Þjóðviljinn - 05.04.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 05.04.1963, Blaðsíða 1
Borgarráð samþykkir aðstoð við aldrað fólk A fundl borgarráðs 2. þ.m. var samþykkt tillaga um aðstoð við aldrað fólk en fulltrúar Alþýðu- bandalagsins í borgarstjórn hafa lengi barizt fyrir því máli og hefur Alfreð Gíslason flutt margar tillögur um þetta efni en engin þeirra náð fram að ganga. En eins og oft áður hefur þessi barátta Alþýðubandalagsins þó borið þann árangur, að ihaldið hefur nú að lokum látiö undan síga og séð sig tilneytt að koma til móts við sjónarmið þess. Mál þetta var til fyrri umræðu í borgarstjórn í gær og talaði Aifreð Gíslason þar fyrir hönd Alþýðubandalagsins og fagnaði því, að loks skyldi hafa náðst samstaða allra flokka um framgang þessa rcttlætis- og mannúðarmáls. Lýstu aliir b orgarfulltrúar er til máls tóku fylgi sínu við mál- ið. Var því síðan vísað til 2. umræðu. Tiliaga borgarráðs verður birt hér í blaðinu á morgun. Kl. 8,30 í kvöld, föstudag, hefst í Tjarn- argötu 20 þriðja erindið, sem flutt er á veg- um fræðslunefndar Sósíalistaflokksins urr leið Islands til sósíalisma, Brynjólfur Bjarna- son talar um flokk verkalýðsins og hlut verk hans. * Sósíalistar eru eindregið hvattir til a; fjölmenna. I Föstudagur 5. apríl 1963 — 28. árgangur — 80. tölublað. Franskir námamenn hverfa til vinnu sinnar í dag PARÍS 4/4. í kvöld var bundinn endir á verkfall frQnclrra lrnlQnámn- manna sem staðið hefur í 35 daga. Forygtu- menn verkalýðssam- banda þeirra er komm- únistar, kaþólskir og sósíaldemókratar ráða sendu sameiginlega orð- sendingu frá námabæn- um Lens og skoruðu á námamenn að hefja aftur vinnu á morgun I gærkvöld náðu fulltrúar verkfallsmanna og stjórnarvald- anna samkomulagi um uppkast að nýjum kjarasamningi og f dag var það Iangt fyrir verka- menn. Talið er að þeír muni samþykkja tillögurnar með yfir- gnæfandi meirihluta atkvæða. j Verkamenn við þrjár námur f Songsvertin Rlharmonía A pálmasunnudag og skírdag flytja Sinfóníu- hljómsveit Islands og söng- svcitin Filharmonía oratorí- una Messías eftir Hándel í Háskólabíói og stjórnar Róbert A. Ottósson bæði kórnum og hljómsveitinni. Er þetta í þriðja sinn, sem þetta verk er flutt hér á landi. Myndin hér að ofan er af söngsveitinni Filharm- oníu. — (Ljósm. P. Thom- sen.) i Lens-héraði hafa samþykkt að 1 halda verkfall’inu áfram. Byggingamálin rædd í borgarstjórn utinn skyEdunni við aSmenning Hvað áað gera um páskana? Hvað eigum við að gera um páskana? Hvert eigum við að fara? Hvar verða skipin og flugvélamar? Hvað verður sýnt í ieikhúsun- um og hvað veröur um að vera í skák og bridgeheiminum? Svörin við þessum spumingum er að finna á 2. síðu, en myndiin hér fyrir ofan var tekin í páskaferð Ferðaskrifstofunnar Sunnu í fyrra og sjást á henni Islendingar í einni af skemmtiferðum þeim sem efnt er tii á Kanaríeyjum. Islendingarnir 'em að virða fyrir sér stórbrotið Iandslag og hafa ekið upp úr dalnum Orotava upp í 3000 metra hæð í hlíðar eidf jallsiins Teide. Þau tíðindi gerðust á borgarstjórnarfuridi í gær, að íhaldsmeirihlut- inn (þar með talið litla íhaldið Óskar Hallgríms- son) vísaði frá fillögu er Guðmundur Vigfússon flutti um byggingamál, þar sem m. a. var lagt til að borgarstjórn ályktaði: „að hraða svo sem fðng em á undirbúningi að úthlutun lóða til íbúðabygginga. að skora á stjómarvðldin að leita allra ráða til að lækka byggingarkostnað íbúða, t.d. með Iækkun eða niðurfeiiingu inn- flutningsgjalda og söluskatts af byggingaefni. að skora á ríkisstjómlna og Alþingi að gera ráðstafanir til að útvega aukið lánsfé í'il íbúða- bygginga, að skora á sðmu aðila að hækka lán til íbúða, þannig að þau nemi a.m.k. 50% byggingar- kostnaðar meðalíbúðar og lækka vexti af íbúðariánum". Tillaga Guðmundar sem verður birt í heild hér í blaðinu á morgun var upphaflega flutt í borgarstjóm 17. janúar sl. en þá var samþykkt með 10 atkv. gegn 3 að fresta henni þar til fjallað hefði verið um bygginga- áætlun borgarinnar í borgar- stjóm. Eftir að hafa legið á þessari sjálfsögðu tillögu hátt í þrjá mánuði samþykkti íhaldsmeiri- Hlþýðubandalags- fólk Hafnarfirði Spllakvöld Alþýðubandalagsins, hið síðasta á þessum vetri verð- ur haldið nk. laugardag klukkan 8.30 í G.T.-húsinu. Kaffiveitingar á boðstóium, kvöldverðlaun verða veitt og einnig heildarverðlaun fyrir vet- urinn. Bjöm Þorsteinsson sagnfræð- ingur sýnir skuggamyndir. hlutinn svo á fundinum í gær að visa henni frá, þar sem hún væri óþörf! Þannig neitar borgarstjórnar- íhaldið þeirri staðreynd, að íbúðabyggingamálin séu nokkurt vandamál þrátt fyrir stórfelldan samdrátt íbúðabygginga síðustu 3—4 ár eftir að „viðreisnar- stefna" ríkisstjórnarinnar var farin að sýna árangur sinn í verki. Þannig ncitar íhaldið að nokkur þörf sé á að hraða undirbúningi byggingalóða, neitar að nokkur þörf sé á að vinna að því að lækka bygginga- kostnaðinn, neitar að nokkur þörf sé á auknum lánum til íbúðabygginga og neitar að nokkur þörf sé á að lækka vexti af lánum til íbúðabygglnga. Þannig hefur íhaldið bmgðizt þeirri skyldu sinni við aimenn- ing í bænum að Iétta undir með honum við að koma sér upp þaki yfir höfuðið. Langar og harðar umræður urðu í borgarstjóminni um til- lögu þessa og byggingamálin al- mennt og er ekki unnt að rekja þær hér að sinni, en í blaðinu á morgun verður sagt frá því helzta sem þar kom fram. Samkvæmt hinum nýja samn- ingi munu verkamenniroir nú þegar fá 6,5 prósent launahækk- un og til viðbótar 6 prósent hækkun á næsta ári. Auk þess fá námamennimir greidda 100 franka þegar þeir hverfa til vinnu, en megnið af þeirri upp- hæð verður síðar dregið af kaupi þeirra. Upphaflega fóm verka- menn fram á 11 prósent launa- hækkun, þar af átta prósent í einu lagi. Má því segja að þeir hafi náð heldur betri kjör- um en þeir kröfðust í fyrstu. Ennfremur munu stjómarvöldin verða við kröfum þeirra um fjögurra vikna orlof. Óánægjuraddir Námamenn í Merlebach komu í dag saman á fjöldafund og samþykktu hinn nýja kjarasamn- ing með miklum meirihluta at- kvæða. Talið er að svipað verði upp á teningnum annars staðar á verkfallssvæðinu. Þó hafa heyrzt óánægjuraddir, meðalann- ars í Lens. Verkfallsmenn þar héldu fund í dag og ásökuðu sumir forystumennina fyTir að hafa látið undan stjómarvöld- Unum og samþykkt launahækk- anir smám saman i stað veru- legrar hækkunar í eitt skipti fyr- ir öll. Námamennimir 240.000 munu hafa tapað í launum vegna verk- fallsins um 300 milljónum franka eða sem svarar 2.500 milljónum íslenzkra króna. Námueigendum- ir munu þó hafa tapað miklu meiru, en ekki er auðvelt að meta tjón þeirra. Ekki er heldur auðvelt að gizka á hvaða afleið- ingar verkfallið mun hafa á efnahagslífið í landinu. Margar deilur óleystar Margir starfshópar í Frakft- landi eiga í kjaradeilum án þess að samkomulag hafi náðst. Er búizt við að de Gaulle forseti muni bráðlega halda útvarps- 'og sjónvarpsræðu um efnahags- ástandið í landinu. í dag gerðu strætisvagnastjór- ar í París skyndiverkfall. Starfs- menn við útvarp og sjónvarp munu á morgun gera sólarhrings verkfall til stuðnings launakröf- um sinum. Á meðan á því stend- ur verður engu útvarpað nema tónlist af plötum og fréttum. Fulltrúar 350.000 jámbrautar* manna og stjómarínnar komust í kvöld að samkomulagi um nýjan kjarasamning. Samkvæmt honum munu jámbrautarmenn- imir fá fimm prósent launa- hæRkun 1. april og auk 3,2 prósent 1. janúar. ÆFR Nokkur sæti laus í páska- ferð Æskuiýðsfylkingarinnar í Öræfasveit. Hringið í síma 17513 og tryggijj ykkur far. Lágt ferðagjald. ÆFR.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.