Þjóðviljinn - 21.02.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.02.1963, Blaðsíða 1
 Fimmtudagur 21. febrúar 1963 — 28. árgangur — 43. tölublað. Hættuíegur leikur unglinga Salmíaki sprautað i aagu 14ára drengs Um klukkan 9.30 í fyrra- kvöld var 14 ára piltur ad leika sér úti á götu í Gnoð- arvogi. . Gengu þá frasnhjá honum á götunni f jórir piltar nokkru eldri en hann og um Ieið og þeiir fóru framhjá hon- um sprautaði einn þeirra framan í hann einhverjum vökva er Ienti í augum hans. Brenndi vökvinn drenginn svo að a.m.k. annað auga drcngs- ins skaddaðist talsvert og varð að fara með hann strax til læknis. Er þó talið, að hann muni eklci missa sjón af völdum brunans. I sambandi við atburð þenn- an biður rannsóknarlögreglan alla sem kynnu að geta gefið einhverjar upplýsingar um, hvaða piltar hér hafa verið að verki, að gefa sig fram við hana. Að því er rannsóknarlög- reglan skýrði blaðinu frá í gær er ekki Vitað um hvers konar vökvi það var sem sprautað var í augu drengsins. Blaðið hefur hins vegar haft spurnir af því, að atvik líkt þessu hafi komið fyrir áður, þótt ekki hafi hlotizt svo al- varlegt slys af sem nú. Hefur blaðið heyrt, að unglingar hafi fundið upp á því að hrekkja hverjir aðra með því að sprauta salmíakspíritusi hverjir á aðra, en af honum er sem kunnugt er mjög sterk og vond lykt. Salmíakspíritus er hins vegar svo sterkur, að hann getur hæglega brennt illa, ef hann lendir t.d. í augu. Er hér því vissulega um mjög hættulegan leik að ræða og ættu foreldrar að brýna fyrir börnum sínum að hafa ekki slíka hrekki í frammi. Þeir skipa Sis/ía vinstri manna Þessir menn skipaj aðal- sæti á lista vinstri itnaima í Iðju. Myndin til vinstri er af Gísla Svanberjgssyni, en síðan koma, talið ofan- frá: Guðmundur Þ. bóns- son, Guðbrandur Benedikts- son, Jóhann Guðlasagsson, Katrin Þórðaróttir, Marta Þorleifsdóttir og Gunn- laugur Einarsson. á hafinu Listi vinstri manna í Iðju Framundan eru stjómarkosn- ingar í Iðju, félagi verksmiðju- fólks. Vinstrimenn hafa gengið frá sínu framboði í félaginu og er listinn þannig skipaður: Formaður: Gísli Svanbergsson, Ölgerðin. Varaformaður: ' Guðmundur Þ. Jónsson, Frigg. Ritari: Guðbrandur Benediktsson, Ax- el Eyjólfsson. Gjaldkeri: Jóhann Guðlaugsson, Svanur. Meðstjómendur: Katrín Þórðardóttir, Gefjun. Marta Þorleifsdóttir, Föt, Gunnlaugur Einarsson, Gólf- teppagerðin. Varastjórn: Guðbjörg Jónsdóttir, Nýja Efnalaugin, Þorbjörg M. Þor- bergsdóttir, Oltíma, Vilborg Tómasdóttir, Belgjagerðin. Endurskoðendur: Sigurður Valdimarsson, Rey- plast, Þráinn Arinbjarnarson, Gólfteppagerðin. Viðtal við Gísla Svanbergsson, formansefni vinstrimanna: Iðja þarf að háfa forustu, ekki hirða árangur annara I formannssæti á lista vinstrimanna í Iðju er Gísli Svanbergsson, 28 ára gamall iðnverkamaður; hann hefur starfað hjá Ölgerð Egils Skallagríms- sonar undanfarin þrjú ár og skipaði í fyrra rit- arasætið á lista vinstrimanna í félagi sínu. Þjóð- viljinn kom í gær að máli við Gísla og spurði hann um þau kjaramál sem nú ber hæst í Iðju. Þó varðskipin séu ákaflega upptekin þessa dagana við að gæta Iandhelgisskákarinnar aust ur með öllum söndum, gefa þau sér þó tíma til að aðstoða skip, sem þess þurfa með. Hér er Óðinn með síldarskipið Sigur- karfa frá Njarðvík í cftirdragi utan við Vestmannaeyjar. Nótin hefur líklega farið í skrúfuna og verið losuð með aðstoð frosk- manns af Óðni. Sigurkarfi hét áður Edda og sökk I ofsaveðri á Grundarfirði fyrir allmörg- um árum en náðist upp aft- ur. — (Ljósm. Þjóðv. G. O.). Enn sækja þrír bátar um leyfi fyrir síldartrolli Vegna þess, sem fram hefur komið um land-^ helgisveiðar báta, sem fengið hafa leyfi til að stunda síldveiðar í flotvörpu, snerum við okkur til Fiskifélagsins í gær og höfðum tal af Davíð Ölafssyni fiskimálastjóra. Vestmannaeyjum í gær. — Síld- veiðjskipin streymdu hér inn í gærdag ag fór síldin að mestu í bræðsiu Þó var Gunnólfur með 650 tunnur af bráðfallegri síld og Ófeigur II. með 300 tunn. ur af góðri síld og fór hún í frystingu Önnur skip sem iönd- uðu síld t.il bræðslu voru Krist björg með 600 tunnur. Guilborg með 900 tunnur Enlingur III. með 650 tunnur. Erlingur IV. með 800 tunnur, Meta með 800 tunnur. Afli var tregur hjá línu- bátum og eru þeir óðum að skipta yfir á net. Hann kvað það rétt, að Sindri VE og Haraldur SF hefðu á sín- um tíma fengið leyfi frá Sjávar- útvegsmálaráðuneytinu til þess- ara veiða. Leyfið hefði verið gef- ið samkvæmt meðmælum frá Fiskifélaginu. Slík leyfi hefðu verið veitt öðru hverju undanfar- in ár, en árangur veiðanna hefði jafnan verið lítill, sem enginn. Fulltrúi í Fjármálaráðuneytinu staðfesti ummæli fiskimálastjóru. Bátarnir Sindri og Haraldur fengu leyfi sín hinn 22. janúar sl. Leyfin eru veitt samkvæmt meðmælum Fiskifélagsins og með þeim skilyrðum, að eingöngu séu stundaðar síldveiðar við Suðvest- urland og ekkert annað veiðar- færi sé um borð. Þá er skipstjór- unum gert að skyldu að seí.da Fiskifélaginu skýrslu um veiðarn- ar á meðfylgjandi eyðublöðum. Loks er tekið fram, að ef bátur er staðin að verki að öðrum veið- um en síldveiðum, falli leyfið tafarlaust niður. Fulltrúinn kvað það ekkert efamál að Sindri og Haraldur hefðu verið með botntroll um borð jafnframt síldartrollinu og yrðu leyfi þeirra vafalaust aft- urkölluð. Fleiri sýna nú áhuga á síldar- trollinu. Glaður VE 270, sem tek- inn var í landhelgi á sunnudag- inn hefur sótt um leyfi. Freyja VE 260 og einn í viðbót. Um- sóknir þeirra voru sendar Fiski- félaginu til umsagnar, en vafa- lítið er að þeim verður synjað. Á 12. síðu blaðsins í dag er viðtal við skipstjóra á Sindra um þetta mál. Góð síldveiði á Síðugrunninu Allgóð sildveiði var í fyrri- nótt á austurkanti . Síðugrunns- ins og fengu 14 skip 14.150 tunn- ur, en síldin er misjöfn að gæð- um. í Vestmannaeyjum er aðeins tekjð á móti bræðslusíld úr Eyja- bátum og er þannig langt sótt hjá Reykjavíkurbátum og Suð- urnesjabátum allt að tveggja sólarhringa sigljng o<g t\'ær ferðir farnar á viku. Þessj skip fengu yfir þúsund tunnur í fyrrinótt: Leó með 1100 tunnur, Guðmundur Þórðarson með 1500 tpnnur, Pétur Sigurðs- son með 1400 tunnur, Ólafur Magnússon með 1500 tunnur Ól- afur Bekkur með 1150 tunnur og Gjafar með 1200 tunnur — Iðnverkafólk þarf að tryggja það, svaraði Gísli, að félag þess hafj forustu j kjaramálum stéttiarinnar,- Sú stjóm sem nú fer með völd í félaginu hefur? ekkert frumkvæði; hún lætur sér nsegja að hirða það sem aðrir hafa sarnið um áður og það jafnvel með hangandi hendi. Hún er alltaf á eftjr. Glöggt dæmi um það var þegar Þjóð- viljinn neyddi stjómina hrein- lega til þess að ganga eftir 5 prósentunum til alls iðnverka- fólks um daginn; þá kom glöggt í Ijós að iðnrekendur töldu sig geta gert verr við iðnverkafólk en aðra í skjólj þesis hvemig menn fara nú með völd í félag- inu. Enda gefur það auga leið hvers vegna iðnrekendur og flokkur þeirra vilja að Guðjón S. Sigurðsson fari með stjóm í Iðju. það er af eiginhagsmun- um einum saman. — Eru ekki einnig ýms sér- vandamál í Iðju sem ekki verða leystl með því að hirða aðeins það sem aðrir kunna að semja um? — Jú. í Iðju er til dæmis mjög mikið um ákvæðisvinnu; um það bil fjórði hver maður vinnur ákvæðisvinnu. Hins veg- ar semur félagið ekki um þessa vinnu heldur hver starfshópur um sig, með þeim afleiðingum að mikil ringulreið er á greiðsl- unni og margir ákvæðistaxtar óhæfílega lágir. Ekkert eftirlit er af stjómarinnar hálfu með þessu virmufyrirkomulagi, til dæmis heíur hún ekki hugmynd um hvort 5% hækkunin um dag- inn hefur alls staðar komið til framkvæmda í sambandi við á- kvæðisvinnuna. Þá væri það mikið nauð- synjamál að bæta vinnuskilyrði í verksmiðjunum. en á því sviði er víða mjög ábótavanf. En nú- verandi stjóm skortir bæði stefnu og framtiak i því efni. Enn má nefna vinnutímann. f löndunum allt umhverfis okk- ur hafa samtök iðnvorkafólks haft "rumkvæði að því að stytta vinnuvikuna, en hér verða menn að sætta sig við algerlega ó- hæfílegan vinnufíma. Ef vel ætti að vera ættj Iðja að hafa forystu fyrir því að krefjast þess að ekki aðeins 48 st. vinnuvika væri gerð raunhæf, heldur haldi menn óskertu heildarkaupi fyr- ir 44 stunda vinnuviku. En sú barátta verður ekki háð nema skipt verði um stjórn í fé- laginu — Og samstaða verklýðsfélag- anna? — Mörgum iðnverkamönnum Framhald á 12. siðu

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.