Þjóðviljinn - 14.03.1963, Page 1
Minnum á að áskrifendasöfnunin stendur sem hæst!
Fimmtudagur 14. marz 1963 — 28. árgangur — 61. tölublað.
Almannatrygginga
lögin endurskoðu
:;i^3SfÍjÍ^iiii:yÍ%:i:iáÍ^ÍHff!!^ÍjÍrtái:ii
Það var Indriði sem reiðávað-
ið í útvarpsþætti Péturs Péturs-
sonar og kom „mínum manni"
í land, en síðan hafa þau leitt
söguhetjuna um ýmsa stigu
Kristmann, Agnar Þórðarson,
Ásta Sigurðar, Jökull Jakobsson.
Hanna Kristjánsdóttir, Gunnar M.
Magnúss, Guðrún frá Lundi,
Gvendur Hagalín og Rósberg
Snædal. — N.N. frá Nesi hefur
gert tilbrigði við útvarpssöguna
af „okkar manni“ og birtist það
í fjórum köflum á sögusíðunni
— hinn fyrsti í dag.
Góðtr afli hjá
togurunum
Togararnir hafa aflað sæmilega
undanfarið. Pétur Halldórsson
var að landa hér í gær 150 tonn-
um, Skúli Magnússon landaði 163
tonnum fyrir skömmu og Þorkell
máni landaði 130. tonnum. 1 dag
er von á Aski með 150 tonn.
'• í gær var lagt fram á Alþingi 'frumvarp til
laga um almanna'fryggingar, og er hér um að
ræða heildarendurskoðun á núverandi trygging-
arlöggjög. Félagsmálaráðherra skipaði í septem-
ber 1960 nefnd til þess að endur.skoða lögin og
hefur hún nú lokið störfum.
• Nefndin hefur haft^
til meðferðar ýmsar til-
lögur og frumvörp um
endurbætur tryggingar-
laganna, sem komið hafa
fyrir Alþingi síðustu ár,
Ekki verður að svo
stöddu farið nánar út í
þær breytingar á trygg-
ingalöggjöfinni, sem í
írumvarpinu felast, en
nánari grein verður gerð
fyrir þeim hér í blaðinu
innan skamms
• Þess má þó geta að
lokum, að samkvæmt
fylgiskjali frá Trygg-
ingastofnuninni, sem
fylgir frumvarpinu, er
gert ráð fyrir að heildar-
útgjaldaaukning vegna
breytinganna, sem í
frumvarpinu felast,
muni nema rúmum 54
milljónum króna.
Skemmdarverk
f fyrradag hafði lögreglan
hendur í hári 4 stráka 11—12
ára er höfðu gerzt sekir um
skemmdarverk og hnupl í Héð-
inshöfða. Eins og kunnugt er
stendur húsið autt og mann-
laust en Æskulýðsráð hefur
fengið þar húsnæði til afnota
hjá bænum íyrir starfsemi sína.
Höfðu strákar þessi brotizt þar
inn þrívegis nýverið og stolið
nokkrum flugmódelum er Æsku-
lýðsráð átti þar í geymslu en
auk þess höfðu þeir unnið veru-
leg spelivirki, brotið 64 rúður í
kjallara hússins.
ÞAU TfÐlNDI gerðust hér í
Reykjavík í fyrradag að tog-
abi kom inn með fullfermi, eða
því sem næst. Haukur var að
veíðum undan Jökli og kom
inn með 300 tonn af karfa.
SVO MIKILL AFLI hefur víst
ekki komið á land í Reykja-
vík úr togara í meira en ár.
Skipstjóri á Hauk er Arni
Jónsson, sem var 1. stýrimað-
ur á honum í 2 ár, en fór nú
sinn fyrsta túr, sem skipstjóri.
Má því segja að hann byrji vel.
MYNDIN var tekin í gær við
togarabryggjuna, er verið var
að Iesta b.v. Hauk ís.
, (Ljósm. Þjóðv. G.O.).
Mynd eftir Gunnlaug
Blöndul í hæstu verði
Á listmunauppboði Sigurðar
Benediktssonar í gær, var boð-
ið hæst í málverk eftir Gunn-
Iaug Blöndal, Kona á íslenzkum
þjóðbúnlingi, er hann málaði í
París árið 1930. Fyrir uppboðið
var komið 20 þúsund króna boð,
en myndin var slegin Lofti
Bjarnasyni á 31 þúsund krónur.
Blómamynd eftir Kristínu
r 41
!
!
Árshátíðin er í kvöld
KI. 8.30 hefst árshátíð Sósíal-
istafélags Reykjavíkur og
ÆFR á Hótel Borg og er ekki vegi 18 og afgreiðslu
að efa að þar verður fjöl- viljans, Týsgötu 3 .
menni saman komið. Af dag-
skráratriðum má ncfna: Páll
Bergþórsson veðurfræðingur,
formaður Sósíalistafélags
Reykjavíkur flytur ávarp, Jón
Sigurbjörnsson óperusöngvari
syngur einsöng, Karl Guð-
mundsson Ieikari flytur gam-
anþátt og Ingibjörg Haralds-
dóttir les upp úr „Óljóðum"
Jóhannesar úr Kötlum. Sós-
íalistar í Reykjavík eru hvatt- „
ir til að fjölmenna á árs- |
hátíðina og tryggja sér að-
göngumiða tímanlega í dag,
en þelr eru seldir i skrif- !
stofu Sósíalistafélagsins,
Tjamargötu 20, bókabúð
Máls og menningar, Lauga- Karl Guðmundsson.
Þjóð-
Jón Sigurbjörnsson. Mals og menmngar, Lauga- Karl Guðmundsson. ^
Jónsdóttur fór á 21 þúsund krón-
ur og Þingvallamynd eftir Kjar-
val, máluð 1930, fór á 25 þús-
und krónur. Þorkell Þorsteinsson
keypti Kjarvalsmyndina.
Á uppboðinu voru nokkur verk
eftir Ásgrím Jónsson úr dánar-
búi dansks málara og mynd-
höggvara er var vinur Ásgríms.
Hæst verð var boðið í vatnslita-
mynd frá Stapa á Snæfellsnesi,
19 þúsund krónur ,en olíumál-
verk úr Borgarfirði, gert 1903 að
því talið er, fór á 14 þúsund kr.
Þjóðsöguteikning var slegin á 12
þúsund krónur, en fáar slíkar
myndir munu í eigu almennings.
Málverk eftir Jón Stefánsson,
Þingvallavatn, var slegið á 19
þúsund krónur.
Á uppboðinu var ein mynd
eftir Þóarin B. Þorláksson og
fór sú mynd á lítið, eða 3500
krónur, enda mótífið af dönskum
sveitabæ. Þá var lágt gengi á
stóru olíumálverki eftir Jón
Engilberts, en það var slegið á
2.700 krónur.
Ekki var mikið kapp í mönri-
um að bjóða og mátti Sigurður
oft særa menn til að koma með
„sómasamleg" boð. Einkum lagði
hann sig fram er hann bauð
til sölu mynd eftir Kjarval er
hann nefndi Mynd milli þátta.
Sigurður sagði, að sú mynd væri
hrein afstraktsjón og „það kæmi
sú tíð, að afstraktsjónir eftir
Kjarval yrðu dýrar“. Sigurður
var með 7 þúsund króna boð í
Framhald á 2. gíðu.
Deilur kommúmstaflokkanna
Krústjoff boðið að
koma til Peking
PEKING 13/3 — Kommúnistaflokkur Kína hefur boðið
Nikita Krústjoff, forsætisráðherra Sovétríkjanna eða ein-
hverjum öðrum leiðtoga sovézkra kommúnista, að koma
til Peking að ræða deilumál flokkanna. Geti þeir ekki
þegið það boð, segjast Kínverjar reiðubúnir að senda leið-
toga sína til Moskvu.
Þetta má ráða af bréfum sem
farið hafa milli ílokkanná að
undanförnu og fréttastofan
Nýja Kína birti í dag.
Tassfréttastofan sovézika sagðj
í dag að kínverska stjómin hefði
lagt til að Krústjoff kæmi við í
Peking á ferð sinni til eða frá
Kambodja, en þangað fer hann
bráðlega í opinbera heimsókn.
Bréf kínverska flokksins þar
sem stungið er upp á viðræðu-
fundi leiðtoga flokkanna var af-
hent sovézka sendiherranum í
Peking 9. marz og er þar lagt
til að í viðræðunum verði fjallað
um hvert eiristakt atriði
ágreiningsins.
Málsatriðin
Málsatriðin sem um ræðir eru
sögð þessi; Baráttuaðferðir
hinnar byltingarsinnuðu verka-
lýðshreyfingar, baráttan gegn
heimsvalda-stefnunni og verndun
heimsfriðarins, lausn kúgaðra
þjóða undan okinu, leiðir til að
efla einingu hinnar alþjóðlegu
verkalýðshreyfingar og önnur
mál sem báðum eru hugleikin.
Á jafnréttisfirundvelli
öll þessi atriði, segir í bréf-
inu, verður að ræða og kryfja tii
mergjar í samræmi við grund-
vallarkenningar marx-lenínism-
ans og þau meginatriði sem lát-
in voru ; ]jós í Moskvuyfirlýs-
ingunum tveimur. Viðræðumar
eiga að fara fram á algemrn
jafnréttisgrundvelli. Gera skal
samning milli flokkann um
þau atriði sem báðir eru á eitt
sáttir um, en önnur verða að
bíða betri tíma. Takist ekki að
komast að íullu samkomulagi í
fyrstu lotu. verður að taka upp
viðræðumar síðar.
Sovézk uppástunga
Bréf Kínverjanna er svar við
bréfi frá sovézka flokknum sem
er dagsett 21. febrúar. í því var
einmitt lagt til að leiðtogar
flokkanna kæmu saman til að
fjalla um deilumálin. Einnig í
því bréfi er lögð megináherzla á
jafnrétti bræðraflokkanna.
— Við verður að horfast í
augu við þá staðreynd. segir í
svari Kínverja, að djúpstæður
ágreiningur er kominn upp inn-
an hinnar alþjóðlegu verklýðs-
hreyfingar um mörg veigamikil
Framhald á 2. síðu
Árshátíð
Dagsbrúnar
n,k. laugardag
Arshátíð Verkamannafélagsins
Dagsbrúnar verður næstkomandi
Iaugardagskkvöld og hefst með
borðhaldi kl. 8 e.h. í Iðnó. Leik-
ararnir Brynjólfur Jóhannesson,
Róbert Arnfinnsson og Rúrik
Haraldsson sjá um skemmtiatr-
iði. — Dans á eftir.
Dagsbrúnarmcnn eru hvattir
til þess að sækja árshátíðina.
Aðgöngumiðar fyrir félagsmenn
og gesti þeirra verða seldir í
skrifstofu félagsins í dag og á
morgun (fimmtudag og föstu-
dag.)
Ekki samninga-
fundur í BSRB-
deilunni í gær
Ems og frá var sagt í
Þjóðviljanum í gær hafa
kjararáð BSRB og samn-
inganefnd ríkisstjómarinn-
arinnar setið á löngum
fundum undanfama daga
og hefur viðfangsefni þeirra
verjð niðurröðun opinberra
starfsmanna í launaflokka.
1 gær var gért hlé á við-
ræðum og hafði nsesti fund-
ur ekki verið boðaður síð-
degis í gær en þó var búizt
við að fundur yrði í dag,
enda á fresturinn sem að-
ilar hafa til samninga að
renna út 15. þ.m., ef hann
verður ekki enn framlengd-
ur. Verður að ætla að
samningaleiðin verði reynd
til þrautar í stað þess að
vísa málinu strax til kjara-
dóms.
I