517. Samkvæmt hinum end-
urbættu tillögum ríkisstjórn-
arinnar eiga þeir að fá kr.
5.250 eftir 3ja ára starf. Það
er 4,9% lækkun. Eftir 10 ára
starf eiga þeir að fá kr. 5.500.
Það er 0,3% lækkun.
Afgreiðslufólk, sem unnið
hefur sjálfstæð afgreiðslu-
störf samkvæmt 10. launa-
flokki, hefur nú kr. 6.352 á
mánuði. Samkvæmt hinum
endurbættu tillögum ríkis-
stjórnarinnar á það að fá kr.
5.750 eftir þriggja ára störf.
Það er 9,2% lækkun. Eftir
10 ára starf á það að fá kr.
6.000. Það er 5,6% lækkun.
Innheimtumenn, sem starf-
að hafa samkvæmt 10. launa-
flokki, hafa nú kr. 6.352 á
mánuði. Samkvæmt hinum
endurbættu tillögum ríkis-
stjórnarinnar eiga þeir að fá
kr. 5.950 eftir 3ja ára starf.
Lækkun 6,4%. EftÍT 10 ára
starf eiga þeir að fá kr. 6.250
Lækkun 1,7%.
Sölumenn Áfengis- og tó-
baksverzlunar ríkisins, sem
unnið hafa samkvæmt 9.
launaflokki, fá nú kr. 6.784
á mánuði. Samkvæmt hinum
endurbættu tillögum ríkis-
stjórnarinnar eiga þeir að fá
kr. 6.350 eftir 3ja ára störf.
Lækkun 6,4%. Eftir 10 ár
eiga þeir að fá kr. 6.650.
Lækkun 2%.
, Viðgerðarmaður Veður-
stofu fær nú kr. 6.784 á mán-
uði samkvæmt 9. launaflokki.
Samkvæmt tillögum ríkis-
stjórnarinnar er kaupið eftir
3ja ára starf kr. 6.350. Lækk-
Sýningar i*jóð-
leikhússins orðn-
ar 2500 ekki
25 húsund
Auðvitað fær talan, sem við
birtum í fyrirsögn í fremsta
dálki á forsíðu Þjóðviljans í gær,
ekki staðizt — einu núllinu er
þar ofaukið og gerir aldeiljs
strik í reikninginn. A þeim 13
árum sem Þjóðleikhúsið hefur
starfað eru sýningar þar orðn-
ar 2500 talsins — ekki 25 þús-
und eins og prentað var hér í
blaðinu.
un 6,4%. Eftir 10 ára starf
á kaupið að vera kr. 6.650.
Lækkun 2%.
Varðstjórar Fríhafnar fá
nú kaup samkvæmt 8. launa-
flokki kr. 7.277. Samkvæmt
tillögum ríkisstjórnarinnar á
kaup þeirra að vera kr. 6.800
eftir 3ja ára starf. Lækkun
6,6%. Eftir 10 ára starf eiga
þeir að fá kr. 7.150. Lækk-
un 1,8%.
| Algerlega |
( ólœknandi |
| bíladella |
® Fyrir tveim nóttum var í
| tckinn réttindalaus piltur W
^ við akstur. aHnn hafði að *
vísu einhverntíma haft rétt- B
£ indi, en þau verið dæmd k
I af honum ævilangt fyrir B
™ einhverjar sakir. Pilturinn k
hefur oft bíla undir hönd- ^
um, þar sem hann stundar jk
bílaviðgerðir og freistingin B
á það til að bera hann of- b
urliði. Hann hefur verið B
margtekinn eftir að hann b
missti réttindin.
I þetta sinn var hann svo fe
óheppinn að lenda í á- J
rekstri við bróður sinn, sem B
g gerði sér lítið fyrir og kærði *
hann fyrir löereírlunni.
I
fyrir lögreglunni.
Þessii sami piltur var enn k
tekinn við sömu iðju í gær- 9
öid.
k
K