Þjóðviljinn - 07.06.1963, Qupperneq 6
w
g SteA—---------——■■ — —• HÖBWiHKN
FSstudagur 7. jtrní 1963
Kynþáttmfséknirnar / USA
Þanniy ícr líandaríska lögreglan gjarnan með þö negra.sem krefjasí
þess, að kynþáttaofsóknum linni, og fullt jafnrétti nái fram að
ganga. Hér höfðu negrar sctt vcrði við opinbera skólabyggingu í
Phlladelphiu, þar sem hvítir og svartir voru ckki jafn réttháir
þegar ráðið var í vinnu. Það leynir sér ekki, að lögregluþjónninn
nýtur þcss að sýna vald sitt.
Yeiruvarnarsambandlð
„interferon” einangraö
„Interferon“, eggjahvítu-
samband það sem örvar
vamaraðgerðir líbamsfrum-
anna gegn veirusjúkdóm-
um, hefur nýlega verið ein-
angrað af sovézkum vis-
indamönnum.
Það hefur verið kunnugt að
frumur sem verða fyrir ásókn
einnar veirutegundar eru ó-
næmar fyrir öðrum tegundum.
Þegar í upphafi síðustu aldar
uppgötvaði Jenner nokkur slík
dæmi um að tveir sjúkdómar af
svipuðum uppruna útilokuðu
hvor annan.
Síðan og þá fyrst og fremst
á seinni timum hafa verið gerð-
ar miklar rannsóknir á þessu
fyrirþæri og þeir fyrstu sem
gáfu á því skýringu voru
brezku vísindamennimir Isaacs
og Lindenmann. Þeir sýndu
fram á að vissar veirur örva
frumumar til að mynda eggja- ,
hvítusamband, sem þeir gáfu
nafnið „interferon" og kemur í
veg fyrir að aðrar vcirutcgund-
ir geti búið um sig í líkaman-
um.
Nú hefur sovézku vísinda- j
konunni Ermolévu og sam- I
starfsmönnum hennar tekizt I
fyrstum allra að einangra betta j
efni og athuga uppbyggingu i
þess. Strax við upphaf þcssarn
athugana varö augljóst að „int-
erferon" mætti nota í varnar-
skyni við veirusjúkdómum, en
búast má við því, að það muni
laka alllangan tíma áður en
unnt verður að komast fyiiilega
á snoðir um uppbyggingu hins
flókna eggjahvítusambands, en
það er skilyrði fyrir þvi að
hægt verði að framleiða það í
rannsóknarstofum. Þá er held-
ur ekki vitað enn, hvort efnið
myndi hafa miður æskilegar
verkanir.
HafnfírBingar
Þeir Hafnfiröingar sem óska eftir virrnu við
steypu Reykjanesbrautar í sumar, hafi samband ;
við skrifstofu íslenzkra aðalverktaka s.f. í Iðn-
aðarDankahúsinu 5. hæð föstudaginn 7. júní
milli 3 og 7 og laugardaginn 8. júní kl. 9—12.
— Sími 11790.
Bandarísk „undraþota” reyndist lítt brukleg
Milljarðatugum kasta
í hít vígbúnaðarsins
Komið hefur á daginn að
bandarísk fyrirtæki með
góðri aðstoð Bandaríkja-
stjórnar hafa heldur en
ekki hlunnfarið bandamenn
hennar í Vestur-Evrópu
með því að ginna þá til að
festa kaup á bandarískri
herþotu, sem þeim var tal-
in trú um að tæki öllum
slíkum vígvélum fram, en
hefur reynzt stórgölluð,
lítt eða ekki brúkleg til
þeirra nota sem ætlað var
að hafa af henni og auk
þess a.m.k. helmingi dýrari
en látið hafði verið í veðri
vaka.
Hér er um að ræða þotu sem
smíðuð er af bandaríska félag-
inu Lockheed California Comp-
any. Heiti þotunnar er F—104,
eða F—104G, og notaði Banda-
ríkjastjórn áhrifavald sitt innan i
Atlanzhafsbandalagsins til að
neyða fjögur lönd Vestur- !
Evrópu til að kaupa þotur af
þessari gerð, Belgíu, Holland,
Italíu og Vestur-Þýzkaland.
Samkvæmt samningi sem gerð-
ur var 1959 var ætlunin að
þoturnar yrðu smíðaðar í Evr-
ópu og þá íyrst og íremst í V-
Þýzkalandi og yrði þeim breytt
nokkuð með tilliti til staðhátta
og þess hlutverks sem þeim var
ætlað í Evrópu. G-ið í nafni
þotunnar stendur fyrir „Ger-
man“ = þýzkur.
„Undraþota“
Ráðamönnum rík.ianna í V-
Evrópu var talin trú um að
hér væri um að ræða flugvél
sem tæki fram öllum slíkum,
„Superfighter". Hún átti ekki
einungis að koma að gagni sem
orustuþota bæði að degi og
nóttu, heldur einnig sem leit-
arflugvél og sprengjuflugvél,
sem gæti borið kjarnasprengjur.
Auk þess var því haldið fram
að hún væri tiltölulega ódýr,
hver þota af þessari gerð
myndi „aðeins“ kosta 50 rnillj-
ónir króna.
Þegar úrelt
Síðan samið var um kaup á
þessum þotum hefur verið unn-
ið að smíði þeirra og hafa þær
reynzt svo stórgallaðar að ekki
er of sagt að þær eru þegar úr-
eltar til þeirra nota sem heita
átti að þær væru keyptar fyrir.
Og auk þess hefur komið á dag-
inn að verð hverrar þotu er yí-
ir 100 milljónir króna, eða
meira en helmingi meira en ráð
hafði verið gert fyrir.
Hneyksli
Þótt reynt hafi verið, hefur
ekki tekizt að dylja galla þess-
ara marglofuðu „undraþotna"
og hefur allt þetta mál valdið
hneyksli í löndum þeim sem
um ræðir.
1 umræðum um fjárveitingar
til landvama ' á vesturþýzka
þinginu nýlega sagði einn af
leiðtogum sósíaldemókrata, —
Fritz Erler, að þýðingarlaust
væri að neita að þessar þotur j
væru stórgallaðar. öllum væri
þannig kunnugt um að þeim
væri hættara við slysum en
nokkrum öðrum flugvélum, þær
gætu alls ekki leyst af hendi
þau verkefni sem þeim hefðu
verið ætluð og kostnaðurinn við
framleiðslu þeirra heíði farið
langt fram úr áætlun.
Belgíska fjármálastofnunin
„Agence economiqe et finan-
ciere“ segir að vegna þess hve
þessi þota er þung í vöfum sé I
alls ekki hægt að nota hana tfl
könnunar úr lítilli hæð og sem
orustuþota komi hún heldur
ekki að gagni þar sem hún
verði að ráðast aftan að and-
stæðingnum. Hins vegar vanti
lítið á að hana megi nota sem
kjamasprengjuþotu.
Ætluð til árása
Þegar samningarnir um kaup
á þessari flugvél voru gerðir
var því ekki haldið á loft að
hana mætti nota til kjamorku-
árása. Það hefur ekki þótt
heppilegt að það spyrðist að
Bandaríkin væru að neyða slík-
um flugvélum upp á V-Þjóð-
verja og mun Franz-Joseí
Strauss, sem gerði samninginn
fyrir' þeirra hönd, reyndar
ekki haía þurft neinar nauð-
ungar við.
Belgíska stofnunin segir að
enginn vafi sé á að það hafi
ailtaf verið ætlunin að nota F—
104 þoturnar til kjarnorkuárása.
Erfitt sé að ímynda sér að
þeim hafi verið ætluð verkefni
sem þær séu greinilega ófær-
ar um að leysa aí hendi.
„Blind og heymarlai’
En 8. apríl sl. var frá t
skýrt í „New York Times" i
þessar þotur væru í raunin
bæði „blindar og heymarlaus-
ar“, ef ekki væri komið upp
þéttriðnu neti stöðva á jörðu
niðri sem stjórnuðu flugi þeirra.
Upphaflega hafði verið talið að
slíkar stjórnarstöðvar myndu
kosta sem svarar 20 milljörð-
um króna, en sú áætlun hefur
ekki staðizt fremur en aðrar,
svo að nú er kostnaðurinn tal-
inn myndu verða a.m.k. þre-
falt meiri.
Ofan á þetta allt bætist að
Bandaríkjastjóm sem hafði
þegar kaupin voru gerð látið
líklega að hún myndi að stór-
um. hluta taka þennan kostnað
á sínar herðar, hefur nú fallið
frá því boði og segir að ríkin
í Vestur-Evrópu verði að koma
sér saman um það, hvemig
þau deili með sér kostnaðinum.
Nazim Hikmet er
látinn í Moskvu
Hið mikla tyrkneska ljóð-
skáld, Nazim Hikmet, lézt á
mánudaginn í Moskvu, 61 árs
að aldri. Hikmet var árum
saman í tyrkneskum fangelsum
vegna samstöðu sinnar með al-
þýðu lands síns og marxistískr-
ar sannfæringar sinnar. Hann
var loks látinn laus árið 1951
og þá leyft að fara úr landi
og hefur síðan dvalizt í Sovét-
rikjunum og var sovézkur þegn.
Theodor Oberlander hafði
hlaðna byssu í þingsalnum
Nazistaforinginn Theo-
dor Oberlander sem var
ráðherra í stjórn Adenau-
ers í Vestur-Þýzkalandi, en
varð að hrökklast úr henni
O'g af þingi, þegar það
sannaðist á hann, að hann
hefði staðið fyrir fjölda-
morðum í Póllandi á stríðs-
árunum, er nú aftur kom-
inn á þing og hefur vakið
á sér athygli
Nokkrir þingmenn sósíal-
demókrata hafa nefnilega borið
fram fyrirspurn um bað hvort
Oberlánder gangi jafnan með
hlaðna skammbyssu á sér beg-
ar hann mætir á þingfundum
og hvort slíkt framferði geti
þá talizt samboðið virðingu
þingsins.
Oberlánder komst aftur á
þing í síðasta mánuði, vegna
þess að einn af þingmönnum
Kristilegra demókrata í Neðra
Saxlandi lést, og Oberlánder
sem hafði verið í framboði fyr-
ir flokkinn tók þá þingsæti
hans.
Theodor Oberlander
Með hlaðna skammbyssu
Á fundum þingsins 15. og 16.
mai sl. var Oberlánder með
lögregluskammbyssu með 7.65
mm hlaupvídd og var hún full-
hlaðin átta skotum. Auk þess
hafði hann á sér 20 aukaskot.
svo að hann var búinn undir
meiriháttar bardaga við árásar-
menn eða póiitíska andstæðinga
segir vesturþýzk fréttastofa.
Það hefur komið í ljós að
þingmaðurinn gengur alltafmeð
skammþyssu á sér og segist
hann vera hræddur um að aust-
urþýzkir erindrekar ræni hon-
um til að láta hann afplána
lífstíðar fangelsi, sem hann var
dæmdur í fyrir stríðsglæpi sín«i.
Sum vesturþýzk blöð segia
hins vegar að Austur-Þjóðverj-
ar muni teija það heppilegra
að hann sitji á þingi i Bonn
heldur en í austurþýzku fang-
elsi.
Siðvæðingarpostull
Það er ekkert launungamál
að flokksbræður Oberlánders
flestir vildu helzt að beir þyrftu
ekkert að hafa saman við hann
að sælda. Jafnvel vesturþýzku
flóttamannasamtökin eru orðin
honum andvíg. en hins vegar
er hann enn mikils metin í
Siðvæðingarhreyfingunni og i
samtökum fyrrverandi storm-
sveitamanna.
Vélbyssur bannaðar
Skrifstofustjóri vesturbýzka
þingsins hefur svarað fvrir-
spurn sósíaldemókrata á þá
leið að þingmönnum muni
heimilt að hafa á sér skotvonn
í þingsalnum. ef þeir gæta þess
að enginn sjái þau. Hins vegar
myndi þeim ekki leyft koma
mo* vpihvssur í þingsalinn.
ANS PETERSEN HF
Sími 2-03-13 Bankastræti 4.
i
i