Þjóðviljinn - 27.04.1963, Side 12
-100%
-75%
-50%
-25%
53,5%
Þetta var rislægsti
dagurinn í glímunni
við hálfu milljónina, en
við þökkum með virkt-
um þeim sem lögðu sinn
skerf fram í gær. Það
vantar nú kr. 232.500 á
að settu marki verði
náð. Við erum að vísu
á eftir áætlun, en okk-
úr er ekkert fjær skapi
en að gefast upp. Þjóð-
viljinn þarf nauðsynlega
á þessari upphæð að
halda. Stuðningsmenn
hans hafa þegar unnið
afrek og nú vonum við
að dagurinn í dag verði
blaðinu sem hagstæð-
astur. Skrifstofan á
Þórsgötu 1 verður op-
in í dag kl. 10—12 ár-
degis og kl. 1—3 síð
degis.
Handleggsbrot
Laust fyrir hádesi í gær varð
það slys á Gelgýutanga, að 13
ára drengur, Sturla Bragason,
Gnoðarvogi 20, sem var þar á
ferð á hjóli, lenti utan í loft-
pressu sem verið var að flytja
og handleggsbrotnaði drengurinn
cg meiddist einnig á höfði. Var
hann fluttur í slysavarðstofuna
og síðan í Landsspítalann.
Laugardagur 27. april 1963 — 28. árgangur — 94. tölublað.
Smyglað vín
í stórum stíl
Fyrsta sumardag
í Lækjargötunni
I'ESSAR MYNDIR eru frá úti-
hátíðahöldunum í Lækjargötu
Botvsnnik vann
14. skákina
MOSKVU 26/4 — Fjórtándu
skák þeirra Botvinniks og Petr
osjans iauk á fimmtudaginn eft-
ir 57 leiki með sigri heims-
meistarans, en hún hafði farið
í bið daginn áður. Þeir eru nú
jafnir að vinningum, hafa sjö
hvor. Botvinnik heldur titlinum
ef hann hefur 12 vinninga að
loknum 24 skákum.
Njósnarar friðar-
insenn áferð
LONDON 26/4 — Brezkar frétta-
stofur og dagblöð fengu í gær
tvö ný skjöl frá samtökunum
„Njósnurum friðarins" sem segja
að í skjölunum séu leynilegar
upplýsingar um fyrirætlanir
brezku stjórnarinnar um al-
mannavarnir í kjarnastríði.
1 öðru skjalinu eru upplýsing-
ar svokallaðra héraðs-ríkisstjóra
sem á að hafa aðsetur í Suður-
Englandi. Skjalið er stimplað
„ríkisleyndarmál" og sett í póst
í einu úthverfi Lundúnaborgar.
Hitt skjalið, sem er sett í póst
í London á miðvikudagskvöld,
fjallar um atómæfingar Nato,
Fallex, s.l. haust og koma þar
fram atriði sem hefur verið hald-
ið stranglega leyndum.
Um páskana dreifðu „Njósn-
arar friðarins" pésa með ríkis-
leyndarmálum í þúsundum ein-
taka meðal þeirra sem þátt tóku
í páskagöngu kjanavopnaand-
stæðinga.
á sumardaginn fyrsta. Há-
tíðahöldin hófust með skrúð-
göngum barna frá Austurbæj-
arskólanum og Melaskólanum
í Lækjargötu og léku Iúðra-
sveitir fyrir göngunum.
ER STÓRA MYNDIN tekin er
prófessor Þórir Kr. Þórðar-
son ávarpar mannfjöldann að
göngunum Ioknum.
IííNDALKA MYNDIRNAR tvær
eru af Guðmundi Jónssyni
ópérusöngvara er sá um þátt-
inn árstíðaskipti og stjórnaði
söng og rabbaði við börnin
og svo vorgyðjunni sem kom
þarna fram. Við látum les-
endunum eftir að þekkja
þcssi tvö í sundur.
CTIHÁTlÐAHÖLDIN fóru hið
bezta fram og voru mjög fjöl-
sótt þótt veöur væri ekki
hagstætt og auk þeirra voru
svo inniskemmtanir í Iðnó,
Háskólabíóú og Austurbæjar-
bíói, leiksýningar og kvik-
myndasýningar. — (Ljósm.
Þjóðv. A. K.).
Það er á vitorði flestra borg-
arbúa að smyglað áfengi hefur
verið á boðstólum í ríkum mæli
á dökka markaðinum í vetur.
Hér er um að ræða 75% vodka
í uppmjóum flöskum og er
injöðurinn bruggaður í Vestur-
Þýzkalandi.
Dreifing á áfengi þessu hefur
verið yfirgripsmikil, útvegunar-
menn margir og virðist vera um
skipulegt dreifingarkerfi að ræða
og allfagmannlega að unnið.
Sögusagnir hafa gengið um það
að þessir sjálfskipuðu innflyti-
endur hefðu bát í förum it
fyrir landhelgi til að taka þar
við glaðningnum af millilanda-
skipum. Þetta rikulega framboð
■' smygluðu áfengi hefur styrkt
•gmyndina um að hér sé að
verki skipulagður smyglhringur,
stjórnað af manni eða mönnum
sem tileinkað hafa sér kunnáttu
iil slíkra verka á alþjóðamæli-
kvarða.
Þjóðviljanum hafa boriztfregn-
ir um að lögreglan sé byrjuð
að loka hringnum utan um • for-
sprakkana, en Sveinn Sæmunds-
son yfirlögregluþjónn varðist
allra frétta í gær og kvaðst ekk-
ert um málið vita. Unnsteinn
Beck tollgæzlufulltrúi kvað sér
kunnugt um að óvenjumikið
smyglað áfengi hafi verið i um-
ferð undanfarið, en kvaðst ekki
v’ta til þess að hendur hefðu
verið hafðar í hári lögbrjótanna.
Hópar Þjóðverja
í boði Loftleiða
Háskólakennarar
gerðu verkfall
PARlS 26/4 — Pófessorar og fyr-
rlesarar við franska háskóla
gerðu sólarhrings verkfall í gær
til að fylgja á eftir kröfum sín-
im um meiri fjárveitingar, fjölg-
un kennara, aukningu náms-
styrkja og bættan húsakost.
Bað um griðastað
í A-Þýzkalandi
VELJE 26/4 — 25 ára gamall
ianskur sjómaður kastaði sér í
höfnina í Stralsund í Austur-
Þýzkalandi um síðustu helgi og
synti í land, þar sem hann bað
um að fá hæli sem pólitískur
flóttamaður.
Fyrsta
Samein. þjóðanna
® r
15 blaðamenn frá Vestur-
Þýzkalandi komu hingað i sl.
viku í boði Loftleiða. Með hópn-
um kom einnig sölustjóri Loft-
Ieiða fyrir Þýzkaland og Aust-
urríki, Werner Hoening, sem
hcfur aðsetur í Hamborg.
Blaðamennirnir skoðuðu Is-
land bæði á landi og úr lofti.
Þeir fóru i bílferðir um nágrenni
Reykjavíkur og auk þess í flug-
ferðir yfir landið. Loftleiðir gáfu
þeim tækifæri til að ræða við
íslenzka blaðamenn á miðviku-
dagskvöldið og var sá fundur
hinn ánægjulegasti og fróðleg-
asti. Þýzku blaðamennirnir héldu
aftur utan í gær.
Loftleiðir munu fá tvo aðra
slíka hópa hingað í heimsókn á
næstunni. Á mánudag kemur
hingað næsti hópurinn og síðan
annar í maímánuði. Verða bað
ferðaskrifstofumenn víðsvegar að
úr Vestur-Þýzkalandi, eins og
blaðamennirriir.
Ætla má að Loftleiðir auki til
muna kynni útlendinga af Is-
landi einmitt með því að bjóða
ofangreindum starfshópum hing-
að, sem síðan hafa góða aðstöðu
til að útbreiða fróðleik um Is-
land erlendis og auka ferða-
mannastrauminn hingað.
spe* s
f gær kom í búðir í Reykja-
vík hæggeng hljómplata, sem
Sameinuðu þjóðirnar gefa út.
Hljómplatan er seld til ágóða
fyrir starfsemi Flóttamanna-
stofnunar Samcinuðu þjóðanna,
og hafa þrettán heimskunnir
listamcnn sungið inn á hana.
Platan kostar aðeins 250 krónur,
og er það um fimmtungi lægra
verð en tíðkast á slíkum hljóm-
plötum.
Eins og öllum er kunnugt,
skapar flóttafólk eitt mesta
vandamál vorra daga. Fá munu
þau ríki, sem ekki hafa komizt
í kynni við þetta vandamál f
einni eða anna'rri mynd. Smám
saman hefur þó fólk vaknað til
meðvitundar um það, hvar vandi
er hér á ferðum, og er Flótta-
málastofnun Sameinuðu þjóð-
anna vottur þess. Flóttamála-
stofnunin starfar í samvinnu við
ýmis ríki og góðgerðarfélög, og
eru fjárframlög frjáls frá þess-
um og öðrum aðilum. Starfsemi
stofnunarinnar kostar að sjálf-
sögðu mikið fé, og hefur bví
verið gripið til þess ráðs, að
gera áðumefnda hljómplötu. Yul
Brynner var formaður nefndar
þeirrar, er sá um val hljómlist-
armannanna. Hafa allir þeir. er
einhvern þátt eiga í framleiðslu
plötunnar eða sölu hennar, gefið
framlag sitt. Hér á landi sér
Rauði Krossinn um dreifingu og
sölu.
Af listamönnum þeim, er inn
á hljómplötuna hafa sungið, má
nefna Louis Armstrong, Mahalia
Jackson og Bing Crosby, frönsku
söngkonuna Edith Piaf og grísku
söngkonuna Naha Mouskouri.
Þeir er plötuna kaupa tryggiá
sér létta hljómlist og skemmti-
lega og stuðla um leið að lausn
eins mesta vandamáls vorra
daga.
1 síðasfa tölublaði Morgunblaðsins finnum við leiðara um eflingu
fiskiskipaflotans — og mynd af b/\ Ólafi Jóhannessyni sem ríkis-
stjórnin hefur selt til Noregs fyrir 2,7 milljónir króna.
Blessun viðreisnarstjórnarinnar hefur ckki hvað sízt lagzt á sjáv-
arútvcginn — og geta frændur okltar og grannar ‘ui cinnig átt
sér viðreisnarvon, þar sem við erum þcgar orðnir aflöguíærir.
t
\