Þjóðviljinn - 14.06.1963, Side 1

Þjóðviljinn - 14.06.1963, Side 1
■ wM £mv : 'HyÝÝH A Gullfoss var nýlagstur að bryggju í Reykjavík í gærmorgun og uppskipun er tekin Ágœf veiði í fyrrinótf úf af Langanesi Géðar síldveiðihorfur—en évíst um móttöku / lundi Síðustu daga hefur verið ágæt síldveiði við Langanes og stækkar síldveiðiflotinn óðfluga dag frá degi á þessum slóðum. Síldarskip hvaðanæva af landinu taka stefnuna norður að Langanesi, en Austfjarðaskipin hafa oröið fyrst á vettvang enda næst veiöisvæöinu. Sérstaka athygli hefur vakið, hvaö síldin er stór og falleg og virðist þegar hæf til söltunar. Hinsvegar er undirbúningur til móttöku víðast í óiestri og hafa menn heyrt á bátabylgjunum megna óánægju sjómanna yfir þessu á- standi. Þjóðviljinn hefur haft sam- band við fréttaritara sína á síldar- stöövunum á Norðausturlandi og Austfjörðum og eru frásagnir peirra birtar á 2. síðu. í FXRRINÓTT var ágæt sild- veiði 50—60 sjómílur norð- austur af Langanesi og fengu allmörg skip ágætan afla. og sum fengu fullfermi. Veður var ágætt og streymdu skip- in á miðin. hafin. (Ljósm. Þjóðv. A. K.). GULLFOSS KOMINN HEIM EFTIR BRUNANN MIKLA I gærmorgun sigldi GuIIfoss inn í Reykjavíkurhöfn í fyrsta sinn eftir brunann mikla í Kaup- mannahöfn í vetur. Skipið er allt nýmálað og ekki ósvipaö gömlum herramanni í nýjum kjólfötum. Skipstjórinn, Kristján Aðalsteins- son, Sigurlaugur Þorkelsson, blaðafulltrúi Eimskips og Viggó Maack verkfræðingur sýndu fréttamönnum skipið síðdegis í gær og skýrðu fyrir þeim þær breytingar sem gerðar voru á skipinu — sumar vegna brunans og aðrar sem höfðu verið á- kveðnar fyrirfram. Afturskipið allt var að mestu ónýtt eftir brunann og þar var allt endumýjað, reyksalur og borðsalur 2. farrýmis, farþega- kjefar og vistarverur skipverja. Eldurinn náði alla leið fram að svokölluðum B-þiljum, en þar á mjlli er stálplata sem var tfl vamar. Emnlg tókst að ver'ja eld- inum ledð að vélarrúmli því mflli þess og öxulgangsins er stálþil sem hægt er að hleypa niður. Hefði eldurinn hinsvegar komizt í vélina hefði tjónið orðið mikl- um mun meira en þó varð. Allt það sem endumýjað var er nú með miklu léttari svip en aður, Ijóslitar þiljur og létt nýtízkuleg húsgögn. Einnig þurfti að endumýja skipsskrokkinn að aftan að mestu leyti og hefur að sögn forráðamanna Eimskips tekizt svo vel til um þá aðgerð, að allur titringur er nú horfinn úr skipinu, en áður hafði hann verið farþegum á 2. farrými til nokkurra óþæginda. Segja þeir að skipið sé nú traustara en nokkru sinni fyrr. Reyksalur og borðsalur 1. far- rýmis voru endumýjaðir sam- kvæmt áætlun og er óhætt að segja að þar hafi mjög vel tek- izt til. Fullbókað fram á vetur. Upphafleg áætlun var sú að Fells/r Bretastjárn á Profumomálinu? — Sjá 3. síðu skipið færi úr klössuninni 23. apríl í vor, en því seinkaði um sjö vikur vegna brunans. Það er vissulega mikið tjón, þrjár ferð- ir féllu niður, aflar fuflbókaðar og skipið varð af miklum flutn- ingi. Fullbókað er nú í allar sumar- ferðimar og fyrstu vetrarferðina. sem áætluð er 1. nóvember. Sigurlaugur Þorkelsson og Kristján skipstjóri voru sam- dóma um að fólk léti mjög vel af hinum ódýru vetrarferðum, sem hafnar voru í vetur leið. Kváðu þeir margt fólk hafa haft orð á því að slíka ferð vildi það fara aftur við fyrsta tækifæri, f GÆRMORGUN voru þessl skip á leijj til hafnar, ýmist við Eyjafjörð eða á Austurlandi: Náttfari 1550 mál, Dalaröst 650. Bára 600, Grótta 1700, Eldborg 1250. Stefán Árnason 1300, Árnj Geir 700, Héðinn 1150, Oddgeir 1600, Sigur- björg 600, Þorleifur Rögn- valdsson 650, Margrét 1400 og Steingrímur trölli með 1500 mál. FRÉTTARITARI Þjóðviljans á Seyðisfirði símaði í gærkvöld, að fyrsta sí'-d sumarsins hefði boiizt þangað í gær. Skipin sem þangað komu voru Dala- röst NA með 650 mál en af því fór eitthvað í frystingu hjá Fiskiðjuverinu, Stefán Árnason SF me3 fullfermi og Þráinn NK með fullfermi. SÍLDARLEITARSKIPn) Pétur Thorsteinsson var statt á veiðisvæðinu í gærmorgun. Veiðihorfur eru taldar góð- ar á þessum slóðum. Lenti meðhöndina í vél og meiddist I gær varð það slys í prent- smiðjunni Gutenberg að stúlka að nafni Helga Ingvarsdóttir lenti með vinstri höndina í vél sem hún var að vinna við og slasaðist talsvert. Var hún flutt í slysavarðstofuna og síðan 1 Xjandakotsspítala. Tekur trollið inn að aftan Fyrir nokkru var sagt frá nýj- um báti hér í blaðinu. Báturinn er nýkominn hingað frá Noregi og heitir Mjöll RE 10. Hann er smíðaður úr tré og 40 tonn að stærð. Undanfarna daga hefur vcrið unnið að því að búa hann út á humarveiðar og þegar ljós- myndarinn átti leið framhjá á dögunum var verið að koma fyr- ir skutgálga, þannig að báturinn mun „taka trollið inn að aftan“, A myndínni sést að gálgarnir eru í rauninni tveir, sitt hvoru megin við skutinn, cn stífa á milli. Hlerarnir koma svo upp í rúll- urnar, sem hanga niður úr gálg- anum. (Ljósm. Þjóðv. A. K.). Dagsbrún hóf við- ræður í gær við vinnuveitendur & Öðrum sáttafundi í norðlenzku kaupdeilunni lau kl. 1 í fyrrinótt. Fundur hófst svo að nýju kl. 4 síðdeg: í gær og var honum haldið áfram í gærkvöld og stó hann enn er blaðið fór í prentun í nótt. Stjórn Síldai verksmiðja ríkisins hefur -nú hafið þátttöku í viðræðui um undir forystu Sveins Benediktssonar. ☆ Þá gerðist það nýtt í samningamálum verklýðsfélaj anna í gær, að samningaviðræður hófust á milli Verk; mannafélagsins Dagsbrúnar annars vegar og Vinnuvei endasambands íslands hins vegar, eru samninganefndiri ar skipaðar fjórum mönnum frá hvorum aðila. Benedikt Gröndul utunríkisráiherru?! Innan Alþýðuflokksins mun nú vera rætt um breytingar á ríkisstjórninni. Eins og Þjóðviljinn hefur áður skýrt frá hefur Guðmundur í. Guð- mundsson utanríkisráðherra um skeið haft hug á því að hætta stjórnmálaafskiptum og gerast sendiherra. Féllst hann þó á að fresta ákvörðun um það efni þar tfl eftir kosning- ar, en það vakti athyglj að þegar Haraldur Guðmundsson hætti sendiherrastörfum í Noregi fyrir skömmu, var sendiherra íslands í Sviþjóð fluttur þangað, en sendi- herraembættið í Stokkhólmi látið standa autt. Getur Guð- mundur þannig sezt í sendi- herraembætti fyrirvaralaust, hvort sem hann velur sér Stokkhólm eða færir sendi- herra til og kýs annan stað. Þessi áform munu hafa komizt á dagskrá á nýjan leik þegar eftir kosningamar, er í ljós kom að Friðjón Skarphéðinsson, forseti Sam- einaðs þings, hafði fallið. Mun Guðmundur nú leggja til að hann fari tafarlaust í sendiherraembættið, en Frið- jón taki sæti á þingi. í þessum bollaleggingum munu ýmsir mæna á embætti utanrikisráðherra en enginn þó jafn löngunarfullum aug- um og Benedikt Gröndal, Eins og kunnugt er gaf hann út bók um stefnu íslands í utanríkismálum skömmu fyr- ir kosningar^ til að sanna hæfnj sína á þeim sviðum, en sönnunin þótti að vísu næsta bágborin. Munu ýmsir ráðamenn í Sjálfstæðis- flokknum þvertaka fyrir það að Benedikf verði utanríkis- ráðherra, en krefjast þess að • Sjálfstæðisflokkurimn taki við þvi ráðuneyti, ef Guð- mundur hættir, en Alþýðu- flokkurinn fái eitthvað ann- að i staðinn. Föstudagur 14. ’júní 1963 — 28- árgangur ■—■ 131. 'tölublað. Einar Olgeirsson ritar grein í Þjóðviljann í dag og er IMn birt á 4. síðu, — Greinina nefnir Einar EFTIR K0SNINGAR

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.