Þjóðviljinn - 23.06.1963, Page 8

Þjóðviljinn - 23.06.1963, Page 8
8 SÍÐÁ ÞJðÐVILJINN Sunnudagur 23. ’júní 1963 meðgöngu- tímann þurfa konur ekki síður að hugsa um útlitið en ella. Snyrti- legar og vél klæddar konur eru ánægðar og þar af leiðandi fallegar. Þó vaxtarlagið breyt- ist um meðgöngutímann er á- stæðulaust að vera að setja það fyrir sig, tækifæriskjólar geta verið smart ekki síður en hin- ir. ÓDÝRAST AÐ ÞVO OFT „Á morgun", segir sá lati og geymir allt til síðustu stund- ar, og vill svo verða með þvottinn ekki síður en annað. Þvottadögum er þá frestað þangað til allt tauið er orðið óhreint og ekki verður hjá því komizt að taka fram þvottavélina. En sannleikur- inn er sá að það er bæði miklu erfiðara og fer ver með tauið að þvo það sjaldan. ★ Margar flíkur eru nú fram- leiddar úr efnum sem auðvelt er að þvo og þurrka. Og með góðum þvottaefnum er það lít- il fyrirhöfn að skola úr blússu eða skyrtu um leið og farið er úr henni. Þessi efni eru líka flest þannig að ef þau eiga að líta vel út, þarf að þvo fötin strax eftir notkun. Á fleátum heimilum er hægt að nota handlaugina í baðherberginu til að þvo i blússur og annað smávegis. Árið 1834 kom út bækling- ur í Danmörku eftir Christi- ane Rosen, og fjallaði hann um þetta sama vandamál. Ohristiane Rosen ráðiagði hús- mæðrum eindregið að þvo sem oftast og var mjög mót- fallin því að konur ættu mik- ið tau. Þær sem eiga mikið tau þvo sjaldnast nema einu sinni eða tvigvar á ári, segir hún. Fatnaður og þvottaaðferðir hafa breytzt mikið síðan á dögum Christiane Rosen en samt sem áður er mikinn sannleik að finna í orðum hennar. Nýlega heyrði ég konu gefa dóttur sinni þetta ágæta ráð: „Ef þú ert ekki viss um hvort blússan þín er nægilega hrein til að vera í henni einn dag enn. skaltu flýta þér að leggja hana í bleyti“. Ólöglegar fóstureyðingar V-Þýzkalandi I Kjóllinn hér fyrir ofan er hentugur fyrir sumarið og fal- legastur í ljósum litum. Þarna er líka ágætur búningur fyrir þær. sem vjlja vera ,,sportlega“ klæddar. Síðbuxumar eru ein- litar og við þær er víð rós- ótt blússa, sem er hneppt að aftan. Ólöglegar fóstureyðingar eru mjög algengar í Vestur-Þýzkalandi. Áætlað er að um það bil einni milljón fóstra sé eytt þar árlega. Gagn- stætt hverju barni sem fæðist þar eru þannig tvö eða þrjú sem komas’t af stað en líta aldrei dagsins ljós. Á læknaþingi sem nýlega var haldið í Vestur-Berlín var mik- ið rætt um þessi mál. Pi'óféssor Herbert Lax talaði um getnað- arvarnatöflur og var mjög fylgjandi notkun -þeirra. Ungu stúlkurnar Það eru ekki aðeins mæður sem eiga sex eða sjö börn sem eiga að nota þessar töflur. seg- ir prófessorinn, ungar og ógift- ar stúlkur þurfa ekki síður á þeim að halda. Getnaðarvarnar- töflur þessar má i V-Þýzka- landi aðeins selja giftum kon- um og þá gegn lyfseðli. Þetta finnst prófessor Lax algjörlega óviðundandi ástand fyrir ungu stúlkumar og þó hann verði að beygja sig undir þessi lög seg- izt hann ekki láta stúlkumar fara alveg erindisleysu til sín, því hann ráðleggi þeim aðra hluti og auðfengnari sem nota eigi til getnaðarvarnar. Umræðurnar í umræðunum eftir þessa ræðu prófessors Lax hélt einn meðlimur þingsins því fram að með aukinni notkun slíkra tafla muni siðgæði unga fólks- ins fara veg allrar veraldar. Sem svar við því sagði Lax að það væri ranglátt að þvinga stúlkur tjl skírlífis vegna ótta við að verða bamshafandi. Sjúkrasamlögin Formaður heilbrigðismála í V-Berlín, dr. Barbara Renthe- Fink, mæltist eindregið til þess á þinginu að sjúkrasamlögin tækju þátt í kostnaðinum við kaup taflanna. Þær þarf að taka reglulega í tuttugu daga ef þær eiga að koma að gagni. Þetta er dýrt spaug í Þýzka- landi, kostnaður á mánuði er um fimm DM eða rúmlega 50.00 krónur íslenzkar. Einnig hélt dr. Fink þvífram að nauðsynlegt væri að hafa, í öllum stærri borgum, stofnanir sem gætu skipulagt fjölskyld- urnar þ.e. sagt til um hversu stórar þær eigi að vera. Prófessor Georg Hörmann frá Kiel studdi þessar tillögur dyggilega og fullyrti að ekkert gæti líomið í veg fyrir að kon- ur sem bamshafandi væru að óvelkomnu bami létu eyða fóstri á ólöglegan hátt. Töflurnar óskað- legar Að lokum sagði prófessor Lax áð átta ára reynsla sannaði, að töflumar væru óskaðlegar og að þær væru ömggar getnaðar- varnir ef þær væru teknar inn á réttum tímum, Tilraunir hafa verið gerðar með svipaðar töflur fyrir karl- menn og virðast þær vænlegar til árangurs. Skrifstofur vorar og afgreiðsla að Laugavegi 114 verða lokaðar mánudaginn 24. júní vegna skemmtiferðar starfsfólks. TRYGGINGASTOFNUN RlKISINS. Smurstöðin Sætúni 4 Seljum smurolíur frá öllum olíufélögunum. Bíllinn er smurður fljótt og vel. Opið frá kl. 8 til 19. Hringið í síma 16-2-27. Þótt tízkan sé yfirleitt hverful viröast skyrtublússur vera sígildur klæðnaður hjá kvenfólkinu. Blússurnar hér að ofan eru úr lérefti og eins og myndin sýnir, er ekki síður hægt að nota þær við síðbuxur en pils. GAB00N - TEAK KROSSVIÐUR - EIK Gaboon 16 — 19 — 22 mm. Birki krossviður 4 — 5 mm. Furu krossviður 4 — 5 — 10 Limba krossviður 4 — 5 mm. Teak lVi”x4” og 2" Japönsk eik 114” og 2” Teak spónn kr. 60.00 ferm. Eikarspónn kr. 50.00 ferm. N Ý K O M I Ð . 12 mm. Hjálmar Þorsteinsson & Co. hf. Klapparstíg 28. Sími 11990. STÓRAR MYNDIR ‘ £ FLJÓT AFGREIÐSLÁ VÖNDUÐVINN^KODAK PAPPÍR Hans Petersen h.f. Sími 2-03-13 Bankaitræti 4. i

x

Þjóðviljinn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.