Þjóðviljinn - 02.04.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 02.04.1963, Qupperneq 1
Þriðjudagur 2. apríl 1963 — 28. árgangur — 77. tölublað. Stjórnlagaákvœði ein geta tryggt: Munið styrktarmannakerfíi! • Munið eítir og takið þátt í styrktarmannakeríi Þjóðviljans. Skrifstofan er að Þórsgötu 1, 1. hæð, opin kl. 10— 12 árdegis og 1—6 síðdegis daglega. Einnig er tekið á móti framlögum í skrifstofu Sósíalistaflokksins, Tjamar- götu 20, og afgreiðslu Þjóðviljans, Týsgötu 3. , , . i<í>- Ótvíræðan yfirráðarétt íslend- inga yfir auðlindum landsins Aístaða stjómmálaflokkanna til frumvarpsins um stjórnarskrárbreytinguna er prófsteinn á það, hvort flokkarnir vilja tryggja að fullu eigna- og yfirráðarétt fslendinga einna yfir auðlindum lands- ins og fasteignum, og að erlendir aðilar geti ekki náð þeim undir sig á neinn hátt. Þetta mál er því um leið prófsteinn á það, hver er raunveruleg afstaða flokkanna til „tengsla" við Efnahagsbandalagið og hvaða skilning ber að leggja í notkun þeirra á því orði. Drengur í Keflavík devr af voðaskoti Það hörmulega slys skeði í Keflavík laust eftir miðætti að- faranótt sunnudagsins, að fjórtán ára piltur, Freyr Sverrisson, Túngötu 13 í Keflavík, varð fyr- ir slysaskoti og beið samstund- is bana. Fjórir bekkjabræður voru að handfjatla riffil i húsi einu í kaupstaðnum, þegar skot- ið hljóp úr rifflinum og Ienti í brjósti piltsins. Minningarathöfn var í Gagn- fræðaskóla Kefiavíkur í gær- morgun og féll kennsla niður í skólanum í gær. Bekkjasystir þessara pilta lenti í bílslysi í fyrrakvöld og slas- aðist alvarlega. Stúlkan heitir Kclbrún Arnadóttir Birkiteig 14 í Keflavík. f gærmorgun var hún ekkl komin til meðvitundar. Samkvæmt upplýsingum bæj- arfógetans í Keflavík voru fjór- ir bekkjabræður úr 2. bekk Gagnfræðaskóla _ Keflavíkur staddir í húsi einu í kaupstaðn- ( um og var einn piltanna að, handfjatla riffil þegar voðaskot-; ið hljÓD af og hitti fyrir einn : teikbróður þeirra og beið hann samstundis bana. Ekki er vitað. j hvort 'pilturinn sem var með riffilinn hefur vitað að hann var hlaðinn. þar sem ekki hefur ver- j ið hægt að yfirheyra hann, vegnr taugaáfalls er hann fékk. Laust fyrir kl. 1 aðfaranót j sunnudagsins var hringt á lög j reglustéðina og tilkynnti einr ^ piltanna grátandi í símann um ( slyslft. Lögreglan fór þegar á j vettvang með sjúkrabíl og var drengurinn látinn, þegar hún kom á staðinn. Lögreglan hringdi þegar á lækni og prest og var líkið flutt á sjúkrahús Kefla- víkur. Faðir hins látna pilts heitir Sverrir Matthíasson, framkv.- stjóri, og er bróðir Ástþórs Matthíassonar, útgerðarmanns í Vestmannaeyjum. Málið er í rannsókn. f fyrrakvöld laust fyrir kl. 9 lenti bekkjarsystir þessara pilta i bílslysi. Ók leigubifreið á stúlkuna fyrir framan húsið Hringbraut 81 í Keflavík. Stúlk- an heitir Kolbrún Amadóttir. Birkiteigi 14. Hlaut hún höfuð- kúpubrot og fótbrot og skrám- aðist nokkuð. Var hún þegar flutt á Sjúkrahús Keflavíkur og var ennþá meðvitundarlaus í Framhald á 2. síðu Hornhús hverfur Gömlu húsin í Rcykjavík týna óhjákvæmilega töl- unni; eitt af öðru hverfa timburhúsin og steypt hús- bákn koma í þeirra stað. Þessi mynd var tekin fyr- ir helgina á horni Lauga- vegar og Barónstígs, en þar er verið að rífa eitt gömlu timburhúsanna, sem á sín- um tíma þótti hin stæði- Iegasta bygging. Lands- bankinn hefur sem kunn- ugt er gerzt umsvifamik- ill lóða- og fasteigasafnari í Reykjavík á síðustu ár- um, og m.a. kcypt hverja eignina á fætur annarri viö Laugavcginn. Nú síðast kcypti bankinn hornlóðir við Laugaveg og Baróns- stíg og mun ætlunin að reisa þar stórhýsi j fram- kaldi af Austurbæjarúti- búsbyggingu bankans, sem sést þarna á myndinni. (Ljósm. Þjóðv. A. K.), Einar Olgeirsson fylgdi í gær úr hlaöi frumvarpi til breytinga á stjórnarskrá landsins, en frumvarpið er flutt af honum og Hannibal Valdimarssyni. Er í frum- varpinu gert ráð fyrir, að sett verði í stjómarskrána ákvæði er tryggi það, að einungis íslenzkir menn geti öðlazt eigna- og yfir- ráðarétt yfir íslenzkum auð- lindum, og að jafnframt verði sett í stjórnarskrána ákvæði um veitingu ríkis- borgararéttar hér á landi. í framsöguræðu sinni minnti Einar á, að þær að- stæður hafa skapazt hér á landi síðustu ár, að erlend- ir aðilar kynnu að telja sér hagkvæmt að ná tangar- haldi á auðlindum landsins og fasteignum. í stjómar- skránni eru engin ákvæði, er geti hindrað slíkt, og í lögum eru ekki heldur á- kvæði, sem komið geti í veg fyrár þetta. — sjá nánar á 4. síðu. Mikil aflahrota í Eyjum undanfarið Mikil aflahrota hefur verið undanfarna daga í Vestmanna- eyjum og hefur fiskurinn hrann- azt upp í vinnslustöðvunum. Hefur Gagnfræðaskólinn í Vest- mannaeyjum gefið öllum nem- cndum Ieyfi til þcss að taka Um kl. 20,19 á laugardaginn valt jeppabifreið með þrem full- orðnum mönnum og 4 börnum á Sogavegi við Skeiðvöllinn. Allir sem í bifréiðinni voru voru fluttir í slysavarðsto.funa en enginn þeirra mun hafa meiðzt alvarlega. Grunur leikur á um það, að ökumaður bifreiðarinn- ar hafi verið undir áhrifum áfengis. Engin röskun á hafsbotni? Varðskiþið Þór fór á vett- vang í fyrradag og gerði at- huganir á hugsanlegri röskun hafsbotnsins í kanti Eyjafjarð- arálsins. Varðskipsmenn gerðu dýptar- mælingar á þeim slóðum, sem siglfirzki skipstjórinn taldi sig hafa orðið varan við áðúr ó- þekktar grynningar. Urðu þeir ekki varir við neinar breyt- ingar, samkvæmt gömlum töl- um á korti. Þór lá inni á Siglufirði í gær vegna veðurs og hafa varðskipsmenn átt tal við siglfirzka skipstjórann og athugað dýptamæli bátsins Þessir dýptarmælar mæla fyrstu lotu frá 0 föðmum t 80 faðma dýpis og skipta þ yfir á 80 faðma til 160 faðm; dýpis og er hugsanlegt að slfV skipting hafi brugðizt og mæl- irinn sýnt 5 faðma í staðinn fyrir 85 faðma dýpi. Ekkert er þó hægt að fullyrða um þessa skýringu. Hinsvegar hefur ekki fengizt kýring á aflíðandi lóðningu -nælisins niður á eðlilegt dýpi. 7égna veðurs fékk varðskipið t>ór takmarkaðan tíma til frek- :>ri athugana á öðrum slóðum og bxður það síns tíma. þátt í framleiðslustörfunum og eru það tvö hundruð og fimmtíu unglingar. Meðal þeirra er lands- prófsdeild skólans og var þeim gefið Ieyfi þrátt fyrir mótmæli foreldra. Undanfarna daga hefur verið góður afli hjá netabátum og handfærabátum og bárust þannig á land á föstudag, laugardag og sunnudag um 3400 tonn af væn- um og fallegum fiski. Á sunnudag var nokkuð hvasst í Eyjum og voru netabátar að- eins sjó og höfðu aflahæstu bátamir allt að 50 tonn í róðri og samtals varð aflinn þann dag um 1200 tonn. f gær var kom- ið gott veður í Eyjum og allir bátar á sjó og voru þeir fyrstu væntanlegir að landi um kl. 18 og virtist ekkert lát á aflan- um. Eyjaskeggjar vinna dag og nótt og mikil mannekla ríkir á staðn- um. Hafa þannig 250 unglingar í Gagnfræðasnólanum sogast inn í framleiðslustörfin. 1 fyrsta skipti hafa nemendur í lands- prófsdeild farið á vettvang og ríkir mikil óánægja meðal for- eldi-a landsprófsnemenda út af bví. I gærmorgun var skólastjór- inn kærður fyrir að sleppa þess- um nemendum lausum sem er gert í algjöru heimildarleysi frá fræðslumálastjóm. Laufcy Engilberts. Kvenfélag sósíalista: Fundurinn er í kvöld kl. 20.30 Kvenfélag sósíalista held- ur fund í kvöld, þriðjudag, í Tjamargötu 20 og hefst hann kl. 20.30 stundvíslega. Á dagskrá fundarins eru félagsmál, fræðsluerindi og æskulýðsmál. Framsögumaður Lauf- ey Engilberts. Fundarstjóri Elín Guðmundsdóttir. Gest- ir fundarins verða Böðvar Pétursson fulltrúi í Æsku- lýðsráði og Ölafur Hanni- balsson frá Æskulýðsfylk- ingunni. Undir liðnum æskulýðs- mál verður rætt um tóm- stundastörf barna og ungl- inga, sjoppur, lengri skóla- tíma, sumarbúðir, sumar- vinnu bama og unglinga o.fl. og munu þessar kon- ur flytja stutt erindi um þau efni: Þórunn Magnús- dótir, Hallfríður Jónasdótt- ir, Valgerður Gísladóttir, Halldóra Kristjánsdóttir, Adda Bára Sigfúsdóttir, María Þorsteinsdóttir og Margrét Sigurðardóttir. Fundurinn hefst kl. 20,30 stundvíslega. ^iglufjarðarskarð gert bílfært SIGLUFIRÐI í gær. — í gær var Sjglufjarðarskarð rutt og er nú fært bílum og er þetta gert með tilliti til Iand9móts skíðamanna um páskana. Skömmu eftir há- degi varð vart við jarðskjálfta- kipp og verður þánnig ennþá vart við væga kippi. — H.B. 1

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.