Þjóðviljinn - 29.03.1963, Side 1
Síld á Hraunsvík
Föstudagur 29. marz 1963
28. árgangur — 74. tölublað.
Níu bátar komu til Reykjavíkur
með sild í gær. Síldin veiddist
á Hraunsvík rétt við hafnar-
kjaftinn hjá Grindavíkingum og
mun allgóð í frystingu.
Aflahæstur þeirra bóta, sem
komu til Reykjavíkur í gær var
Stapafellið frá Ölafsvík með
1100 tunnur. Hafrún var með
900 tunnur. Hannes Hafstein
hinn nýi bátur Dalvíkinga var
með 700—800 tunnur, Sigurður
Bjamason var með 300, Guð-
mundur Þórðarson 300, Skarðs-
vík 350, Ölafur Magnússon EA
200, Bára 150 og Súlan 60
Tveir bátar rifu illa, Pétur Sig-
urðsson og Halldór Jónsson.
Léffvœgur kosningaafsláttur
97 mllljóna lækkun á 1400
mílljóna viðrelsnartollunum
'Tollabreytingamar munu ekki hafa áhrif á vísitölu
framfærslukostnaðar, segir fjármálaráðherra.
Ríkisstjórnin hefur reiknað út að samkvæmt
tollskránni nýju muni heildarfollheimta hækka
um 97 milljónir miðað við innflutning ársins
1962. í tíð viðreisnarstjórnarinnar hefur toll-
heimtan hins vegar hækkað um 1400 milljónir
króna, þannig að kosningaafslátturinn er næst'a
léttvægur.
Auk þess er engin trygging fyrir því að neyí-
endur njóti nokkurs hluta af þessum smávægi-
legu ’tollalækkunum í lækkuðu vöruverði. Meg-
inið af vörum þeim sem fjallað er um í toll-
skránni er undanþegið verðlagsákvæðum, þann-
ig að kaupsýslumenn geta stungið lækkuninni í
eigin vasa og munu að sjálfsögðu gera það að
því leyti sem þeir telja sér hagkvæmt.
tökin voru í mynni
Skagafjarðar
Samkvæmt upplýsingum Ragnars Stefánssonar jarðskjálftafræð-
ings Veðurstofunnar voru upptök jarðskjálftanna í fyrrinótt og
gær 250 km. frá Reykjavík og 300 km. frá Vík í Mýrdal eða í
mynni Skagaíjarðar. Stærð snarpasta kippsins er áætlað 5% a.m.k.
en stærð Dalvíkurjarðskjálftans 1934 var áætluð 6% þannig að
þessi hefur verið litlu eða engu minni, enda fannst Dalvíkur-
jarðskjálftinn ekki víðar en þessi.
Fyrsti kippurinn sem fannst í Reykjavík kl. 23,16 í fyrrakvöld
var snarpastur en honum fylgdu fleiri snarpir kippir næstu
klukkutímana, hinn síðasti kl 7,58 í gærmorgun en auk þess
komu margir smærri kippir bæði i fyrrinótt og gærdag. Harð-
astir urðu kippimir umhverfis Skagafjörð en þeirra gætti þó
svo til um land allt vægast á Austur- og Suðurlandi.
Jarðskjálftakippirnir mældust víða erlendis, bæði í Skandinavíu
og Ameríku og samkvæmt frétt frá Noregi þoldu jarðskjálftamæl-
amir á Jan Mayen ekki kippinn og fóru úr sambandi vegna þess
hve útslagið var mikið. Svo fór einnig um jarðskjálftamælinn í
Vík í Mýrdal og e.t v. víðar hér á landi.
Upptök þessara jarðskjálfta eru óvenju vestarlega, sagði Ragnar
Stefánsson. og hefði frekar mátt vænta þeirra í námd við Grímsey.
Jarðsk^tftafréttir
eru á 12. síðu.
frá einstökum stöðum víðs vegar um land
Síldin er
komin aftur
Stapafell SH-15 kom til Reykja-
víkur í gær með 1100 tunnur af
síld af Hraunsvík. Báturinn var
vel hlaðinn, eins og sjá má hér
á myndinn'i sem var tekin í þann
mund er hann var að leggjast
að bryggjunni. Báturinn lagðist
að Ingólfsgarði, en þar var fjöldi
fólks saman kominn í góða veðr-
inu og margar hendur á lofti að
taka við spóttanum. (Ljósm. G.O )
Ásgeir BI. Magnússon.
Fræðsluerindi Sósí-
alistaflokksins:
Leiðin til
sósíalisma
Annað erindið, sem fræðslu-
nefnd Sósíalistaflokksins
gengst fyrir í eriinda-
flokknum um leið Islands
til sósíalisma, verður flutt
í kvöld í Tjarnargötu 20
og hefst kl. 8.30. Þá talar
Ásgeir Blöndal Magnússon
og nefnir erindi sitt: „Um
alþýðuvöld og sósíalisma
á lslandi". Allir sósíalist-
ar eru hvattir til að hlýða
á þetta erindi
I ræðu, framsöguræðu sinni
fyrir tollskránni á alþingi í gær,
játaði fjármálaráðherra Gunnar
Thoroddsen þetta einnig með því
að viðurkenna, að breytingamar
á tollskránni mundu ekki hafa
áhrif til lækkunar á vísitölu
framfærslukostnaðar, og sýnir
það eitt út af fyrir sig, að ríkis-
stjóminni sjálfri er fullkomlega
ljóst, að hér er ekki um að ræða
ráðstafanir, sem komi til með
að bæta lífskjör almennings,
eins og stjómarblöðin hafa þó
verið að reyna að halda fram
af veikum mætti
Þegar litið er á tollskrána nýju,
kemur einnig fljótlega í ljós,
að þar er ekki eingöngu um
lækkanir að ræða, heldur einnig
hækkanir á fjölmörgum tollvöru-
tegundum. Þannig hækka rúm-
lega 400 tollvörutegundir á
skránni og er alveg áreiðanlegt
að ailar þær hækkanir koma
beint út í verðlagið. Hins vegar
er ekki alveg eins öruggt, að
þær vörur, sem lækka í tolli,
lækki samsvarandi í útsöluverði,
þar sem fjöldinn allur af þeim
er óháður verðlagsákvæðum,
eins og bent er á hér að fram-
an.
Travehingað
Vestmannaeyjum í gær —
Klukkan 5 í dag lagði varðskip-
ið Ægir úr höfn með þýzka tog-
arann Trave í eftirdragi og er
ferðinni heitið til Reykjavíkur,
þar sem skipið fer til viðgerðar.
Hinir þýzku eigendur hafa sett
tryggingu fyrir greiðslu vænt-
anlegri björgunarlauna til handa
varðskipinu Albert og Lóðsins,
sem gera kröfu fyrir veitta að-
stoð.
Franskt
rannsókn-
arskip
í gær var hér í höfmnni
franski rannsóknartogarinn
Thalassa frá Brest. Togar-
inn sem er nýr og fullkom-
inn, er skutbyggður eins og
flestir nýtízkutogarar, hvít-
málaður og afskaplega fall-
cgur. Hann tekur nú þátt
í einhverjum hafrannsókna-
leiðangri hér á N-Atlanzhafi
í samvinnu við brezkt haf-
rannsóknarskip. Að þessu
sinni verður hann hér i 4
daga, kom í gærdag og
verður fram á mánudag, en
skipið á eftir að koma
hingað þrisvar enn og þá
m.a. til að bera saman bæk-
ur sínar við hið brezka
skip
Skipið er smíðað £ Le
Harve. fbúðir eru fyrir 30
manna áhöfn og 24 vís-
indamenn. f því eru tvær
litlar frystilestir, hvor um
sig 25 rúmmetrar og í þedm
er 25 stiga frost á Celsíus.
Skipið cr 66 m langt og
meðalbreidd er 10,36 m.
Myndin var tekin af skip-
inu þar sem það lá við
Ingólfsgarð. (Lm. Þjóðv.
G. O ).
«