Þjóðviljinn - 15.06.1963, Blaðsíða 1
DMMMI
Laugardagur 15. júní 1963 — 28. árgangur — 132. tölublað.
Fimmti sovézki geimfarinn
á braut umhverfis jörðu
Sjá 3. síðu
Þeir héldu norSur í fyrrinótt
Ekkert miðaði í
samkomulagsátt á
fundinum í gær
Samninganefndir Dagsbrúmr og Vinnuveitendasam-
bandsins sátu á fundi í gær frsá kl. 2 til 4.30 en ekkert
þokaðist í samkomulagsátt. HEafa atvinnurekendur ekki
enn komið með neitt gagntalboð við þeim kröfum, sem
Dagsbrún íagði fram sem samningsgrundvöU. Ekki hefur
verið boðað til næsta fundar enn þá. <
I blaðinu í gær varð mein- ^
leg villa í fyriirsögn og frásögn
af samningaviðræðum Dagsbrún-
ar við atvinnurekendur. Stendur
þar, að „Dagsbrún hafi hafið við-
ræður í gær víð atvinnurekend-
ur“. Þetta er rangt. Samninga-
viðræður Dagsbrúnar við at-
vinnurckendur hófust um miðj-
an maí og hafa nú verið haldn-
ir 4 fundir með samnings.
aðilum, þótt ekkert hafi enn
miðað í samkomulagsátt, eins
og fyrr segir. Leiðréttist þetta
hér með.
Skemmtiferð
/ G-listans
um Suðurnes
$S^jKT' ■ 'S ' ' . • • £ ' .
um milljónatugi?
Þjóðviljinn hefur fregnað
að störfum niðurjöfnunar-
nefndar Reykjavíkur sé það
langt komið, að unnt hefði
verið að leggja útsvarsskrána
fram almenningi til sýnis.
Hins vegar hefur orðið á
því margra daga dráttur að
nefndin gengi endanlega frá
niðurjöfnuninni og útsvars-
skránni og enginn fundur
hefur verið haldinn í nefnd-
inni í marga daga. Þá telur
blaðið sig einnig hafa góðar
heimildir fyrir því, að út-
svarsstiginn hafi gefið um
100 milljónir króna fram yf-
ir áætlaða útsvarsupphæð á
fjárhagsáætlun. Samkvæmt
því væri unnt að gefa 25—
26% afslátt af hverju út-
svari samkvæmt útsvars-
stiganum.
Þessi dráttur á því að
ganga frá niðurjöfnuninni
og leggja fram útsvarsskrá
gæti bent til þess að íhaldið
hafi nú alvarlega í huga að
ræna almenning mögulegum
frádrætti með því að hækka
útsvarsupphæðina um nokkra
milljónatugi. Yrði það fyrsta
kveðja íhaldsins til almenn-
ings að afloknum kosning-
um.
^REYKVÍSKIR síldarbátar eru nú
óðum að halda norður á síld
og týna óðum tölunni hér í
höfninni. Þannig héldu marg-
ir bátar norður í fyrrinótt og
aðrir bátar í nótt.
ÞAÐ ER YS OG ÞYS á bryggj-
unum og vonarhýr brá á
hverju andliti, þegar skipin
Ieysa landfestar og sumar
hýran höfð í huga.
HÉR A MYNDINNI er Guð-
mundur Ibsen skipstjóri á
m.s. Pétri Sigurðssyni að stíga
um borð og tvær Iitlar dætur
kveðja pabba sinn við borð-
stokkinn. Þær sjá hann ekki
fyrr en í haust.
-k Fram og Valur kepptu í gær-
kvöld í 1. deild og lauk leikn-
um 1:0 fyrir Fram.
G-USTA-
skemmtun
REIN
G-listinn í Vesturlandskjör-
dæmi heldur skemmtun fyrir
starfsfólk sitt og stuðningsmenn
á Akranesi í kvöld. Skemmtunin
verður í félagsheimilinu, REIN
og hefst klukkan 9. Sitthvað
verður til skemmtunar og stiginn
verður dans.
Stuðningsfólk listans er vel-
komið og hvatt tíl að taka með
sér gestj.
KR — ÍBA frestaö
í kvöld átti að fara fram
knattspyrnukappleikur í 1.
deild milli KR og ÍBA hér í
Reykjavík. Leftnum verður
frestað þar til 55studaginn 28.
júní.
Síldin við Langanes þok-
ast hægt noriar og vestar
Seyðisfirði í gær. — Síldarleit- I innti hann eftir veiðihorfum.
arskipið Pétur Thorsteinsson Sagði hann, að skipið hefði
kom hingað til Seyðisfjarðar í haldið sig síðustu þrjá sólar-
dag og náði ég tali af skipstjór- hringa á svæðinu norðaustur af
anum, Axel Guðmundssyni og I Langanesi, mest 60 og minnst
FormaBur VI undirbýr persónulegan
hagnað af stöðvun nyrðrá
Formaður Vinnuveitenda.
sambands íslands, Iíjartan
Thors, sem nú kemur í veg
fyrir samninga í kjaradeilu
verkalýðsfélaganna á Akur-
eyri, Siglufirði og víðar á
Norðurlandi, hefur sjálfur
gert samning við Verkalýðs-
félagið á Hjalteyri. Samning-
urinn hljóðar upp á sömu
kjör og fé'ögin fyrir norðan
fá í væntanlegum samning-
um, en samningar standa nú
yfir hér syðra milli deiluað-
ila sem kunnugt er.
Á Hjalteyri er sildar-
bræðsla, og aðaleigendur
hennar eru Kjartan Thors,
formaður Vinnuveitendasam-
bandsins, og Ólafur Thors,
forsætisráðherra. Þessir eig-
endur verksmiðjunnar á
Hjalteyri hafa sýnilega ekk-
ert á móti því, þótt til stöðv-
unar komi annars staðar á
Norðurlandi; Verksmiðja
þeirra fær því meiri síld til
vinnslu, og stöðvanir annars
staðar eru því aðeins pers-
ónulegur hagnaður þeirra.
30 sjómílur út.
Skipstjórinn sagði, að þeir
hefðu fundið allmargar góðar
síldartorfur en mismunandi stór-
ar og þykkar og teldi hann
veiðiútlitið gott. Hann tók þó
fram að enginn fiskifræðingur
hefði verið um borð og væri
þetta aðeins sitt persónulega á-
lit.
Pétur Thorsteinsson hefur að-
stoðað bátana við veiðamar með
því að vísa þeim á torfurnar og
öfluðust um 22 þúsund mál sam-
tals á þessum slóðum í gær.
Þá sagði skipstjórinn að lok-
um að sér virtist síldin vera að
þokast norður og vestar.
Fimm bátar komu hingað inn
til Seyðisfjarðar í dag með síld,
Halkion VE, Einir SU, Vattar-
nes SU, Jón Finnsson GK og
Hoffell og voru þeir allir með
ágæta síld. Reyndist hún 20%
meðalfeit við fitumælingu.
G-listinn í Reykjaneskjördæmi
býður starfsfólki sínu á kjördag
í skemmtiferðalag um Suðumes
á morgun, sunnudag. Viðkomu-
staðir verða m.a. Básendar, Hafn-
arberg og Reykjanesviti og geng-
ið verður á Þorbjöm.
Lagt verður af stað frá Þing-
hóli í Kópavogi klukkan níu á
sunnudagsmorgun. Fararstjóri
verður Björn Þorsteinsson sagn-
fræðingur. Þátttakendur eru
beðnir að hafa með sér nesti
í dagsferðalag. Hafnfirðingar til-
kynni þátttöku sína í síma 50004
og Kópavogsbúar í síma 36746
klukkan 8-10 síðdegis. —
Myndin er tekin uppi á Þop-
bimi.
i
*
1