Þjóðviljinn - 01.05.1963, Page 1

Þjóðviljinn - 01.05.1963, Page 1
Miðvikudagui; 1. maí 1963 — 28. árgangur — 97. 'tölublað. Þrefalt blað í dag - 1. maí Þjóðviljinn er í dag, 1. maí, samtals 28 síður — tvö 8 síðna blöð og eitt 12 síðna blað. Lesendur eru vinsamlega beðnir að athuga, að frá öðru aukablaðinu var gengið og það prentað áður en ákveð- ið var í gærdag, að sfækka blaðið enn úr 24 síðum í 28 vegna mik ils magns auglýsinga og efnis. Voru þá ekki 'tök að breyta klaus- unni efs’t á forsíðu þess blaðs. VARÐSTAÐA UM MANNRÉTTINDI! - SÓKN TIL BÆTTRA LÍFSKJARA! ALLIR MEÐ í krðfugöngu verklýðsfélagunno 1 dag minnist alþýða Reykjavíkur 40 ára afmælis fyrstu kröfugöngunnar, sem farin var hér á landi með því að f jölmenna í kröfugöngu verkalýðsfélaganna, sem hefst við Iðnó kl. 2 og á útifundinn við Miðbæjarskólann. Vinnandi fólk fylkir sér um 1. maí-ávarp og kröfur Alþýðusambandsins,' sem 1. maí-nefnd verkalýðsfélaganna hefur gert að sínum kröfum. í kröfugöngunni verða m.a. bornar þessar aðal- kröfur: Kauphækkun, styttri vlnnutíma — Burf með yinnuþrælkunina — Dagvinnan verður að tryggja lífskjörin — Verndum félaga’frelsið — Verndum sjálfstæði íslands — Enga aðild að Efna- hagsbandalaginu — Engin hernaðarbandalög — Allsherjarafvopnun. EðvarS Sigiirðsson Jón Snorri Þorleifsson Björn Þorsteinsson Jón Pétursson . Hannibal Valdimarsson Mætið öll í kröfu- göngu verkalýðsfélag- anna við Iðnó stund- víslega kl. 2 í dag. Voldug kröfuganga og ^ glæsilegur útifundur við Miðbæjarskólann er verðugt svar við þeirri fyrirætlun klofningsmannanna að leggja niður 1. maí-kröfugönguna á 40 ára afmæli hátíðahald- anna þennan dag. Með þátt- töku í kröfugöngunni frá upphafi getur vinnandi fólk sýnt afturhaldinu að það er ráðið í að standa vörð um réttindi sín og sækja fram til bættra lífskjara. Hátíðahöld 1. maJ-nefndar verkalýðsfélaganna hefjast með því að safnazt verður saman við Íðnó ki. 2 e.h. og haðan verður lagt af stað í kröfugönguna. Gengið verður um Vonarstræti, Suðurgötu, Aðalstræti, Hafnar- stræti Hverfisgötu. Frakkastíg, Skólavörðustíg, Bankastræti og Lækjargötu að Miðbæjarskólan- um, en þar hefst útifundur að göngunni lokinni. Lúðrasveit verkalýðsins og Lúðrasveitin Svanur leika fyrir göngunni og á útifundinum. Otifundurinn við Miðbæjarskólann Ræðumenn á útifundinum verffa: Eðvarff Sigurðsson, for- maffur Dagsbrúnar, Bjöm Þor- steinsson, sagnfæðingur, Jón Pétursson, símamaður og Hanni- bal Valdimarsson, forseti AI- þýffusambands íslands. Fundarstjóri verður Jón Snorri Þorleifsson, formaffur Térsmiffafélags Reykjavíkur. Merki dagsins merki Alþýðu- sambands íslands, verður selt á götum borgarinnar og kostar kr. 10.00. Mótmælið gerræði útvarpsráðs Sérstök ástæða er til þess að vekja enn athygli á þeirri ó- svífni afturhaldsins að meina Alþýðusambandi íslands aðgang að úfcvarpinu á þessum hátíðis- degi verkalýðsins og fella niður ávarp forseta Alþýðusambands- ins. Rödd verkalýðssamtakanna má ekki heyrast í útvarpinu á hátíðisdegi verkalýðsins og mun það einsdæmi í lýðfrjálsum löndum. Það er bví enn ríkari Framhald á 4. síðu. -<*> Áskorun til reykvískrar alþýðu 1. maí-nefnd verkalýðsfélaga í Reykjavík ásamt fjölmörgum forystumönnum verkalýðsfélag- anna hefur scnt frá sér áskorun til vinnandi fólks um að fylkja sér um l.maí-ávarp Alþýðusam- bandsins með þátttöku I kröfu- göngunni og útifundinum við Miðbæjarskólann. — Fer áskor- unin hér á eftir ásamt undir- skriftum: „Við undirrituð skorum á al- þýðu Reykjavíkur að fylkja sér um 1. maí-ávarp Alþýðusam- bands íslands og fjölmenna til þátttöku í kröfugöngunni ag á útifundinn við Miðbæjarskólann. Minnumst þess með voldugri þátttöku, að í dag cru Iiðin 40 ár frá því að fyrst var farin kröfuganga á lslandi“. Fagnar stórsigri Palmiro Togliatti, leiðtogi ítalska kommúnista- flokksins, lýsti því yfir í dag að kosningasigur flokksins hefði verið glæsilegri en beztu vonir hefðu staðið til. Sagði hann að þetta sanni svo ekki verði um villzt að allar sögusagnir um ágreining innan flokksins væru ekki á rökum reistar. — Sjá 3. síðu. Eðvarð Sigurðsson, formaður, Dagsbrúnar Snorri Jónsson, formaður, Félags jámiðnaðarmanna. Jón Sn. Þorleifsson, formaður, Trésmiðafélags Reykjavíkur Einar ögmundsson, formaður Vörubílstjórafél. Þróttar Haraldur Tómasson, í stjóm S. M. F. Kari Árnason, varafprmaður, Fé- lags bifvélavirkja Helgi Arnlaugsson, formaður Sveinafélags skipasmiða Birgitta Guðmundsdóttir, for- maður A. S. B. Magrét Auðunsdóttir, formaður, Starfsstúlknafél. Sóknar Lárus Bjamfreðsson, formaður, Málarafélags Reykjavikur. Magnús Magnússon, formaður Félags blikksmiða Þorsteinn Þórðarson, formaður Sveinafél. húsgagnabólstrara Bolli Ólafsson, formaður Sveina- félags húsgagnasmiða Halldóra Guðmundsdóttir, for- maður Nótar Gísli Einarsson, formaður Rak- arasveinafél. Reykjavíkur Sigurður Runólfsson, formaður, Mjólkurfræðingafél. Islands Páll Bjömsson, varaformaður, Iðnnemasambands íslands Helgi Þorkelsson, formaður, Skjaldborgar Magnús Vilhjálmsson, skipa- smiður Þórður Gíslason, trésmiður Hörður Jóhannsson, blikksmiður Kristján Jóhannsson, verkam. Guðjón Jónsson, jámsmiður Hólmfríður Jónsdóttir, fóstra Bjarnfríður Pálsdóttir, starfs- stúlka Margrét Sigurðardóttir, klæðsk. Leifur Ólafsson, málari Elín Björnsdóttir, afgreiðslu- stúlka Jóhann Elíasson, húsgagnabólst. Þráinn Þorsteinsson, húsgagna- smiður. 1. maí-merki Alþýðusambands Islands verður selt á götum borgarinnar í dag á vegum 1, maí-nefndar verkalýðsfélaganna. Merkið kostar krónur tíu og verður afgreitt til sölubarna og annarra á skrifstofu Dagsbrúnar, Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu og á skrifstofu Félags járniðnaðar- manna að Skipholti 19. Opið í báðum stöðum frá klukkan níu til tólf og klukkan eitt til fimm eftir hádegL Listi Alþýðu- bandalagsins í Austurlands- kjördæmi Gengið hefur verið frá framboðslista Alþýðubanda- Iagsins í Austurlandskjör- dæmi við alþingskosning- arnar 9. júní næst komandi, og cr Iistinn þannig skip- aður: 1. Lúðvík Jósepsson alþing- ismaður, Neskaupstað. 2. Ásmundur Sigurðsson fyrrv. alþingismaður, Reykjavík. 3. Helgi Seljan kennari, Reyðarfirði. 4. Sævar Sigbjarnarson bóndi, Raufarholti N-Múl. 5. Seinn Stefánsson skóla- stjóri, Seyðisfirði. 6. Sigurður Blöndal skógar- vörður, Hallormsstað. 7. Antoníus Jónsson bif- reiðastjóri, Vopnafirði. 8. Guðlaugur Guðjónsson sjómaður, Fáskrúðsfirði. 9. Benedikt Þorsteinsson verkamaður. Homafirði. 10. Jóhannes Stefánsson farmkvæmdastjóri, Nes- kaupstað. Vegna þrengsla i blaðinu í dag verður birting mynda að bíða að sinni. t

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.