Þjóðviljinn - 16.03.1963, Blaðsíða 1
ÚTGÁFA TÍMARITSINS
LEIKHIÍSMÁLA HAFIN
Á forsíðu hins nýja tímarits um leikhús-
mál er mynd af Haraldi Björnssyni í hlutverki
sínu í „Biedermann og brennuvargarnir“ — en
Haraldur hefur gefið ritinu nafn — Sjá frétt
á 12. síðu.
eftir víðtæka leit
Þriggja ára drengur
týndist í fyrrakvöld frá
bænum Giljahlíð í
Flókadal í Borgarfirði
og fannst lík drengsins
litla á níunda tímanum
í gærmorgun við svo-
kallaða Geirsá, sem
rennur spölkorn frá
bænum. Drengurinn hét
Þorsteinn og var sonur
þeirra Sigríðar Þor-
steinsdóttur og Mein-
hart Berg, sem búa í
Giljahlíð.
Talið er að drengurinn
hafi króknað úr kulda
um nóttina.
Þorsteinn litli haföi farið út
úr bænum um kl. 6 síðdegis og
hafði varla liðið stundarfjórð-
ungur, þegar hans var saknað,
enda ekki klæddur til útivistar
og brátt liðið að matmálstíma.
Þegar fyrsta eftirgrennslan bar
ekki árangur, brugðu nágrannar
skjótt við og aðstoðuðu við leit-
ina og síðar slóst í leitarflokk-
inn nemendur frá Reykholti og
Hvanneyri og eftir því sem dróst
að finna litla drenginn komu
menn frá Akranesi og Borgar-
nesi og víða úr héraðinu og hófu
skipulega leit alla nóttina. Skiptu
leitarmenn hundruðum og not-
uðu Ijós af ýmsum stærðum
í leitinni.
Sporhundurinn Nonni frá
Hafnarfirði var sendur ásamt
gæzlumönnum með sjúkraflug-
vél Björns Pálssonar og lenti
hún í fyrrakvöld að Stóra Kroppi
og lýstu átta bifreiðar upp lend-
ingabrautina.
Framhald á 3. síðu.
-<$>
Bæjarstjórn Kópavogs undirbýr
aukningu atvinnuframkvæmda
Á bæjarstjórnarfundi í Kópavogi í gær lagði
Hjálmar Ólafsson bæjars’tjóri fram álit atvinnu-
málanefndar þeirrar er starfað hefur undanfarið á
vegum bæjarstjórnarinnar.
Kópavogur hefur byggzt örarl Kópavogi 26% á sama tíma og
en nokkurt annað bæjarfélag | hún var 3,9% í Reykjavík. Mið-
á Iandinu. og með allt öðrum i að við íbúatöluna árið 1940 óx
hætti. A árabilinu 1945—19501 Kópavogur á þessu árabili um
var t.d. árleg íbúafjölgun í
Samið
suðu
nilur-
á reyktri
Sulurlandssíld
Samkvæmt fréttatilkynningu sem blaðinu hefur borizt frá for-
stjóra Dósaverksmiðjunnar, Árna Kristjánssyni, hafa tekizt samn-
ingar á milli fjögurra fyrirtækja hér í Reykjavík og niðursuðu-
verksmiðja í Stavanger í Noregi um samstarf við niðursuðu reyktr-
ar Suðurlandssíldar þannig að íslenzku aðilarnjr ætla að koma
sér sameiginlega upp niðursuðuverksmiðju en norska fyrirtækið á
að annast söluna á erlendum mörkuðum.
Islenzku fyrirtækin sem að samningum þessum standaeru Júpiter
og Marz h.f., Ora h.f., Matborg h.f. og Dósaverksmiðjan h.f, en
norska fyrirtækið er Bjelland niðursuðuverksmiðjumar í Stavangri,
sem er einn stærsti framleiðandi og útflytjandi á fiskniðursuðu-
vörum í Noregi.
Frá samningum þessum var gengið er meðeigandi og forstjóri
Bjelland verksmiðjanna kom hingað til lands og dvaldi hér í
Reykjavík 9,—14 þ.m.
217,1%,
Á árabilinu 1955—1960 óx í-
búatala Kópavogs til jafnaðar
á ári 10,4% en um 2,5% í
Reykjavik.
Kópavogur byggðist ekki upp
utan um atvinnufyrirtæki, eins
og öll önnur bæjarfélög á land-
inu, heldur sem íbúðahverfi fyrir
fólk sem vann í Reykjavík, en
fékk þar hvorki húsnæði né
lóðir til að byggja á.
Fjölgun* atvinnutækja í bæn-
um sjálfum hefur því verið á-
hugamál og viðfangsefni bæj-
arstjórna Kópavogs frá upphafi.
Hin öra fjölgun íbúa hefur lagt
bænum svo miklar fjárhagsbyrð-
ar á herðar að geta bæjarfé-
lagsins til að ráðast sjálft í at-
vinnuframkvæmdir hefur verið
mjög lítil. Þýðingarmesta fram-
kvæmdin á því sviði hefur ver-
ið hafnargerðin sem hafin var
1950 og unnið hefur verið að
síðan.
Á sl .sumri kaus bæjarstjórn
Kópavogs atvinnumálanefnd, sem
auk bæjarstjórans, Hjálmars
Ólafssonar, var skipuð 1 fulltrúa
frá hverjum flokki bæjarstjórn-
arinnar. Var álit nefndarinnar
lagt fyrir bæjarstjórnarfund í
gær.
I niðurstöðum nefndarinnar
segir m.a. svo: „Kópavogur er
hluti af stærra atvinnusvæði.
Nefndin telur að sú skipan
muni varanleg og að ekki muni
þjóna neinum jákvæðum tilgangi
að stefna að fullri samsvörun
milli búsetu og atvinnusóknar
innan bæjarfélagsins. Hinsvegar
megi telja bæjarbúa óhæfilega
háða atvinnusókn í grannbæina,
Framhald á 2. síðu.
Rangar fréttir orsaka
loðnustríi fyrir norðan
Þær frcttir hafa gcngið ‘fjöll-
unum hærra hér í bænum og út-
um land að loðnan, sem veiðist
í Keflavíkurhöfn, sé keypt þar á
sama verði og síld til bræöslu.
Þetta hefur m.a. orðið til þess að
miklir úfar hafa risið á Akureyri
þar sem von er á loðnugöngu
einhvern næstu daga.
Nokkrir útgerðarmenn þar í
bænum hafa athugað möguleika
á að veiða loðnuna til bræðslu
og hafa þeir átt tal við forstjóra
síldarverksmiðjunnar á Krossa-
nesi, en hann hefur til þessa ekki
fengizt til að lofa þeim hærra
verði en 35—40 aurum á kílóið.
Þeir telja sig hinsvegar eiga rétt
á sama verði og loðnuveiðimenn
syðra og bera fyrir sig fréttir í
Morgunblaðinu og útvarpinu þess
efnis að hún seljist á 74 aura.
Þjóðviljinn átti í gærkvöld tal
við Huxley Ólafsson í Keflavík
og sagði hann það alrangt að
loðna væri keypt fyrir sama verð
og síld. Verksmiðjurnar á Suð-
urnesjum borga 50 aura fyrir
kílóið af henni kominni í þró.
Loðnan er að ýmsu leyti verra
hráefni en síldin, að sögn Hux-
leys, nýting hennar til mjöl-
framleiðslu er ekki nema 15%
(pýting síldar er 20%) og úr
henni fæst mjklu minna lýsi.
Mjölið er eingöngu selt til
skepnufóöurs og er í lægra verði
á heimsmarkaðinum en síldar-
mjölið. Þannig hjálpast allt að
til að halda verðinu niðri. Að
síðustu sagði Huxley að 50 aurar
væri jafnvel heldur hátt verð.
Á það síðastnefnda getum
við ekki lagt dóm, en undarlegt
má það vera ef Krossanesverk-
smiðjan, sem rekin er af Akur-
eyrarbæ, getur ekki gefið sínum
heimamönnum jafnhátt verð fyr-
ir loðnuna og fæst hér syðra.
‘Verksmiðjumar suður með sjó
myndu ekki kaupa hana á þessu
verði ef þær töpuðu á því og
það myndi Krossanesverksmiðjan
trúlega ekki gera heldur.
Ný/ar h/úkr-
unarkonur
útskrifust
Nú um miðjan mánuðinn
var brautskráður 21 nem-
andi frá Hjúkrunarskóla Is-
lands og fara nöfn þeirra
í stafrófsröð hér á eftir.
Agla Sigríður Egilsdóttir
frá Reykjavík. Ambjörg
Sigríður Pálsdóttir frá R-
vík. Ásdís Þóra Kolbeins-
dóttir frá Akureyri. Björk
Sigurðardóttir frá Reykja-
víik. Elín Jónsdóttir frá
Lyngholti, Garðahreppi,-
Gullbr.sýslu. Gerður Ólafs-
dóttir frá Akureyri. Guðrún
Broddadóttir frá Reykjavík.
Guðrún Elíasdóttir frá Akra-
nesi. Guðrún Kristinsdóttir
frá Reykjavík. Helga Ólafs-
dóttir frá Reykjavík. Ingi-
björg María Eggertsdóttir
frá Akureyri. Ingileif Stein-
unn ólafsdóttir frá Hafnar-
firði. Jóhanna Gréta Bene-
diktsdóttir frá Reykjavík.
Karítas Kristjánsdóttir frá
Hólum í Hjaltadal. Karitas
Kristjánsdóttir frá Reykja-
vík. Lilja Vestmann Daní-
elsdóttir frá Akranesi. Lilja
Jónsdóttir frá Sauðárkróki.
Liselotte Else Hjördís Jak-
qbsdóttir frá Reykjavik.
Rita Inger Ota Eriksen frá
Reykjavik. Vera Ruth Fred-
eriksen frá Ribe Danmörku.
Vilborg Elma Geirsdóttir frá
Reykjavík.
Hér að ofan er svo mynd
af þessum fríða meyjaflokki
sem Vigfús Sigurgeirsson
tók en því miður vitum við
ekki hver er hver á mynd-
inni.
Kosin stjórn
Síðastliðinn þriðjudag var hald-
inn aðalfundur og kosin stjóm
í A.S.B., félagi starfsstúlkna í
mjólkur og brauðsölubúðum og
voru eftirtaldar konur kosnar í
stjóm. Birgitta Guðmundsdóttirj
Framhald á bls. 2.
/