Þjóðviljinn - 07.05.1963, Page 1

Þjóðviljinn - 07.05.1963, Page 1
DIMIIIN Þriðjudagur 7. maí 1963 — 28. árgangur —- 101. tölublað. Svona er NJÓSNAÐ um ÞIG AýJL /íuCm^u). '&nt+JiAjT W6 ;/^W^ /fZ>6 . : ^ ^s, SrZ&'/<rS\, 'Í&4~ v / / t- v^f^yr^ i, W *—> V 'Árt. ?- /fV?/ N$j,.<rífc/j 'Vt. ^vwAi^. ^ ni¥ v^x* jt • / '**ý*-* /?$ 3 * ^ . y^e-d/^Z^ J2A^ i'stSijJ' S--Ó ^ éfó-Ky íWvM,* K C tn A- UMSB andmælir hersetu —aðild að NATÓ og EBE Þjóðviljanum hefur bor- izt eftirfarandi ályktun er samþykkt var á ársþingi Ungmennasambands Borg- arfjarðar sem haldið var að Reykholti um fyrri helgi: „41. þing UMSB gerir svo- hljóðandi samþykkt um sjálf- stæðismál Islendinga. — Við skorum á stjórnarvöld landsins að sýna gætni í meðferð þeirra mála, sem nú virðast þýðingar- mest fyrir framtíð þjóðarinnar og eru líkleg til að ráða úrslitum í baráttunni fyrir sjálfstæði Is- lendinga. Sé/staklega þykir á- stæða til að vara við þeim öflum, sem gætu á skömmum tíma gert okkur háða erlendum ríkjum, jafnt á sviði fjármála og menn- ingar. Er þar fyrst að nefna hugmyndina um aðild að Efna- hagsbandalagi Evrópu. Hættan af slíkri aðild er ekki eingöngu falin í skyndilegri inngöngu í bandalagið, því hætt er við að okkur sé ætlað að tengjast þeim samtökum hægt og hægt, þar til ekki verður aftur snúið, og þekkjum við dæmi slíks jafnt úr okkar sögu sem annarra þjóða, sem hafa orðið öðrum háðar sökum ógætni í samskiptum við sterkari aðila. Einnig viljum við vekja at- hygli á ýmsum þeim hættum sem vofa yfir andlegri menn- ingu þjóðarinnar og teljum þar þýðingarmest að blekkjast ekki af öllu því fánýta, sem okkur býðst úr mörgum áttum. Hér mætti m.a. benda á allskonar öfugþróun í menningarmálum á- samt lágkúrulegu og niðurlægj- andi skemmtanalífi, þar sem slakað er á öllum kröfum til manndóms og þroska. Þá teljum við sjálfsagt að ekki sé slakað á þeirri menntunar- kröfu, sem nauðsynleg er í nú- tíma þjóðfélagi. Sú menntun verður að byggjast á þroska og sönnum lærdómi, meir en fánýtu Framhald á 2. síðu. B Frásögn Þjóðviljans um njósnir bandaríska sendiráðsins Hefur að vonum vakið mikla alhygli. Mönnum hefur að vísu verið ljóst að sendiráðið hefur fylgzt mjög nákvæmlega með öllu sem gerzt hefur á Islandi undanfarna áratugi, en ýmsir hafa ekki gert sér grein fyrir því að njósnir sendiráðsins hafa náð til hvers einasta manns í landinu. Þátttir hernámsflokkanna í njósnunum ■ Njósnir þessar hófust fyrir alvöru 1951, þegar landið var hernumið á nýjan leik. Þá sóttu þúsundir manna um störf á Keflavíkurflugvelli; allir urðu að gefa nákvæmar upplýsingar um ævi sína, félagsmálas'törf og stjórnmálaskoðanir, ættingja sína og vini. Komið var á laggirnar sérstakri njósnadeild til að sannreyna þessar upplýsingar og bæfa við þær, og lögðu hemámsflokkamir þrír, Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Alþýðuflokkurinn fram menn til þeirrar iðju og gáfu m.a. upp stjórnmála- skoðanir manna eftir merkingum flokkanna. Þannig var komið upp s't’ofn í spjaldskrá sem síðan hefur verið aukin og margfölduð og nær nú til landsmanna allra. Það er misskilningur ef menn halda að „kommúnistar" einir séu á þessari spjaldskrá; bandaríska sendiráðið njósnar ekki síður um samherja sína, einnig sjálfa leiðtoga hernámsflokkanna. Margir sem sótt hafa um fararleyfi til Bandaríkjanna hafa veitt því athygli að sendi- ráðið hafði alla vitneskju um þá tiltæka áður en þeir skiluðu umsókn sinni. Samdar af íslendingum gegn greiðslu ■ Þegar menn lesa skýrslur þær sem Þjóðviljinn birtir dæmi um ættu þeir að hafa í huga að hliðstæðar skýrslur um þá sjálfa hafa verið send- ar til bandaríska sendiráðsins, samdar af íslendingum sem hafa tekið greiðslu fyrir að njósna um landa sína í þágu erlends ríkis, fyrir milli- göngu hernámsflokkanna allra, Sjálfstæðisflokksins, Framsóknarflokks- ins og Alþýðuflokksins. ■ í fyrradag birti Þjóðviljinn njósnaskýrsluna um Unnstein Stefánsson haffræðing; í dag kemur skýrsla um annan þjóðkunnan mann, Gest Þor- grímsson og ættingja hans. Eins og skýrslan ber með sér var hún samin fyrir nokkrum árum; hún er í heild birt á annari síðu. <$>-------—------------------------------------------- Gamla kompaníið brennur Á Sdfmudagsmorguninn varð stórbruni í Gamla kompaníinu cr annar vinnusalur þess að Síðu- múla ?3 eyðilagðist í eldi ásamt öllum vélakosti og húsgagnabirgðum er þarna voru. Sýnir myndin reykjarmökkinn sem Iagði upp al brunanum. (Ljósm. D. M.) — Frétt um brunann er á 12. síðu.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.