Þjóðviljinn - 30.04.1963, Síða 12

Þjóðviljinn - 30.04.1963, Síða 12
SKOPLEIKUR A HAFI Á laugardagsmorgTminn kom varðskipið Óð- inn að skozka togaramim Milwood frá Aberdeen, þar sem hann var að ólöglegum veiðum innan landhelginnar á Meðallandsbugt. Skipstjórinn á togaranum lét þegar höggva á togvírana og sigldi skipi sínu til hafs. \ .. V A kappsiglingunnl á laugardag- inn, sigldi John Smith skipi sínu í veg fyrir Óðinn með þeim hætti að árekstur varð ekki um- flúinn. Bæði skipin skcmmdust nokkuð og hér er mynd af stefni Óðins, eins og það er útleikið eftir áreksturinn. Togarinn sinnti ekki að- vörunarskotum varðskipsins, en hélt áleiðis til Skotlands í fylgd með Aberdeentogar- anum Juniper. Varðskipsrnenn gerðu enga tilraun til að taka skipið, eða skjóta á það föstum skotum, heldur biðu þeir eftir brezka herskipinu Palliser, sem statt var í Reykjavík og hélt á vettvang þegar tíðindin gerðust. Nú var settur á svið einhver átakanlegasti skopleikurinn, sem gerzt hefur í viðskiptum ís- lenzku landhelgisgæzlunnar við brezku veiðiþjófana. Söguþráð- urinn er eitthvað á þessa leið: Þegar skeytið um brot tog- arans barst landhelgisgæzlunni, var skipherrann á Palliser stadd- ur á skrifstofu Péturs Sigurðs- sonar forstjóra gæzlunnar. Hann lét þegar úr höfn með skip sitt og á meðan hélt Óðinn á- fram elingaleiknum út í haf. Skipstjórinn á Milwood sinnti engum fyrirmælum og svaraði aldrei í talstöðina. Loks þegar jherskipið var komið á vettvang tfékkst hann til að hætta flótt- anum. 1 Áhöfnin á Palliser flutti nu hluta skipshafnar togarans yfir í herskipið og Óðinsmenn tóku við stjórn togarans, einnig nokkrir af Palliser. Sem nú þessir mannflutningar fara fram verða Óðinsmenn þess varir að þeir á Palliser skjóta hinum seka skipstjóra um borð í Juniper, sem lá álengdar. Juni- per setti þegar á fulla ferð til Skotlands Nú hélt Milwood til lands. en Óðinn elti Juniper og Framhald. á 2. síðu. Er blaupið eftir dutthngua Breta ar í þessu máli er fádæma klaufalegur og skoplegur. Hvers vegna var Óðinn ekki látinn stöðva togarann með föstu skoti, í stað þess að eyða tíma og elds- neyti í bjánalegan eltingaleik suður í haf? Er eitthvað sam- band á milli þessarar hegðunar og þess að Hunt skipherra á Palliser var staddur á .skrifstofu Péturs Sigurðssonar þegar skeyt- ið kom frá Öðni? Hefur Land- helgisgæzlan virkilega ekkert annað að gera en að eltast við einhverja duttlunga úr einhverj- um Hunt? Þessi undirlægjuhátt- ur við Bretana lofar sannarlega ekki góðu um framtíðina. Eitt getum við líka upplýst: Við höfum orð Brians Holts blaðafulltrúa brezka sendiráðsins fyrir því, að engin byssukúla sé til um borð í Palliser! G. O. Pétur Sigurðsson stóð á bryggj- unni þcgar skip'in komu ánægð- ur á svip. Þáttur Pallisers í þessu máli er allur hinn furðulegasti. 1 sjálfu sér er ekki undarlegt þó að manngarmurinn John Smith vilji komast undan réttvísinni. Það er ekki nema mannlegt, en hitt er öllu furðulegra að her- skipið skuli skjóta skipstjóran- um undan. Palliser hefur áður komið við sögu hér í Reykjavík. Fyrir rúmu ári var áhöfn skipsins staðinn að leikaraskap með skotvopn hér við togarabryggjuna og vegna þess að myndir voru teknar af athæfi þeirra, neyddist brezka sendiráðið til að vísa skipinu úr höfninni. Þáttur íslenzku réttargæzlunn- Æskulýðsfylkingin f Rcykja- vík hcldur 1. maí-fagnað í Næt- urkiúbbnum í Glaumbæ í kvö'd og hefst þessi góðkunni fagnað- ur kl 9. Til skemmtunar verður: ☆ Ávarp, Gunnar Guttorms- son, forséti ÆF. ☆ Óttar Guðmundsson flytur skcmmtiþátt (eftirhermur). ■ár Hið vestur-indíska trió, Don Williams, lejkur og syngur. ■fc Hljómsveit Árna Elvar leik- ur fyrir dansi. Miðar afhentir á skrifstofu ÆFR í dag, símj 17513, og við innganginn. Þriðjudagur 30. apríl 1963 — 28. árgangur 96. tölublað Við komu Óðins og Miiwood til Reykjavíkur voru mættir tveir blaðamenn og Ijósmyndarar frá Scottish Daþy Mail. Þeir eru hér á myndinni fyrir ofan og myndi margur blaðaljósmyndar- inn hér þakka sínum sæla ef hann hefði ráð á öllum þeim til- færingum, sem þejr eru með á maganum. — (Ljósm. A.K.). Til hægrj hér á myndinni er yfirvélstjórinn á Milwood, en við hlið hans er annar hásetanna, sem urðu eftir um borð. Hann gæti verið hinn 19 ára gamlj stýrimaður. — (Ljósm. A.K.). Gerræði fordæmt Akureyri í gær. — Á fundi 1. maí-nefndar verkalýðsfélaganna á Akureyri 28. þ.m var eftir- farandi tillaga einróma sam- þykkt: „Fundur 1. maí-nefndar verka- lýðsfélaganna á Akureyri, hald- inn 28. apríl 1963, lýsjr fordæm- iegu sinni á þcjrri furðulegu ráístöfun meirihluta útvarps- ráðs að meina fui’ltrúum al- þýðusamtakanna allan aðgang að dagskrá ríkisútvarpsins á degi verkalýðsins, 1 maí. Stj. BSRB mótmælír ákvöriun útvarpsins f gærkvöld barst Þjóðvjljanum svohljóðandi fréttatilkynning frá stjórn B.S.R.B.: „Á fundi stjórnar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja í dag var samþykkt með 10 atkvæðum gegn 1 svohljóðandi tillaga: „Stjóm B.S.R.B. mótmælir harðlega þeirri ákvörðun meirihluta útvarpsráðs að bregða út af þéirri venju, að formaður Banda- lags starfsmanna ríkis og bæja og forseti Alþýðusambands ís- lands flytji ávörp í dagskrá útvarpsins 1. maí. Stjórn B.S.R.B. te’ur þessa ákvörðun freklega skerðingu á þeim réttindum launþegasamtakanna, sem þau hafa notjð um langt skeið“. „Þýddi ekki ai mögia" Fundurinn Iýtur á það sem fullkomið brot á hugmyndum manna um hlutleysi og iýðræði að gera hlut verklýðssamtak- anna, stærstu félagasamtaka andsins, verri en flcstra ann- arra sem fengið hafa aðgang að dagskrá ríkisútvarpsins. Fundurinn Iítur á þessa ráð- stöfun sem freklega móðgun við verklýðssamtökin og misbrúkun á því valdi sem útvarpsráði er veitt.“ Óðinn og Milwood komu til Reykjavíkur kl. 10.30 í gærkvöld. Mikill mannfjöldi var samankominn á bryggj- unni þegar skipin komu að, en lögreglan hafði girt Ing- ólfsgarðinn miðjan, svo fólk- ið ryddist ekki. Óðinn kom fyrst að bryggjunni, en tog- arinn nokkru seinna, því að tollskoðun hafði farið fram JÍ,tj . á ytpi. höfn,- Milwood er nýlegt 250 tonna skjp, smíðað árið 1960. Eigandi þess er Burwood Fishing Co í Aberdeen. Mikið var um dýrðir þegar skipin lögðust að bryggjunni. Blossarnir frá ljðs- myndavélunum lýstu upp um- hverfjð og þar að auki voru mættij- kvikmvndatökumenn. Aðeins 5 af upprunalegri á- höfn togarans voru um borð. Vélamennirnir 3 og svo tveir hásetar Fyrri fréttir höfðu hermt að stýrimaðurinn væri einnig um borð. en skipverjar voru einhuga um að bera það til baka. Verið getur að hann skýlj sér á bak við hásetagrím- una til að forðast réttarhöld ef skiostjórinn verður ekki fram- seldur. Þórarjnn Björnsson skipherra svaraði spurningum blaðamanna greiðlega og bar að mestu sam- an við það. sem áður er komið fram um viðskipti hans við tog- arann Palliser. Þegar hann var spurður hvort hann hefði haft- fyrirmæli frá Reykjavík um að skjóta. ekki föstu skoti að tog- aranum. svaraði hann því til að hann hefði haft fulla samvinnu við yfirstjórn landhelgisgæzlunn- ar! Þegar við komum um borð í togarann, sátu hinir skozku skipsmenn afturí. Þeir voru hressir að sjá og ekki vitund fúlir. Blaðamaður frá Scottish I Daily Mail sat inni hjá þeim ! * v Brezka sendiráðið í s/æmri klípu | Þjóðviljinn hafði í gær- kvöld tal af Brian Holt blaða- fulltrúa brczka sendiráðsins. Hann kvað skipherrann á Palliser hafa fengið þau fyrir- mæli frá Englandi að fram- selja John Smith ekki nauð- ugan i hcndur íslcnzkri rétt- vísi. Hinsvcgar lýsti hann harmi sínum yfir framkomu skipherrans á Palliser, þegar hann gerði tilraun til að koma Iögbrjótnum undan með Juni- ,per og sagðist hann ekki eiga nógu sterk orð til að for- dæma þessa framkomu. Samkvæmt upplýsingum Brian Holts, er þetta fyrsta ferð Hunts skipherra á ís- Iandsmið og er sannarlega ill hans fyrsta ganga. Hann sagði að eins og mál- um væri nú komið, gætu þeir i sendiráðinu ekki gert annað en beðið ákvéðinna fyrir- mæla frá London, eða Aber- dcen. — G. O. Þórarinn Björnsson skiphcrra á Óðni ræðir við blaðamenn. — (Ljósm. A. K.). og spurði þá spjörunum úr 1. vélstjóri vjrtist hafa orð fyrir þeim félögum. Annar og 3. meist. ari voru að ganga frá í vélinni þegar vjð komum njður. 3. mejstari er ungur maður og kná- legur. Við spurðum hann hvort ekki hefði komið leki að skip- inu við áreksturinn við Óðjnn Hann sagðist ekki vita til þess. — Var þetta ekk’ mikið höga? — Ekki svo mjög. — Heldurðu að þið verðið lengi hér? — Það er ekki gott að segja. — Eruð þið nokkuð naprir útj okkur fslendingana? — Nei. nei. — Hvað heitir þú? — Við skulum ekki nefna nein nöfn. sagði hann og hló við. Fyrr í dag höfðu verið nokkr- ir menn af Palliser um borð í togaranum. en siðari hluta dags í gær kom herskipið og sótti þá. Þórarinn Björnsson kvaðst hafa sleppt mönnunum við herskipið án alls mótþróa, enda hefði sé- ekkert þýtt að mögla! — G.O. Orðsending til sósíðlista Kaffi fyrir Carólínusjóð í Tjarn- argötu 20 1. maí eftir kröfugöng- una. Skemmtun um kvöldið, hefst klukkan 8.30 stundvíslega. Skemmtiariði: 40 ár í Ijóðum og lausu máli — flutt af Hug- rúnu Gunnarsdóttur, Ingibjörgu Haraldsdóttur og fleirum. Get- raun scm ailir geta tekið þátt í. Verðlaun. Bögglauppboð. allt góðir munir. Carólínusjóðsstjórn. i I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.