Þjóðviljinn - 13.03.1963, Side 10
RÓID í RÖSTINA
Klukkan þrjú aðfaranótt
fimmtudagsins 7. marz seig
Akraborg EA 50 út úr
Reykjavíkurhöfn. Veðrið var
eins og bezt verður á kosið,
logn og lýsti af hálffullum
mána, þannig að útlínur
Akrafjalls og Esju báru við
skímuna.
Til þess að fyrirbyggja all-
an misskilning strax í upp-
hafi er bezt að taka það
fram að Akraborg EA 50 er
ekki sama Akraborgin og hin
Akraborgin, sem flytur fólk
og mjólk uppá Skaga. Þetta
er tvítug skeið, 178 tonn og
smíðuð í Svíþjóð úr eik og
knúin áfram af 350—400 hest-
afla Alpha díselvél. Þ.e.a.s.
vélin gerir sitt bezta og bát-
urinn sitt, þannig að sameig-
inlega tekst þeim að klára
sig af 8 mílunum í góðu leiði,
en sé hinsvegar mótbyr hœg-
ir hún á sér og því meir
sem mótbyrinn er sterkari og
þegar hann er orðinn nógu
mikill stanzar hún alveg. Hún
er svo brjóstamikil, segja
karlarnir.
Og þegar við erum komnir
út fyrir Gróttu fara hinir
smámsaman að síga framúr
okkur. Akraborgin er enginn
kappsiglari. Ferðinni er heitið
suður í Miðnessjó, eða
Reykjanesröst og ætlunin er
að veiða þorsk í síldarnót,
Og um kl. 7 um morguninn
erum við komnir á miðin eft-
ir tíðindalausa ferð.
Leitað
Það er ekki nóg að vera
bara komnir á miðin og það
er ekki hægt að kasta drusl-
unni blindandi í sjóinn bara
einhversstaðar. Nei nú reynir
fyrst á hæfileikana. Það er
legið í tækjunum, horft út-
um gluggana, ýmist með kíki
eða án hans. Rórmaðurinn
hefur nóg að gera við að
breyta stefnunni eftir skipun-
um skipstjórans og nú er
krusað innan um flotann.
Eftir talstöðinni að dæma
eru lóðningarnar sæmilegast-
ar grunnt undan Stafnesinu,
en þar getum við ekki kast-
að vegna þess hve nótin er
djúp, hinsvegar er líka verið
að tala um lóðningar í Röst-
inni, en það er nú eins og
það er að kasta í sjóðbullandi
strauminn .
Á þessu gengur fram að
hádegi. Ekki kemur púnktur
á mælinn og asdicið leitar
sjálft framundan og beggja
megin við skipið. Ekki púnkt-
ur, sem kastandi er á.
Það var lambasteik í há-
deginu og í því máltíðinni
er að verða lokið kemur
rórmaðurinn í loftköstum nið-
ur stigann úr brúnni og kall-
ar: Klárir!
Það er rokið upp til handa
og fóta og ég uppí brú mund-
andi myndavélinni í allar átt-
ir hálfruglaður með kjötbita
einhversstaðar á leiðinni nið-
ur vélindið.
Við erum í Röstinni og það
er bullandi straumur, veðrið
að öðru leyti gott, gíamp-
andi sól og svolítið kul. Bát-
arnir eru allt í kringum okk-
ur. Sumir eru búnir að kasta,
aðrir róla þetta í kring hálf-
hikandi og skammt frá okk-
ur liggur sá frægi Víðir II,
með heimsfrægt kast á síð-
unni.
Kastað
Sæmundur skipstjóri er að
miða út lóðninguna og hagar
sér einsog köttur, sem er í
þann veginn að stökkva á
fugl, svo rífur hann allt í
einu upp brúarhurðina: Bauj-
una fara!
Og baujan fór.
Nú tekur við það sem heit-
ir að kasta. Nótin er keyrð
út og báturinn fer í krappan
hring að baujunni. Hún er
innbyrt og hlutverki hennar
lokið að sinni. Svo er farið
að snurpa. Mér skilst að þá
sé verið að loka nótinni í
botninn. Svo er dregið að
skipinu á kraftblökkinni og
nótin lögð klár á bátapall-
inn þangað til svo er þrengt
að fiskinum í henni að hann
kemur í Ijós á yfirborðinu.
Hann kemur þó ekki alltaf
í ljós.
Klukkustund eftir að kastað
var er lokið við að háfa
nokkur kvikindi úr nótinni,
blóðga þau og setja í kassa
á þilfarinu, einnig slatta af
loðnu, sem slæddist með í
nótinni. Og sjá, á þessum
eina klukkutíma hefur bát-
inn rekið um 5 mílur til norð-
urs fyrir straumnum.
Næsta kast er tekið um
kaffileytið. Aflinn rejmist
vera ein grásleppa.
Þetta var nú allt saman
gott og blessað svo langt, sem
það náði, þó var ekki laust
við að karlamir væru famir
að gerast langleitir eftir stóra
kastinu. Straumurinn í Röst-
inni fór harðnandi og að-
stæður til veiðanna versnuðu,
sérstaklega með tilliti til þess,
að þéttriðin sumarsíldarnót
tekur á sig meiri sjó. en stór-
rlðin þorskanót.
Síðasta kastið er tekið
þegar langt er liðið á daginn.
Lóðningin er falleg og kastið
tekst að mörgu leyti vel. Þó
hrekst nótin strax fyrir
straumnum og korkateinninn
leggst sumsstaðar tvöfaldur.
Nokkru eftir að byrjað er
að draga kemur fiskur og
fiskur upp með teininum. Það
veit á gott og þegar langt er
komið má sjá allmikla kös
af þorsk í poka yzt í nót-
inni og einmitt þá kemur
nótin í tvennu lagi. Er flett
í sundur alveg ofan frá tein-
inum og niður úr.
Það urðu miklar æfingar
við að nú inn þeim fáu kvik-
indum, sem eftir voru í nót-
inni, þegar búið var að draga.
Dræsan var óklár og eigin-
lega allt í pati og við héld-
um heim á leið með 5—6
tonn af fiski.
Flestum kom saman um að
eiginlega væri ekkert við að
vera að baksa með sumar-
nót í þessu. Eina vitið að
vera með þorskanót.
Svona fór með sjóferð þá.
G.O,
I
I
í
Vilja hafa kjaramál verkfræðinga
áfram í hendi sér
í gær var afgreitt frá neðri
deild frumvarp um staðfestingu
á bráðabirgðaiögum um hámarks
þóknun fyrir verkfræðistörf. Eins
Féll úr stiga
og slasaSist
Það slys varð í Kassagerð
Reykjavíkur í gærmorgun. að
rafvirki, Bjarni Gíslason að
■afni, er var að vinna þar i
ga féll úr stiganum niður á
'ngólf og handleggsbrotnaði
meiddist allmikið í andliti.
r hann fluttur í slysavarð-
ofuna og síðan í Landakots-
ipítala.
og áður hefur verið frá skýrt
lögðu þingmenn Alþýðubanda-
Iagsins til að frumv. yrði fellt.
þar sem fylgja ætti þeirri meg-
inreglu að leysa kjaradeilur með
samningum. Sú tillaga var hins
vegar felld af stjórnarliðinu.
Við 3ju umræðu í gær, áður
en frumvarpið kom til endan-
legrar afgreiðslu í neðri deild,
bar Einar Olgeirsson ásamt Birni
Fr. Björnssyni fram breytingar-
tillögu þess efnis, að lögin giltu
aðeins til 1. ágúst 1963, en ekki
„þar til nýir samningar um kaup
og kjör verkfræðinga, sem starfa
hjá ríkisstofnunum, hafa tekið
gildi“. Benti Einar á, að með
því að lögfesta frumvarpið með
þessu orðalagi, væri ríkisstjórn-
inni í raun og veru í sjálfsvald
sett að beita þessum þvingunar-
lögum svo lengi sem henni sýnd-
ist, og reyna á þann hátt að
beygja verkfræðinga undir vilja
sinn. Væri það bæði eðlilegt og
sjálfsagt, að Alþingi kæmi í veg
fyrir slíkt. Með tilliti til þess,
að nýr launastigi opinberra
starfsmanna á að taka gildi 1.
júlí n.k. mætti telja eðlilegt að
gefa ríkisstjóminni mánaðarfrest
frá þeim tíma til þess að semja
við verkfræðinga um kjör þeirra.
Hitt væri með öllu óverjandi.
að Alþingi sendi frá sér lög sem
þessi, þar sem heimiluð væri lög-
binding kaups eftir geðþótta rík-
isstjórnarinnar.
Breytingartillagan var felld
með 15 atkvæðum gegn 9, en all-
margir þingmenn voru fjarver-
andi. — Áður en atkvæðagreiðsl-
an hófst voru ráðherrar Sjálf-
stæðisflokksins, einkum Bjarni
Benediktsson, á hlaupum til þess
að smala saman liði sínu til þess
að fella breytingartillöguna. Og
einsog vænta mátti komu allir
ráðherrar Alþýðuflokksins hlaup-
andi á síðustu stundu til þess
að aðstoða íhaldið við að fella
þessa sjálfsögðu breytingartil-
lögu.
Árshátíð sósial-
ista í Kópavogi
Árshátíð Sósíalistafélags Kópa-
verður haldin laugardaginn
16. þ.m. í Félagsheimili Kópa-
vogs (ekki Þinghóli eins og mis-
ritaðist í blaðinu í gær) og hefst
hún kl. 20 með borðhaldi. Með-
al skemmtiatriða verður gaman-
þáttur er Sigurður Grétar Guð-
mundsson leikari flytur, gaman-
vísur sungnar af Karli Sæ-
mundssyni, dans o.fl. Miða til
sölu hafa Auðunn Jóhannesson
Hlíðarvegi 23, sími 23169, og af-
greiðslu Þjóðviljans að Týsgötu
3, sími 17500.
307 eldsvoðar urðu
í Reykjavík sL ár
Samkvæmt skýrslu frá Slökkvi-
stöðinni í Reykjavík urðu alls
307 eldsvoðar hér í borg árið
sem leið, þar af varð mikið
tjón í 15, talsvert í 46, lítið í
118 og ekkert í 128.
Kvaðningar urðu þó allmiklu
íleiri eða alls 457 en þar af var
í 74 skipti um narr að ræða og
í 68 skipti um grun um eld.
Orsakir eldsvoðanna skiptust
sem hér segir: Eldfæri og Ijósa-
tæki 33, reykháfar og rör 6, raf-
lagnir 15, rafmagnstæki 22, olíu-
kynditæki 31, íkveikjur 87, ým-
islegt 33, ókunnugt 80.
Brunastaðir skiptust hins veg-
ar þannig: Ibúðarhús 85. útihús
40, braggar 7, skip 9, bifreiðir
31, verkstæði 34, ýmislegt 101.
Flestir eldsvoðar urðu í mara
eða 65, næst kom maí 33, nóv-
ember 29 og september 27. Fsest-
ir eldsvoðar urðu í júní 9 og
febrúar 13.
Langflestar kvaðningamar bár-
ust með síma eða 363, 80 með
brunaboðum og 14 með sendi-
boðum.
Flestar kvaðningar bárust á
tímanum kl. 15—18 eða 100, 80
kl. 18—21 og 73 kL 12—15. Fæst-
ar voru kvaðningamar á tímabil-
inu kl. 3—6 eða 18 og næst kl.
6—9 23.
Stolið ár bílum Flug-
björgunnarsveitar
1 fyrrakvöld, er Ilaukur Hall-
grímsson hjá Flugbjörgunarsveit-
inni kom í eftirlitsferð í bif-
reiðageymslu sveitarinnar á
Reykjavíkurflugvelli, sá hann, að
brotizt hafði verið inn í skál-
ann og var búið að stcla hljóð-
nemunum frá senditækjunum í
öllum þremur bílunum sem Flug-
björgunarsveitin á þama geymda,
en það eru sjúkrabíll, snjóbíU
og flutningabíll.
Haukur skýrði Þjóðviljanum
SV,o ,frá í gaar, ,að eftir bílun-
um væri litið á hverjum mánu-
degi og hefði innbrotið því ver-
ið framið einhvem tíma í síð-
ustu viku eða um helgina. Engu
öðru hefði verið stolið úr skál-
anum en hljóðnemunum þrem-
ur og engar skemmdir unnar á
bílunum. I haust var hins veg-
ar brotizt inn í skálann og unn-
in þar skemmdarverk á ýmsum
munum en engu stolið í það
sinn.
Haukur sagði einnig, að það
hefði getað komið sér mjög illa,
ef Flugbjörgunarsveitin hefði
verið kvödd út fyrirvaralaust
eftir að búið var að stela hljóð-
nemunum. Væri óvíst að eftir
því hefði verið tekið fyrr en af
stað var komið og þá að sjálf-
sögðu hægra sagt en gert að
afla nýrra hljónema í skyndi
Hefði þessi þjófnaður því getað
Háskólafyrir-
lestur í dag
Prófessor, dr. Carlo Schmid, 1.
varaforseti sambandsþingsins í
Bonn, sem hér er í boði Há-
skólans, mun flytja fyrirlestur í
hátíðasal Háskólans í dag kl.
5.30 e.h. Fyrirlesturinn nefnist
„Der europáische Mensch —
eine geistesgeschitliche Analyse"
öllum er heimill aðgangur að
fyrirlestrinum.
Bátur strandar
fsafirði í gær.
Rétt fyrir miðnætti í fyrra-
kvöld renndi báturinn Guðný
upp á klöpp í vörinni í Amar-
dal og sat þar festur.
Guðný er sjötíu og fimm tonna
stálbátur og var að koma úr
róðri, þegar báturinn tók niðn.
Sjólaust var og austan gola. Á
níunda tímanum f morgun dró
Fagranes Guðnýju af klöppinni
og urðu litlar skemmdir á bátn-
um.
Orsakir strandsins eru ókunn-
ir. — E.
haft ófyrirsjáanlegar afleiðingar.
Er hart til þess að vita að
þjófar og óknyttapiltar skuli
ekki geta séð tæki sveitarinnar
í friði, svo mikið sem er í húfi,
að hún sé ætíð reiðubúin til
starfa, ef slys ber að höndum.
Bidault aftur
frjáls maður
MÚNCHEN 12/3 — Georges Bid-
ault er aftur frjáls ferða sinna
eftir tveggja daga yfirheyrslur
vesturþýzkra lögreglumanna sem
komust að þeirri niðurstöðu að
hann hefði ekki framið neitt
saknæmt athæfi í Vestur-Þýzka-
landi. Franska stjómin er sögð
ekki hafa neitt á móti því að
Bidault fái griðastað í Vestur-
Þýzkalandi sem pólitískur flótta-
maður, en þó með þvi skilyrði að
hann hætti öllum afskiptum af
starfsemi leynihreyfingarinnar
gegn de Gaulle.
Frakkland
Framhald af 1. síðu
lega og væru þá alger vand-
ræði fyrir dyrum.
Málamiðlun de Gaulle?
Enginn veit hvað de Gaulle
ætlast fyrir, en hann á ekki
margra góðra kosta völ. Reynl
hann að framkvæma nauðungar-
tilskipun sína frá 3. þ.m., gæti
það haft hinar verstu afleiðing-
ar og jafnvel leitt til blóðugra
bardaga milli verkamanna og
ögreglu. Gangi hann hins vegar
að kröfum námamanna má telja
víst að verkamenn i öðrum
starfgreinum knýi einnig fram
verulegar kauphækkanir.
Æskulýðsráð efnir til kvik-
myndasýningar í tómstundaheim-
ilinu, Lindargötu 50. kl. 9 í
kvöld (miðvikudag).
Sýndar verða nokkrar stutt-
ar kvikmyndir um frimerki.
Allir ungir frímerkjasafnarar
eru velkomnir meðan húsrúm
leyfir
★ ÆFR
Æskulýðsfylkingin efnir til
skíðaferðar um næstu helgi i
Skíðaskálann. Allir velkomnir.
Tilkynnið þátttöku í síma
17513.
í.i
*
4