Þjóðviljinn - 18.04.1963, Blaðsíða 1
• Samkomulag heíur tekizt milli
Alþýðubandalagsins og Þjóðvamar-
flokksins um samstöðu í komandi
Alþingiskosningum og undirrituðu
fulltrúar þessara aðila yfirlýsingu
þess efnis síðdegis í gær.
• Bjóða þessir aðilar fram í
nafni Alþýðubandalagsins á grund-
velli stefnuyfirlýsingar, sem starf-
að verður eftir á kjörtímabilinu.
Munu framboð Alþýðubandalags-
ins verða birt næstu daga.
• í blaðinu á morgun verður birt
yfirlýsing sú, sem samninganefndir
þessara aðila undirrituðu á fundi
sínum í gær.
Sameiginíeg framboð Alþýðu-
bandalagsins og Þjóðvarnar
BreiSarí samsfaSa vinsfri manna / komandi kosningum en um árabil
• í ræðu sinni í útvarpsum-
ræðunum í gærkvöld, skýrði
fyrsti ræðumaður Alþýðu-
bandalagsins, Karl Guð-
jónsson, frá því að samkomu-
lag hefði tekizt um sameig-
inleg framboð Alþýðubanda-
lagsins og Þjóðvarnarflokks-
ins í kosningum þeim, sem
fram eiga að fara í vor.
Undirrituðu fulltrúar þess-
ara aðila yfirlýsingu um
þe'tta á fundi síðdegis í gær.
• Þjóðvarnarflokkurinn mun standa að fram-
boðum með Alþýðubandalaginu og í nafni þess á
grundvelli sameiginlegrar stefnuskrár, sem starf-
að verður eftir á kjörtímabilinu.
Yfirlýsing
F. í.
„Ve@na forsíðulréttar I
dagblaðinu Vísi í dag, með
fyrirsögninnj „Tæknileg
bilun Hrímfaxa talin vafa-
laus“, leyfi ég undirritað-
ur mér að taka fram eft-
irfarandi;
1. — Það er einlæg von
allra að takast megi að
finna orsakir þessa sorg-
lega slyss. Nefnd sérfræð-
inga hefur verið falið að
ráða þá gátu, en hún hef-
ur enn ekki komizt að
neinni niðurstöðu, sem
ekki er heldur við að bú-
ast, þar sem svo skammt
er um liðið, en verkefni
nefndarinnar mangslutng-
ið og flókið. Ber því mjög
að víta allar ábyrgðarlaus-
ar fullyrðingar um orsak-
ir slyssins á þessu stigi
málsins, og ég fullyrði að
ég mæli fyrir niunn allra
heiðvirðra manna þegar ég
staðhæfi að slíkt sé öllum
í óþökk.
2. — Þá ber einnig að
harma annað smekkleysi,
sem fram kemur í fyrr-
greindrí grein í Vísi í dag
— atriði, sem auðveldlega
gætj valdið misskilningi
og sársauka hjá aðstand-
endum þeirra sem fórust.
Reykjavík. 17. apríl 1963
Örn Ó. Johnson, forstj.
Flugfélags íslands h.f.“
Karl Guðjónsson skýrði frá
samkomulagi þessu í lok r- ‘
sinnar við útvaipsumræðurr
gærkvöld og fer niðurlag ræðu
hans hér á eftir:
Að undanfömu hafa staðið yf-
ir samningar milli Alþýðubanda-
lagsins og Þjóðvarnarmanna um
að þessir aðilar standi sameigin-
lega að framboðum við kosning-
amar 9. júní n.k.
Þjóðvamarflokkurinn gerði Al-
þýðubandalaginu tilboð um laus-
tengd kosningasamtök, þannig að
Þjóðvamarflokkurinn yrði ekki
beinn aðili að Alþýðubandalag-
inu en stæði hins vegar að sam-
eiginlegum framboðum með því
á grundvelll stefnuyfirlýsingar
sem starfað yrði eftir á kjör-
tímabilinu. Samningar um þetta
hafa tekizt og verið undirritaoir.
Okkur Alþýðubandalagsmönn-
um er þetta mikið fagnaðarefni
og svo mun og vera öllum þeim,
sem af einlægni vilja spyma
gegn þeim hættum sem við þjóð
okkar blasa, ef haldið yrði á-
fram á þeim brautum, sem nú-
verandi rikisstjóm hefur markað
sér.
Okkur Alþýðubandalagsmönn-
um er það vél ljóst, að mörg-
um framsæknum fylgismanni
okkar hefur þegar fundizt of
lengi dragast að við tækjum að
birta framboðslista á vegumokk-
ar hreyfingar. Nú væntum við
þess að þeir skilji, að sú bið var
vel til vinnandi af því að hún
leiddi til þeirrar sameiningar
vinstri aflanna, sem nú er orðin.
Framboðsfistar Alþýðubanda-
lagsins munu nú taka að birtast
hver á fætur öðrum. Á þeim
öllum munu Þjóðvamarmenn
skipa ýmis sæti, enda standa
þeir að þeim og vinna að fram-
gangi þcirra við okkar hlið i öll-
um kjördæmum landsins.
Alþýðubandalagsmcnn, Þjóð-
varnarmenn og aðrlr vinstri-
menn um Iand allt. Biðinni eftir
aukinni samstöðu þeirra afla,
sem áður voru dreifð og ósam-
taka er Iokið. Við hefjum kosn-
ingaundirbúninginn af meiri
þrótti og á breiðari grundvelli en
áður. Samtök okkar munu reyn-
ast sigursæl, enda þarf þjóðin
þess fremur við nú en oft áð-
ur“.
Útdráttur úr ræðu
Karls er birtur á 4. síðu
blaðsins í dag.
Húsbóndavaldið er í höndum
launfsega á kosningadaginn
Valdboi gegn launþegum
tefna núverandi stjórnar
Gegn þeirri stefnu verður almenningur
að rísa í komandi kosningum
I ræðu sinni við útvarpsumræðurnar í gær-
kvöld raktj Eðvarð Sigurðsson þróun kaup-
gjalds- og kjaramála á því tímabili, sem nú-
verandi stjómarflokkar hafa farið með völd,
eða allt frá þvi „að Sjálfstæðisflokkurinn mynd-
aði minnili'utastjóm Alþýðuflokksins“ síðla
árs 1958, eins og Eðvarð komst að orði. Afrek
þessarar sjórnarsamsteypu em í stuttu máli:
— Núverandi ríkisstjórn verðskuldar ,,við-
reisnarheitið“ að einu leytt fyllilega. Hún hef-
ur unnió ósleitilega að viðreisn peningavalds-
ins í landinu og bættri aðstöðu bankavalds og
gróðamanna. En á sama tíma eru vinnustétt-
■ irnar nauðbeygðar til þess að lengja vinnudag
sinn svo, að við beina vinnuþrælkun jaðrar og
fjöídamargir opinberir starfsmenn svo sem
kennarar, læknar og verkfræðingar hafa hrak-
izt úr stöðum sínum og jafnvel af lanli brott.
vegna versnandi lífskjara, sem Ieitt hafa af
viðreisninni. — Á þessa leið fórast Atfreð Gíslasyni m.a. orð
í upphafi ræðu sinnar við útvarpsumræðumar í gærkvöld.
Tlr I ársbyrjun 1959 var allt
samningsbundið kaup verkalýðs-
félaganna lækkað með lagaboði
um rösk 13%.
Snemma árs 1960 hófst við-
reisnin mcð stórfelldri gengis-
lækkun og gífurlegum verðhækk-
unum, sem henni fylgdu.
ir f bæði skiptin voru löglegir
samningar verkalýðsfélaganna
rofnir með Iagaboöi.
Verkalýðshreyfingin beið á-
tekta allt fram til miðs árs 1961
og hafði margsinnis leitað eftir
samkomulagi við ríkisstjómina
um leiðir til þess að bæta kjör
almennings án þess að til verk-
falla þyrfti að koma, en ríkis-
stjómin hafnaði öllu samkomu-
lagi. Á áranum 1959—1961 hafði
kaup verkamanna því verií
lækkað ura 13% og á sama tími
hafði verðlag hækkað um 17 j
samkvæmt útreUoningtnn Hag-
stofunnar. _
Þegar svo var korrúð knúði
verkalý' ’ rsvfingin fram nokkr-*
ai kjfi' Lur, en ríkisstjórniii
greip jafnskjótt til gengislækk-
unar til þess að skerða kjör al-
mennings á ný.
Og öllum kjarabótum, sem
verkalýðshreyfingin hefur knúið
fram til þessa, hafa stjómar-
flokkarnir látið ræna aftur af
Hropaði
í Hengli
Um kl. 5 sd. á skírdag hrap-
aði unglingspiltur í Hengli. Var
hér um að ræða skáta frá
Reykjavík, 16—17 ára gamlan.
Hann var einn á ferð í fjall-
inu, þegar snjóhengja brast und-
an honum og mun hann hafa
fallið um 2 mannhæðir. Pilt-
urinn varð að ganga áleiðis til
byggða og mun hafa komist
mest-alla leiðina. Kl. 10 um
kvöldið kom svo sjúkrabíll frá
Selfossi og flutti hann á Slysa-
varðstofuna í Reykjavík. Grun-
ur lék á að hann væri hand-
leggsbrotinn og ef til vill eitt-
hvað meira brákaður.
verkalýðnum með nýjum verð-
hækkunum, þótt stjómin hafi
ekki þorað annað en að viður-
kenna réttmæti þess að verka-
menn fengju nokkrar kjarabæt-
ur.
Þar við bætist að ríkisstjómin
hefur iðulega gripið til þess að
setja ofbeldislög gegn verkalýðs-
hreyfingunni og fleiri stéttum,
þar sem löglega boðaðar vinnu-
stöðvanir voru bannaðar og loks
má minna á gerðardómslögin ill-
ræmdu gagnvart sjómannastétt-
inni á sl. sumri. — En þegar
ríkisstjórnin kom til valda var
það eitt af fyrirheitum hennar
að hafa engin afskipti af vinnu-
deilum verkalýðsfélaga og at-
vinnurekenda. Vegur ríkisstjórn-
arinnar er því varðaður valdboð-
um • gegn verkalýðshreyfingunni
og öllu launafólki.
Ræðu sinni lauk Eðvarð á eft-
irfarandi hátt:
„Stefna stjórnarflokkanna á
liðnu kjörtímabili hefur fært
launþegum lækkaðan kaupmátt
og lengdan vinnudag. Réttindi
og frelsi verkalýðsfélaganna hef-
ur hvað eftir annað verið skert.
Þeir krefjast nú endurskoðunar
á vjnnulöggjöfinni til þess að
þrengja kosli verkalýðshreyfing-
arinnar enn meira.
Gegn þesssari stefnu verður
aiþýða þessa lands að fylkja
liði í komandi kosningum. Mcð
öflugri sókn í kosningunum, scm
helst í hendur við hagsmuna-
baráttuna er hægt að tryggja
batnandi lífskjör, styttan vinnu-
dag mcð óskertum tekjum og
vemda frelsi og réttindi verka-
Iýðshreyfingarinnar“.
Þá vék Alfreð að því, að ann-
ar aðalþáttur viðreisnarstefnunn-
ar snýr að erlendu f jármálavaldi,
sem ríkisstjómin hefur mjög
leitað eftir tengslum við. Þar er
að leita orsakanna fyrir réttinda-
afsalinu í landhelgismálinu, en
sú hætta vofir vissulega enn yf-
ir, að svikasamningurinn við
Breta um undanþágur til veiða
í landhelginni verði enn fram-
lengdur á næsta ári, ef núver-
andi stjómarflokkar fá að ráða.
Samningur sá, sem Danir hafa
gert við Breta um færeysku
landhelgina sannar það m.a. ó-
tvírætt.
Lík finnst í
porti við sænska
frystihúsið
I gær fannst lík af fullorðn-
um manni í portinu við sænska
frystihúsið. Skafið var yfir líkið
og er talið líklegt að maðurinn
hafi sofnað þarna og króknað
í hríðinni í fyrrinótt. Þar sem
ekki hefur náðst samband við
aðstandendur mannsins er ekki
hægt að birta nafn hans að
sinni.
Það hefur sannast á núver-
andi ríkisstjóm, að hún stefnir
að innlimun landsins í Efnahags-
bandalag Evrópu og tilraunir
hennar til þess að laða hingað
erlent einkafjármagn em aðeins
forsmekkurinn að því. Ríkis-
stjómin er enn við sama hey-
garðshomið þar enda þótt hún
afneiti öllum fyrirætlunum í bá
átt fyrir kosningamar. En þess-
ar blikur eru engu að síður á
lofti.
Nú þegar skammt er til kosn-
inga reynir ríkisstjómin að gera
yfirbót vegna væntanl. skulda-
skila. Uppi em höfð ýmis gylli-
boð, tollalækkanir, auknar bæt-
ur almannatrygginga o,fl. o.fl.
En hér er aðeins á ferðinni
svikalogn til að blekkja í kosn-
ingabaráttunni. Þess má víða sjá
dæmi. Tollalækkanimar hafa t.
d. ekki áhrif á framfærsluvísi-
töluna, bar sem nauðsynjavörur
lækka ekki í verði, og færa bví
almenningi engar kjarabætur.
Og úlfshárin gægjast víðar fram.
Þannig á t.d. ekki að ákveða
launakjör opinberra starfsmanna
fyrr en cftir kosningar. Enda
mun bá enn draga að skulda-
dögum, og ný verðbólga skel’a
yfir, ef beir flokkar, sem nú
ráða sitja áfram við stjórn.
Fyrirætlanir stjómarinnai !
koma raunar Ijóslega fram f
ársskýrslu Seðlabankans, sem
nýlega var birt. Þar er fagnað
batnandi aðstöðu peningastofn-
ana undanfarið, en harmað að
launþegar skyldu einnig bera
nokkuð úr býtum með auknum
þjóðartekjum og hsifðar uppi
hótanir um það, að gerðar verði
Framhald á 2. síðu. ,
Rannsókn
flags/yssins
haldið áfram
• Rannsókn Hrím-
faxaslyssins er enn -
haldið áfram en ekki
lágu neinar niðurstöður
hennar fyrir í gærkvöld
og er þeirra tæjast að
vænta fyrr en að nokkr-
um dögum liðnum.
• Ýmsar getgátur
eru uppi um orsakir
flugslyssins en ástæðu-
laust að nefna þær
meðan ekkert frekár
liggur fyrir, enda þótt
eitt dagblaðanna hafi í
gær eftir formanni
norsku rannsóknar-
nefndarinnar, Gunnari
Halle ofursta, óstaðfest-
ar tilgátur hans. Rann-
sókninni er haldið á-
fram.
t