Þjóðviljinn - 23.05.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 23.05.1963, Side 1
KJÓSUM G GEGN EBE OGABD ALÞÝÐU BANDALAGIÐ Örlagaspurning okkar kynslóðar: Geta fslendingar lifað sem sjálfstœð pjóð? Enginn hefur gerf skýrari grein 'fyrir hugmyndum stjórnarflokkanna um framtíð ís- lenzku þjóðarinnar en Gylfi Þ. Gíslason í ræðu þeirri sem hann flutti á aldarafmæli Þjóðminjasafnsins. Kjaminn í ummælum ráðherrans var þessi: ■ „Einn mestur stjórnmálaskörunugur á fyrri hluta þessarar aldar sagði ekki alls fyr- ir löngu, að svo virðist nú komið, að helzta ráðið til að efla sjálfstæði þjóðar væri að fórna sjálfstæði hennar.“ ■ „Fær það dulizt mönnum að sérhver samningur milli þjóða, sérhver samtök ríkja, sérhvert bandalag, bindur alla þá sem aðild eiga, takmarkar sjálfsforræði þeirra, skerðir sjálfstæði þeirra?“ ■ „Kemur ekki hlu'tdeild í auknu sjálfsforræði og vaxandi öryggi voldugs bandalags i stað minnkandi sjálfsforræðis hvers einstaks?“ ■ „Ef menn á annað borð óska bættra lífskjara, e'f menn keppa að auknu öryggi, þá virðist þetfa leiðin í þá átt. Það, sem er að gerast í kringum okkur, er, að stórveldi efl- ast, bandalög myndast, olnbogarúm hinna smáu minnkar, skilyrði þeirra til að tileinka sér hlutdeild í framförum skerðasf, kæna smáríkis dregst aftur úr hafskipi stórveldis eða bandalags.“ Þessi voru umrnæli Gylfa Þ. Gíslasonar eftir afS slitnaði upp úx samn- ingum Breta og Efnahags- bandaiags Evrópu. Hann var ekki að ræða það fyr- irbæri eitt hvernig fslend- ingar skyldu tengjast Efnahagsbandalaginu, hann var að lýsa þeirri fram- tíðarstefnu stjórnarvald- anna að íslendingar gætu ekki staðizt sem sjálfstæð Þjóð, þeir yrðu að renna inn í stærri heyd, fara úr kænunni upp hafskip stórveldis. Sú stefna helzt óbreytt hvað sem gerast kann í samningum Breta og meginlandsveldanna. Atlanzhafs- bandalagið Sú skoðun valdhafanna, ☆ ☆ ☆ ÚRKLIPPAN TIL VINSTRI: Angistaróp Gylfa Þ. Gísia- sonar í Alþýðublaðinu 30. janúar s.l. þegar slitnað hafði upp úr samningum Breta og EBE ÚRKLIPPAN TIL HÆGRI: Heildsalablaðið Vísir lýsir afstöðu hernámsflokkanna til erlends fjármagns í for- ustugrein 28. Júlí 1962. að sjálfstæði fslands sé úr- elt. er lykillinn að öllum athöfnum þeirra. Þegar ís- lendingar voru innlimaðir í Atlanzhafsbandaóagið var hafnað þeirri stefnu forfeðr- anna að landsmenn gætu lifað einir og frjálsir í landi sínu sem hlutlaus friðarþjóð. fslendingar voru gerðir hluti af ,,stórri heild“ herveldanna umhverfis okk- ur, örlög okkar gerð háð örlögum nýlenduvelda og auðhringa, Að þessari inn- limunarstefnu stóðu her- námsflokkamir þrir, Sjálf- stæðisflokkurinn, Framsókn- arfokkurinn og Alþýðu- flokkorinn. Hernámið Næsta skref stigu her- námsfjokkarnir þrír þegar þeir kölluðu bandarískan her inn í landið, þvert of- an í hátíðlegustu svardaga sína á Alþingi fslendinga. Síðan hefur verið hér tví- býli, erlent ríki hefur hreiðrað um sig og seilzt stöðugt lengra til áhrifa á alla þætti íglenzkra þjóð- mála. Sérstakt ofurkapp leggur hernámsliðið á að sýkja innanfrá hina fornu menningu íslendýnga, eins og greinilega kom í ljós þegar hermannasjónvarps- stöðin var stækkuð í því skyni einu að hún gæti dregið inn á sem flest ís- lenzk heimili. Hið erlenda lið stefnir markvisst að því að innlima íslenzku þjóðina á friðartímum — og undan- fama daga hafa verið rakt- ar hinar ógnarlegustu stað- reyndir um aflejðingar her- námsstefnunnar ef til styrj- aldar kemur. Stjómarflokk- arnir standa á varðbergi um þessa stefnu, og Tíminn lýs- ir nú yfir því dag eftir dag að Framsóknarflokkurinn sé „ckki síðri" hemámsflokkur en hinir. Landhelgin Átökin um Jandhelgina sanna bezt að innlimunar- menn geta ekki haldið á neinu hagsmunamáli ís- lenzku þjóðarinnar. f>að vár þrýstingur frá Atlanz- hafábandalaginu sem gerði það að verkum, að valdhaf- amir gerðu nauðungarsamn- inginn við Breta, hleyptu togurum þeirra inn í land- helgina og gerðu landgrunn- ið utan 12 mílna að „al- þjóðavettvangi". Það er at- hyglisvert fyrir þá sem treystu ráðamönnum Fram- sóknar í þessu máli að sjá Tímann nú lýsa yfir þvi' dag eftir dag að Framsókn- arflokkurjnn muni standa við nauðungarsamninginn við Breta í einu og öllu — ekki siður en stjórnarflokk- arnir. Viðreisnin Einnig efnahagsstefna ríkisstjómarinnar — við- reisnin — er liður í innlim- unaráformum stjórnarvald- anna. Ef takast á að inn- lima íslendinga auðveldlega í þá stóru heild sem Gylfi Þ. Gíslason talaði um aí hvað mestri hrifningu þarf efnahagskerfið á íslamdi að vera í sem beztu samræmi við ríkin sem eiga að gleypa okkur. Öl'i viðreisnaráætl- unin var samin samkvæmt þeim áformum, sniðin eftir hagkerfinu í stórveldum þeim sem áttu að hirða ksenu okkar. Með endur- skoðun tollskrárinnar var verið að taka upp sama kerfi hér og þar. Og Ólafur Thors forsætisráðherra lýsti tilganginum með fram- kvæmdaáætluminni á þessa leið í greinargerð sem birt Framhald á 2. eíðu. V^þýz'M fjármagh t gssr slcýrðiVísir ítá frví, a‘5 þýzkur autímaðu, hefði fest kaup á'jörö viðl’jórsa, þaí sem ha&iarsldl- yrðiera taHii góð. EKki er ástæða til |»ess að áinast við slSkum káup* um útlenðíngaá íslenzku landi meðah bau. eru J hófi. 1 4

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.