Þjóðviljinn - 23.06.1963, Blaðsíða 1

Þjóðviljinn - 23.06.1963, Blaðsíða 1
Sunnudagur 23. júní 1963 •— 28. árgangur — 138. tölublað. Framleiðsla SH 62,4 þús. t. Aðalfundi Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna lauk í Reykjavík nýlega. í skýrslu stjórnar Sölumiðstöðvarinn- ar kemur fram að um 60 frystihús eru innan samtak- anna og var heildarframl. sem framleiddi samtais 4.434 þeirra á s.I. ári 62.435 tonn og er það svipað fyrra ári. Framleiðsluhaesta frystihús landsins árið 1962 var fs- bjöminn h.f. j Reykjavík, tonn af sjávarafurðmn. — Nánar verður sagt frá starf- semi SH innan skamms svo og ályktunum sem gerðar voru á aðalfundinnm. Dagsbrúnarsamningarnir: off fiskvinna færast milli taxta ■ Um klukkan sex síðastliðið föstudagskvöld var undirritað samkomulag milli Verkamanna- félagsins Dagsbrúnar og yinnuveitendasambands- ins um nýja samninga milli þessara aðila og gilda þeir frá 23. júní til 15. október, að tilskildu sam- þykki félaganna, en Dagsbrúnarmenn héldu fund um samningana kl. 4 síðdegis í gær. ■ Meginatriði hinna nýju samninga er 7,5% hækkun á öllum kauptöxtum félagsins, en auk þess náðist samkomulag um nokkra tilfærslu milli taxta bæði í hafnarvinnu og fiskvinnu, en Dags- brún hefur sem kunnugt er lag’t mikla áherzlu á þau atriði undanfarið. Þá er það nýmæli í þess- um samningum að ákvæði eru um unglingakaup. ■■■■■■■■■»■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«• ■ B ! S.R. Raufar- ! ■ ■ j höfn byrjar | j bræöslu í kvöld j ■ ■ fi ■ ■ ■ Dauf síldveiði var í fyrri- : nótt og framan af degin- : um í gær og hefur veiði- j gleðin ekki náð aftur j ! stemmningu eftir norðaust- : • an bræluna á dögunum. Súld : ; og þoka er á miðunum j fyrir Norðausturlandi og j j heldur síldarflotinn sig að- : j allega út af Sléttu, nokkur j • skip við Grímsey og önn- ! ur fyrir sunnan Langanes. j í gær komu þrjú skip : ! inn til Raufarhafnar og j j voru það Fiskaskagi með j 300 mál, Oddgeir með 486 j mál og Jón Garðar með 450 j j mál og fór þessi síld í j • bræðslu. Nú eru 27 þúsund mál af ■ : síld i þróm S.R. á Raufar- j I höfn og mun verksmiðjan j j hefja bræðslu kl. 18 í dag. : Síðustu aðkomumennirnir ■ ; komu með bílum í gær- ■ : kvöld. : Sigið eftir eggjum í Drangey Þessa fallegu mynd af Drangey á Skagafiirði tók Hannes Baldvinsson, fréttaritari Þjóðviljans á Siglufirði. Kletturinn, sem við sjáum, mun vera Kerling. Karl hét annar drangur við hlið Kerling- ar, en er nú hruninn. Myndir af eggjatekju í Drangey eru á 12. síðu blaðsins í dag. Fjölmennur fundur Hlífar um samningamálin í gær Eins og kunnugt er hélt sátta- semjari fund með deiluaðilum s.l. miðvikudag, en lítt þokaði í samkomulagsátt á þeim fundi. Á fimmtudag og föstudag voru samninganefndir á fundum hvor um sig, en óformlegar viðræður áttu sér einnig stað og varð árangur þeirra sá að um kl. 6 á föstudagskvöld var undirrit- aður af stjórnum félaganna nýr samningur, með þeim fyrirvara af beggja hálfu, að hann hlyti samþykki félaganna. Samningurinn gildir frá 23. júní (morgundeginum) tii 15. október og rennur þá út án upp- sagnar og eru meginatriði hans þessi: ★ Allir kauptaxtar Dags- brúnar hækka um 7,5% og verður tímakaup i almennri vinnu (I; taxti) kr. 28,00. ★ Ö'I fiskvinna, bæði í frystihúsum og við aðra fisk- verkun, færist úr I. taxta í II. taxta og verður kr. 28,45 á klst. ★ Vinna við höfnina færist í IH. taxta (áður n. taxti) og verður tímakaup kr. 28,80. ★ Vinna í tækjum í frysti- húsum og vinna við afgreiðslu Framhald á 2. síðu. Listasafn Einars iónssonar 40 ára Listasafn Einars Jóns- sonar verður 40 ára á morgun. Myndin hér að of- an heitir „Kona“ og er gerð árið 1925. Eiginkona listamannsins er fyrir- myndin að __ þessari högg- mynd. — Á 6. síðu eru myndir af verkum lista- mannsins og stutt æviá- grip. — Á 7. síðu er við- tal við ekkju listamanns- ins, frú Önnu Jónsson, yf- irsafnvörð. Verkamannafélagið Hlíf í Hafnarfirði hefur samið við Vinnuveitendasambandið um kaup- hækkanir á svipuðum grundvelli og önnur félög hafa gert undanfama daga, þ.e. 7,5% almenna hækkun á öllum töxtum, nokkrar tilfærslur milli taxta og gildir samningurinn til 15. október. Samn- ingarnir voru samþykktir á fjölmennum fundi Hlífar í gærdag. Eftir er að gera sérsamninga við ýmsa aðila og við Hafnarfjarðarbæ. Askenasi heldur hljómleika Reykjavík n.k. fimmtudag — Sjó tólftu síðu Þjóðviljinn náði tali af Her- manni Guðmundssyni, formamni Hlífar, síðdegis í gær og var hann þá nýkominn ,af Hlífar- fundinum, þar sem samning- arnir voru samþykktir einróma. Hermann kvað samkomulagið öllum atriðum eins og samning þann, sem stjórn Dagsbrúnar gerði við atvinnurekendur; 7,5% almenna hækkun og tilfærslur milli taxta í hafnarvinnu, fisk- vinnu og við frystitæki og ís- afgreiðslu. Hlíf samdi einnig um kaup- taxta unglimga frá 13 til 15 ára en félagið hafði áður auglýst taxta einhliða fyrir vinnu ung- linga undir 16 ára aldri. Eftir er að ganga frá ýmsum sérsamningum svo og að semja við Hafnarfjarðarbæ, en allir samningarnir eru til bráða- birgða og renina út 15. Qktóber í haust án, uppsagnar. Flýr frá vestri Nurnberg 22/6 — Herterich sem varð alkunnur fyrir að kæra ýmsa sambQrgara sína fyrir að hafa verið nazistaböðlar, var ofsóttur svo að hann segist nú verða að flýja land, annaðhvort til Stokkhólms eða Þá Oslóar. ■ Lá við slysi Fréttamönnum var sýndur nýr björgunarbátur í Nauhólsvíkinni í fyrradag. Bátnum hvolfdi við sýninguna og hér á myndinni sjást tveir af íbúunum svamla burt eftir óhappið. Tveir frakkaklædd- ir herramenn frá G. Helgason og Melsted blotnuðu dálitið illa við baðið. Nánari frétt er á 2. síðu. — (Ljósm. G. O.).

x

Þjóðviljinn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.