Þjóðviljinn - 07.06.1963, Síða 5

Þjóðviljinn - 07.06.1963, Síða 5
Föstudagur 7. iúní 1963 ÞIÓÐVIUINN Síðara mark Fram. Ríkharður og Baldvin bruna að markinu. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.). Fram — Holstein Kiel 2:2 Jafntefli Framara við gestina, en vörðu 5 sinnum á marklínu Þessi leikur var í litlu frábrugðinn leik þessa þýzka liðs s.l. mánudag. Nú kom fram sama veil- an í leik gestanna og þá: Þeir eru í vandræðum með að skjóta á mark. En úti á vellinum er leikur þeirra ágætur. Þeir gátu haft sýningu á leikna og listum knattspyrn- unnar úti á vellinum, þar sem hver einasti Framari, og raun- ar allir islenzkir knattspyrnu- menn gátu af lært. Kom þar til knattmeðferð, nákvæmni í sendingum, hreyfanleiki á lið- ihu og staðsetnimgar, sending- ar með skalla, og gekk þetta alla leið upp að vítateig Fram, en þá rann allt útí sandinn. Þeir virðast ekki geta skotið, eða náð því að leika í gegn- um aftasta varnarmúrinn. Að vísu léku hæði Klt og Fram varnarleik, þar sem margir hafa verið komnir í teiginn þegar Þjóðverjar voru til- búnir að skjóta, en samleikur þeii-ra er oft nokkuð seinvirk- ur þar sem sendingamar eru mi'kið þversum og aftur, svo Fram vannst góður tími til að koma sér fyrir í vðrninni. Fram í framför Það er því ekki að undra að meira lægi á Fram yfirleitt í leiknum, en Framarar sýndu baráttuvilja, gerðu oft sæmi- legar tilraunir til samleiks og áttu áhlaup sem ógnuðu Þjóð- verjumum. Er þetta tvímæla- laust bezti leikur Fram á þessu sumri, og vildu gárung- arnir halda því fram að það .væri Ríkarður og rauðu peys- umar (þeir léku í peysum ' með Valslit!) sem hefðu hleypt þessum krafti í Fram- arana! Vörn Fram var betri helm- um fyrir að varið var á línu, og áttu þeir Guðjón tvær og Sigurður Einarsson þrjár bjarganir fyrir aftan Geir. Rikarður gaf Frömurum vissulega tiltrú, og það þó hon- um tækist ekki upp eins og homum getur bezt tekizt. Staf- aði það af því að hann einlék of mikið. Baldvin sýndi enin sem fyrr að hann er erfiður og fylginn sér, og hættulegur í sókn, enda sleppti miðframvörður- inn honum ekki frá sér. 1 heild slapp Fram vel frá leiknum, og ef miða á við þá knattspyrnu sem liðin sýndu þá eru þessi úrslit ekki sann- gjörn. Til þess voi-u Þjóðverj- amir miklu betri, en knatt- spyrnan er nú einu sinini svona, og svo er hitt, að mað- ur á svo eifitt meö að við- urkenna góða knattspyrnu ef mörk fylgja ekki með. ★ Pólski spretthlauparinn Ziclinski hljóp 100 metrana á 10,2 sek á móti í Varsjá um síðustu helgi. Þctta er bezti árangur í 100 metra hlaupi í heimi í ár til hessa. ★ England vann Austur- Þýzkaland — 2:1 í 4. lands- Ieik landanna í knattspyrnu. Leikurinn fór fram í Leipzig á hvítasunnudag, og voru á- horfendur 90.000. ingur liðsins, og lét hún Þjóð- verjana aldrei í friði ef þeir nálguðust markið. Guðjón var sterkastur og Sigurður Ein- arsson lét heldur ekki sitt eft- ir liggja. Hrannar er nú kom- inn aftur, og þótt hanm sé ekki enn kominn í fulla æf- ingu, var hann samt styrkur fyrir liðð. Geir í mai-kinu var yfirleitt' öruggur, þótt hann ætti það til að fá sér „skógar ferð“ eins og danskurinm seg ir. En þáð kom yfirleitt ekk að sök, þv'i hann hafði góð menn með sér sem vörðu á línunni þegar ha.nn var „ekki heima“. Kom það fimm sinn- ★ Spánverjar urðu að láta láta nægja jafntefli við ír- land í Evrópubikarkeppni landsliða. Leikusinn fór fram í Bilbao, og úrslitin urðu 1:1- Ýmsir stórleikmenn Spánar voru ekki meö, svo sem di Stefano, Del Sol og Cento. ★ I kringlukasti hafa náðst góð afrck á mótum í Evrópu undanfarið: — Pentti Repo (Finnl.) 53,34, Pflieger (Vest- ur-Þýzkal.) 53,33, Lotz (Aust- ur-Þýzkal.) 53,31 og Galli (Italiu) 53,30 metra. Leikurinn Fyrsta markið kom á 10. min. leiksins og gerði Mund það eftir mjög góðan sam- leik nokkurra leikmanna fram vinstra megin. Á 36. mín. er vinstri út- herjinn Greif kominn yfir hægra megin, leikur þar á tvo varnarmenn, og gerir Geir ráð fyrir því að hann mundi senda knöttinn út frá markinu og fer svol'ítið fram til að vera betur viðbúimn. En við það kom op fyrir aftan Geir, og sendi Greif knöttinm í smug- una. Við þessu var Geir ekki búinn og stóð sem negld- ur niður, og má vera að sól hafi blindað hann líka. Mjög laglega gert hjá Greif. Á næstu mím. er dæmt horn á Þjóðverja. Knötturinn lendir hjá Þorgeiri Lúðvíkssyni sem var heppinn með spyrnu sína, kmötturinn fer í boga yfir markmannnn og inn í max-kið 2:1. Á 8. mín síðari hálfleiks á Gúðmundur Óskarsson hörku- skot í þverslá. Á 34. mím. er dæmd auka- spyrna á Þjóðverja og spyrn- ir Guðjón að marki og lendir knötturinn 'i þverslá og kem- ur niður fyrir fi-aman markið. Þar taka þeir á móti honum Ríkarður og Baldvin og mun Ríkarður hafa „nikkað" hann í markið. 2.2, og þar við sat hvað mörk snerti. Þjóðvei-j- arnir sóttu oft fast og fengu fjölda hoi-na em úr þeim varð ekkert, I heild var þetta ekki sér- lega tilþrifamikill leikur eða sérlega spennandi, en þó með góðum augnablikum inn á milli. Dómari var Grétar Noið- fiörð og dæmdi vel. Áhorfendur voru margif ög ve'ður mjög gott. Næsti leikur Holstein-Kie] verður í kvöld á Laugax-dals- vellinum, og leika þeir þá við Akux-eyri. Munu Akureyring- ingar styrkja lið sitt með þrem mönnum. Akureyringar hafa verið að fæxast í aukana í síðustu leikj- um simum, enda að fá meiri og meiri leikjaæfingu í sumar, svo það má gera ráð fyrir að það verði skemmtilegur leik- ur, ef þeim tekst vel upp. Frímann. Evrópumeistarinn í 500 m. hlaupi, Bruce TuIIoh (Englandi). verður að æfa a.m.k. tvær stundir á dag, en auk þess að vinna fullan vinnudag. Til þess að missa ekki af samveru- stundunum með manni sínum, hefur frú Susan TuIIoh tekið upp það heiilaráð að fylgja manni sínum á æfingar, og auðvitað smitast hún af áhuganum og æfir líka. Sonurinn Clive fylgist með tilburðum foreldranna úr vagni sínum Skarðsmótið háð um hvítasunnuna Um hvitasunmxna 1. og 2. júní var hið árlega „Skarðs- mót“ skíðamanna háð í Siglufirði. Keppendur voru alls 44 frá ísafirði, Siglufirði, Ólafsfirði og Reykjavík. I keppni unglinga voru þátt- takendur 12, frá Reykjavik og Siglufirði. Mótsstjóri var Jón- as Ásgeirsson. Keppt var í svigi og stór- svigi karla og kvenna og urðu úrslit þessi: Stórsvig karla: 1. Jóhann Vilbergsson, Sigluf. á 86,5 sek. 2. Svanberg Þórðarson, Ólafsfirði 87,2 sek. 3. og 4. Samúel Gústafsson, Isafirði á 92,6 sek. og Hafsteinn Sigurðsson Isafirði á sama tíma. Svig karla: 1. Jóhann Vilbergsson, Siglufirði á 98,6 sek. 2. Svanberg Þórðarsson, . Ó'afsfirði á 104,9 sek. 3. Hjálmar Stefánsson, Siglufirði á 109,7 sek. 4. Samúel Gústafsson, ísafirði 110,8 sek. Alpatvíkeppni karla: 1. Jóhann Vilbergsson, Siglufirði — 0,00 stig. 2. Svanberg Þórðarsson, Ólafsfirði — 4.26 stig 3. Samúel Gústafsson, ísafirði — 9,93 stig. 4. Hjálmar Stefánsson, — 12,11 stig. Stórsvig kvenna: 1. Kristín Þorgeirsdóttir, Siglufirði á 74 sek. 2. Árdís Þórðardóttir, Siglufirði á 75,3 sek. 3. Sigríður Júlíusdóttir, Siglufirði á 77,8 sek. Svig kvenna: 1. Kristín Þorgeirsdóttir, 111,2 sek. 2. Sigríður Júlíusdóttir, 118,5 sek. 3. Árdís Þórðardóttir, 119,2 sek. Sundfólk og þokka- dísir á sundmóti KR Afmælissundmót sunddeildar KR hefst í Sundlaug Vesturbæjar kl. 15 á morgun. Fræknasta sundfólk lands- ins keppir í 10 sundgreinum, og nýbakaðar fegurðar- drottningar, Thelma Ingvarsdóttir og Theódóra Þórðar- dóttir, sýna nýjustu baðfatatízkuna. ★ Á móti í Búdapest fyrir skömmu sigraði Attila Simon í 1500 m. á 3.44,4. Noszaly jafnaði ungverska metið í há- stökki — 2,08, og þrjár stúlk- ur stukku 1,64 m i hástökki. ★ Tékkar og Ungverjar skildu jafnir í landsleik í knatt- spymu, sem háður var í Prag sl sunnudag. Crslitin urðu 2:2. I hléi stóðu leikar 1:0 fyrir Ungverja. ★ Eftirtalin afrek hafa verið unnin í Sovétríkjunum undan- farið: Bclajev, Sjavlakadse og Midivani 2,05 i hástökki, Andris 64,20 í slcggjukasti, Dcmentjev 16,09 í þrístökki, Zinojev 77,52 í spjótkasti og Ovsjenko 7412 stig í tugþraut. Af afrekum stúlkna má nefna: Voskanjan 6.00 i langstökki, Tugusji 52,22 í kringlukasti. ★ Finninn Simola kastaði kúlunni 17,28 metra á móti um síðustu helgi. Landi hans 1 Yrjölá varpaði 17,22 metra. Nevala kastaði spjótinu 75.12 metra. utan úr heimi Meðal þátttakenda er Guð- mundur Gíslason, Davið Val- garðsson, Hrafnhildur Guð- mumdsdóttir og margt af ungu og efnilegu sundfólki. Sigurvegarar ] hverri grein fá til eignar siifurbikara sem ýmis fyrirtækj í borginnj hafa gefið. Tveir gamlir KR-ing. ar hafa gefið bikar handa þeim KRringi, sem mestum framförum hefur tekið í sundi síðan í' fyrra. Bikar. inn verður afhentur á mót- inu. Þokkadísir á vettvang Þá verður mótið kryddað með forvitnilegri tízkusýningu á baðfötum frá Sportveri. Það eru ekkj ósnoturri stúlk- ur en Thelma Ingvarsdóttir, fegurðardrottning íslands og Theódóra Þórðardóttir. feg- urðardrottning Reykjavíkur, sem sýna mótsgestum sundföt og yndisþokka. k V i

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.