Þjóðviljinn - 08.05.1963, Page 2
2 SÍÐA
HðÐVILIINN
Miðvikudasur 8- ma-i Í965
1 gær bárust okkur fram-
lög í styrktarmannakerfið
norðan úr Húnavatnssýslu
og úr Reykjavík, sem við
þökkum kærlega fyrir. Með
því erum við komin í 63%.
Betur má ef duga skal. Við
væntum þess að sem allra
flestir taki þátt í styrktar-
mannakerfinu, því það
byggist á fjöldaþátttöku. en
ekki fáum stórum upphæð-
um. Ef allir gera sitt tryggj-
um við útkomu Þjóðviljans
á þessu ári. Hafið sam-
band sem fyrst við skrif-
stofuna Þórsötu 1, sími
17514 opin daglega frá kl.
10—12 og 1—6. Þeir sem
búa utan Reykjavíkur geta
símsent til okkar eða póst-
sent. Utanáskrift: Þjóðvilj-
inn Þórsgötu 1, eða haft
samband við umboðsmenn
okkar, sem eru eftirtaldir
menn:
Hafnarfjörður: Hjörtur
Gunnarsson.
Keflavík: Sigurður Brynj-
ólfsson.
Akranes: Ársæll Valdi-
marsson.
Borgarnes: Bjöm Mark-
ússon.
Stykkishólmur: Jenni R.
Ólafsson.
ísafjörður: Halldór Ólafs-
son.
Hvammstangi: Skúli
Magnússon.
Skagaströnd: Friðjón
Guðmundsson.
Sauðárkrókur: Hulda Sig-
urbjömsdóttir.
Sigluf jöröur: Hannes
Baldvinsson.
Akureyri: Þorsteinn Jón-
atansson.
Húsavík: Freyr Bjama-
son.
Neskaupstaður: Bjami
Þórðarson.
Seyðisfjörður: Steinn Stef-
ánsson.
Höfn Homafirfti: Bene-
dikt Þorsteinsson.
Vestmannaeyjar: Haf-
steinn Stefánsson.
Seifoss: Þórmundur Guð-
mundsson.
Hveragerði: Sæmundur
Guðmundsson.
Landhelgin
Framhald af 1. síðu.
undansláttarstefnu s..ui.
Morgunblaðiö birtir í gær
neyðaróp á 1. síðu ásamt
tveggja dáika mynd af Bjarna
Benediktssyni: „Það má aldr-
ei henda að tekin verði upp
óábyrg utanríkisstefna". Hin
ábyrga utanríkisstefna er að
hleypa Bretum inn í land-
helgina, afsala landgrunninu,
gera leynisamning um Iand-
helgisgæzluna — og semja um
áframhald þeirrar stefnu á
ráðstefnunni i London í sept-
ember. Þv£ veltur á miklu að
ótti Morgunblaðsins og Bjama
Benediktssonar um að missa
völdin í kosningunum í sum-
ár verði að veruleika.
KIPÁUTGCR9 RIKISINS
M.s. Esja
fer austur um land í hringferð
13. þ.m. Vörumóttaka i dag og
árdegis á morgun til Fáskrúðs-
fjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarð-
ar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar,
Raufarhafnar og Húsavíkur.
Farselar seldir á föstudag.
M.s. Esja
fer til ísafjarðar föstudaginn 31.
mai kl. 22.00 á vegum Sambands
íslenzkra lúðrasveita á landsmót
SÍL. Áætluð viðstaða á Isafirði
frá kl. 12.00 laugardag 1/6 til
kl. 02.00 mánud. 3/6, 2. dag
hvítasunnu.
Félagar í SÍL. ganga fyrir fari,
en þurfa að tilkynna þátttöku
fyrir 16. þ.m., enda verður að
innleysa farmiða fyrir sama tíma.
Óseldir farmiðar verða seldir
öðrum og má þegar láta skrá
sig á lista í því sambandi.
Skipaútgerð ríkisina.
Hrímfaxaslysið:
Erfið rannsókn,
ekkert nýtt
Osló 7/5. — Nefnd sú, er hef-
ur Hrímfaxaslysið til rannsókn-
ar, hefur ekki fundið þá tækni-
lega galla eða skekkjur, er skýrt
geti orsakir slyssins. í bráða-
birgðaskýrslu bendir ne.fndin á,
að ekkert óvenjulegt hafi fund-
izt í sambandi við flug vé'ar-
innar að öðru leyti. Tæknileg
rannsókn á leifum vélarinnar
heldur áfram á Fornebu-flug-
velli. Hlutar af vél og hreyflum
verða rannsakaðir í rannsókn-
arstofum í Englandi. Nefndin
Réttarhöldin
Framhald af 1. síðu.
koma sín hefði haft þau áhrif
sem hann ætlaðist til. Juníper
náði til Skotlands og markaði
þar. en að vísu einum degi of
seint.
Næst gerist það í málinu að
sögn Woods, að hann varð við
þeirri beiðni brezka flotamála-
ráðuneytisins, að fara um borð
í Palliser og ræða þar við Smith.
Með honum fóru í þessa ferð
sonur hans og yfirmaður flota-
deildar þeirrar sem hefur á hendi
togaravörzlu við Island. Var
skotið undir þá tundurdufla-
slæðara. Allar viðræður við
Smith voru árangurslausar og
fóru þeir frá borði við svo búið.
Sá hann nú ekki annað ráð
vænna en að fara til íslands
og freista þess að bjarga tog-
ara sínum úr klóm yfirvaldanna
hér.
Fulltrúi saksóknara ríkisins
lagði síðan fram kröfu af hálfu
ákæruvaldsins, þar sem þess er
krafizt að togarinn Milwood verði
enn um sinn hafður í haldi hér,
Eins og sagt var frá hér í blað-
inu í gær, virðist John þessi
Wood vera allstöndugur maður.
Hann á 14 togara, þar af 12 svo
til nýja, smíðaða á árunum 1960
og 1961. hinir tveir eru gamlir,
smíðaðir árin 1917 og 1931. Á
íslenzkan mælikvarða ættu skip-
in því að vera um það bil
200 milljón króna virði. Hann
er því á við einn þrjá Einara
ríka og líklega þykir það nokkuð
gott í ekki stærri plássi en Aber-
deen þó er, gott ef hann er ekki
stærstur. Varla getur maðurinn
því verið á neinu nástrái þó að
einn togarinn sé frá veiðum í
nokkrar vikur.
undirstrikar það, að gjöreyði-
legging vélarinnar forveldi mjög
alia rannsókn.
í skýrslu sinni segir nefndin
enn fremur, að telja megi ör-
uggt, að aðflugig hafi verið í
alla staði eðlilegt þangað til fá-
einum sekúndum fyrir slysið.
Þá hafði vélin skyndilega steypst
í 30—40 gráða stefnu til jarðar.
Veðurskilyrði þennan dag eru
talin hafa verið sæmileg og
nokkurnveginn eðlileg miðað við
árstíð. Dálítii ísing getur hafa
átt sér stað í aðflugi. segir í
skýrslunni.
Brendan Behan
í Þjéðleikhúsi
Um þessar mundir byrja í
ÞjóS eikhúsinu æfingar á nýju
Ieikriti, og er það Gisi (The
Hostage) eftir Brendan Behan.
Fenginn hefur verjð írskur Ieik-
stjóri, Thomas Mac Anna að
nafni, til að sjá um stjórnina.
Brendan Behan er löngu
kunnur fyrir leikrit sín og fleira
skemmtilegt. Fréttamenn áttu i
gær tal við leiksjóra og Þjóð-
leikhússtjóra um þessa fyrir-
huguðu sýningu. Mac Anna, sem
er vel kunnugur Brendan Benhan
og verkum hans, lætur vei af
íslenzku leikurunum, og telur vel
hafa valizt í hlutverk leikrits-
ins. Honum til aðstoðar verður
Baldvin Halldórsson, en með að-
alhlutverkin fara þau Valur
Gíslason og Helga Valtý?dóttir.
Einnig fara þau Herdís Þor-
valdsdóttir, Margrét Guðmunds-
dóttjr og Arnar Jónsson með
veigamikil hlutverk. Er Arnar
nýliði á sviði Þjóðleikhússins.
Önnur hlutverk eru minni.
Jónas Árnason hefur þýtt leik-
inn. Kvað Þjoðleikhússtjóri
þýðinguna hafa valdið einna
mestum vandkvæðum, þvj hver
af öðrum hefði gefizt upp við
hálfunnið verk unz Jónas leysti
það loks af hendi. Mikið er af
ljóðum í laikritinu, og söng
Jónas nokkur þeirra í útvarp
ekki alls fyrir löngu.
Leikritið Gísl verður æft i
rúman mánuð. Ekki er fullráðið.
hvort leikritið verður frumsýnt
í vor eða látið bíða hausts.
Hernámsblöð verja
njésnir sendiráðsins
Framhald af 10. síðu.
kerfi Bandaríkjanna.
Njósnaskýrsla um
blaðamann
Starfsemi hemámsblaðanna
mega vita það að bandaríska
sendiráðið hefur safnað ná-
kvæmum gögnum um þá alla.
Þjóðviljinn birtir í dag eitt
dæmi um slíkt, frumskýrsluna
um Auðun Guðmundsson,
sem lengi var blaðamaður á
Alþýðublaðinu og síðan á
Myndinni. Frumskýrslan um
hann er svohljóðandi:
„Auðunn Rafn Guðmundsson,
f. í Rvík 16. september 1936.
Foreldrar: Guðbjörg Auðuns-
dóttir og Guðmundur ögmunds-
son bílstjóri. Auðunn stundaði
barnaskólanám í Rvík. Fullnað-
arpróf vorið 1949. Hann var í I.
og II. bekk gagnfræðadeildar
Laugarnesskólans í Rvík 1949—
1951. Tók þar miðskólapróf vor-
ið 1951 með 1. einkunn, 7.38.
Hann sat í III. bekk Gagnfræða-
skóla Austurbæjar í Rvík vetur-
inn 1951—1952. Þar tók hann
landspróf í maí 1952 með I. eink-
unn 7.52. Hann sat í III. IV. V.
og VI. bekk máladeildar Mennta-
skólans í Rvík veturinn 1952—
1956. Þar varð hann stúdent í
máladeild 15. júní 1956 með I.
eink. 7.31. Hann innritaðist í
lagadeild Háskóla Islands haust-
ið 1956 og er þar ennþá við nám.
Hann er ókvæntur. Hann á
heima á Hraunteigi 12, Rvík
(sími 32605).
Auðunn er jafnaðarmaður.
Hann er í Félagi ungra jafnað-
armanna í Rvík og hefur átt sæti
í stjórn þess. Hann er í Stúd-
entafélagi jafnaðarmanna og hef-
ir verið í framboði fyrir það við
stúdentaráðskosningar. Hann er
annar ritstjóri Æskulýðssíðu Al-
þýðublaðsins £ Rvík. Hann er
einn af þeim 100, sem rituðu á-
varpið á forsíðu blaðsins „Her-
inn burt“ og hcldu fundinn 8.
desember s.l., þar sem áskorun
var gerð tii forsætisráðherra Is-
lands að landið yrði varnarlaust
fyrir kommúnistum."
Skráninsunni á Slgurpál breytt
án samjsvkkis skipverjanna
Kynþáttamisréttið
í S-Afríku aukið
CAP TOWN 7/5. — Stjórn
Suður-Afríku lagði í gær
fyrir þingið nýtt lagafrum-
varp sem miðar að enn
meira kynþáttamisrétti og
þýðir í reynd að allir Afríku-
búar verða að flytja frá
borgum landsins.
Frumvarpið var fyrst kynnt 1
febrúar og hélt ríkisstjómin því
þá fram að lögin mundu draga
úr spennunni milli kynþátta í
Suður-Afríku. Verði lögin sam-
þykkt munu Afríkumenn í bæj-
um missa lögheimilisréttindi sín,
og það jafnt þótt þeir hafi búið
á sama stað alla ævina. Afríku-
manni verður þá aðeins leyft að
búa í „hvítu“ hverfi ef brýn
þörf er á vinnukrafti hans.
I lagafrumvarpinu eru einnig
ákvæði um að ríkisstjómin geti
kveðið á um í hvaða stöður skuli
leyfilegt að ráða negra og öll
ráðning negra í vinnu verður
háð eftirliti sérstakra vinnu-
skrifstofa. Verði lögin samþykkt
mun heldur enginn maður af
afríkönskum stofni fá að reka
eigið fyrirtæki án sérstaks leyf-
is atvinnumálaráðuneytisins.
Framhald af 10. síðu.
orðalaginu „samkvæmt samn-
ingi“ og vissu raunar ekki betur.
Fulltrúi frá A.S.I. náði tali af
skipverjum á Sigurpáli, þegar
hann kom úr fyrsta róðri og
staðfestu þeir sömu ummæli og
kváðust hafa skrifað undir
skráningu með orðalaginu „sam-
kvæmt samningi".
I bæði þessi skipti tregðaðist
Eggert Gíslason, skipstjóri við
að sýna skráningarskjalið og
með tilliti til þess, að bæjarfó-
getaembættið hafði orðið tvísaga
við oddvitann í Sandgerði vakn-
aði grunur um að allt væri ekki
með felldu.
Dagblaðið Vísir fullyrti einnig
glaðhlakkalega einn daginn. að
skráning skipverja hefði farið
fram eftir síldveiðisamningi L.I.
U. og sagðist hafa það eftir á-
reiðanlegum heimildum.
Loksins rann upp sá dagur
skömmu síðar í Keflavíkurhöfn,
að stjómarfulltrúar sjómannafé-
lagsins í Sandgerði fengu að líta
þetta skráningarskjal hjá skip-
stjóra og kom þá þessi viðauka-
breyting í Ijós í skráningarskjal-
inu og skipshöfnin talin skráð
eftir síldveiðisamningi L.I.O. og
hafði skiptaprósentan hrapað um
40% í 36.5% og er það veruleg
kjararýmun hjá sjómönnunum.
Stjómarfundur var haldinn í
gærkvöld í Verkalýðs- og sjó-
mannafélaginu í Sandgerði og
samþykkt að krefjast dómsrann-
sóknar á þessu misferli embætt-
isins og leita aðstoðar A.S.I. við
að koma þeirri kröfu á framfæri.
j Skörinn færist upp i bekkinn,
| þegar atvinnurekendasamband
eins og L.I.Ú. telur sig geta
ráðskast með opinbert embætti
eins og útibú frá samtökunum
til þess að breyta löggiltum
skjölum í þágu útgerðarmanna.
GERIÐ BETRIKAUP EF ÞIÐ GETIÐ
—(<D U
Trésmiðir
Umsóknir um örorkustyrk úr lífeyrissjóði húsa-
smiða þurfa að hafa borizt skrifstofu sjóðsins
fyrir 30. þ.m.
LÍFEYRISSJÓÐUR HÚSASMIÐA.
IIIIISUI
LAUGAVEGI 18® SIMI 19113
SELJENDUR
ATHUGIÐ:
Höfum kaupendur
með miklar útborg-
anir að íbúðum og
einbýlishúsum.
TIL SÖLU:
2 herb. ný og góð íbúð við
Rauðalæk.
3 herb. íbúð í smíðum í
Selási.
3 hrb. góð kjallaraíbúð við
Mávahlíð, sér inngangur.
1. veðr. laus.
3 herb. íbúð við Njarðar-
götu, sér hitaveita. 1.
veðr. laus.
3 herb. hæð í timburhúsi
við Nýbýlaveg 1. veðr.
laus. Góð kjör
3 herb. íbúðir með litlar út-
borganir við Engjaveg og
Digranesveg.
3 herb. íbúð við Óðinsgötu.
3 herb. góð íbúð á Seltjam-
amesi.
3 herb. kjallaraíbúð við
Langholtsveg, sér inn-
gangur.
3 herb. góð hæð við Flóka-
götu, sér inngangur, sér
hitaveita. 1. veðr. laus.
4 herb. íbúð við Flókagötu.
bílskúr. 1. veðr. laus.
4 herb. kjallaraíbúð við
. Ferjuvog, sérinngangur. I.
veðr. laus.
4 herb. ný íbúð við Safa-
mýri, fullbúin til íbúðar
eftir nokkra daga.
4 herb. glæsileg hæð við
Langholtsveg, bílskúr. 1.
veðr. laus.
5 herb. hæð í Hlíðunum, 1.
veðr. laus.
5 herb. glæsileg íbúð við
Kleppsveg.
6 herb. glæsileg efri hæð.
með öllu sér. við Ný-
býlaveg.
70 ferm. timburhús. múr-
húðað við Borgarholts-
braut, útb. 100 þús.
Lítið einbýlishús við Breið-
holtsveg. útborgun kr. 150
bús.
Glæsilegt einbýlishús í
Kópavogi, 2 hæðir 124
ferm. hver hæð. Arkitekt:
Sigvaldi Thordarson.
Vandað timburhús við
Heiðagerði, útborgun 200
búsund.
I SMÍÐUM:
Glæsilegt einbýlishús f
Garðahreppi, á einni hæð
180 ferm. með bflskúr.
tilbúið undir tréverk og
málningu í sumar fagurt
útsýni. Arkitekt Kjartan
Sveinsson.
Parhús á tveim hæðum i
Kópavogi. Arkitekt Sig-
valdi Thordarson.
Efri hæð f tvíbýlishúsi. með
allt sér f Kópavogi.
Hafið samband við
okkur ef þér burfið
að kaupa eða selja
fasteianir.
!
k
rj
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA fSLANDS
Á föstudag verður dreaið í 5. flokki.
1.050 vinningar að fjárhæð 1.960.000 krónur.
Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja.
HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS
5. fl.
1 á 200.000 kr.
1 á 100.000 —
26 á 10.000 —
90 á 5.000 —
930 á 1.000 —
Aukavinningar:
2 á 10.000 kr.
1.050
200.00 kr.
100.000 —
260.000 —
450.000 —
930.000 —
20.000 kr.
1.960.000 kr.
'4
k
I
I
I
I