Þjóðviljinn - 23.04.1963, Side 1
Þriðjudagur 23. apríl 1963
267 stúdentsef ni í vor
Upplestrarfrí sjöttubekkinga í menntaskólunum eru nú hafin.
160 lesa undir .stúdentspróf við MR, 70 á Akureyri, 15 á Laugar-
vatni og 22 í Verzlunarskóla íslands. — Sjá frétí á 2. síðu.
Listi Alþýðubandalagsins í Suðurlandskjördæmi
Karl Guðjónsson Bergþór Finnbogason Jónas Magnússon Guðrún Haraldsdóttir
Björgvin Salómonsson Sigurður Stefánsson
Böðvar Stefánsson Kristín Loftsdóttir Guðmunda Gunnarsdóttir Frímann Sigurðsson Gunnar Stefánsson Þorsteinn Magnússon
Framboðslisti Alþýðu-"5'
bandalagsins í Suður-
landskjördæmi við al-
þingiskosningarnar í vor
hefur verið ákveðinn og
er hann þannig skipað-
ur:
1. Karl Guðjónsson alþingis-
maður, Vestmannaeyium
2. Bergþór Fjnnbogason
kennari. Selfossi
3. Jónas Magnússon bóndi,
Strandarhöfða V- L.and- *
eyjum
4. Guðrún Haraldsdóttir, hús-
móðir, Hellu Rangárvöllum.
5. Björgvin Salómonsson
, námsmaður. Ketilsstöðum
Mýrdai
6. Sigurður Stefánsson, form.
Sjómannafél. Jötuns, Vest-
mannaeyjum.
7. Böðvar Stefánsson skóla-
stióri. Ljósafossi, Gríms-
nesi.
8. Kristín Loftsdóttir ljósmóð-
ir, Vik í Mýrdal
9. Guðmunda Gunnarsdóttir
form. Verkakvennafélagsins
Snótar. Vestm.eyjum.
10. Frímann Sigurðsson oddviti.
Stokkseyri
11. Gunnar Stefánsson bóndi,
Vatnsskarðshólum, Mýrdai
12. Þorsteinn Magnússon bóndi.
Álfhólahjáleigu, V-Landeyj-
um. ________________
lunnar Eyjólfs-
son, ieikari,
'ilýtur verðlaun
Að lokinni sýningu á Andorra
s.l. laugard. afhentt Guðlaugur
Rósinkrans Þjóðleikhússtjóri
verðlaun úr Menningarsjóði
Þjóðleikhússins og Ihlaut þau að
þessu sinni Gunnar Eyjólfsson
leíkari. Verðlaunin sem eru 16
Framhald á 2. síðu.
Röðul rak upp á sker
Kl. 2 á Iaugardaginn átti togarinn Röðull frá Hafnarfiirði að fara
á veiðar. Þegar til átti að taka vantaði eitthvað af mönnum og
skipið beið útá firði mcðan reynt var að hafa uppá þeim í landi.
Nú vildi ekki betur til en svo að togarann rak uppá svonefnt
Torfuskcr og stóð fastur. Samt var strandið ekki alvarlegra en
svo að skipið losnaði fljótlega aftur af eigin rammleik og hélt
á veiðar eins og ekkert hefði í skorizt, þó að undangenginni
botnrannsókn. Myndln er af togaranum þar sem hann stendur á
skertinu. (Ljósm. Þjóðv. A. K.),
Utför 6 sem fórust með
Hrímfaxa gerð á morgun
Kl. 11 árdegis s.l.
sunnudag kom Straum-
faxi, Skymasferflugvél
Flugfélags íslands, hing-
að til Reykjavíkur með
jarðneskar leifar 7
þeirra er fórust með
Hrímfaxa á páskadag,
áhafnarinnar og tveggja
farþega.
Flugvélin 'nam staðar á flug-
vellinum rétt austan við af-
greiðslubyggingu Flugfélagsins
og voru líkkistumar hafnar þar
út úr flugvélinni. Séra Bjami
Jónsson vígslubiskup flutti bæn
en síðan var ekið með kistumar
suður í Fossvogskapellu. Við-
staddir athöfnina á flugvellinum
voru aðeins aðstandendur hinna
látnu, stjóm og framkvæmda-
stjóri Flugfélag íslands og
nokkrir starfsmenn þess. \
Lík Þorbjamar Áskelssonar út-
gerðarmanns frá Grenivík verð-
ur flutt norður til greftrunar, en
útför ■ hinna sex, Margrétar
Bárðardóttur, Maríu Jónsdóttur
flugfreyju, Helgu G. Henckeli
flugfreyju. Inga G. Lárussonar
loftsiglingafræðings, Ólafs Þór
Zoega flugmanns og Jóns Jóns-
sonar flugstjóra, verður gerð frá
dómkirkjunhi á morgun, mið-
vikudag. Athöfninni verður út-
varpað og ennfremur verður
komið fyrir hátalarakerfi í Frí-
kirkjunni og geta þeir er þess
óska og eigi komast 1 Dómkirkj-
una hlýtt þar á athöfnina.
Lærbrotnaði á
báðum fótum
Klukkan 11 í fyrrakvöld stór-
siasaðist maður í bílslysi ofan
við Ártúnsbrekku. *
Maðurinn var fyrst fluttUr á
Slysavarðstofuna og þaðan á
Landspítalann. Hann reyndist
lærbrotinn á báðum fótum og
með áverka á höfði. Hann heit-
ir Gunnlaugur Bjamason og á
heima á Ljósvallagötu 10 hér í
borg. Líðan hans mun eftír at-
vikum.
Sósíalistafélag Reykjavíkur:
Framboðið í Reykjavík
rætt á fundinum í kvöld
Fundur verður haldinn í kvöld þriðjudag, kl. 8.30 í Tjarnargötu 20.
Fundarelni:
1. Framboð Alþýðubandalagsins við alþingiskosningarnar.
2. Félagsmál.
3. Hátíðahöld 1. maí. Framsögn: Eðvarð Sigurðsson.
Félagar eru hvattir til að mæ'ta stundvíslega.