Þjóðviljinn - 07.06.1963, Síða 8
ÞJÓÐVILIINN
Föstudagur 7. júní 1963
3 SlÐA
Skarðsmótið
Framhald af 5. sídu.
Alpatvíkeppni kvenna:
Kristín Þorgeirsdóttir,
0,00 stig.
2. Árdís Þórðardóttir,
5,33 stig.
3. Sigríður Júlíusdóttir,
6,95 stig.
Úrslit í unglingakeppni: —
Svig drengja:
1. Eyþór Haraldsson.
52.8 sek.
2. Tómas Jónsson, Reykja-
vík 57,3 sek.
3. Marteinn Kristjánsson,
Siglufirði 58,8 sek.
4. Jóhann Skarphéðinsson,
Siglufirði 60,6 sek.
Svig stúlkna:
1. Lilja Jónsdóttir,.
129 sek,
2. Jóhanna Helgadóttir,
135.8 sek.
Jóhann Vilbergsson vann
alpatvikeppni karla nú i þriðja
sinn í röð og hefur þar með
unnið verðlaunagripinn ,Skarðs-
styttuna', til ævarandi eignar.
Þessu skíðamóti lauk með
knattspymukeppni milli sigl-
firzkra skíðamanna og skíða-
manna úr öðrum landshlutum
og unnu Siglfirðingar leikinn
með 1 gegn 0.
Að kvöldi lokadags var hóf
að Hótel Höfn og fluttu þar
ræður Bragi Magnússon frá
Skíðafélagi Siglufjarðar og
Hinrik Hermannss,. frá Skíða-
ráði Reykjavíkur og einnig fór
fram verðiaunaafhending. —
Hinrik Hermannsson færði
vandaðan fána að gjöf frá
Skíðaráði Reykjavíkur.
Minningarorð
Guðmundur Gissurarson
Guðmundur Gissurarson,
•fyrrverandi , fiskimatsmaður
lézt að Hrafnjstu hinn 1. þ.m.
nærri 96 ára að aldri; fæddur
hér. í Reykjavik 30. ágúst 1867.
Árið 1903 keypti Guðmundur
lítinn. bæ, sem nú er við
Lindargötu 35, en þar skammt
frá var hann fæddur; í Litla-
bæ. Öll árin síðan bjó Gúð-
mundur í bænurn við Lindar-
götu og átti þar einkar ■ snyrti-
legt heimili, enda ' maðurinn
sjálfur mikið • snyrtimenni.
Nokkur síðustu æviárin - dvaldi
hann á Hrafnistu.
Guðmundur fylgdist með
vexti Reykjavíkur í nærri
heila öld og kunni frá mörgu
að segja um það efni. Hann
sagði ágæta vel frá og hélt
óskertum andlegum kröftum
fram til þess síðasta. Guð-
mundur Gissurarson gerðist
snemma fiskimatsmaður °S
vann iengst af við þau störf og
einnig algenga verkamanna-
vinnu. Hann var í hópi þeirra
verkamanna. sem stofnuðu
Verkamannaféiagið Dagsbrún
árið 1906 og var alla tíð fé-
lagsmaður Dagsbrúnar. Hann
tók virkan þátt í störfum fé-
lagsins fyrstu árin, en
fylgdist alla tíð vel með
starfsemi þess og var mikill og
einlægur velunnari verkalýðs-
hreyfingarinnar. Hann var
heiðursfélagi Dagsbrúnar frá
1936 og hafði verið ;~mdur
heiðursmerki félagsins úr gulli.
Guðmundur var glæsimenni
að vallarsýn o,g hið mesta
ljúfmenni í allri viðkynningu.
Við Dagsbrúnarmenn kveðjum
þennan stofnanda félagsins og
góða félaga með þakklæti og
virðingu.
Eðvarð Sigurðsson.
Efnir til samkeppni um
kvikmyndahandrit
Aðalfundur í Edda-Film var
nýlega haldinn. Formaður fé'
lagsins, Guðlaugur Rósinkranz,
gerðj grein fyrir starfi félags-
ins á síðastliðnu ári. En starf
félagsins var aðallega fólgið í
því, að gera kvikmyndina „79
af stöðinni" og sýna hana hér á
landi og koma henni á fram-
færi erlendis. Hefur þetta geng-
ið vel. Myndin hefur fengið
ágæta dóma, þótt listræn og
ÍNORDmENDE) SjÓ ^rpztœki
v----—-----f streyma til landsms
1 Eru fyrir bæði kerfin það AMERÍSKA og EVRÓPSKA
2 Eru fyrir okkar straum 220 volt 50 rið
3 Eru mjög hljómgóð
4 Myndlampinn er með sérstökum lit sem hvílir augun
5 Eru öll í vönduðum trékassa.
MUNIÐ, AÐ NORDMENDE ER FYRIR ÞÁ VANDLÁTU.
KLAPPARSTlG 26
SÍMI: 19800
BUOIN REYK3AVIK
hefur þegar borgað sig. 55
þúsund manns hafa séð hana
hér á landi og hún verið sýnd
á 30 stöðum.
Voru formanni færðar sér-
stakar þakkir fyrir giftusamt
starf um gerð kvikmyndarinn-
ar og í þágu félagsins.
Þá var ákveðið að efna til
samkeppni um kvikmynda-
handrit um íslenzkt efni. Frest-
ur til þess að skila handritinu
er til 1. nóvember 1963. Ein
25 þúsund króna verðlaun verða
veitt og á félagið forgangsrétt
að því handriti, sem verðlaun
hlýtur.
Stjórn félagsins var öll end-
urkjörin en hana skipa: for-
maður Guðlaugur Rósinkranz
Þjóðleikhússtjóri, Ólafur Þor-
grímsson hæstaréttarlögmaður
og Friðfinnur Ólafsson for-
stjóri.
Hæstu vinningar 1
Vöruhappdrætti
1 gær var dregið í 6. flokki
Vöruhappdrættis S.l.B.S. um 1230
vinninga að fjárhæð alls kr.
1 738.00.00. Þessi númer hlutu
hæstu vinningana:
200 þúsund kr. nr. 60677 umb.
Vesturver, 100 þús. kr. nr. 61203,
50 þús. kr. nr. 55301 umb. Vestv.
10 þúsund króna vinning hlutu:
12968 15765 17189 22330 49846
50066 54738 55618 59531.
5 þús. kr. vinning hlutu:
4749 5194 14158 14328 16947
25665 27801 29808 35465 35969
38989 39644 39949 40495 47461
50443 54435 58196 61025 62364.
(Birt án ábyrgðar).
Hæstu vinn'no'sr \
hanndræftí QAS
í gær. var dregið í 2. flokki
Happdrættis D.A.S. um 150
vinninga og féllu hæstu vjnn-
ingarnjr þannig:
3ja herb. íbúð, Ljósheimum
22, 2. hæð C. tilbúin undir tré-
verk. kom á nr. 41511. Aðal-
umboð.
2ja herb íbúð Ljósheimum 22,
3. hæð B, tjlbúin undir tréverk,
kom á nr. 51172. Egilsstaðir.
Renault R-8 fólksbifreið kom
á nr. 39328. Aðalumboð.
Opei Cadett fólksbifreið kom
á nr. 35933 Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali kom á
nr. 60483. Aðalumboð.
Bifreið eftir eigin vali kom
á nr. 25338 Umb. Sigr. Helgad.
Eftirtalin númer hlutu hús-
búnað fyrir kr 10.000,oo hvert:
5231. 11551 11783 12827. 14018
21625. 21849, 27341. 39314. 59273.
Fiskveiðar og...
Framhaldaf 7. síðu.
allt frá stríðslokum. Mikil anu-
sæld á þorskveiðum og síldveið-
um síðustu árin hefur ráðið
miklu um þessa þróun, og þó
sérstaklega þær nýbyggingar
sem nýlokið er við eða eru í
smíðum. Á tíma vinstri stjórn-
arinnar var farið inn á þá braut
að tmíða stóra líeuveiðara,
sem margir voru í byggingu
þegar stjórnin fór frá völdum.
Með tilkomu þessara skipa
sköpuðust betri skilyrði til
þorskveiða en þó sérstaklega
síldveiða, og án þessara skipa
hefði aflinn orðið talsvert
minni á tímum viðreisnarinnar
heldur en raun varð á. Hinn
mikli afli síðustu árin. ásamt
góðri reynslu hinna nýju línu-
veiðara, þetta tvennt hefur svo
ráðið stefnunni í okkar skipa-
smíði fram á þennan dag og
ræður ennþá.
1 togaraútgerðinni er því mið-
ur aðra sögu að segja, því þar
höfum við beinlínis slitnað úr
tengslum við þróun síðustu ára.
1 stríðslokin var byggður stór
floti vel búinna skipa miðað við
þann tíma, í stað okkar gömlu
gufutogara sem lifðu stríðið af.
Þetta var óneitanlega framför,
þó því beri ekki að leyna að
þessar nýbyggingar höfðu sína
galla. Sumir þessir gallar voru
tilkomnir vegna skorts á nægj-
anlegri framsýni, og undir það
má flokka gufuvélarnar sem
settar voru í skipin. En svo
má líka rekja aðra galla á
smíðinni. sérstaklega í fyrri
flokk togaranna, til hroðvirkni
stríðsáranna, og á ég þar við.
að skrokkur sumra skipanna
hefði þurft að vera traustlegar
byggður. En hvað um það. hér
var glæsilega af stað farið, mið-
að við allar aðstæður.
En síðan hefur togaraútgerð
okkar í stórum dráttum staðið
í stað tæknilega séð hvað veið-
amar áhrærir. Nú á síðustu ár-
um hefur orðið mjög róttæk
bylting við togarasmíði. Með
tilkomu skuttogaranna hafa
skapazt ný og betri skilyrði til
tógveiða. bæði tæknilega og
fjárhagslegs eðlis. Við stöndum
algjörlega utan við þessa tækni-
þróun í togaraútgerð, og hljót-
um ef svo stendur lengi að
verða dæmdir úr leik á sviði
þessara veiða.
Þegar síðustu togarar okkar
voru pantaðir og samið um
smíði á þeim 1959, þá er það
okkar sérstaka óheppni að ekki
voru valdir skuttogarar, en um
það þýðir ekki að sakast nú.
Það er ekki nema um tvennt
að velja, annað hvort að hætta
togaraútgerð, þegar ekki er
hægt að gera út gömlu skipin
lengur. Eða að taka upp nýja
stefnu, láta smíða skuttogara
sem að öllu vel athuguðu henta
við okkar aðstæður. Útfrá
hagsmunum fiskiðnaðarins sem
atvinnugreinar þá gæti ég trú-
að að síðari leiðina yrði að
velja til að tryggja stöðugt að-
streymi af nægjanlegu hráefni
til hraðfrystihúsanna.
Það er nauðsynlegt að sjálf
sjómannastéttin láti sig á
hverjum tíma varða hvert þró-
unin stefnir í okkar skipasmíði
heima og erlendis. Engir menn
eiga jafn mikið undir því hvort
rétt eða röng stefna er valin
hverju sinni þegar þróun bess-
ara mála er mörkuð, eins og
sjómennirnir. Hver einstakur
sjómaður ásamt fjölskyldu á
alla sína fjárhagslegu afkomu
bundna þessum málum. Og
sjálft líf sjómannsins veltur oft
á þvf, að vel hafi verið vandað
til allra hluta við byggingu
skips og útgerð. Þegar allt betta
er haft í huga, þá er það sann-
gjöm krafa. að þróun þessara
mála verði nú þegar beint inn
á þá braut. að sjómannastéttin
yfirtaki í mjög náinni framtíð
fiskútgerðina í eigin hendur.
Það er á valdi sjómannanna
sjálfra hvort þessi verður þró-
unin í útgerðarmálum hér. því
slík stefnubreyting skeður ekki
án átaka og mikillar vinnu. En
bessu hvorutveggju eru sjó-
menn vanir, svo það ætti ekki
að vaxa þeim í augum. Sjálfs
er höndin hollust,- jafnt á þessu
sviði sem öðrum.
HAFNARFJÖRÐUR OG NAGRENNI
Bifreiðastjórar athugið:
Smurs'töðin að Lækjargötu 32 í Hafnarfirði
er opin alla virka daga frá kl. 7.30—19.00-
Þar eru fáanlegar smurolíur frá B.P., Shell
og Esso. — Áherzla lögð á fljóta og góða
afgreiðslu.
HAFSTEINN HANSSON.
Konan mín og móðir okkar
VALGERÐUR KRISTJANSDOTTIR
sem andaðist 29. maí, verður jarðsungin frá Fossvogs-
kirkju laugardaginn 8. júní kl. 10.30.
Ágúst Elíasson frá Æðey og börn.
Munið vorsýningu Myn dlistafélagsins í Listamannaskálanum opin kl. 1-10
í
i