Þjóðviljinn - 09.06.1963, Qupperneq 1
VINSTRIMENN
Þokið ykkur saman xG
KemiB í veg fyrír samvinnu stjórnarfíokk amrn og Framsóknar:
Kjósið snemma—Tryggið G-listanum
sigur mei ötulu, sameiginlegu starfi
Alþingiskosningarnar hefjast kl. 9 í dag og þeim lýkur kl. 11.
I gær var birt skrá yfir körstaðina og hvar menn eiga að kjósa.
Alþýðubandalagið skorar á alla stuðningsmenn sína að kjósa
snemma, og koma til starfa í kosningaskrifstofum G-listans, — en
auglýsing um þær er á öðrum stað í blaðinu. Verkefnin eru mörg,
og úrslitin geta oltið á örfáum atkvæðum — á því starfi sem
stuðningsmenn Alþýðubandalagsins leggja fram í dag.
Kosningabaráttan í Reykjavík og um land allt hefur einkennzt
af vaxandi sókn Alþýðubandalagsins; Alþýðubandalaginu hefur
tekizt bezt af stjórnmálaflokkunum að ná eyrum kjósenda í
Reykjavík með glæsilegum fundum og einörðum og markvissum
málflutningi; bjartsýni Alþýðubandalagsmanna hefur farið sívax-
andi og þarf að birtast í ötulu starfi í dag, sameiginlegu áhlaupi
sem leiðir til sigurs.
Gerum kosningadaginn að
degi SÓKNAR og SIGURS
Frá hiinum glæsilega fundi Alþýðu bandalagsins í Austurbæjarbíói í gær.
Austv.rbæjarbíó var mikið til
fullsetið á lokafundi kosninga-
ALÞÝÐU
BANDAiAGiÐ
baráttunnar, þegar áihugamenn
G-listans komu saman til að búa
sig undir áhlaupið í dag. Hefur
þá hátt á þriðja þúsund manns
sótt kosningafundi Alþýðubanda-
lagsins í Reykjavík, miklu mciri
fjöldi en fundi Sjáifstæðisflokks-
ins og FramsóknarfIokksins — og
Alþýðuflokkurinn hefur ekki einu
sinni treyst sér til að halda einn
einasta fund!
Fundir Alþýðubandalagsins hafa
verið til marks um sóknarþunga
vinstrimanna í kosningaundir-
búningnum, og ræður manna á
fundinum í gær voru heit eggjun
til stuðningsmanna Alþýðubanda-
lagsins um að leggja fram alla
starfsorku sína í lokaáhlaupinu
í dag. Jóhannes úr Kötlum lagði
áherzlu á það að í þessum kosn-
ingum væri greitt atkvæði um
sjálfa framtíð og tilveru íslenzku
þjóðarinnar. Bergur Sigurbjörns-
son benti á að þær staðreyndir
gerðu óhjákvæmilegt að allir
vinstrimenn stæðu saman hvað
sem ágreiningi liði um minni-
háttar mál. Guðmundur J. Guð-
mundsson skoraði á launþega að
beita kjörseðlinum sem vopni í
kjarabaráttunni, og að lokum
flutti Einar Olgeirsson heit
hvatningarorð, minnti á hvemig
alþýða Reykjavíkur hefðj hrund-
ið gerðardómslögunum 1942 með
því að velja á þing þrjá kjör-
dæmakosna fulltrúa sína; á sama
hátt getur alþýðan nú hrundið
árásum afturhaldsflokkanna: —
Skerum upp herör, margföldum
það afl, sem í sjá'.fum okkur
býr, gerum kosningadaginn að
degi sóknar og sigurs.
Fundarstjóri var Sigurður Guð-
geirsson, og í fundarlok var sýnd
hin áhrifamikla mynd „Byssu-
leikur“ eftir Mai Zetterling. Síð-
an streymdu fundarmenn hver í
sína áttina — til starfa fyrir
sigur G-listans í dag.
Verkamenn og opinberir starfsmenn
Standið saman um kröfur ykkar xG
Úrslit Alþingiskosninganna munu hafa áhrif á stjórn-
málaþróunina næsta kjörtímabil. Vinni Alþýðubandalag-
ið sigur, veröur vifcið til vinstri í íslenzkum stjórnmálum,
þeim mun rösklegar sem sigurinn veröur myndarlegri.
Hverskonar samningar sem gerðir kunna að vera að
kosningum loknum um ríkisstjóm mun sigur Alpýðu-
bandalagsins hafa áhrif á stefnu og störf hinna flokk-
anna a.llra: þaö sem þeir áræða að gera og þaö sem
þeir láta ógert. Hvert atkvæði sem Alþýðubandalaginu
er greitt er krafa um siíka stefnubreytingu.
Efnahagsbandalag Evrópu
Alþýðubandalagið og Þjóðvamarflokkurinn vom einu
stjórnmálaflokkarnir á íslandi sem beittu sér frá upp-
hafi gegn aðild íslands að Efnahagsbandalaginu —
Sjálfstæðisflokkurinn, Framsóknarflokkurinn og Alþýðu-
flokkurinn samþykktu allir að send skyldi umsókn í
ágúst 1961. Baráttan gegn aðild íslands hefur nú borið
þann árangur, að enginn flokkur dirfist lengur að mæla
með henni fyrir kosningar. Þetta er mikilsverður sigur,
en hann verður því aðeins varanlegur að kjósendur
tryggi Alþýðubandalaginu aðstöðu til að veita hinum
flokkunum fullkomið aðhald.
Vinnuþrælkunin
Alþýðubandalagið hefur sett vinnuþrælkunina á dag-
skrá í þessum kosningum, þá óhæfu öfugþróun að hér
a landt eru menn neyddir til að vinna lengur og leng-
ur á sama tíma og stytting vinnudagsins er talin sjálf-
sögð þróun í nágrannalöndunum. Þessu ástandi verður
að gerbreyta og tryggja að eðlileg dagvinna nœgi fyrir
sómasamlegum árstekjum. Þetta er sameiginleg krafa
allra launþega, opinberra starfsmanna og verkafólks, en
pólitísk forsenda pess að árangur náist er sigur G-listans.
Hernámið
Þjóðviljinn og Frjáls þjóð hafa að undanförnu fært
þjóðinni vitneskju um afleiðingar hernámsstefnunnar,
samkvæmt niðurstöðum dr. Ágústs Valfells, sérfræðings
ríkisstjórnarinnar. Sú skýrsla ætti að færa hverjum
hugsandi manni heim sanninn um það að barátta gegn
hernámsstefnunni er lífsbarátta íslenzku pjóðarinnar.
Vinstrisigurinn 1956 leiddi til þess að Bandaríkin hættu
þá við fyrirætlanir sínar um stóraukið hernám á fs-
landi; sigur Alpýðubandalagsins nú gceti einnig markað
tímamót í baráttu hernámsandstœðinga.
Víkið til vinstri
Samvinna Alþýðubandalagsmanna og Þjóövarnar-
manna í kosningunum nú er til marks um vaxandi sam-
hug og sóknarhug vinstrimanna. En pað er á valdi
kjósenda sjálfra að ákveða hversu víðtæk sameiningin
verður. hversu rösklega verð-"-
lenzkum þjóðmélum