Þjóðviljinn - 18.05.1963, Síða 1
Vandræðaleg tilraun til að hjálpa
sendiráðinu til að komast að því
hvar Þjóðv. hafi náð njósnaplöggunum
Einn njósnara bandaríska sendiráðsins
gefur
sig f ram
í gær gerðust þau tíðindi að Vísir birti yfir-
lýsingu frá manni nokkrum, Ásgeiri Magnússyni,
og kveðst hann hafa skrifað þær handskrifuðu
njósnaskýrslur sem myndir hafa birzt af hér í
blaðinu að undanförnu. Kveðst hann hafa skrifað
njósnaskýrslurnar sér „til dundurs og minnis“ og
hafi þeim verið síolið frá sér en aldrei komizt til
bandaríska sendiráðsins!
Ásgeir Magnússon sem kveðst
hafa skrifað njósaskýrslur sér til
„dundurs og minnis".
!-
Lampanum
úthlutað
Félag íslenzkra leikdómenda
efnir til hátíðar í Þjóðleikhús-
kjallaranum annað kvöld, mónu-
dagskvöld. Verður þá Silfur-
lampinn afhentur þeim leikara,
sem beztan leik hefur sýnt á
liðnum vetri að áliti leikdóm-
enda. Karl Guðmundsson mun
skemmta, og eftir borðhald
verður stiginn dans. Samkoman
hefst kl. 7.30. Leiklistarunnend-
ur eru hvattir til að mæta.
Síðari hluti af játningu
mannsins er uppspuni; gögn
þau sem Þjóðviljinn hefur
undir höndum eru komin
beint frá sendiráðinu, eftir
að þar hafði verið unnið úr
plöggunum. Enda hefur
sendiráðið ékki borið við að
mótmœla frásögnum Þjóð-
viljans, og bæði Vísir og
Morgunblaðið lýstu yfir því
í upphafi að þama væri um
algerlega eðlilega starfsemi
sendiráðsins að ræða. Þjóð-
viljinn hefur þegar birt
dæmi um plögg sem Ásgeir
hefur viðurkennt að hafa
aldrei augum litið, og fleiri
dæmi um það eiga eftir að
birtast hér í blaðinu.
Vísir kynnir mann þann sem
gefur sig upp sem njósnara um
samborgara sína sér til „dund-
urs og minnis“ þannig að hann
sé „Reykvíkingur um fertugt.
Hann stundaði nám í deild ís-
lenzkra fræða við Háskóla Is-
lands og hefur fengizt við rit-
störf og fræðistörf á undan-
fömum árum“. Einnig segir
blaðið svo eftir Ásgeiri Magn-
ússyni um bandaríska sendi-
ráðið:
„Hann hefði aldrei haft sam-
band við neinn á þess vegum
eða stigið þar fæti sínum inn
fyrir dyr“.
Framhald á 2. síðu.
NJÓSNASKÝRSLUM
BANDARÍSKA
SENDIRÁÐSINS
í tilefni af já'tningu
Ásgeirs Magnússonar
birtist hér enn eitt sýnis-
horn af skýrslu sem
njósnadeild bandaríska
sendiráðsins hafði til
þess að vinna úr og færa
inn á spjaldskrá. Skýrsl-
an er í heild á þessa
leið:
Már Arsælsson, f. í Reykjavík
6. apríl 1929. For.hj. Anna Mar-
grethe Ottósdóttir og Ársæll Sig-
urðsson skrifstofumaður í „Borg-
arfelli" og einn aðaleigandi
þeirrar heildsölu, sem er til húsa
í Hverfisgötu 26, Rvík. Albróðir
Mós er Hrafnkell Ársælsson nú á
skrifstofunni hjá „BorgarfeUi"
(f. í Rvdk 11. janúar 1938.
Skýrsla um hann komin).
Már, kona hans, börn, foreldr-
ar og bróðir eiga öll heima á
Nýlendugötu 13, Rvík, og þar er
Már fæddur.
Már var í I., II. og III. bekk
Gagnfræðaskóla Reykvíkinga
veturna 1943—1946. Þar tók
hann gagnfræðapróf vorið 1945,
og þar tók hann árspróf III.
bekkjar vorið 1946 með II. eink-
unn, 6,93. Hann sat IV. V. og
VI. bekk stærðfræðideildar
Menntaskólans í Rvík vetuma
1946—1949. Þar varð hann stú-
dent í stærðfræðideild 16. júní
1949 með I .einkunn. 7,57.
Hann var innritaður í verk-
fræðideild Háskóla íslands vet-
urinn 1949—1950. Að því búnu
tók hann stunda nám í stærð-
fræði við háskóla í Kaupmanna-
höfn. Var hann þar við nám í
þrjá vetur, eða svo, og tók hann
þar lokapróf í stærðfræði um
1953. Síðustu 4—5 vetur hefur
hann verið kennari í reikningi
og stærðfræði (í vetur 40 tíma
á viku) við Gagnfræðaskóla
Vesturbæjar í Rvík. Hann er
kvæntur, og eiga þau hjónin 3
börn.
Már er kommúnisti. Hann
hefur verið í „Æskulýðsfylking-
unni“ í Rvík. Hann er í Sós-
Jx* ♦**>**.
•£<**%**. rCyCji
*£*£**+<* ■* jt-
M*.
/4** i¥*J?* /sJhnJJXJyy•
■jLirx vvdi /vr *i*fejr yj
■■ f í, yjf /C iðt/lVt, 'f &
y~*-y+xu* *
~ * t , . I'■ w -v. -- .■I"— I ■■ -H
JjUÍ/c »
■>»/. ý rfi.
vjt AÍ<u&/<~jCi
*
íalistafciagi Rvíkur.
Kona Más heitir Lilja Krist-
jánsdóttir. Hún er um 25 ára
gömul. Hún er fædd á einhverj-
um sveitabæ í Húnavatnssýslu.
Þar var faðir hennar, bóndi, en
er nú fyrir nokkrum árum flutt-
ur til Rvíkur. Móðir hennar mun
vera látin. Systkini Lilju eru
a.m.k. þrjú. Hún á tvær systur,
eitthvað yfir tvítugt að aldri,
sem báðar eru ógiftar og heita
Sigurbjörg og Helga. Þær starfa
að einhverju í Rvík.
Bróðir þeirra heitir Páll
Kristjánsson. Hann er rúmlega
þrítugur. Hann er gjaldkeri hjá
Alm. byggingafél h.f. Rvík.
ÞRÖNG
Á ÞINGI
Þessi mynd er frá hinum
glæsilega fundi Sósíalistafé-
iags Reykjavíkur í Austurbæj-
arbíói i fyrrakvöld og sýnir
hún vel hve þéttskipað var í
húsið. Sctið var í hverju sæti
og á göngum og fram við dyr
stóðu eins margir og komust,
en þrátt fyrir það urðu marg-
ir frá að hverfa. Á 4. s. blaðs- i
ins í dag birtist ræða Brynj. I
Bjarnasonar. (Ljósm. A. K.).