Þjóðviljinn - 26.03.1963, Blaðsíða 12
- .. ; ' • . . ,
: .V •••••' • '
'
< ■ / ■<_;:•>■
y~‘~
Uii iT\
BanesSys
Um helgina urðu þrjú alvar-
leg slys hjá hestamönnum á út-
reiéum hér í bænum og nágrenni
og Iézt einn maður og tvennt
siasaðist.
Síðdegis á laugardag voru
nokkrir menn að koma úr
útreiðatúr og voru komnir á
skeiðvöllinn við Elliðaárnar. I
þessum hópi var Kristinn Krist-
jánsson, kaupmaður, Njáls-
götu 77. Kristinn var að stíga
af baki rétt við hesthúsið á
Skeiðvellinum, þegar hann hné
niður og missti meðvitund. Var I
hann þegar fluttur á Slysa-
varðstofuna i sjúkrabifreið, en
var látinn þegar þangað kom.
Kristinn var á sextugasta ald-
ursári og læfcur eftir sig konu
og böm.
I fyrradag datt af hestbaki
Baldur Pálmason, útvarpsfulltrúi,
og skeði það á Vatnsveituvegi.
Baldur hlaut mikið höfuðhögg
og heilahristing og liggur í
Landakotsspítala.
Þá féll kona af hestbaki I
fyrradag við Hafnarfjarðarveg-
inn skammt frá benzínstöðinnni
í Hraunholti. Þama var á út-
reiðatúr Sigrún Ámadóttir, bú-
sett i Hafnarfirði. Hafði hún tvo
til reiðar. Sigrún lamaðist nokk-
uð og liggur á sjúkrahúsinu Sól-
vangi í Hafnarfirði.
Þriðjudagur 26. marz 1963 — 28. árgangur — 71. tölublað.
Stöðugur straumur unglinga var að Iðnskólanum á Skólavörðuholti í góðviðrinu á sunndaginn,
meðan starfsfræðslan stóð þar yfir. (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
Starfsfræðsludagurinn:
Mest aðsókn ai
búns^archildinni
Áttundi almenni starfsfræðslu-
dagurinn var haldinn í Iðnskól-
anum á sunnudaginn. Skipulagn-
ingu hans annaðist Ólafur Gunn-
arsson sálfræðingur í samráði við
forystumenn atvinnu- og fræðslu-
mála. Aðsókn var mikil — alls
komu 2742, en 1410 sóttu siarfs-
fræðsludag sjávarútvegsins 24.
íebrúar síðastliðinn og hafa því
alls 4152 unglingar sótt starfs-
fræðsludagana í ár.
Dagurinn hófst á því, að kí.
13.20 komu leiðbeinendur sam-
an í Hátíðasal Iðnskólans. Þar
flutti Ragnar Georgsson skóla-
fulltrúi ávarp. en á undan og
eftir því lék drengjahljómsveit
undir stjóm Karls Ó. Runólfs-
sonar. Að því loknu hóf hljóm-
sveitin að leika við aðaldyr Iðn-
skólans, en þar biðu þá milli
6 og 7 hundruð unglingar. Auk
Alþjóðaleik-
listardagur-
inn á morgun
Alþjóðlegi leiklistardagurinn er
á morgun, 27. marz. Er dagsins
minnzt víða um heim. Hér í
Reykjavík verður eitt af önd-
vegisverkum leikbókmenntanna
hin síðari ár frumsýnt: „Andorra“,
leikrit Max Frisch. Er sagt frá
frumsýningunni á öðrum stað í
blaðinu.
f eftirmiðdaginn í fyrra-
dag varð tvöfaldur árekst-
ur innarlega á Bústaðavegi
og skemmdust þrjár bif-
reiðir meira og minna og
tveir menn slösuðust.
Lengst í burtu stendur
Mercedes bifreiðin og ligg-
ur þvert fyrir á götunni.
Hinar tvær eru næst á
myndinni sitt til hvorrar
handar og er Volkswagen-
bifreiðán til vinstri og
Dodge bifreiðin til hægri.
Reykvíkinga kom allmikill fjöldi
skólanemenda undir leiðsögn
kennara og skólastjóra frá Kefla-
vík (130), Akranesi (70), Grinda-
vík, Hafnarfirði og Kópavogi, og
hefðu komið unglingar úr fleiri
skólum ef inflúenza hefði ekki
komið í veg fyrir það.
Aðsókn að hinum ýmsu starfs-
greinum var eðlilega mjög mis-
jöfn, og réði þar nokkru hvort
fræðslusýningar voru tengdar
viðkomandi grein eða ekki. Til
dæmis vöktu verklegar náms-
deildir Iðnskólans forvitni
margra. Um 100 piltar og 40
stúlkur komu í verklega deild
húsasmiða og húsgagnasmiða.
Svo niargir virtust eiga erindi
við fulltrúa rafvirkja, að ekki
varð tölu á þá komið. Um mál-
un spurðu óvenju fáir, eða að-
eins þrír í fullri alvöru. Við
blikksmiðameistara ræddu sjö
og var þeim boðið að heimsækja
blikksmiðju Breiðfjörðs. 33
ræddu við fulltrúa bílstjóra, 20
við ökukennara en 19 við full-
trúa bifvélávirkja.
8 töluðu við rakara, en 136
stúlkur spurðu um hárgreiðslu,
sem er sem fyrr mjög ofarlega
á vinsældalistanum. 12 piltar
og 3 stúlkur spurðu um bak-
araiðn, 23 vildu fræðast um
skósmíði, 15 spurðu um útvarps-
virkjun og 16 um Ijósmyndun.
þar af 4 stúlkur. 350 heim-
sóttu hina verklegu deild prent-
ara og prentmyndasmiða í iðn-
skólanum en aðeins 25 spurðu
um fögin sjálf.
Heldur var fámennt hjá full-
trúa verkamanna — en til hans
komu 23, hinsvegar höfðu 39
hug á verkstjóm. Um afgreiðslu
spurðu 31 og 42 um skrifstofu-
störf. Mjög mikill fjöldi sótti
smekklega fræðslusýningu sem
Verzlunarskóli íslands stóð fyrir.
Um sjúkraþjálfun spurðu 7
stúlkur og einn piltur, um ljós-
móðurfræði 40, hjúkrunarskól-
ann 175 stúlkur og 3 piltar. Það
var áberandi að unglingar sem
höfðu áhuga á þessum mann-
Framh. á 2. síðu.
Ungu stúlkurnar höfðu ekki síður áhuga á búnaðardeildinni en
drengirnir. (Ljósm. Þjóöv. A. K.).
Tvö bílslys
um helgina
1 fyrradag varð harður bif-
reiðaárekstur innarlega á Bú-
staðavegi milli Dodge bifreiðar
R-5103 og leigubifreiðarr af
Mercedes gerð R-2062 og ók
Dodge bifreiðin á mikilli ferð
á vinstri hlið síðarnefndar.
Dodgebifreiðin lét hér ekki stað-
ar numið og æddi áfram stjórn-
laust yfir á hægri vegarbrún. Þar
stóð Volkswagen bifreið og hjá
henni tveir menn í rólegu sunnu-
dagsspjalli og vita þeir nú ekki
fyrr en þeir sjá Dodge bílinn
koma æðandi að þeim og tókst
öðrum manninum með snarræði
að velta sér frá hinni aðvífandi
4>bifreið.
Skellur nú Dodge bifreiðin á
Volkswagen bílinn og kastaðist
hinn maðurinn upp á Volkswag-
en bílinn og mun hafa fótbrotn-
að. Eftir þetta þverbeygir Dodge-
bifreiðin yfir á vinstri vegar-
brún og stöðvast á skurðbakk-
anum. Farþegi sem i henni sat
kastaðist á mælaborð og rúðu
og meiddist illa. Þannig
skemmdust meira og minna þrjár
bifreiðar og tveir menn slösuð-
ust.
Þá var á níunda tímanum í
fyrrakvöld harður árekstur á
þjóðveginum skammt frá Félags-
garði í Kjós og við árekstur
milli tveggja bifreiða, brotnaði
framrúða i öðrum og slasaðist
tvennt, sem sat þar í fram-
sæti. Við stýrið sat Sigþrúður
Jóhannesdóttir og við hlið henn-
ar Konráð Pétursson, kennari
og átti hann bifreiðina og skár-
ust þau allmikið í andliti. I
aftursæti sat unglingsstúlka með
tvö böm í fanginu og sakaði
þau ekki.
Þá voru tíu menn teknir um
helgina vegna gruns um ölvun
við akstue.
I
I
I
Þrír skíðakappar
á Holmenkollen
ísafirði 22/3 — Héðan fóru
þrír nngir og efnilegir skíða-
menn á HolmenkoIIcnmótið í
Noregi, og heita þeir Samúel
Gústafsson, Hafsteinn Sigurðs-
son og Sverrir Jóhannesson.
Þeir tóku þátt í svigi m.a. og
urðu nr. 25—26 af 37 kepp-
endum. Dvöl þeirra varð þó
skemmri en æsldlegt hefði
verið og urðu þeir að hverfa
heim vegna fjárskorts. Þeír
bostuðu sig sjálfir að mestu.
Telja sig hafa mikið lært af
þessari för og gera nokkra
daga æfingar þarna sama
gagn og hálfur mánuður
heima. Þeir Iáta vel af ferð-
innL — E.E.
Reiðir við útvarpið
Súðavík 22/3 — Við hér á
Súðavík urðum móðguð við
fréttalestur útvarpsins eitt
kvöldið um aflabrögð á Vest-
fjörðum, en þar glejmidist
hlutur Súðfirðinga og er þó
afli okkar frá áramótum tvö
hundruð lestir hjá þrem.ir
bátum. Okkur þótti .skrítið að
hlusta á leiðréttingu í seinni
fréttatíma um 2 kg af aflamagn-
inu í heild, og þessar 200
lestir týndar sem áður. Þær
hverfa þó inn í þjóðargjald-
eyrinn eins og hitt. — A.K.
Rækjuleyfi fram-
Iengt
Bíldudal 22/3 — Framlengt
hefur verið rækjuleyfið hér
og bætt við 30 lestum á kvóta
og er það hálfsmánaðarveiði.
Eftir það standa 70 konur
atvinnulausar, en mikil vinna
er við verkun rækjunnar.
— H.I.
Fjöltefli á
Bíldudal
Bíldudal 22/3 — Axel Thor-
steinsson, skipstjóri á Pétri
Thorsteinssyni tefldi fjöltefb
hér í samkomuhúsinu í vik-
unni. Hann tefldi á 23 borðum
og vann 20 skákir, gerði tvó
jafntefli og tapaði einni og
teljum við Bílddælingar skip-
stjórinn mikill skákmann.
Fjölmenni var til staðar. H.I.
Vegur ruddur
Bíldudal 22/3 — Vegurinn
milli Patreksfjarðar og Bíldu-
dals var opnaður um síðustu
helgi og er hann fær öllum
bílum. Þetta er sjaldgæft á
þessum árstíma og er þessi
vegur ekki ruddur fyrr en í
Iok maí eða byrjun júní. Er
þetta til marks um tíðina.
— H.I.
110 manns bólu-
settir
Súgandafirði 23/3 — Hundr-
að og tíu manns hafa verið
bólusettir gegn inflúensu hér
í þorpinu og er það miðað við
starfshópa í frystihúsum og á
bátunum. Hefur veikinnar
ekki orðið vart hér utan eitt
tilfelli sem er þó vafasamt.
— G.Þ.
Ný dráttarbraut
Stykkishólmi 22/3 — Nýlega
er byrjað á bvggingarfram-
kvæmdum á nýrri dráttar-
braut á vegum hreppsins og
er henni ætlaður staður í svo-
kallaðri Skipavík rétt vestán
við þorpið. — J.R.Ó.
Þrjár kýr drepazt
Á laugardagskvöld drápust
þrjár kýr í fjósi á Hofi í
Vatnsdal og er talið að raf-
magn hafi leitt í vatnsleiðslu til
kúnna og valdið dauða þeirra
á stundinni. Þrjár aðrar kýe
í fjósinu meiddust nokkuð
?.f sömu sökum og er þetta
tilfinnanlegt tjón fyrir bónda.
Ágæt rækjuveiði
Hnífsdalur 22/3 — Ágæt
rækjuveiði er núna og kom
einn bátur með 700 kg. að
landi í gær. Er mikil vinna
við verkun rækjunnar.
Æskulýðs-
skemmtun
Súðavík 22/3 — Unglingar
hér á staðnum héldu nýlega
æskulýðsskemmtun og sótti
fjölmenni úr nærliggjandi
sveitum og allt frá Bolungavík,
Er yfirlýst takmark að verja
ágððanum til kaupa á skírn-
arfonti í kirkjuna. Skemmt-
unin fókst með ágætum.
— A.K.
220 lestir
Súðavík 22/3 — Afli Súðavík-
urbáta hefur verið 7 til 14
lestir síðustu 10 daga og er
það eingöngu steinbítsafli.
Miðin hafa verið út af Deild-
inni og út af blakknum. Frá
áramótum hefur afli Súða-
víkurbáta verið 220 Iestir.
Svanurinn hefur 101 lest í 18
róðrum. Trausti 94,5 lestir í
17 róðrum og Óli 25,6 lestir
í 9 róðrum. Síðustu daga hef-
ur eingöngu verið um stein-
bítsafla að ræða. — A.K.
Hafnargarður
lengist
ísafjörður 22/3 — Hér er nú
unnjð við hafnarframkvæmd-
ir og hefur stór moksturs-
krani rótað upp uppfyllingu.
Er nú unnið að því að setja
stálþil fyrir framan hana og
hefur verkið gengið mæta
vel. VJð þessar athafnir leng-
ist hafnargarðurinn verulega
og verður þessum áfanga \
hafnarbótum senn lokið.
— E.E.
Inflúenzan herjar
Tálknafirði í gær. — Pestir
og lasleiki hrjáir nú fólk al-
mennt upp á síðkastið og er
sennilega inflúensan hér á
ferðinni. Eru miklar frátaflr
frá vinnu og er það bagalegt
vegna stcinbítshrotunnar, cn
unnið er fram yfir miðnætti 4
hverju kvöldi. — J.L.E.
Nóg af steinbítnum.
Bíldudal í gær. Steinbítsafli
var með mesta móti í dag ög
voru báðir bátamir með 18
lestir í róðri. Gangan f Látra-
röstinni þokast norður með
hverjum degi og er afli orðinn
14 lestir. í róðri á miðum, þar-
sem aflaðist 10 lestir á dögun-
um. — H.I.
!
i
I
4