Þjóðviljinn - 16.06.1963, Blaðsíða 1
Sunnudagur 16. júní 1963 — 28.. árgangur — 133 Jölublað.
Þjóð viljinn er 18 síðurí dag
tvö blöð: 8 og 10 síður
Mjólk
■
■
hækkar
■
r
i verði
í gær kom til fram-
kvæmda hækkun á mjólk-
urvörum og sagði fram-
kvæmdastjóri Framleiðslu-
ráðs landbúnaðarins,
Sveinn Tryggvason, í við-
tali við Þjóðviljann í gær,
að ástæðan fyrir hækkun-
inni væri 5% hækkun á
kaupi starfsmanna i
mjólkurbúðunum, er varð
í vetur, svo og kauphækk-
anir sem urðu hjá þeim í
maí s.l. Sagði framkvæmda-
stjórinn að bændur fengju
ekkert af verðhækkun-
inni.
Hækkanirnar eru sem
hér segir:
Mjólk hækkar um 10
aura lítrinn í öllum um-
búðum.
Smjör hækkar um 2,00
kr kg.
Ostur hækkar um kr.
1.15 kg.
Rjómi hækkar um 65
aura lítrinn.
Skyr hækkar um 20
aura kílóið.
"■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■•■■■■■■■■■■■■■■I
Ríkisstjórnin hleypur undir
bagga með vinnuveitendum
1 gær sendi ríkisstjórnin frá sér eftirfarandi:
„Ríkisstjómin telur að vaxandi þjóðartekjur beri að nota til
að tryggja launþegum sem mestar kjarabætur, jafnframt þvi sem
gildi krónunnar sé varðveitt og vöxtur þjóðarframleiðslu örvaður
Ríkisstjórnin beinir því þeim eindregnu tilmælum til samtaka
launþega og vinnuveitenda, að þau láti í sameiningu fara fram
athugun á því, hversu mikil kauphækkun megi nú verða til að
hún kom> að gagni fyrir launþega. Ríkisstjómin er fyrir sitt leyti
reiðubúin ril að styðja þessa athugun á hvem þann hátt, er sam-
tökin óska, þar á meðal með því að greiða kostnað hennar. Ríkis-
stjómin fer þess á leit við samtökin, að meðan athugunin stendur
yfir, sé vinnustöðvunum og öðrum aðgerðum af þeirra hálfu skot-
ið á frest í nokkrar vikur.
Jafnframt vill ríkisstjómin benda á mikilvægi þess, að gerðir
séu heildarsamningar um það, hvemig skipta beri í aðalatriðum
á milli einstakra hópa launþega þeirri kauphækkun, er grundvöllur
reynist fyrir. Of oft hefur að borið, að þeir aðilar, sem mesta
þörf voru taldir hafa fyrir kauphækkun og mestu höfðu fórnað
til þess að öðlast hana, hafi, þegar allt kom til alls, borið skarðan
hlut frá borði, vegna þess að launasamningar voru ekki samræmdir
eins og þörf var á .”
A tvinnurekendurnir
þráust við að semja
Á miðnætti sl. nótt kom til
framkvæmda vinnustöðvun
þriggja félaga á Akureyri, en
það eru Verkalýðsfélagið Eining,
Iðja, féíag verksmiðjufólks og
Bílstjórafélagið. Félag verzlun-
ar- og skrifstofufólks kemur
síðar.
Á miðnætti kemur til fram-
kvæmda vinnustöðvun tveggja
félaga á Siglufirði og eru það
Verkamannafé'agið Þróttur og
Verkakvennafélagið Brynja.
Þá kemur til framkvæmda
vinnustöðvun á Húsavík næsta
miðvikudag hjá verkamannafé-
laginu á staðnum og daginn eft-
ir vinnustöðvun á Raufarhöfn
hji verkamannafélagi Raufar-
hafnar.
Sveinafélag skipasmiða hefur
staðið í verkfalli hér í bæn-
um í fjórar vikur og hefur eng-
inn sáttafundur verið boðaður
síðan verkfallið hófst hjá skipa-
smiðum.
Verkamannafélagið Dagsbrún
hefur staðið í samningaviðræð-
um á annan mánuð við atvinnu-
rekendur og engin niðurstaða
fengizt ennþá.
Við áttum' í gær tal við Sig-
finn Karlsson formann Verka-
lýðsfélags Norðfjarðar og sagði
hann að samninganefnd félags-
ins hafi átt tvo fundi við at-
vinnurekendur í Neskaupstað.
Fyrri fundurinn var á fimmtu-
dagskvöld og seinni fundurinn
á föstudagskvöld. Engin niður-
staða fékkst af þessum fundum.
Á föstudagsfundinum var at-
vinnurekendum tilkynnt óform-
2 piltar drukna
í Súgandafirði
SÚGANDAFIRÐI í gær — í
nótt drukknuðu tveir piltar við
Brjótinn skammt frá þorpinu,
þar sem stærri skip leggjast að.
Annar piltanna hét Sigurður
Guðmundsson frá Flateyri, en
hann hafðl unnið um nokkurra
vikna skelð í fiskiðjuveri hér og
var háskólastúdent um tvítugs-
aldur. Ekki er vitað um nafn
hins piltsins.
Sjónarvottar sáu Sigurð heit-
inn stinga sér til sunds eftir
pilti, sem talið er að hafi fall-
ið út af fleka við Brjótinn og
hefur lík piltsins ekki fundizt
ennþá.
Menn brugðu þegar við og
náðu í bát og varð komizt út
til Sigurðar, sem var nær með-
vitundarlaus og rænulaus, þeg-
ar að var komið. Lifgunartil-
raunir hófust þegar, en báru
ekki árangur. I-Iafði Sigurður
lítilsháttar áverka á höfði. Mál-
ið er í rannsókn. — G.Þ.
lega vinnustöðvun 27. júní og
verður gengið formlega frá
þeirri tilkynningu fyrir næsta
þriðjudag. Ætlunin er þó að
halda fund með atvinnurekend-
um í dag til frekari viðræðna.
Meginkröfur Verkalýðsfélags
Norðfjarðar eru þær jömu og
norðlenzku félaganna eða 20%
kauphækkun á almenna vinnu
og 44 stunda vinnuvika. Þá er
krafizt 30% ofan á almenna
vinnu á síldarplönum yfir sölt-
unartímann og kr. 45,00 með
orlofi fyrir að salta tunnu í á-
kvæðisvinnu. í fyrrasumar
fengu síldarstútkur kr. 37,00
fyrir hverja saltaða tunnu. Við
fiskverkun í frystihúsum er
krafizt 10% ofan á almenna
vinnu. Þá spurðum við Sigfinn
frétta víðar af Austfjörðum.
Á Vopnafirði hefur Verka-
mannafélagið lausa samninga og
átti að vera samningafundur í
fyrrakvöld og boðar félagið þar
vinnustöðvun næstu da.ga.
Á Seyðisfirði og Eskifirði
hafa verkamannafélögin lausa
samninga, en þar hefur ekki
verið ákveðið ennþá um vinnu-
stöðvun.
Á Fáskrúðsfirði hefjast samn-
ingar 1. júlí og hefur verka-
mannafélagið lausa samninga
þar.
Á Stöðvarfirði og Djúpavogi
hugsa félögin sér til hreyfings á
næstunni og svo mun almennt
vera um aðra staði á Austfjörð-
um.
Sáttasemjari fyrir Austfirði
er Kristinn Júlíusson, banka-
stjóri á Eskifirði. Verður hann
sennilega kvaddur á vettvang og
hyggjast félögin á Austfjörðum
stefna að því að semja í einu
lagi við atvinnurekendur.
Norður til síidveiða
Hver skrambiiin. Ein kaðalhönk eftir og útgerðarmaðurinn hleypur
með hana á síðustu stundu og skipiið er tilbúið til brottfarar. Þetta
er Sigurður Pétursson, útgerðarmaður að kveðja skip sitt m.s. Pétur
Sigurðsson RE. Þetta er nýtt skip, smíðað í Noregi árið 1960 og
hefur rcynzt vel fram að þessu. Skipið var á síld í fyrrasumar og
veiddi þá 23 þúsund mál. — Sjá 10. síðu, en þar eru fleiri myndir.
Með orðsendingunni
er ríkisstjórnin sýnilega
að reyna að hlaupa und-
ir bagga með atvinnu-
rekendum til þess að
draga samninga við
verkalýðsfélögin sem
mest á langinn.
B Verkalýðsfélögin h?«fa
margsinnis farið fram á
viðræður við ríkis-
stjórnina um leiðir til
þess að tryggja raun-
hæfar kjarabætur. í
nóvember s.l. áttu t.d.
fulltrúar frá Dagsbrún,
Hlíf og verkalýðsfélög-
unum á Akureyri við-
ræður við ríkisstjórnina
um ráðstafanir til þess
að tryggja kaupmáttinn
með lækkun verðlags,
eða öðrum jafngildum
ráðstöfunum. Ríkis-
stjórnin gaf engin svör
við þessarj málaleitan,
og hafði engar tillögur
fram að færa.
Samningar verkalýðsfélaganna
hafa verið lausir frá því á sl.
hausti og nú er komið hátt á
annan mánuð frá því að verka-
lýðsfélögin lögðu' fram kröfur
sínar. En engar undirtektir hafa
komið frá atvinnurekendum á
þessum tíma. Samninganefndir
félaganna fyrir norðan hafa nú
Framhald á 2. síðu.
Bikovskí
að vera lengi á lofti
MOSKVU 15/6 — Ekki varð úr því sem gizkað hafði ver-
ið á að hinn nýi sovézki geimfari Bikovskí ofursti, myndi
í dag fá samfylgd á leið sinni um geiminn, en í Moskvu
gengur enn um það þrálátur orðrómur að öðrum geim-
fara verði skotið á loft áður en ferð Bikovskís er á enda
og taldar líkur á að kvenmaður verði fyrir valinu. Nú
þýkir líklegast að sá geimfari verði sendur á braut þeg-
ar liðið hefur á ferðalag Bikovskís.
Ekki hefur verið gefið neitt
upp um hve lengi Bikovskí á að
hringsóla um jörðina, en í dag-
skipun frá sovézka landvarna-
ráðheri'anum, Malínovskí mar-
skálki, sem gefin var út í dag
segir að geimferðalag Bikovskís
muni taka langan tíma. Honum
hafi verið falin ýms verkefni að
leysa af höndum meðan hann
er á lofti. Bikovskí var veitt of-
urstatign rétt áður en hann
lagði af stað í geimför sína, en
hann var áður majór.
í meira en viku?
Fréttaritari AFP í Moskvu
telur sig hafa heimildir fyrir
því að ætlunin sé að Bikovskí
verði á lofti í rúma viku eða
tíu daga. Hann myndi þá fara
eitthvað um 160 umferðir um
jörðu og vegalengdin sem hann
legði að baki yrði uppundir 7
milljónir kílómetra. Nikolaéff
sem fram að þessu var lengst
á lofti allra geimfara fór 64 um-
ferðir um jörðu, en lengsta geim-
ferð Bandaríkjamanna sem Gor-
don Cooper fór fyrir skemmstu
var aðsins 22 umferðir.
Geimfar af nýrni gerð.
Vísindamenn í brezku athugun-
arstöðinni í Jodrell Bank segja
að merki þau sem borizt hafa
þangað frá Vostok 5 bendi til
þess að um nýja gerð geimfara
sé að ræða og sé hún mun stærri
en fyrri vostokin. Þetta kemur
ekki á óvart, því að Kosmos-
Framhald á 3. síðu.