Þjóðviljinn - 23.06.1963, Blaðsíða 3
'unnudagur 23. júní 1963 —
HÖÐVILJINN
SfÐA 3
Ödýrasta fáanlcg vegg- og loftklæðning er
HA RÐ TEX
Kosta® txu cftir nýja verðlækkun aðeins kr. 20,83
peofermetir.
Senðum-gesn pó&tkröfu hvert á land sem er.
Mais Jrading Company h.f.
K&Bparst5^20. •— Sími 17373.
Síldarnótabdlkar
írá stærstu netaframleiðendum Bretlands
BRIDPORT INDUSTRIES Ltd.
fyrirliggjandi hjá umboðinu.
Jónsson & Júlíusson
Tryggvagötu 8. — Síxni 15430.
Blaðað / bókum:
LAGAN MIKLAILONDON
AVorum dögum gellur við
aðvörunaróp, ef tólf eða
þrettán menn sýkjast af tauga-
veiki í Stokkhólmi. En hvað
vissi heimurinn t.d. um plág-
una miklu í Lundúnum árið
1665, árið fyrir brunann mikla,
sem lagði mikinn hluta heims-
borgaiinnar í rústir? Já, hvað
vissu Lundúnabúar sjálfir? Á-
reiðanlega miklu minna en síð-
ari tíma menn. Að vísu var til
heilbrigðismálastjórn, sem hélt
nákvæmt bókhald yfir það, hve
margir dóu á viku hverri.
Sjálft lifði fólkið á orðröminum
einum saman og dó af honum
á stundum, einmitt sökum þess,
að orðrómurinn svipti fólk ráði
og rænu, svo að það tók sig
upp og flutti og smitaðist, eða
smitaði aðra.
Þegar árstíð og tilviljun ræð-
ur bókavali, getur maður
rekizt á bækur eins og A
Journal of the Plague. Höfund-
urinn er hvorki meira né
minna en Daniel Defoe, upp-
hafsmaður Róbinsons Krúsó og
höfundur eins þekktra bóka og
Moll Flanders og Captein
Singleton. Auk þess reit hann
bækur og bæklinga, nokkurs-
konar sambland af skáldskap
'og blaðamennsku, sem fjölluðu
meðal annars um það, hvemig
hindra skuli rán á götum úti
eða ferðast um byggðir lands-
ins. Frásögnin um pláguna
miklu var gefin út 57 árum
éftir að atburðirnir áttu sér
stað. Defoe var aðeins fimm
ára gamall er plágan herjaði.
Þrátt fyrir það „man“ hann
'nákvæmlega einstök atriði (svo
er vandlegri heimildakönnun
fyrir að þakka). Óhugnað við-
burðanna tekst honum að gæða
lífi, hann notar ímyndaðar
sögupersónur svo sem söðla-
smið og kaupmann, sem hann
nefnir Salómon Uglu (Solomon
Eagle). H. M. Leys segir svo
um Defoe, að sem blaðamaður
og skáld hafi hann þá tegund
hugmyndaflugs, sem skapi hina
miklu ævisagnaritara og sagn-
fræðinga, lygara og njósnara.
Westminster-bru i London a 17. old.
Allt þetta kemur vel heim við
hinn fjölhæfa Daniel Defoe,
sem var ágætur lygisagnahöf-
undur á öld lygisagnanna, öld
Múnchausens. Auk þess var
hann kaupmaður, njósnari og
skáld. Hugmyndaflug byggt á
athugun og reynslu er það, sem
einkennir blaðamanninn og
skáldið Defoe. Margflókið líf
hans sem leynilögreglumaður,
njósnari, gagnnjósnari, fangels-
islimur og siðfræðingur krafð-
ist þess, að hann lifði sig ipn.
í hlutverkin. Það er eins og að
lifa þetta hræðilega ár í Lun-
dúnaborg að fylgja hugmynda-
ríkúth or’riákvæmum skýrálúftv'
hans.
Fum hæfir máltækið betur,
að sá sem ljúga vilja verði
sannleikann að þekkja. Af
raunsönnum bókum eins og riti
prestsins Vincents, Gods Terri-
ble Voice in the City skapar
Defoe svo nákvæmar lýsingar, að
Sltiifsfofa skemmtiftiaffa
Péfnx Pétuisson
Vladimir Asjkenazy
Hljómleikar
í ÞjóðleiMiúsinu íimmtudaginn 27. júní kl. 20.30.
Aðgöngumiðasala í Þjóðleikhúsjnu á morgun
1 K* (mánudag) frá kl. 1.15. (Ekk svaraö í síma).
okkur finnst við lifa skelfingar
plágunnar. Við lifum hjátrú
góðborgaranna, heyrum þá
velta fyrir sér sambandinu
milli halastjörnunnar og plág-
unnar, við heyrum spámennina,
vísnasöngvarana, hómópatana
og draumspekingana — alla þá,
sem hjálpuðu til að hræða fólk.
Andar og draugar áttu sína
gullöld.
En við kynnumst einnig því,
hvað yfirvöldin gerðu, og
það var hreint ekki svo lítið.
Nokkurs konar heilbrigðismála-
, Stjóra Vjr„ kproið,á.fót. í hverju
hverfi bæjarins, sjúkdómstil-
felli voru rannsökuð og skýrsl-
ur gefnar ,og læknishjálp veitt,
að svo miklu leyti sem unnt
var. Þegar hitarnir hófust í
júní var aðalatriðið að grafa
hina dauðu eins fljótt og unnt
var. Það var hægara sagt en
gert. Þagað var oft yfir sjúk-
dómstilfellum og hús yfirgefin
án þess að sagt væri frá þeim,
sem dauðir lágu eftir. Nokkrir
kaflar bókarinnar fjalla um
þau hús í London, sem yfir-
völdin lokuðu. Ibúarnir voru
einfaldlega settir í stofufang-
elsi. Glæpafaraldur óx, fangels-
in fylltust, en heimilin urðu
einnig fangelsi. Hinsvegar var
aðeins til eitt einasta pesthús.
Allar aðgerðir yfirvaldanna
stuðluðu í stuttu máli sagt að
því, að halda fólki frá hvort
öðru.
Uti í sveit urðu hinir flýjandi
bæjarbúar æ verr séðir.
Sagnir eru af svöngum og hor-
uðum flóttamönnum, sem neit-
að var um mat Qg húsnæði í
„hreinum" héruðum — rétt
eins og þegar vamir vorra
daga gera ráð fyrir vopnabún-
aði gegn vinum og kunningjum,
sem hugsazt gæti, að reyndu að
troða sér inn í manns eigið,
prívat loftvamabyrgi.
Allan tímann ferðast lesand-
inn um þekktar götur og
torg Lundúnaborgar. Plágan
bamzt út í Drury Lane. Hér er
lýst fjöldagröfum í Aldgate og
aðal söguhetjan býr á næsta
leiti við Whitechapel. Lýsing-
arnar á því, er nöktum lík-
unum var velt ofan í fjölda-
grafir, sem oftast reyndust
of litlar, leiðir hugann að
Auschwitz eða Bergen-
Belsen. Söðlasmiður frásagn-
i i .............
arinnar er svona mátulega
samúöarfullur og mátulega
hræddur, venjulegur meðal-
maður með guðsorð á vörum.
Ætíð talar hann um þá ógæfu,
sem guði þóknist að leggja á
mennina.
Bækur um drepsóttír og aðr-1
ar náttúruhamfarir hafa<
jafnan átt fjölmarga lesenduc,
og frásögn Daniel Defoe hefur
verið endurprentuð hvað eftir
annað. Sá, er söguna segir,
veltir sér ekki í hryllingi frá-
sagnarinnar eins og kvik-
myndahöfundar vorra daga.
hann er eins hlutlaus áhorf-
andi og hver og einn gæti
sjálfur verið — svona mátu-
lega forvitinn, en einkar var-
kár þegar um áhættusama
hjálp er að ræða. Hann er
skynsamur maður, sem helzt
af öllu vill lifa hættuna af, en
sér á hinn bóginn fullkomlega
ljósar þjáningar annarra.
Lundúnabúum hrósar hann í
hástert, engin sérstök skelfing
eftir að fyrsta höggið var rið-
ið! Á sinn hógværa hátt get-
ur þessi frásögn minnt á her-
sögur vorra tíma. Hér er eng-
inn gorgeir, heldur sönn og
rétt lýsing manns, sem sjálfur;
var viðstaddur,
Við vitum ekki, hvað mikið
eða lítið hinn fimm ára
gamli Daniel Defoe sá og lifði
af plágunni miklu. Söðlasmið-
urinn og hermaðurinn Salómon
Ugla rennur í huga lesendans
saman við Daniel Defoe. Um
Defoe var það sagt, að. hann
væri alltaf f góðri trú, og
þessi góða trú hans væri for-
senda þess að lifa af snögg
I. DEILD
íslandsmótið
LAUGARDALSVÖLLUR kl. 16.00.
VALUR — AKUREYRI
Dómari: Hannes Þ. Sigurðsson. Línuverðir:
Björn Karlsson og Þorlákur Þórðarson. /
Á AKRANESI KL. 16.00
AKRANES - FRAM
Dómari: Einar H. Hjartarson. Línuverðir:
Jón Þórarinsson og Skúli Jóhannesson.
MÓTANEFND.
umskiptí viðburðiaríks luEs.
Hann skipti um sannfæringH
og takmark frá einni viku til
armarrar, vinir hans urða ó-
vinir og óvinir hálfir vinir að
minnsta kostí. Meginregkir
virðist hann engar hafa átt,
og takmörkin breyttnst að þvf
er virðist fyrirhafnarlaust
En róleg og raunsöim friffiögn
hans um pláguna mikln í
Lundúnum gefur að mmnsta
kosti geöféHda mjrnd af þesm
sögamanni, er hann þóttíst í
það skiptið vera, SKkir hOf-
undar eignast jafnan sína
Endurreisn. Og hver veit nema
maður setjist niður einn góðan
veðurdag og bjrrji á Róbínson
Krúso . . .
JOHAN BORGEN
CÞýtt úr DaghLadet)
Aðalfundur Fé-
lags búsáhalda-og
járnvörukaup-
manna
Aðalfundur Félags búsá-
haida- og jámvörukaupmanna
var haldjnn í skrifstofu kaup-
mannnasamt. að Klapparstíg
26. 7. maí síðastliðinn.
Formaður félagsins, Björn
Guðmundsson. flutti skýrslu
stjórnarinnar um störf félags-
ins á liðnu starfsárj.
Sigurður Sigurðsson gjald-
kerj félagsins flutti fram end-
urskoðaða reikninga.
Formaður var kjörinn Björn
Guðmundsson, en meðstjóm-
endur Sigurður Sigurðsson og
Páll Jóhnnesson.
f varastjórn voru kjörnir:
Jón Þórðarson og Bjöm Krist-
insson.
Fulltrúi í _ stjóm Kaup-
mannasamt. fslands var kos-
inn Björn Guðmundsson, en
varafulltrúi Guðmundur Jóns-
son.
Endurskoðandi var endur-
- kosinn Kristinn Einarsson.