Þjóðviljinn - 21.04.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 21.04.1963, Blaðsíða 1
i Jarðskjálftinn á HELLU Jarðskjálftakippur fannst á Hellu á Rangárvöllum í gær og varð vart við kippinn kl. 11.50. Ekki varð vart við kipp- inn í Gunnarsholti, en lítil- lega á Hvolsvelli. Samkvæmt upplýsingum frá Veðurstof- unni kom þessi kippur fram á jarðskjálftamæli hér í Reykja- vík og mældist 4 stig og mun hafa verið í 90 km. fjar- lægð frá Reykjavík. Veður- urathugunarmaður Veður- stofunnar á Hellu var cin- mitt að skrifa athuganir sin- ar í bók á ísskápnum hjá sér og heyrði greinilega glamur í bollum og diskum í skápn- um. Ekki varð vart við kipp- inn á Eyrarbakka og Stokks- eyni. Listi Alþýðubandakgsins í Norðurlandskjördæmi eystrá Þjóðviljinn birtir í dag fyrsta framboðs- lista Alþýðubandalags- ins, sem fram kemur við alþingiskosningarnar 9. júní n.k., lista banda- lagsins í Norðurlands- kjördæmi eystra. Aðrir framboðslistar Alþýðu- bandalagsins munu síð- an birtast hver af öðr- um næstu daga. Listi Alþýðubandalagsins í Norðurl? ndskiörlæmi eystra er bannig skipaður: 1. Björn Jónsson, formaður Verkalýðsfélagsins Einingar. Akureyri. 2. Arnór Sigurjónsson, rit- stjóri. Reykjavík. 3. Páll Kristjánsson, skrif- stofumaður, Húsavík. 4. Hjalti Haraldsson, bóndi, Garöshomi z Svarfaðardal. 5. Angantýr Einarsson, kennari, Þórshöfn. 6. Jón B. Rögnvaldsson, hif- reiðarstjóri, Akureyri. 7. Olgeir Lúthersson, bóndi, Vatnsleysu í Fnjóskadal. 8. Sveinn Jóhannesson, verzl- unarmaður, Ólafsfirði. 9. Hörður Adolfsson, fram- kvæmdastjóri. Akureyri. 10. Lárus Guðmundsson, kenn- ari Raufarhöfn. 11. Stefán Halldórsson, bóndi, Hlöðum í Glæsibæjarhreppi. 12. Tryggvi Helgason, forseti Alþýðusambands Norðurl. Boðskapur framkvæmdaáætlunarinnar: Stór hluti Jramkvæmda greiðslu á óreiðuskuldum ans tíl Ríkisstjómin tók sem kunnugt er 2 millj. síerl- ingspunda að láni í Bretlandi nú í vetur. Skuldabréf hennar voru á vegum Hambros- banka seld þar með 2,5% afföllum hinn 6. des. í vetur. Bréfin sjálf eru með 6,5% vöxtum og er þetta hagstæðara þarlendum verðbréfakaupend- um en þeir eiga að venjast, enda flugu bréfin út. BJ. í dag Aðalfundur Blaðamannafélags- Islands verður haldinn í dag. sunnudaginn 21. apríl. og hefst kl. 2 síðdegis í Klúbbnum við Lækjarteig. Venjuleg aðalfur.d- arstörfg. — Stjórnin. Hér heima kallar stjómin þessa 240 millj. króna lántöku fram- kvæmdalán. Nú er þó ljóst að um það bil helmingur lánsins fer ekki til neinna nýrra fram- kvæmda heldur til að borga upp gamlar óreiðuskuldir sem eftir standa af fyrri framkvæmdum eða til að borga venjulegar raf- orkuframkvæmdir yfirstandandi árs eins og þær hafa fyrir löngu verið ákveðnar í 10 ára raforku- áætluninni. Kostnaður við lántökuna er um 10 millj. kr. og koma því aðeins um 230 millj. kr. til end- urlánanna. Ríkisstjórnin hefur nú ákveðið þá skiptingu brezka 2 millj. S lánsins sem hér segir: 1. Fiskiðna'ður 50 millj. kr. Fé þetta verði lánað beint til ein- stakra fyrirtækja gegn öruggum tryggingum. og skal um ákvarð- anir um einsakar lánveitingar leitað álit nefndar, er skipuð sé fulltrúum frá Seðlabankanum, Landsbankanum og Útvegsbank- anum. Megináherzla verði lögð ingu og verðmætisaukningu fisk- aflans. 2. Iðnaður 10 millj. kr. Fé þetta verði lánað til iðnaðar- bygginga skv. nánari ákvörðun níkisstjómarinnar, f samráði við forystumenn iðnaðarins. 3. til raforku- og jarðhitamála vegna framkvæmda fyrir árslok 1962, 40 millj. kr. Lánsfé þetta skal ganga til að greiða bráða- birgðalán, er tekin hafa verið vegna raforkuframkvæmda, virkj- anarannsókna og jarðborana, einkum á árinu 1962. 4. Raforkuframkvæmdir 44 millj. kr. Lánsfé þetta skal ganga til Rafmagnsveitna ríkis- ins til að greiða kostnað vegna framkvæmda á árinu 1963 í Alþingi slitið eftir 154 daga setu ALÞINGI var formlega slitið í gær af forseta Islands og hafði þá staðið í 154 daga og þingfund- á það. að stuðla að betri nýt- ir verið á þriðja hundrað. samræmi við 10 ára raforkuáætl- unina. 5. Sogsvirkjunin 16 millj. kr. Þetta fé skal lánað Sogsvirkj- un til að Ijúka stækkun Ira- fossstöðvar. 6. Virlcjanarannsóknir 6 millj. kr. Þessi upphæð verði lánuð Raforkusjóði végna almennra virkjanarannsókna á árinu 1963. 7. Byrjunarframkvæmdir við raforkuver 20 millj. kr. Taka verður, áður en langt um líður i vitamálastjóra. Dómsmorð á Spání Grimau var ákvörðun um byggingu nýs raf- orkuvers fyrir Suður- og Vestur- landið, og koma þar ýmsir möguleikar til greina. Er þessi upphæð ætluð til þess byrjun- arkostnaðar, sem vænta má, að leggja þurfi í á þessu ári vegna slíkra framkvæmda. 8. Hafnargerðir 50 millj. kr. Ríkisstjórnin mun ákveða nánar skiptingu þess fjár á einstakar hafnir. að fengnum tillSgum Julian Garcia Grimau tekínn af lífi eftir hroðalegar pyndinaar MADRID 20/4. Spænski and- fasistinn Julian GarCia Grimau var skotinn i dögun. Hann var skotinn f garði Carabanchel- fangelsisins í útjaðri Madril. Verjandi hans og bróðir dvöld- ust í fangelsinu þar til aðeins hálf stund var til aftökunnar. Þeir vonuöu eins og svo marg- ir aðrir að Franco-stjórnin myndi náða hann á síðustu stundu. Sósíalístafélag Reykjavíkur: Framboðii rætt á þriðjudaginn Fundur verður haldinn n. k. þriðjudag í Sósíalistafélagi Reykjavíkur kl. 8.30 í Tjarnargötu 20. Fundarefni: 1. Framboð Alþýðubandalagsins við alþingisk’osningarnar. 2. Félagsmál. Félagar eru hvattir til að mæta,stundvíslega. VA \ ! Neitaði prestlegri þjónustu Það þykir í írásögu færandi. að Grimau neitaði að skrifta .g neyta sakramentis. Kaþólskar prestur var hjá honum fram á hinztu stund og reyndi að tala um fyrir honum. En allt kom fyrir ekki. Grimau var handtekinn í nóv- ember síðastliðnum og dreginn fyrir rétt. Hann var sakaður um að vera í miðstjórn kommúnista- flokksins spænska og um að hafa pyndað andstæðinga sína er hann var lögreglustjóri í Barce- lonu í borgarastríðinu. Grimau neitaði harðlega öllum pynding- arákærum en dró enga dul' á stjórnmálaskoðanir sínar. kvaðst hafa verið kommúnisti í 25 ár og myndi deyja sem kommúnisti. Fyndaður til óbóta Meðan Grimau var f fangelsi falangistaböðlanna og beið dóms sins var hann pyndaöur á hrottalegasta hátt. Brezkur lækn- fr, Aaron Rappaport að nafni, sem dvaldist fyrir skömmu i Madrid fékk tækifæri til að sjá Grimau. Ilonum segist svo frá að Grimau hafi líkzt vofu A gagnauga hans var djúpt sár sem augljóslega hefur náð allt til heilans. Minnj hans var skert. 'Báðir handleggir hans voru að nokkru leyti lamaðir vegna bein- brota. Þrátt fyrir þessar rudda- legu pyndingar mun Griman ekki hafa veitt böðlum sínum neinar þær upplýsingar sem komfð gætu andfasistahreyfing- unni á Spánl í koll. Margir erlendir stjómmála- menn og ýmsar stofnanir víða um heim skoruðu á Franco ein- ræðisherra og stjórn hans að þyrma lífi Grimaus. 1 mörgum stórborgum Evrópu var efnt til mótmælaaðgerða úti fyrir sendi- ráði Spánar. í gærkve^di var efnt til slíkra aðgerða í Róm, París og Amsterdam. Eiginkona Grimaus dvelst nu í París. T gær sendi hún skeyti til utanríkisráðherra Bretlands. Homes lávarðar. og bað hann að hjálpa. í gærmorgun reyndi hún gð ná sfmasambandi við Kenne- dy Bandaríkjaforseta f sama skyni. Fékk hún þau svör að forsetinn befði öðrum verkefnum að sinna.

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.