Þjóðviljinn - 08.06.1963, Blaðsíða 1
Laugardagur 8. júní 1963 — 28. árgangur — 126. tölublað.
Lanejir samningafundir
í fyrrakvold boðaði sátta- inn alla nóttina og fram á og stóð sá fundur enn seint
semjari ríkisins, Torfi dag í gær en enginn árang- í gserkvöld er blaðið grennsl-
Hjartarson, til samninga- ur náðist. aðist eftir fréttum af hon-
fundar með aðilum í flug- í gærkvöld var gvo aftur um.
mannadeilunni. Stóð fundur- boðað til fundar á nýjan leik
AUDHRINGARNIR BÍDA FÆRIS:
■ Eins og Þjóðviljinn, hefur sannað hefur vestur-þýzki hringurinn Baader tryggt
sér aðstöðu á Seltjarnarnesi, og er áformað að þar rísi fiskiðjuver, þegar ísland
hefur verið innlimað í hina „stóru heild“ sem Gylfi Þ. Gíslason talaði um. Áður
hafði þe’tta sama erlenda fyrirtæki staðið að kaupum á Sandhólaferju við
Þjórsá.
■ En það eru fleiri erlendir auðhringir sem nú eru að tryggja sér aðstöðu á íslandi
í sambandi við innlimunaráformin Þjóðviljinn hefur öruggar heimildir um það
að á bak við hinar alkunnu framkvæmdir Áka Jakobssonar í Ytri-Njarðvík standi
Findus-hringurinn, sem nú er orðinn stærsti fiskmetissali á meginlandi Evrópu
og hefur komið sér fyrir víða um lönd.
Þessi mynd er af húsi fyrirtækis þess sem þeir Áki Jakobsson og Gunnar Ásgcirsson
höfðu komið á fót í Ytri Njarðvík í sam einingu en Áki sölsaði undiir sig með dyggi-
legri aðstoð Emils Jónssonar sjávarútvegs málaráðherra en húsinu fylgir 3400 ferm. lóð.
FINDUS-HRINGURINN BAK VIÐ
FRAMKVÆMDIR ÁKA í NJARÐVÍK
Atríði úr hinni snjöllu kvik mynd Mai Zetterling; Byssulcikur.
FUNDURINN ER I DAG
Það er í dag kl. 2,30
síðdegis sem G-listinn
heldur síðasta kosninga-
fundinn hér í Reykjavík
í Austurbæjarbíói.
Á fundinum leikur
Lúðrasveit verkalýðsins
undir stjórn Ólafs
Kristjánssonar.
Ræður flytja:
Jóhannes úr Kötlum:
Að eignast heiminn
Guðm J. Guðmundsson:
Hún er voldug og
sterk
Bergur Sigurbjörnsson:
Hvem hefur ísland
fóstrað þar sem þú
ert?
Einar Olgeirsson: Fram
til sigurs.
í lok fundarins verður
sýnd hin frábæra kvik-
mynd Mai Zetterling:
Byssuleikur. — Fundar-
stjóri: Kjartan Ólafsson.
Framkvæmdir Áka Jakobs-
sonar í Ytri-Njarðvík hafa vak-
ið athyglj vegna aðferða þeirra
sem hann hefur beitt til að
svíkja fyrirtækið af sameiganda
sínum Gunnari Ásgeirssyni. En
það hefur einnig vakið athygli
hvemig Áki Jakobsson hefur
getað lagt geysilegar fjárfúlg-
ur þetta fyrirtæki á sama
tíma °S hann hefur verið í van-
skilum með smávægilegar skuld-
bindingar. Ástæðan er sú að
bak við Áka Jakobsson stendur
Findus-hringurinn og er hinn
raunverulegi eigandi en Ákl
aðeihs leppur.
Alþjóðlegur
auðhringur
Findus-hringurinn var upp-
haflega norskt fyrirtæki, en
fyrir nokkru tengdist það hin-
um alþjóðlega hring Nestlé, sem
er nú stærsti matvælasöluhring-
ur á meginlandi Evrópu. Hefur
Findus komið sér upp fisk-
vinnslufyrirtækjum víða um
lönd, og um leið og áformin um
innlimun íslands í Efnahags-
bandalag Evrópu komust á dag-
skrá voru umboðsmenn hrings-
ins komnir hingað til lands.
Eitt af fyrirtækjum Findus-
hringsins stendur með Tryggva
Ófeigssyni að niðursuðuverk-
smiðju á Kirkjusandi, eins og
skýrt hefur verið frá í blöðum.
Erlendir
iðnfræðingar
Fyrirtæki það sem Áki Jak-
obsson er að korna á laggimar
Framhald á 2. síðu.
Yantar bíla
á kjördag
® G - listann vantar mik-
inn fjölda af sjálfboSaliS-
um á kjördag. ÞaS er á
morgun. GjöriS svo vel aS
hringja í síma 20160,17511
17512 og 17513.
Sjálfboðaliðar
á kjördag
■ Stuðningsmenn G-
lístans! Látið strax
skrá bíla ykkar til
starfa á kjördag.
Símar kosningaskrif-
stofunnar eru 17511,
20160 og 17512.
Reykvíkingar: Fjölmennið á
lokafund kosningabarátt-
unnar. Fram til sigurs fyr
ALÞÝÐUBANDALAGIÐ.
VerkfalB boðað á Akureyri 16. þm.
Nú dregur óðum til tíðinda
á Norðurlandi og Austur-
landi og hafa þegar þrjú fé-
lög á Akureyri boðað til
vinnustöðvunar frá og með 16.
júní, ef samningar hafa ekki
tekizt við Vinnuveitendasam-
band íslands og Vinnumála-
nefnd samvinnufélaganna. Er
hér um að ræða Verkalýðsfé-
lagið Einingu, stærsta verka-
lýðsfélag utan Reykjavíkur,
Iðju, félag verksmiðjufólks og
Bílstjórafélagið. Félag verzl-
unar- og skrifstofufólks mun
taka lokaákvörðun um eða
eftir helgina og er talið full-
víst, að samstaða náist milli
fjögurra félaga á Akureyri
og reynir nú á vinstra hjal
Framsóknarmanna.
Félögin á Siglufirði, Húsa-
vík, Raufarhöfn og víðar á
Norðurlandi svo og félögin á
Austurlandi munu taka á-
kvarðanir sínar um helgina og
er fullvíst, að þar er um full-
komna samstöðu að ræða með
Akureyringum. Samninga-
fundur atvinnurekenda og
hinna þriggja félaga var hald-
inn í gærkvöld og þóttust
menn skynja þar fæðingu nýs
sprota í samfylkingu íhalds og
Framsóknarmanna eftir kosn-
ingar gegn öllu launafólki og
réttmætum kröfum þeirra um
hækkað kaup.
Skyldi ekki margur vinstri
maður vakna upp við vondan
draum, sem kastar atkvæði
sínu á Framsókn núna í þess-
um kosningum og horfa upp á
það þegar eftir kosningar,
hvemig hún bregzt við kröf-
um verkalýðshreyfingarinnar.