Þjóðviljinn - 22.06.1963, Page 1
- Tveir „sfórir" og morgir litlir
Þjóðviljinn spurðist fyrir
um það í gær hjá Jóni Abra-
ham Ólafssyni sakadómara
hvað liði rannsókn kæru-
málsins vegna fölsunar
starfsmanns bæjarfógeta-
embættisins í Hafnarfirði á
skráningarskjali skipverja á
Sigurpáli en Jón er setudóm-
ari í málinu.
Samkvæmt upplýsingum
Jóns er rannsókn málsins nú
að verða lokið og b'jóst hann
við að það yrði sent sak-
sagnar innan skamms. Búið
er að yfirheyra milli 20 og
30 manns í sambandi við
rannsókn málsins, m.a- út-
gerðarmanninn, útgerðar-
stjórann og tvo menn hjá
Landssambandi íslenzkra út-
vegsmanna, en ekkert nýtt
hefur komið fram í málinu,
sagði setudómarinn en eins
og áður hefur verið skýrt frá
játaði Einar Árnason starfs-
maður bæjarfógetaembættis-
ins í Hafnarfirði er skráði
skipshöfnina á skipið að
eftir að skipverjar höfðu
gengið frá henni af sinni
hálfu.
Þessa sfeemmtilegu mynd tók Ijósmyndarl Þjóðviljans fyrir skömmu á Frakkastígnum. Stðru strák-
arniir tveir spranga um hinir vígalegustu á stultum og aðdáunin í svip hinna yngri leynir sér ekki og
undir niðri öfunda þeir þá eflaust svolítið af Ieikni þeirra. — (Ljósm. Þjóðv. A.K.).
Verkfræðingafélagið boðar
algert verkfall 27. ji.m.
Dagsbrúnarfundur um
samninga í Iðnó í dag
I gær náðist samkomulag
milli stjórna Verkamannafé-
lagsins Dagsbrúnar annars
vegar og Vinnuveitendasam-
bands íslands hins vegar um
kaup og kjör, en samninga-
umleitanir hafa staðið yfir
milli þessara aðila að undan-
förnu.
★
Samkomulag þetta verður
Iagt fyrir fund í Dagsbrún
sem haldinn verður í dag kl.
4 síðdegis í Iðnó.
Rannsókn skráningarföls-
unarmálsins er að liúka
sóknara ríkisins til fyrir- hafa breytt skráningunni
Bræisla hófst á
Siglufir&i í gær
Siglufirðj í gær. — Síld-
arflotinn heldur sig mik-
ið á norðaustursvæðinu
og hefur legið í vari fram
að þessu og nokkur skip
í höfn. Þó er batnandi
veður og búizt við, að
skipin verði komin á
miðin í kvöld og nótt.
S.R. ’46 hóf bræðslu kl. 18
í gær og hefur bræðslan geng-
ið stirðlega og eru byrjunarörð-
ugleikar með nýjar slamskjl-
vjndur af Laval gerð og hefur
verksmiðjan ekki brætt nema
brot af venjulegum afköstum.
S.R. verksmiðjurnar eru fjórar
hér á staðnum
★
Um hádegi í dag var búið að
taka á mótj rösklega 9 þús.
málum hjá S.R. Á sama tíma
hefur Rauðka tekið á móti 1500
málum Qg byrjar bræðslu á
næstunni. í gær var mæld hér
22% feit síld og virðist hún
vera þegar hæf til söltunar.
Undirbúningsvinna er þó ennþá
á plönunum. — K.F.
Verkfræðingafélag ís-
lands hefur nú boðað
verkfall frá og með 27.
þ.m. hjá öllum þeim að-
ilum sem verkfallið hef-
ur ekki náð til hingað
til og verður verkfallið
því algert eftir þann
tíma, ef samningar nást
ekki.
Þjóðviljinn átti í gær stutt
tal við Hinrik Guðmundsson
framkvæmdastjóra félagsins og
skýrði hann svo frá að þeir að-
ilar sem verkfall væri boðað
hjá 27. þ.m. væru ríkið, Akur-
eyrarkaupstaður. Ha.fnarfjarð-
arkaupstaður, Kópavogskaup-
staður, Vestmannaeyjakaupstað-
ur og nokkrir aðrir aðilar.
Hinrik sagði jafnframt, að fé-
lagið hefði að undanförnu rætt
við nokkra aðila um kröfur þær
er það setur íram, en án nokk-
urs árangurs. Árið 1961 aug-
lýsti félagið einhliða ráðning-
arskilmála og stendur baráttan
Lækka ber þjónustugjöld og
bæta abstöiu vii höfnina
Þriðja athugasemd Hjalta Kristgeirssonar
hagfræðings við reikninga Reykjavíkurborgar
og fyrjrtækja hennar fyrir árið 1962 Jjallar
um rekstur Reykjavikurhafnar og er hún svo-
hljóðandi:
„Reykjavíkurhöfn skilar miklum
hagnaði eða rúmlega 10 milljónum
króna samkvæmt rekstrarreikningi.
Er það um 30% brúttótekna. Hinn
raunverulegi gróði er þó miklu
meiri, þar eð drjúgur hluti hans er
falinn í afskriftum. Þær eru alls
bókfærðar 8,3 milljónir króna, en
ætla mætti, að 3—4 milljónir væru
hóflegt. Handbært fé var um síðustu
áramót 7,2 milljónir króna, þrátt fyr-
ir 3,2 milljóna skuld borgarsjóðs við
fyrirtækið. Sýnist því rétt að gera
hvort tveggja í senn: — stórlækka
þjónustugjöld hafnarinnar — og
verja fénu þegar í stað til hins brýna
verkefnis að bæta aðstöðu við höfn-
ina. Benda má á, að sl. 8 ár hafa ekki
verið keypt nein áhöld eða tæki til
hafnarinnar".
nú um það að fá þá vjður-
kenrada en auk þess fer félag-
ið fram á að fá samsvarandi upp-
bætur á þá skilmála og aðrar
launastéttir hafa fengið síðan eða
eru nú að semja um.
Sagði Hinrik að iokum, að
þessj síðasta verkfallgboðun fé-
lgsins væri til þess gerð að
knýja atvinnurekendur til samn-
inga.
Sigurður Sigurðs-
son sýslumaðiur
látinn
1 fyrrakvöld andaðist Sígurð-
ur Sigurðsson fyrrverandi sýslu-
niaður á Sauðárkróki að Sól-
vangi í Hafnarfíirði.
Sigurður var á 76. aldursári er
hann lézt en hann fæddist í Vig-
ur í Isafjarðardjúþi 19. septem-
ber 1887 sonur hjónanna séra
Sigurðar Stefánssonar alþingis-
manns og Þórunnar Bjamadótt-
ur.
Að loknu stúdentsprófi hóf
Sigurður háskólanám og lauk
embættisprófi í lögum árið 1914.
Næsta áratug starfaði Sigurður
bæði sem málaflutningsmaður og
gegndi einnig ' ýmsum embættis-
störfum. 1924 var hann skipaður
sýslumaður í Skagafjarðarsýslu
og gegndi því embætti þar til
hann lét af því fyrir aldurs
sakir fyrir fáum árum.
Sigurður var kvæntur Stefaníu
Amórsdóttur frá Hvammi í Lax-
árdal og eignuðust þau 9 böm.
Sigurður naut mikilla vinsælda
og virðingar í starfi sínu og stóð
hann framarlega í félagsmálum
x héraði sínu og gegndi þar ýms-
um trúnaðarstörfum.
! Dómur í Mil-
j woodmálinu
! eftir helgi
■
Þjóðviljinn sneri sér í j
• gær tii Hákonar Guð- j
mundssonar hæstaréttar- ■
j ritara og innti hann eftir i
: því hvenær dóms væri að j
j vænta í MilwooJmálinu. j
■ Svaraði hann því til að :
j dómur yrði ekki felldur j
j fyrir helgi en hans myndi j
að vænta í næstu viku. j
j Réttarfrí hefst í dóminum j
j í næstu viku en áður en j
j það verður mun hann af- j
j greiða nokkur mál sem j
j fyrir honum liggja. þar á j
j meðal Milwoodmálið.
Loftleiðir vilja
laða ferðamenn
hinpðtil lands
A aðalfundir Loftleiða 14. þm.
var samþykkt eftirfarandi tiliaga
varðandi ferðamál:
„Aðalfundur Loftleiða h.f. 14.
júní 1963 ályktar að nauðsynlegt
sé að efla verulega aðstöðu til
að taka á móti ferðamönnum
hér á landi. Vill félagið stefna
að því að greiða fyrir fram-
kvæmdum sem að þvl miða,
jafnframt því sem auglýsinga-
starfsemi til að laða hingað
ferðamenn verði efld verulega."