Þjóðviljinn - 11.06.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 11.06.1963, Síða 1
Þriðjudagur 11. júní 1963 — 28. árgangur — 128. tölublað. Hannibal Valdimarsson vann þingsæti á Vestfjörðum — Sjá 2. síðu VIDREISNARSTJORNIN SKRIMTIR Á 2ja ÞINGSÆTA MEIRIHLUTA Framsóknarflokkurinn vann 2 þingsœti, Alþýðuflokkur og Alþýðubandal. töpuðu 1 Hlutfallstölur flokkanna svip- aðar og í síðustu kosningum Samkvæmt þeim bráðabirgðatölum, sem birtar voru seint í nótt um úrslit alþingiskosninganna, hafa stjórnarflokkarnir tapað einu þingsæti í kosn- ingunum. Framsóknarflokkurinn hefur unnið tvo þingmenn kjördæmakjörna, annan í Reykjavík af Sjálfstæðisflokknum og hinn í Suðurlandskjördæmi af Alþýðubandalaginu. Alþýðubandalagið vann hins vegar þingsæti á Vestfjörðum af Alþýðu- flokknum. AJls voru á kjcrskrá 100.573, en atkvæði greiddu 90.945 eða 90,4%.^ Alþýðuflokkurinn fékk 4 þing- menn kjördæmakosna, tapaði 1. Framsóknarflokkurinn fékk 19 þingmenn kjördæmakosna, vann 2. Sjálfstæðisflokkurinn fékk 20 þingmenn kjördæmakosna, tap- aði 1. Alþýðubandaiagið fékk 6 þing- menn kjördæmakosna, eins og í síðustu kosningum. Samkvæmt bráðabirgðatölum um kosningaúrslitin eru gild atkvæði 89.347 og skiptast þau þannig milli flokkanna að hundraðshlutum: A-listi, Alþýðuflokkur, hlaut 14,2% (15,2). B-Iisti, Framsóknarflokkur, hlaut 28,2% (25,7). D-Iisti, SjálfstæðisÐokkur, hlaut 41,4% (39,7). G-listi, Alþýðubandalagið, hlaut 16,0% (16,0). Uppbótarsæti munu skiptast milli flokkanna sem hér segir samkvæmt þessu: Alþýðuflokkur fær fjóra uppbótarmenn, Sjálf- stæðisflokkur fjóra og Alþýðu- bandalag þrjá. — Eftirtaldir menn verða því landskjömir samkvæmt þessum bráðabirgða- tölum: Af A-lista: Sigurður Ingimund- arson, Birgir Finnsson, Guð- mundur I. Guðmundsson og Jón Þorsteinsson. Af D-lista: Davíð Ólafsson, Sverrir Júlíusson, Bjartmar Guð- I Ragnar Arnalds og Geir Gunn- I Alþýðuflokkur 8 (9). Framsókn- mundsson og Hermann Þórarins- arsson. arflokkur 19 (17), Sjálfstæðis- son (eða Matthías Bjarnason). Þingmannatala flokkanna í flokkur 24 (24) og Alþýðubanda- Af G-Msta: Eðvarð Sigurðsson, I heild verður því sem hér segir: I lag 9 (10). Þingmenn Alþýðubandalagsins Alþýðubandalagið fékk kjörna tvo þingmenn í Reykjavík Framsókn vann þingsœti af Sjólfstœðisflokknum - Litlar breytingar frá því í bœjarstj órnarkosningunum s.l. ár Talningu atkvæða í Reykjavík iauk um kl. 4 í fyrrinótt, og urðu úrslit þau að Alþýðubandalag- ið og Alþýðuflokkurinn fengu tvo menn kjörna eins og í síðustu kosningum, en Framsóknarflokk- urinn vann eitt þingsæti af Sjálfstæðisflokknum, sem nú fékk 6 menn kjörna. f Reykjavík voru á kjörskrá 42.300 (40.028), og greiddu 38.340 atkvæði, eða 90,6%. — tJrslit urðu sem hér segir: A-listi, Alþýðuflokkur hlaut 5730 atkv. (5946) og 2 menn kjörna (2). B-listi, Framsóknarflokkur hlaut 6178 atkvæði (4100) og 2 menn kjörna (1). D-listi Sjálfstæðisflokkur hlaut 19122 atíkvæði (16474) og 6 menn kjörna (7). G-listi, Alþýðubandalag hlaut 6678 atkvæði (6543) og 2 menn kjörna (2). Auðir seðlar voru 530, ógildir 102. Kjömir þingmenn Reykjavíkur eru þessir: Af A-lista: Gylfi Þ. Gíslason og Eggert Þorsteinsson. Af B-Iista: Þórarinn Þórarinsson og Einar Ágústsson. Af D-Iista: Bjami Benediktsson, Auður Auðuns, Jóhann Hafstein, Gunnar Thoroddsen, Pétur Sigurðsson og Ölafur Bjömsson. Af G-lista: Einar Olgeirsson og Alfreð Gíslason. Miðað við fylgi flokkanna í síðustu þingkosningum em breyt- ingar á atkvæðamagni þeima þessar: Alþýðuflokkur tapar 216 at'kvæðum, fær 15,2% (16,8). Framsóknarflokkurinn vinnur 2578 atkv. fær 16,4% (11,6). Sjálfstæðisflokkurinn vinnur 2648 atkv. fær 50,7% (46,7). Alþýðubandalag vinruu'r 133 atkv. fær 17,7% (18,5). Við síðustu kosningar bauð Þjóðvamarflokkurinn einnig fram og hlaut hann þá 2247 atkvæði, eða 6,4%, en við þessar kosn- ingar voru sameiginleg framboð Alþýðubandalagsins og Þjóð- vamarflo kksins. Atkvæðatölur flokkanna við bæjarstjómarkosningamar i Reykjavík í fyrra, sem eru síðustu sambærilegar tölur við kosningaúrslitin núna, voru sem hér segir: Alþýðuflokkur hlaut 3961 atkv., eða tæp 11%. Framsóknarflokkur hlaut 4709 atkv., eða um 13% Sjálfstæðisflokkur hlaut 19.220 atkv. eða tæp 53%. Alþýðubandalag hlaut 6114 atkv., eða tæp 17%. Þjóðvarnarfloldiur hlaut 1471 atkv., eða tæp 4%. jL -V'7í j GIIs Guðmundsson Ilannibal Valdimarsson mmmr . Lúövík Jóscfsson, li yg • Itagnar Arnalds.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.