Þjóðviljinn - 27.03.1963, Page 3
MiðvikudBgor 27. marz 1963
Þ7ÖÐVIUINN
SlÐA 3
Margir særðust í átökum við lögregluna
Þúsundir atvinnuleysingja á
fundi við þinghúsið í London
LONDON 26/3 — Margir menn meiddust illa í
átökum við lögreglu fyrir framan þinghúsið i
London í dag, þegar þúsundir atvinnuleysingja
söfnuðust þar saman til að mótmæla aðgerðar-
leysi ríkisstjómar Macmillans í málum þeirra og
krefjast þess að hún hefjist þegar handa um að
bæta atvinnuástandið í þeim landshlutum þar sem
það er verst.
Fundarmenn höfðu
Loodon með bílum og jám-
brautalestum. Þeir fóru fyrst
fyUctu liði um götur borgarinn-
ar og báru kröfuspjöld með á-
letrunum eins og t.d.: Veitið okk-
trr vinnu, Niður með Macmillan.
ÍBður með íhaldið.
Siðan söfnuðust þeir saman
fyrir framan þinghúsið og reyndu
að ryðjast inn í fundarsal neðri
málstofunnar, þar sem umræðxr
stóðu yfir. Færri komust á ftmd-
komið til inn en vildu, því lögreglan réðst
með kylfur á lofti gegn kröfu-
göngunni og tókst að tvístra
henni.
ðeirðir í Tyrk-
landi af því að
Bayar var sleppt
ETANBtjL 26/3 — Um sjö þús-
tmd stúdentar fóru í mótmæla-
göngu um götur Istanbúls í dag
og sló í hart milli þeirra og
lögreglumanna. Þetta er fjórði
dagurinn í röð sem óspektir verða
1 Istanbúl, en þær hófust þeg-
tHkynnt var að Bayar fyrrver-
andi forseti landsins hefði verið
látinn laus, en hann var dæmd-
ur í sevilangt fangelsi um leið
Og Menderes fyrrverandi for-
ssetisráðherra, var dæmdur til
dauða.
Krafizt 6 mílna
f i skvei ði I ögsög u
við Bretland
MANCHESTER 26/3 — Manchest-
erblaðið The Guardian lagði í
dag til að fiskveiðilögsagan við
Bretland yrði þegar í stað færð
út i sex mílur. Blaðið bendir á
að þótt Bretar stækkuðu nú
landhelgi sína upp í 6 eða 12
milur myndu þeir verða ein síð-
asta þjóðin sem gerði ráðstaf-
anir til að vernda fiskimið við
strendur lands síns. Því ætti að
vinda ráðan bug að því að
staekka landhelgina a.m.k. upp
í sex mílur, segir blaðið.
gerðum gegn atvinnuleysinu sem ' gærkvöld og lögreglan óttast að
500 lögreglumenn
Um 500 lögreglumenn, sumir á
hestum, áttu fullt i fangi með að
halda aftur af mannfjöldanum og
það var ekki fyrr en þeir höfðu
fengið liðsauka að það tókst að
ryðja götumar sem liggja að
þinghúsinu. Mestur var atgang-
urinn við St. Stepens-innganginn.
Þar hrópuðu hinir atvinnulausu
verkamenn: Út með íhaldið, við
heimtum vinnu og brauð.
Margir handteknir
Nokkrir þingmenn reyndu að
ávarpa lýðinn, en enginn hlýddi
á mál þeirra. Umræður héldu á-
fram eins og ekkert hefði í skor-
izt.
A.m.k. tveir lögreglumenn slös-
uðust svo illa að flytja varð þá
í sjúkrahús. Fjöldi manna var
handtekinn.
Lengi fram eftir kvöldi voru ó-
spektir vfða í borginni og mörg-
um kiukkustundum eftir að fund-
inum fyrir framan þinghúsið
hafði verið hleypt upp voru mörg
hundruð lögreglumenn á verði
við bygginguna.
Munaði mlnnstu
Fréttaritari Rauters segir að
minnstu hafi munað að mann-
fjöldanum tækist að ryðjast inn
í þinghúsið. Sex sinnum komst
hann gegnum keffhi lögreglu-
mannanna, en þeim heppnaðist
alltaf að loka henni aftur.
Lögreglumennimir beittu ó-
spart kylfum sínum, en mann-
fjöldinn hrópaði „fasistasvín" og
„þetta eru gestapóaðferðir“.
V erkamannafloksþingmenn
í broddi fylkingar
Þrír þingmenn Verkamanna-
flokksins, þau Anthony Green-
wood. Barbara Castle og Dougl-
as Jay, voru fremstir i kröfu-
göngunni. Margir göngumanna
voru rosknir menn, sem á árun-
um milli stríðanna höfðu tekið
þá var landlægt í Bretlandi.
Ekki kom til neinna árekstra
meðan á göngunni stóð og það
var ekki fyrr en fólkið tók að
safnast saman fyrir framan þing-
húsið að óeirðir hófust. Fundar-
höld fyrir framan þinghúsið eru
bönnuð meðan þing situr.
Sívaxandi atvinnuleysi
Flestir þeirra sem tóku þátt I
kröfugöngunni og fundinum á
eftir voru komnir frá Norður-lr-
landi, Skotlandi og norðurhéruð-
um Englands, en í þessum lands-
hlutum er atvinnuleysið orðið
geigvænlegt og hefur farið sívax-
andi undanfama mánuði. Um
800.000 menn munu nú vera at-
vinnulausir eða vinnulitlir og er
hlutfallstala atvinnuleysingja í
sumum hémðum milli 15 og 20
prósent. .
Ríkisstjóm Ihaldsflokksins hef-
ur lítið sem ekkert aðhafzt til að
bæta ástandið, en Maudling fjár-
málaráðherra hefur nú gefið i
skyn að hann sé fús til að ræða
við fulltrúa atvinnuleysingja um
ráðstafanir til að bæta ástandið
Meiri ódirðir?
Eins og áður segir, héldu ó-
spektir áfram víða í London í
atvinnuleysingjar muni reyna
aftur á morgun að ryðjast inn
í þinghúsið og hefut því mikinn
viðbúnað þar.
HAFNARFJÖRÐUR — NAGRENNI
Ný sending
Módelkjólar — Kápur — Dragtir.
Einnig peysur og pils í miklu úrvali.
VERZLIÐ ÞAR SEM ÚRVALIÐ ER MEST.
Verzlunin SI G R 0 N
Strandgötu 31. — Sími 50038.
Hafnfíríingar
Snyrtivörurnar íáið þér hjá okkur.
Verzlunin SIGRÚN
Strandgötu 31.
RÚMAR ALLA
FJÖLSKYLDUNA
KYNNIÐ YÐUR
MODEL 1963
_ Sími 24204
tbtfeÍM'UgjQgNSSON * P.o. BOX 15*6 - REYKMVlK
Frakkland og Finnland
Enn eru engar horfur á því
að verkföllin leysist brátt
PARÍS og HEL.SINKI 26/3 —- Enn situr allt við það sama
í vinnudeilimum í Frakklandi og Finnlandi og eru ekki
neinar horfur á að þær leysist bráðlega. Franska stjórn-
in hefur ekki í hyggju að gera verkfallsmönnum ný til-
boð, en ríkisstarfsmenn í Finnlandi höfnuðu í gær nýju
tilboði ríkisstjómarinnar.
Franska stjórnin ræddi verk-
föllin á fundi í dag og að hon-
um loknum sagði Gilbert verka-
málaráðherra að hún hefði ekki
breytt afstöðu sinni til krafna
verkfallsmanna og nú væri það
þeirra að ganga til móts við
hana.
26 flaga verkfall
Kolanámumenn í Lorraine hafa
nú verið í verkfalli í 26 daga og
þát.t í sams konar mótmælaað- ekkert bendir til að þeir muni
Stjórnarkosningin í Frama
Framsókn hækja íhaldsins
Stjómankosning í Bifreiða-
stjórafélaginu „Frama“ fer fram
í dag og á morgun. Kosið er i
skrifstofu félagsins, Freyjugötu
26, og stendur atkvæðagreiðslan
yfir frá kl. 1 til 9 síðdegis báða
dagana.
Það hefur enn einu sinni gerzt,
að svokallaðir „Framsóknar“-
menn í félaginu hafa hindrað
það nauðsynlega samstarf vinstri
manna, sem er eina hugsanlega
leiðin til þess að vinna félagið
úr höndum íhaldsins, svo að hægt
sé að hefja þar lífT'ænt starf fyrir
stéttina — í stað þess að félagið
er nú einkafyrirtæki Bergsteins
Guðjónssonar.
Með lýðskrumi og róttækum á-
róðri hefur Framsóknarmönnum
tekizt um sinn að tæla til sín at-
kvæði ýmissa vinstri mann. En
verk þeirra tala hinsvegar öðru
máli— þvi að þeir sleppa engu
tækifæri til þess að kljúfa raðir
vintsri manna og tryggja þannig
íhaldinu þau völd í verkalýðs-
hreyfingunni, sem það annars
mundi ekki hafa. Er þar skemmst
að minnast stjómarkosningarinn-
ar í fyrra vetur, þegar Fram-
sóknarmenn höfðu fengið loforð
sósíalista í félaginu fyrir stuðn-
ingi við lista Framsóknarmanna,
að þeir á síðustu stundu hættu
við framboðið svo að listi íhalds-
ins varð sjálfkjörinn.
Þá virðast þeir ekki heldur
hafa lært neitt af því þegar só-
síalistar í „Frama“ neyddu á sl.
hausti þrjá Framsóknarmenn inn
á þing Alþýðusambandsins, eftir
að Framsóknarmennimir höfðu
neitað samstarfi, sem sannan-
lega hefði leitt til þess að vinstri
menn hefðu fengið alla fulltrú-
ana kosna.
Enn berja þeir sem sagt höfð-
inu við steininn og fást ekki til
að ræða um samstöðu vintsri
manna, þó að þeir viti að með
því væri auðvelt að fella ihalds-
stjómina í „Frama“ og efna til
ötullar hagsmunabaráttu í fé-
laginu í stað þess algera starfs-
leysis sem í því er.
Með þessari framkomu hafa
Framsóknarmenn í „Frama“ enn
einu sinni tryggt íhaldinu for-
ystu í félaginu. Við því verður
ekki gert að sinni. En eina leiðin
til að kenna þeim mannasiði i
framtfðinni er að allir sannir
vintsri menn í félaginu forðist
lista þeirra, en fylki sér um C-
listann í þessum stjómarkosn-
mgum.
hverfa aftur til vinnu fyrr en
ríkisstjórnin hefur gengið að
öllum kröfum þeirra, en helztar
þeirra eru ellefu prósent kaup-
hækkun, stytting vinnuvikunn-
ar úr 48 í 40 stundir og lenging
orlofs um eina viku. Síðustu
daga hafa orðið nokkrir árekstr-
ar milli verkfallsmanna og lög-
reglusveitanna sem ríkisstjómin
sendi til námuhéraðanna í upp-
hafi verkfallsins og segja leið-
togar námumanna að lögreglu-
liðið hafi fengið fyrirmæli um
að beita meiri hörku en hingað
til.
Járnbrautarsamgöngur
lamast
Búizt er við að á morgun
muni járnbrautarsamgöngur um
allt Frakkland lamast vegna
skyndiverkfalla. sem boðuð hafa
verið. Leiðtogar starfsmanna
gas- og rafstöðva sögðu félög-
um sínum að vera reiðubúnir að
leggja niður vinnu fyrirvara-
laust.
Samvinna kommúnista
og kaþólskra
Mjög náin samvinna hefur
tekizt með verklýðsfélögum
kommúnista og kaþólskra otg haf a
þau í hyggju sameiginlegar að-
gerðir til verndar verkfallsrétt-
inum. Þau skoruðu í dag á
alla vinnandi menn í Frakklandi
að gefa ein daglaun í sjóði verk-
fallsmanna.
Eldsneytisskortur
Horfur bötnuðu nokkuð á því
í dag að samningar tækjust milli
verkamanna við jarðgasnámum-
ar í Lacq í Suður-Frakklandi
og vinnuveitenda. en vinnustöðv-
un þeirra hefur valdið miklum
eldsneytisskorti viða í landinu
og mörgum efnaverksmiðjum
sem nota jarðgasið sem hrá-
efni hefur verið lokað. Iðnaður-
inn j Norður-Frakklandi á í J
miklum erfiðleikum vegna skorts j
á gasi og kolum.
Samband finnskra ríkisstarf'- ;
mnna hafnaði - iag nýju til- j
boði sem ríkisstjórnin hafði gert
því. Hún hafði boðizt til að
leggja fram 13 milljónir nýrra
marka til greiðslu fyrir yfir-
vinnu, ef vinna hæfist aftur á
miðvikudag. Var þetfa til við-
bót.ar 84 milljónum marka sem
stjómin hafði áður boðizt til
að hækka kaup starsmanna
sinna um árlega.
Fangelsin
tæmsst í
Ungverjalandi
BtJDAPEST 26/3 — Þegar
byrjað að láta lausa fanga
sem veitt hefur verið sak-
aruppgjöf. Talið er að um
10.000 manns muni verða
sleppt úr fangelsum lands-
ins sem munu nærri því
tæmast. Eftir munu aðeins
sitja menn sem dæmdir
hafa verið fyrir stríðsglæpi
og njósnir. Um þriðjungur
þeirra sem gefnar hafa ver-
ið upp sakir afplánaði refs-
ingar fyrir pólitísk afbrot.
Einn þeirra sem látinn var
laus í dag var prófessor
Istvan Bibo, sem dæmdur
var í ævilangt fangelsi 1958.
Hann var ráðherra án
stjórnardeildar í stjórn
Nagy haustið 1956.
V erkf ærakassar
Topplyklar
Stjörnulyklar
stór og smá sett
Þjalir
mikið úrval
Sagarbogar
Sagarhöldur
Handsagarblöo
Vélsagarblöð
Bandsanarblöð
Jílalyftur
IV2 til 15 tonna
— HÉÐINN =
Vélaverzlun
Seljavegi 2, slmi 2 42 60
t