Þjóðviljinn - 09.05.1963, Page 1
Fimmtudagur 9. maí 1963 — 28. árgangur —< 103. 'tölublað.
!
Utvarpsumræður 4. og 5. júní \
\
Ákveðið hefur verð að útvarpsumræð ur stjómmálaflokbanna vegna AlþingiS'
kosninganna verði 4. og 5. júní, það er þ riðjudag og miðvikudag í vikunni fyrir J
kosningar. Hefur þegar verið dregið um röð flokkanna, og verður Alþýðubanda- |
lagið annað í röðinni fyrra kvöldið, fyrs t síðara bvöldið.
iíffti BRETAR HAFA SJALFIR OGILT
LANDHELGISSAMNINGINN
kalla sig „stjórnarmeðlimi
í Þjóðvarnarfélagi Kópa-
vogs“ og lýsa þessar per-
sónur andstöðu sinni við
kosningasamstarf Alþýðu-
þandalagsins og Þjóðvam-
arflokksins. Um þessa yfir-
lýsingu er það að segja að
hér er um hreint gervifélag
að ræða. „Stjórn" þess er
þannig til orðin, að tveir
menn, Jafet Sigurðsson og
Bjami Sigurðsson, komu
saman ásamt konum sínum
og fimmta manni, sem
aldrei hefur starfað í
Þjóðvarnarflokknum, kusu
sjálfa sig í stjóm félags
sem ekki er til og skreyta
sig síðan með nafninu
„stjórn Þjóðvarnarfélags
Kópavogs"!
Yfirlýsing þessara sjálf-
skipuðu „stjórnarmeðlima"
er runnin undan rifjum
Jóns Skaftasonar, fram-
bjóðanda Framsóknar-
flokksins í Reykjaneskjör-
dæmi. Hann hefur fundið
fyrir því að undanfömu að
vinstrjsinnaðir flokksbræð-
ur hans og einlægir her-
námsandstæðingar hafa
hina mestu andúð á þjón-
ustusemi hans í Varðbergi
og öðrum NATO-félögum á
fslandi. Því á nú að reyna
að halda því fram að Þjóð-
vamarmenn í Reykjanes-
kjördæmi muni kjósa fram-
bjóðanda Varðbergs en
ekki Alþýðubandalagið sem
hefur aðalforystumann
Þjóðvarnarflokksins í fyrsta
sæti í Reykjaneskjördæmi
Auðvitað munu þessir
bamalegu tilburðir engan
blekkja. Jón Skaftason
kjósa þeir einir sem vilja
að Framsókn taki upp op-
inskáa hægristefnu eftir
kosningar, semji við Sjálf-
stæðisflokkinn um áfram-
haldandi hernám og her-
mang. Hins vegar mun Jón
Skaftason eflaust verða yf-
irheyrður um það innan
Varðbergs hvað hann meini
með því að vera að búa til
upplogin gervifélög her-
námsandstæðinga í kjör-
dæmi sínu; nóg sé af her-
námsandstæðingum samt!
Handavinnu-og teiknisýning CK
Sunnudaginn 5. maí var haldin sýning á handavinnu og teikningum nemenda Gagnfræðaskóla
Kópavogs. Þar voru margir glæsilegir munir; bar sýningin i heild vott um smekkvísi og vel unn-
in störf og var skólanum til sóma. Sýningin var opin bæði árdegis og síðdegis og var mjög fjöl-
sótt. Handavinnukennari stúlkna er Herdís Jónsdóttir, teikningu kennari Sigurjón Hilaríusson, sem
annast einnig handavinnukennslu pilta ásamt Guðlaugi Guðmundssyni. — Myndin er tekin á sýn-
ingunni og sést lítili sýningargestur vera að skoða teikningar. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
S Hernámsf ramkvæmdir lama
atvinnullf á Hellissandi
Með því að bjarga skipstjóranum af Milwood
undan íslenzkum löggæzlumönnum hefur brezka
stjórnin sjálf brotið landhelgissamning þann sem
hún gerði við íslenzku ríkisstjórnina 1961. Brezka
stjórnin het þá að virða ákveðna landhelgislínu,
en með framferði sínu nú hefur hún svikið það
loforð á ósvífnasta hátt.
Ef einhver manndóm-
ur væri í íslenzku ríkis-
stjórninni bæri henni að
lýsa yfir því að samn-
ingurinn væri þar með
úr gildi fallinn vegna
vanefnda Breta, óskoruð
12 mílna landhelgi væri
komin til framkvæmda á
nýjan leik, og íslending-
ar væru ekki lengur
bundnir af nauðungará-
kvæðunum um Iand-
grunnið.
Þessi viðbrögð ættu að vera
þeim mun sjálfsagðari sem ríkis-
stjóm Islands lýsti yfir því að
ávinningurinn við samninginn
væri í því fólginn að Bretar
myndu láta af fyrra ofbeldi sínu,
virða landhelgi fslendinga og
ekki láta herskip sín bjarga
veiðiþjófum. öll þessi loforð hafa
Bretar nú svikið; þeir hafa einn-
ig neitað að standa við
inginn af sinni hálfu.
samn-
FENGSÆL fiskimið Breiðafjarð-
ar og út af Jökli hafa borið
vitni um auðævi landsins á
vetrarvertíðinnS og landburður
af fiski hefur verið i verstöðv-
unum kringum Breiðafjörð
í vetur.
Fengu 5—6% vii-
bótarkauphækkun
HVARVETNA hefur fólkið unn-f
ið myrkranna á milli og víða
vantað fleiri hendur til þess að
nýta aflann f landi.
NtJ HEFUR hinsvegar fiskmót-
taka Iamazt f Hellissandi
vegna hernámsframkvæmda
við Lóranstöðina á Gufuskál-
um og hefur fólk horfið úr
sjávarplássinu unnvörpum í
þessar byggingarframkvæmd-
KI. 3 f fyrrinótt tókust samn-
ingar milli Mjólkurstöðvarinnar
í Reykjavík og Dagsbrúnar um
kauphækkun verkamanna og
bílstjóra sem þar vinna. Nemur
kauphækkunin 5—6% og gildir
aftur fyrir sig frá 1. marz sl.
1. febrúar sl. fengu þessir starfs-
hópar þá 5% kauphækkun sem
almennu verklýðsfélögin fengu,
þannig að þeir hafa nú samið
um 10—11% kauphækkun.
Samningar þessir hafa verið
Iausir síðan i haust Ieið og hafa
nokkrir viðræðufundir verið á
þeim tíma; sá síðasti sem árang-
ur bar stóð frá kl. 5 f fyrra-
dag til kl. 3 um nóttina. Er
kauphækkunin til samræmis við
það sem tíðkast nú f öðrum
mjólkurbúum. Samningarnir gilda
aðcins til 1. júlí n.k. en falla
þá sjálfkrafa úr giildi. Þá falla
cinnig úr gildi samningur mjólk-
urfræðinga og annarra starfs-
manna Mjólkurstöðvarinnar.
ÞRlR BÁTAR hafa verið gerðir
út frá Hellissandi í vetur:
Tjaldur, Sæborgin og Arnkell.
Tjaldur verður nú að losa afla
sinn í Ölafsvík, Arnkell hefur
farið á síld og Sæborgin er
hætt veiðum.
SUMIR AF skipverjum hafa ráð-
ið sig í hernámsvinnuna og eru
þegar byrjaðir þar hjá Islenzk-
um aðalverktökum.
FISKVERKUNARSTÖÐIN Jök-
ull hætti fyrir síðustu mánaða-
mót og Hraðfrystihús Hellis-
sands er að geispa síðustu gol-
unni.
TRILLUBÁTAÚTGERÐ á vorin
hefur verið blómlcg atvinnu-
grein en talið vonlaust um
hana f ár.
UM 100 MANNS vinna nú við
hpcear hernámsframkvæmdir.
Unglingsstúlku
saknað
Fjórtán ára heimasæta að Lang-
holtsvegi 45 hefur ekki komið
heim til sín í nokkra daga. Heit-
ir ungfrúin Margrét Jónsdóttir
og er klædd svartri kápu með
ljósgráum skinnkraga og á hæla-
háum skóm. Hún er há og grönn
með ljóst hár greitt í bardot-
tízku. Hefur hún sézt bregða fyr-
ir í bílum öðru hvoru.
Það eru yinsamleg tilmæli lög-
reglunnar að leiðbeina ungfrúnni
heim til sín.
Eiga skuldbindingar Islend-
inga einar að standa?
Skuldbindingar Islendinga voru
sem kunnugt er margfalt meiri
og alvarlegri. Bretar fengu und-
anþágur til veiða innan íslenzkr-
ar landhelgi í þrjú ár, og land-
helgisráðstefna sú sem Bretar
hafa boðað í London í haust
sýnir að þeir hafa hug á að fá
undanþágumar framlengdar.
Einnig féllst íslenzka ríkis-
stjómin á að stækka landhelgina
aldrei framar nema með sam-
þykki Breta eða alþjóðadómstóls-
ins. Allt þetta kvaðst ríkisstjóm-
in hafa gert til þess að kaupa
Breta til þess að virða alþjóða-
lög og sjálfstæði íslands.
Er fslenzka ríkisstjórnin
þeirrar skoðunar að skuld-
bindingar lslendinga eigi að
standa, þótt reynslan sýni að
Bretar virði sínar skuldbind-
ingar einskis?
Aftur á samningastig
Ríkisstjómin hefur haldið því
fram að undanþágumar innan 12
mílna landhelgi séu léttvægar,
þar sem Bretar hafi heltið því
að virða óskoraða 12 mílna land-
helgi á næsta ári. En hverjum
dettur í hug að Bretar virði 12
mílurnar þegar þeir neita að
virða sjálfan undanþágusamn-
inginn um veiðar allt upp að 6
mílum? Margt bendir til þess að
ofbeldi brezka herskipsins Pallis-
ers sé einmitt ráðstöfun til þess
að koma lamdhelgismálihu á
samningastigið á nýjan leik fyr-
ir ráðstefnuna í Lundúnum í
haust, þannig að stjómarflokk-
amir geti aftur haldið því fram
að þeir hafi orðið að kaupa sér
frið brezka flotans með nýjum
f ríðindasamningum!
Helgi
Helgason
hæstur
Senn drcgur að vertíðarlokum
og hafa bátar frá Patreksfirði
reynzt aflasælir á vertíðinni á
hinum fengsælu miðum á Breiða-
firði í vetur. Hefur nú kom-
ið í Ijós, að Helgi Helgason er
aflahæsti báturinn á vcrtíðinni
og hcfur jafnvel slegið lslands-
met í aflamagni á vetrarvertíð.
Helgi Helgason kom að landi í
fyrrakvöld með 30 tonn og er
heildarafli hans orðinn 1370 tonn,
en gamla metið átti Binni í Gröf
á Gullborginni frá Vestmanna-
eyjum og var heildarafli hans
þá 1363 tonn. Helgi Helgason er
leigubátur á Patreksfirði og er
skipstjóri hans Finnbogi Magn-
ússon.
Allar Iíkur benda til þess að
Helgi komist yfir 1400 tonn og
er hásetahlutur af 1400 tonnum
talinn um 120 þúsund krónur.
Þá hefur Dofri frá Patreksfiröi
aflað þegar á vertíðinmi 1170
tonn og kom að landi í fyrra-
kvöld með 30 tonn.
MANNLÍF Á SPJALDSKR
3
Á BAKSÍÐUNNI í dag er birt enn ein njósnaskýrsla til banda-
ríska sendiráðsins og nú skýrsla sem verður til eftir að njósnarinn
hefur á ódrengilegasta hátt notað kunningsskap og trúnað.
i