Þjóðviljinn - 21.03.1963, Page 5
T
Fimmtudagur 21. marz 1963
ÞJÓÐVHJINN
SÍÐA 5
Frá aðalfundi Ármanns
Nærri 1000 manns æfa hjá
Glímufélaginu Armanni
utan úr heimi
Aðalfundur Glímufélagsins Ármanns var
haldinn 18. desember s.l. f Ármanni eru
starfandi fleiri fþróttadeildir en í nokkru
öðru félagi — 10 alls —• og fleira íþrótta-
fólk æfir hjá Ármanni en hjá nokkru öðru
íþróttafélagi á landinu.
Formaður félagsins, Jens Guð-
bjömsson, setti fundinn og bauð
fundarmenn velkomna. I upp-
hafi fundarins minntist for-
maður látinna félaga á starfs-
árinu og rakti störf þeirra í
þágu félagsins, en félagar þess-
ir voru Bjöm Rögnvaldsson,
Ólafur Ölafsson og Erla Lars-
dóttir. Fundarmenn heiðruðu
minningu þeirra með því að
rísa úr sætum. Var síðan geng-
ið til dagskrár. Fundarstjóri
var kjörinn Gunnlaugur Briem,
en fundarritari Guðbrandur
Guðjónsson.
972 við æfingar
Starfsskýrsla félagsins ’.á
frammi fjölrituð og einnig
reikningar félagsins. Reikning-
ar sýndu, að síðan félaginu var
skipt ni.ður í stjálfstæðar deild-
ir, hefur fjárhagur þess stórlega
batnað. Starfsskýrslan bar það
með sér, að mikið og ötult starf
hefur verið hjá félaginu og
margir íþróttamenn félagsins
hafa staðið í fremstu röð 1-
þróttamanna hér á landi. Hjá
félaginu æfa nú 972 félagar og
mun það vera lang hæsta tala
félags er æfa hjá einu félagi.
Margar sýningar
Fastakennarar félagsins voru
15 talsins, en að auki voru
margir af beztu íþróttamönnum
félagsins þeim til aðstoðar. Á
vegum félagsins voru haldnar
21 sýning á árinu og tókust
þær allar vel, og voru félaginu
til sóma. Glímudeild Ármanns
sýndi tólf sinnum á árinu, þæði
Jens Guðbjörnsson
form. Ármanns í 37 ár.
glímu og hráskinnsleik. Hrá-
skinnsleikur er ný endurvakinn
hér á landi og mun hann hvergi
vera iðkaður nema hjá Ármanni
leikur þessi var mikið iðkaður
til forna.
Hin unga Júdó-deild félagsins
hefur sýnt á nokkrum stöðum
og ávallt við mikla hrifningu.
enda er íþrótt þessi fögur og
krefst mikillar leikni.
Sunddeild Ármanns, hefur
tekið þátt í öllum mótum hér
í Reykjavík og nágrenni og
hefur verið íslands-
meistari óslitið síðan 1941 ug
Reykjavíkurmeistarar hafa þeir
IOC setur umsóknar-borgum skilyrði
Hvar verða næstu
olympíuleikar?
Lausanne, Sviss, 15/3 — Al-
þjóða-olympíunefndin — (IOC)
hefur sent orðsendingu til aUra
þeirra borga, sem sótt hafa um
að fá að skipuleggja og halda
olympíuleikana 1968. Samkvæmt
ákvörðun IOC verða þessar
borgir að útvega skriflega
tryggingu viðkomandi ríkis-
stjórna fyrir því, að öllum þátt-
takendum verði heimiluð vega-
bréfsáritun og óhindruð ferð
inn í þessi lönd.
Ef einhver borgin, sem sótt
hefur um að halda leikina, get-
ur ekki útvegað slíkt trygginga-
bréf fyrir 1. október n.k. verð-
ur hún strikuð út af umsæk-
endalistanum.
Avery Brundage, forseti IOC,
og Otto Mayer, framkvæmda-
stjóri, hafa undirritað bréf um
þetta efni til ofangreindra
borga. Þær borgir sem sótt
hafa um að halda sumarleikina
1968 eru: Buenos Aires (Argen-
tínu), Detroit (USA), Lyon
(Frakkl) og Mexíkóborg.
Eftirtaldar borgir hafa sótt
um að halda vetraolympíuleikina
Gleymið ekki að
mynda bamið
1968: Calgary (Kanada), Gre.i-
oble (Frakkl), Lathi (Finnlandi),
Lake Placid (USA), Sapporo
(Japan) og Sion (Sviss).
Á ráðstefnu IOC í Nairobi í
Kenya í októbermánuði n.k
verður endanlega ákveðið I
hvaða borgum olympíuleikamir
1968 verða haldnir.
verið í tugi ára. Auk þess hef-
ur flokkurinn unnið öll auka-
mót í sundknattleik, sem haldin
hafa verið.
Stórafmæli framundan
Á vegum Ármanns komu
hingað til landsins í vor hand-
knattleiksflokkur frá Hellas í
Svíþjóð og er það einn þáttur-
inn í tilefni 75 ára afmælis
félagsins, Handknattleiksflokk-
ar félagsins hafa tekið þátt í
öllum handknattleiksmótum hér
í Reykjavík, en auk þess farið
nokkrar ferðir til keppni út á
land.
Skíðamenn félagsins hafa
staðið mjög framarlega í íþrótt
sinni og hefur félagslíf hjá
deildinni staðið með miklum
blóma, enda á skíðadeildin
einn af - beztu skíðaskálurn
landsins.
Frjálsíþróttamenn félagsins
æfðu af sama kappi og áður og
er mikið félagslíf hjá deildinni.
Nokkrir af íþróttamönnum
deildarinnar hafa verið 1
fremstu röð frjálsíþróttamanna
og hafa m.a. annar orðið bæði
Islands- og Reykjavikurmeist-
arar.
Færeyjaför
Á síðasta ári var mikið æft
og margar sýningarferðir fam-
ar á vegum Fimleikadeildar.
og m.a. var farin ferð til Fær-
eyja og þar sýnt nokkrum sinn-
um. Með í för þessari var heið
ursforseti l.S.l. Benedikt G.
Waage og rakti hann sögu
ferðarinnar á fundinum og
sagði meðal annars svo vinsælir
hafi Ármenningar orðið, að
halda varð aukasýningar í Fæt-
eyjum. Benedikt kvað Ármenn-
inga hafa hrifið svo hugi
frænda vorra Færeyinga að
hvar sem þeir komu hafi þeir
verið aufúsugestir. Hann kvað
Ármenninga hafa verið Islend-
ingum til mikilla sóma i för
þessari.
Körfuknattleiksmenn félags ■
ins tóku þátt í öllum mótum
hér í Reykjavík og stóðu sig
með prýði, einkum yngri menn-
imir.
1 Ármanni er einnig starf-
andi róðradeild og vísir að
knattspymudeild.
Jens Guðbjömsson, var ein-
róma endurkjörinn formaður
félagsins en aðrir í stjóm eru:
Gunnar Eggertsson, Ingvar
Sveinsson, Haukur Bjamason,
Þorkell Magnússon, Svana Jörg-
ensdóttir, Þómnn Erlendsdóttir,
Guðjón Valgeirsson, Guðmund-
ur Ágústsson og Þorsteinn Ein-
arsson, sem formaður Félags-
heimilis og húsnefndar. Ár-
menningar líta björtum augum
á framtíðina og munu vanda
mjög til 75 ára afmælisins.
Heimsmeistar-
amir Kositsjkln
(1962) og Nilsson
(1963) mættust í
landskcppninni i
Uppsölum. Þeir
eru hinir mestu
mátar eins og sjá
má á myndinni,
en hún er tekin
þegar þeir heils-
uðust á heims-
meistarakeppninni
í Japan fyrir
skömmu.
Peter Hallbcrg.
★ Hlauparar á Nýja-Sjálandi
hafa náð góðum árangri und-
anfarið, en nú er hásumar og
aðalkeppnitímabilið hjá and-
fætlingunum. Murrey Hallberg
hljóp nýlega 5000 m. á 13:41.?
mín. Neville Scott varð ann-
ar með 13:49,8 mín, Billie
sigraði í 6 mílna hlaupi
9.655.89 m.) á 28.07,0 mín.,
annar varð Julian 28:11,0 mín
þriðji Magee 28:13,2 mín. pg
fjórði Scott 28:21,2 mín.
★ Orðhákurinn Cassius Clay
varð að láta sér nægja naum-
an sigur á stigum yfir Doug
Jones í keppni í síðustu viku.
Clay brást algjörlega spá-
dómsgáfan að þessu sinni.
Fyrir leikinn kvaðst hann
mundu rota Jones í 4 lotu.
Keppnin varð hinsvegar 10 lot-
ur, og Clay riðaði oft eftir
högg frá Jones.
★ Gamla kempan Sugar
Ray Robinson, sem nú er 43
ára gamall, sigraði fyrir
skömmu Ralph Dupas í
keppni í Miami. Dupas er 20
ára gamall. Robinson ann sér
aldrei hvíldar og er stöðugt
við æfingar. Það er skýring-
in á hinu óvenjulega úthaldi
hans og löngum keppnisferli.
★ Á heimsmeistaramótinu í
íshokkí í Stokkhólmi sigraði
lið Sovétrikjanna lið Banda-
ríkjanna með 9:0. Lið Svía
sigraði hinsvegar sovézka lið-
ið með 3:1.
Rússar unnu
Svía óvænt
Rússar unnu Svía í
landskeppni í skauta-
hlaupi í Uppsölum
um síðustu helgi. Sig-
ur Rússa kom á ó-
vart, einkum vegna
þess að þeir höfðu
tapað fyrir Norð-
mönnum með mikl-
um mun skömmu áð-
ur.
Lokastigatalan í karlaflokki
118:102 Sovétríkjunum í vil. í <
kvennaflokkum fepgu Sovétrik- 1
in 28 stig gegn 12 hjá Svíum.
1 einstökum greinum urðu úr-
slit þessi:
500m karla:
Boris Stenin Sovétr. 41,9 sek
L. Zeitsev Sovétr. 42,2 —
R. Merkulov Sovétr. 42,7 —
V. Svansjnikov Sovétr. 42,7 —
5000 m karla:
Joh. Nilsson Svíþjóð 7.47.3 mín.
V. Kositjkin Sovétr. 7.56.4 —
Ivar Nilsson Svíþjóð 7.56.5 —
ö. Sandler Svíþjóð 7.59.8 —
1500 m karla:
Johny Nilsson 1.15.1 mín.
Ivar Nilsson 2.15.3 —
Boris Stenin 2.16.2 —
V. Svensjnikov 2.17.2 —
10000 m karla:
Jonny Nilsson 16.08.8 mín.
Viktor Kositjkin 16.48.4 —
Ivar Nilsson 16.50.2 —
Robert Merkulov 16.53.9 —
500 m kvenna:
Lidia Skoblikova Sov. 47.2 sek.
V. Stenina Sov. 48.0 —
Gunilla Jacobsson Sv. 48.1 —
1500 m kvenna:
L. Skoblikova 2.28.3 mfn.
V. Stenina 2.30.8 —
C. Scherling Sv. 2.32.2 —
1000 m kvenna:
L. Skoblikova 1.37.0 min.
V. Stenina 1.39.5 —
Ch. Scherling 1.40.0 —
3000 m kvenna:
L. Skoblikova 5.25.4 min.
V. Stenina 5.26.3 —
Ch. Scherling 5.32.5 —
Keppnin var oftast mjög
spennandi og skemmtilegust
þóttu einvígin milli heimsmeist-
arans 1962, Viktors Kositsjkins
og heimsmeistarans í ár, Jonny
Nilssons. Nilsson sannaði enn
einu sinni að hann er frækn-
asti skautakappi heimsins í ár.
Lidia Skoblikova var einráð
í öllum kvennagreinunum, og
virðist hún vera 1 stöðugri
framför.
II
Mikið „burst
1 gær kepptu IR og Iþrótta-
félag stúdenta í m.fl. á Körfu-
knattleiksmóti Islands. Þarna
áttust við bezta og lakasta lið
meistaraflokks, og leiknum lauk
með gífurlegum yfirburðum ÍR
— 83:24.
Lið stúdenta hefur verið á-
berandi lélegt í vetur, og sem
vænta mátti áttu þeir mjög í
vök að verjast gegn Islands-
meisturunum. 1 hléi stóðu leik-
ar 47:8. Flest stig fyrir IR skor-
uðu Þorsteinn Hallgrímsson (20)
og Guðmundur Þorsteinsson
(25).
Einnig fór fram einn leikur
í 2. flokki, og var munur lið-
anna þar engu minni en í fyrr-
nefndum leik. KR sigraði KFR
með 75:10.
Á laugardagskvöld leika ÍR
og Armann í meistaraflokki, og
eigast þar við tvö beztu liðin.
Takist Ármenningum að vinna
leikinn verða þeir jafnir ÍR að
stigum
KARLMANNASKÓR
úr leðri.
KYENSKÓFATNAÐUR
ýmis konar úr leðri
og striga.
B ARN ASKÓF ATNAÐUR
úr leðri og striga.
NÆLONSOKKAR
kr. 15.00 parið
— og margt
íleira.
Vor-rýmingarsala
tn
rri
A SKOFATNAÐIER HAFIN
og stendur aðeins í nokkra daga. SELT FYRIR ÓTRtJLEGA LAGT VERÐ
Skóbúð Austurbæjar
Laugavegi 100.
Laugavegi 2.
sími 1-19-80.