Þjóðviljinn - 08.05.1963, Síða 2

Þjóðviljinn - 08.05.1963, Síða 2
2 SÍÐA HðÐVILIINN Miðvikudasur 8- ma-i Í965 1 gær bárust okkur fram- lög í styrktarmannakerfið norðan úr Húnavatnssýslu og úr Reykjavík, sem við þökkum kærlega fyrir. Með því erum við komin í 63%. Betur má ef duga skal. Við væntum þess að sem allra flestir taki þátt í styrktar- mannakerfinu, því það byggist á fjöldaþátttöku. en ekki fáum stórum upphæð- um. Ef allir gera sitt tryggj- um við útkomu Þjóðviljans á þessu ári. Hafið sam- band sem fyrst við skrif- stofuna Þórsötu 1, sími 17514 opin daglega frá kl. 10—12 og 1—6. Þeir sem búa utan Reykjavíkur geta símsent til okkar eða póst- sent. Utanáskrift: Þjóðvilj- inn Þórsgötu 1, eða haft samband við umboðsmenn okkar, sem eru eftirtaldir menn: Hafnarfjörður: Hjörtur Gunnarsson. Keflavík: Sigurður Brynj- ólfsson. Akranes: Ársæll Valdi- marsson. Borgarnes: Bjöm Mark- ússon. Stykkishólmur: Jenni R. Ólafsson. ísafjörður: Halldór Ólafs- son. Hvammstangi: Skúli Magnússon. Skagaströnd: Friðjón Guðmundsson. Sauðárkrókur: Hulda Sig- urbjömsdóttir. Sigluf jöröur: Hannes Baldvinsson. Akureyri: Þorsteinn Jón- atansson. Húsavík: Freyr Bjama- son. Neskaupstaður: Bjami Þórðarson. Seyðisfjörður: Steinn Stef- ánsson. Höfn Homafirfti: Bene- dikt Þorsteinsson. Vestmannaeyjar: Haf- steinn Stefánsson. Seifoss: Þórmundur Guð- mundsson. Hveragerði: Sæmundur Guðmundsson. Landhelgin Framhald af 1. síðu. undansláttarstefnu s..ui. Morgunblaðiö birtir í gær neyðaróp á 1. síðu ásamt tveggja dáika mynd af Bjarna Benediktssyni: „Það má aldr- ei henda að tekin verði upp óábyrg utanríkisstefna". Hin ábyrga utanríkisstefna er að hleypa Bretum inn í land- helgina, afsala landgrunninu, gera leynisamning um Iand- helgisgæzluna — og semja um áframhald þeirrar stefnu á ráðstefnunni i London í sept- ember. Þv£ veltur á miklu að ótti Morgunblaðsins og Bjama Benediktssonar um að missa völdin í kosningunum í sum- ár verði að veruleika. KIPÁUTGCR9 RIKISINS M.s. Esja fer austur um land í hringferð 13. þ.m. Vörumóttaka i dag og árdegis á morgun til Fáskrúðs- fjarðar, Reyðarfjarðar, Eskifjarð- ar, Norðfjarðar, Seyðisfjarðar, Raufarhafnar og Húsavíkur. Farselar seldir á föstudag. M.s. Esja fer til ísafjarðar föstudaginn 31. mai kl. 22.00 á vegum Sambands íslenzkra lúðrasveita á landsmót SÍL. Áætluð viðstaða á Isafirði frá kl. 12.00 laugardag 1/6 til kl. 02.00 mánud. 3/6, 2. dag hvítasunnu. Félagar í SÍL. ganga fyrir fari, en þurfa að tilkynna þátttöku fyrir 16. þ.m., enda verður að innleysa farmiða fyrir sama tíma. Óseldir farmiðar verða seldir öðrum og má þegar láta skrá sig á lista í því sambandi. Skipaútgerð ríkisina. Hrímfaxaslysið: Erfið rannsókn, ekkert nýtt Osló 7/5. — Nefnd sú, er hef- ur Hrímfaxaslysið til rannsókn- ar, hefur ekki fundið þá tækni- lega galla eða skekkjur, er skýrt geti orsakir slyssins. í bráða- birgðaskýrslu bendir ne.fndin á, að ekkert óvenjulegt hafi fund- izt í sambandi við flug vé'ar- innar að öðru leyti. Tæknileg rannsókn á leifum vélarinnar heldur áfram á Fornebu-flug- velli. Hlutar af vél og hreyflum verða rannsakaðir í rannsókn- arstofum í Englandi. Nefndin Réttarhöldin Framhald af 1. síðu. koma sín hefði haft þau áhrif sem hann ætlaðist til. Juníper náði til Skotlands og markaði þar. en að vísu einum degi of seint. Næst gerist það í málinu að sögn Woods, að hann varð við þeirri beiðni brezka flotamála- ráðuneytisins, að fara um borð í Palliser og ræða þar við Smith. Með honum fóru í þessa ferð sonur hans og yfirmaður flota- deildar þeirrar sem hefur á hendi togaravörzlu við Island. Var skotið undir þá tundurdufla- slæðara. Allar viðræður við Smith voru árangurslausar og fóru þeir frá borði við svo búið. Sá hann nú ekki annað ráð vænna en að fara til íslands og freista þess að bjarga tog- ara sínum úr klóm yfirvaldanna hér. Fulltrúi saksóknara ríkisins lagði síðan fram kröfu af hálfu ákæruvaldsins, þar sem þess er krafizt að togarinn Milwood verði enn um sinn hafður í haldi hér, Eins og sagt var frá hér í blað- inu í gær, virðist John þessi Wood vera allstöndugur maður. Hann á 14 togara, þar af 12 svo til nýja, smíðaða á árunum 1960 og 1961. hinir tveir eru gamlir, smíðaðir árin 1917 og 1931. Á íslenzkan mælikvarða ættu skip- in því að vera um það bil 200 milljón króna virði. Hann er því á við einn þrjá Einara ríka og líklega þykir það nokkuð gott í ekki stærri plássi en Aber- deen þó er, gott ef hann er ekki stærstur. Varla getur maðurinn því verið á neinu nástrái þó að einn togarinn sé frá veiðum í nokkrar vikur. undirstrikar það, að gjöreyði- legging vélarinnar forveldi mjög alia rannsókn. í skýrslu sinni segir nefndin enn fremur, að telja megi ör- uggt, að aðflugig hafi verið í alla staði eðlilegt þangað til fá- einum sekúndum fyrir slysið. Þá hafði vélin skyndilega steypst í 30—40 gráða stefnu til jarðar. Veðurskilyrði þennan dag eru talin hafa verið sæmileg og nokkurnveginn eðlileg miðað við árstíð. Dálítii ísing getur hafa átt sér stað í aðflugi. segir í skýrslunni. Brendan Behan í Þjéðleikhúsi Um þessar mundir byrja í ÞjóS eikhúsinu æfingar á nýju Ieikriti, og er það Gisi (The Hostage) eftir Brendan Behan. Fenginn hefur verjð írskur Ieik- stjóri, Thomas Mac Anna að nafni, til að sjá um stjórnina. Brendan Behan er löngu kunnur fyrir leikrit sín og fleira skemmtilegt. Fréttamenn áttu i gær tal við leiksjóra og Þjóð- leikhússtjóra um þessa fyrir- huguðu sýningu. Mac Anna, sem er vel kunnugur Brendan Benhan og verkum hans, lætur vei af íslenzku leikurunum, og telur vel hafa valizt í hlutverk leikrits- ins. Honum til aðstoðar verður Baldvin Halldórsson, en með að- alhlutverkin fara þau Valur Gíslason og Helga Valtý?dóttir. Einnig fara þau Herdís Þor- valdsdóttir, Margrét Guðmunds- dóttjr og Arnar Jónsson með veigamikil hlutverk. Er Arnar nýliði á sviði Þjóðleikhússins. Önnur hlutverk eru minni. Jónas Árnason hefur þýtt leik- inn. Kvað Þjoðleikhússtjóri þýðinguna hafa valdið einna mestum vandkvæðum, þvj hver af öðrum hefði gefizt upp við hálfunnið verk unz Jónas leysti það loks af hendi. Mikið er af ljóðum í laikritinu, og söng Jónas nokkur þeirra í útvarp ekki alls fyrir löngu. Leikritið Gísl verður æft i rúman mánuð. Ekki er fullráðið. hvort leikritið verður frumsýnt í vor eða látið bíða hausts. Hernámsblöð verja njésnir sendiráðsins Framhald af 10. síðu. kerfi Bandaríkjanna. Njósnaskýrsla um blaðamann Starfsemi hemámsblaðanna mega vita það að bandaríska sendiráðið hefur safnað ná- kvæmum gögnum um þá alla. Þjóðviljinn birtir í dag eitt dæmi um slíkt, frumskýrsluna um Auðun Guðmundsson, sem lengi var blaðamaður á Alþýðublaðinu og síðan á Myndinni. Frumskýrslan um hann er svohljóðandi: „Auðunn Rafn Guðmundsson, f. í Rvík 16. september 1936. Foreldrar: Guðbjörg Auðuns- dóttir og Guðmundur ögmunds- son bílstjóri. Auðunn stundaði barnaskólanám í Rvík. Fullnað- arpróf vorið 1949. Hann var í I. og II. bekk gagnfræðadeildar Laugarnesskólans í Rvík 1949— 1951. Tók þar miðskólapróf vor- ið 1951 með 1. einkunn, 7.38. Hann sat í III. bekk Gagnfræða- skóla Austurbæjar í Rvík vetur- inn 1951—1952. Þar tók hann landspróf í maí 1952 með I. eink- unn 7.52. Hann sat í III. IV. V. og VI. bekk máladeildar Mennta- skólans í Rvík veturinn 1952— 1956. Þar varð hann stúdent í máladeild 15. júní 1956 með I. eink. 7.31. Hann innritaðist í lagadeild Háskóla Islands haust- ið 1956 og er þar ennþá við nám. Hann er ókvæntur. Hann á heima á Hraunteigi 12, Rvík (sími 32605). Auðunn er jafnaðarmaður. Hann er í Félagi ungra jafnað- armanna í Rvík og hefur átt sæti í stjórn þess. Hann er í Stúd- entafélagi jafnaðarmanna og hef- ir verið í framboði fyrir það við stúdentaráðskosningar. Hann er annar ritstjóri Æskulýðssíðu Al- þýðublaðsins £ Rvík. Hann er einn af þeim 100, sem rituðu á- varpið á forsíðu blaðsins „Her- inn burt“ og hcldu fundinn 8. desember s.l., þar sem áskorun var gerð tii forsætisráðherra Is- lands að landið yrði varnarlaust fyrir kommúnistum." Skráninsunni á Slgurpál breytt án samjsvkkis skipverjanna Kynþáttamisréttið í S-Afríku aukið CAP TOWN 7/5. — Stjórn Suður-Afríku lagði í gær fyrir þingið nýtt lagafrum- varp sem miðar að enn meira kynþáttamisrétti og þýðir í reynd að allir Afríku- búar verða að flytja frá borgum landsins. Frumvarpið var fyrst kynnt 1 febrúar og hélt ríkisstjómin því þá fram að lögin mundu draga úr spennunni milli kynþátta í Suður-Afríku. Verði lögin sam- þykkt munu Afríkumenn í bæj- um missa lögheimilisréttindi sín, og það jafnt þótt þeir hafi búið á sama stað alla ævina. Afríku- manni verður þá aðeins leyft að búa í „hvítu“ hverfi ef brýn þörf er á vinnukrafti hans. I lagafrumvarpinu eru einnig ákvæði um að ríkisstjómin geti kveðið á um í hvaða stöður skuli leyfilegt að ráða negra og öll ráðning negra í vinnu verður háð eftirliti sérstakra vinnu- skrifstofa. Verði lögin samþykkt mun heldur enginn maður af afríkönskum stofni fá að reka eigið fyrirtæki án sérstaks leyf- is atvinnumálaráðuneytisins. Framhald af 10. síðu. orðalaginu „samkvæmt samn- ingi“ og vissu raunar ekki betur. Fulltrúi frá A.S.I. náði tali af skipverjum á Sigurpáli, þegar hann kom úr fyrsta róðri og staðfestu þeir sömu ummæli og kváðust hafa skrifað undir skráningu með orðalaginu „sam- kvæmt samningi". I bæði þessi skipti tregðaðist Eggert Gíslason, skipstjóri við að sýna skráningarskjalið og með tilliti til þess, að bæjarfó- getaembættið hafði orðið tvísaga við oddvitann í Sandgerði vakn- aði grunur um að allt væri ekki með felldu. Dagblaðið Vísir fullyrti einnig glaðhlakkalega einn daginn. að skráning skipverja hefði farið fram eftir síldveiðisamningi L.I. U. og sagðist hafa það eftir á- reiðanlegum heimildum. Loksins rann upp sá dagur skömmu síðar í Keflavíkurhöfn, að stjómarfulltrúar sjómannafé- lagsins í Sandgerði fengu að líta þetta skráningarskjal hjá skip- stjóra og kom þá þessi viðauka- breyting í Ijós í skráningarskjal- inu og skipshöfnin talin skráð eftir síldveiðisamningi L.I.O. og hafði skiptaprósentan hrapað um 40% í 36.5% og er það veruleg kjararýmun hjá sjómönnunum. Stjómarfundur var haldinn í gærkvöld í Verkalýðs- og sjó- mannafélaginu í Sandgerði og samþykkt að krefjast dómsrann- sóknar á þessu misferli embætt- isins og leita aðstoðar A.S.I. við að koma þeirri kröfu á framfæri. j Skörinn færist upp i bekkinn, | þegar atvinnurekendasamband eins og L.I.Ú. telur sig geta ráðskast með opinbert embætti eins og útibú frá samtökunum til þess að breyta löggiltum skjölum í þágu útgerðarmanna. GERIÐ BETRIKAUP EF ÞIÐ GETIÐ —(<D U Trésmiðir Umsóknir um örorkustyrk úr lífeyrissjóði húsa- smiða þurfa að hafa borizt skrifstofu sjóðsins fyrir 30. þ.m. LÍFEYRISSJÓÐUR HÚSASMIÐA. IIIIISUI LAUGAVEGI 18® SIMI 19113 SELJENDUR ATHUGIÐ: Höfum kaupendur með miklar útborg- anir að íbúðum og einbýlishúsum. TIL SÖLU: 2 herb. ný og góð íbúð við Rauðalæk. 3 herb. íbúð í smíðum í Selási. 3 hrb. góð kjallaraíbúð við Mávahlíð, sér inngangur. 1. veðr. laus. 3 herb. íbúð við Njarðar- götu, sér hitaveita. 1. veðr. laus. 3 herb. hæð í timburhúsi við Nýbýlaveg 1. veðr. laus. Góð kjör 3 herb. íbúðir með litlar út- borganir við Engjaveg og Digranesveg. 3 herb. íbúð við Óðinsgötu. 3 herb. góð íbúð á Seltjam- amesi. 3 herb. kjallaraíbúð við Langholtsveg, sér inn- gangur. 3 herb. góð hæð við Flóka- götu, sér inngangur, sér hitaveita. 1. veðr. laus. 4 herb. íbúð við Flókagötu. bílskúr. 1. veðr. laus. 4 herb. kjallaraíbúð við . Ferjuvog, sérinngangur. I. veðr. laus. 4 herb. ný íbúð við Safa- mýri, fullbúin til íbúðar eftir nokkra daga. 4 herb. glæsileg hæð við Langholtsveg, bílskúr. 1. veðr. laus. 5 herb. hæð í Hlíðunum, 1. veðr. laus. 5 herb. glæsileg íbúð við Kleppsveg. 6 herb. glæsileg efri hæð. með öllu sér. við Ný- býlaveg. 70 ferm. timburhús. múr- húðað við Borgarholts- braut, útb. 100 þús. Lítið einbýlishús við Breið- holtsveg. útborgun kr. 150 bús. Glæsilegt einbýlishús í Kópavogi, 2 hæðir 124 ferm. hver hæð. Arkitekt: Sigvaldi Thordarson. Vandað timburhús við Heiðagerði, útborgun 200 búsund. I SMÍÐUM: Glæsilegt einbýlishús f Garðahreppi, á einni hæð 180 ferm. með bflskúr. tilbúið undir tréverk og málningu í sumar fagurt útsýni. Arkitekt Kjartan Sveinsson. Parhús á tveim hæðum i Kópavogi. Arkitekt Sig- valdi Thordarson. Efri hæð f tvíbýlishúsi. með allt sér f Kópavogi. Hafið samband við okkur ef þér burfið að kaupa eða selja fasteianir. ! k rj HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA fSLANDS Á föstudag verður dreaið í 5. flokki. 1.050 vinningar að fjárhæð 1.960.000 krónur. Á morgun eru seinustu forvöð að endurnýja. HAPPDRÆTTI HÁSKÓLA ÍSLANDS 5. fl. 1 á 200.000 kr. 1 á 100.000 — 26 á 10.000 — 90 á 5.000 — 930 á 1.000 — Aukavinningar: 2 á 10.000 kr. 1.050 200.00 kr. 100.000 — 260.000 — 450.000 — 930.000 — 20.000 kr. 1.960.000 kr. '4 k I I I I

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.