Þjóðviljinn - 26.06.1963, Blaðsíða 1
Miðvikudagur 26. júní 1963 — 28. árgangur — 140. íölublað.
I gær felldi Hæstiréttur dóm í Milwoodmálinu svonefnda og
var úrskurður meirihluta réttarins á þann veg, að héraðsdómi
væri heimilt að hafa togarann í haldi þar til 5. september n.k.
en sem kunnugt er hefur skipstjóranum á Milwood, John Smith,
verið stefnt fyrir rétt 2. september.
Einn dómaranna, Gizur Bergsteinsson, skilaði sératkvæði og
var dómur hans á þá lund að leysa bæri togarann úr haldi
gegn fjártryggingu sem dómari teldi nægjanlega.
Súd-
veiðin
glæðist
Raufarhöfn í gær.
— Snemma í morg-
un sáus't vaðandi
síldartorfur norð-
austur af Langanesi
og fengu nokkur
skip dágóðan afla.
Sólskin og blíða er
nú á miðunum og er
búizt við fjörkippi í
veiði á næstunni.
Frá kl. 7 í gærmorgun
til kl. 7 í morgun fengu 11
skip samtals 4900 mál og
veiddist sú síld 60 til 70
sjómílur norðaustur af
Raufarhöfn og komu þessi
skip hingað með eftirfar-
andi afla: Sigurpáll með
300, Jón Oddsson með
150, Fagriklettur með 450,
Hamravík með 400, Mummi
GK með 400, Gullver með
550, Svanur RE með 400
og Akurey með 900. Þá
fóru Björgúlfur með 800
mál og Rifsnes með 500
mál til Seyðisfjarðar og
Jón Finnsson með 900 mál
til Siglufjarðar.
Þá er vitað um afla
þessara skipa síðastliðinn
sólarhring: Kópur 700,
Kristbjörg 350. Skarðsvík
900, Steinunn 500. Oddgeir
400. Pétur Jónsson 300,
Mummi IS 400, Auðunn
300, Hrafn Sveinbjarnar-
son 300, Jón á Stapa 650
og Rán 350.
Önnur aflvél verksmiðj-
unnar bilaði kí. 8 í morg-
un og verður viðgerð lok-
ið um miðnætti í nótt.
Togarinn Mitwood var kyrrsett
ur þar til fimmta september
Sakadómur Reykjavík-
ur felldi sem kunnugf
er úrskurð um kyrrsetn-
ingu togarans 20. maí
s.l. og var honum sam-
dægurs skotið til Hæsta-
réttar. Vegna eðlis máls-
ins svo og þess að við
könnun á sakargögnum
kom í ljós að tiltekin
dómsskjöl vantaði í end-
urriti frá sakadómi á-
kvað Hæstiréttur að
málsskjöl þessi skyldu
lögð fyrir dóminn og
málið síðan flutt munn-
lega fyrir ré't’tinum. Fór
málflutningur fram 19.
þessa mánaðar.
Krafa kæranda, Gísla ísleifs-
sonar hrl., f.h. Burwood Fishjng
Co. Ltd., eiganda togarans Mil-
wood. A 472, var, að hald það,
sem lagt hafðj verið á togar-
ann yrði fellt niður gegn banka-
tryggjngu að mati héraðsdóms
fyrir öllum greiðslum sem John
Smith skipstjóri kynni að verða
dæmt að greiða. Saksóknari rík-
isins krafðist þess hins vegar,
að hinn kærði úrskurður yrði
staðfestur.
f forsendum hæstaréttar er
aðdragandi málsins rakinn mjög
rækilega og m.a. birt orðrétt
skýrsla skipherrans á Óðni um
töku togarans. Verður efni henn-
ar ekki rakið hér, enda öllum
kunnugt orðið af fréttum
Lokakafli forsendanna fyrir
í.: -V'. •
’
Þessi mynd var tekin, þegar varðskipið Óðinn var á Ieið með togarann Mihvood til Reykjavíkur. — (Ljósm. Þjóðv. A. K.).
dómsorðum Hæstaréttar or svo-
hljóðandi:
„Samkvæmt lokaákvæði 1. gr.
laga nr. 5/1951 um breyting á
lögum nr. 5/1920 um bann gegn
botnvörpuveiðum má ieggja
löghald á skip, sem notað hef-
ur verið til ólöglegra botnvörpu.
veiða við fsland, og setja það
síðan, að undangengnu fjárnámi,
til lúkningar sektum á hendur
skipstjómarmanni svo og máls-
kostnaði, sbr. og auglýsingu um
fullgildingu Evrópuráðssamnings
um verndun mannréttinda og
mannfrelsis nr. 11/1954, fylgi-
skjal II, 1. gr. in fine. Sam-
kvæmt árlangri dómvenju hef-
ur þetta verið framkvæmt þann-
ig, að héraðsdómur sá, er haft
hefur slikt mál til meðferðar,
hefur lagt hald á skipið og
haldið því, þar til dómur hef-
ur gengið í héraði. Þá hefur
héraðsdómur að jafnaði sleppt
Þýzkur skuttogari fórst við
Vestur - Grænland í gærdag
skipinu gegn hæfilegri trygg-
ingu.
Þegar litið er til þessa og
að eigi verður að svo stöddu
séð fyrir um lyktir sakamáls
þess, sem samkvæmt framan-
sögðu hefur verið höfðað gegn
skipstjóra togarans Milwood.
svo og þess, að eigi er loku
fyrir það skotið, að togarinn,
sem ber sýnileg merki framan-
greinds árekstrar, kunni, eins
og saksóknarj ríkisins og rann-
sóknardómur telja. enn að hafa
Framhald á 3. síðu.
V-þýzki skuttogarinn
Miinchen fórst í ofviðri
við V-Grænland í gær-
dag. Skipið mun þá hafa
verið statt á Fyllubanka
undan Færeyingahöfn.
Mörg skip sem voru á
sömu slóðum komu til
hjálpar og tókst að
bjarga 26 mönnum af á-
höfninni, en 13 drukkn-
uðu. í gærkvöld stóðu
enn vonir til að hægt
yrði að bjarga 3 mönn-
um í viðbót. Áhöfnin
var 42 menn.
Múnchen var svo til nýtt skip,
smíðað árið 1960, eða 61 of
nokkuð stórt, sennilega 12—1500
tonn. Það kom hjngað til
Reykjavíkur í vetur, vegna bil-
unar og stanzaði hér í nokkra
daga. Það mun hafa verið búið
heilfrystjtækjum og fjskimjöls-
verksmiðju, en hlýtur að hafa
verið á saltfiskveiðum núna. því
42 menn voru um borð.
Tveir íslenzkir togarar eru nú
við V-Grænland á saltfiskveið-
um, þeir Þormóður goði og Þor-
steinn Ingólfsson, báðir eign
Bæjarútgerðar Reykjavíkur.
Samkvæmt skeyti, sem kom frá
þeim til BÚR í gær voru þeir
komnir norður á Hellefisk'banka.
sem er um 400 mílum norðar
en Fyllubanki. Stormur var Qg
vitað að Þormóður goði hélt sjó.^>
Enn óvíst hvenær
Askenasi kemur
Vladímír Askenasí hinn frægi
sovézki píanóleikari hefur nú
haft samband við umboðsmann
sinn hér. Pétur Pétursson og
tjáð honum að hann geti ekki
staðið við áður gerða áætlun um
að koma hingað til hljómleika-
halds á fimmtudaginn. Bað hann
Pétur að hafa samband við sov-
éska sendiráðið hér, en það
myndi geta sagt til um tímann.
Þegar Pétur talaði við sendiráðið
í gær, gat það ekki sagt neitt
ákveðið, en lofaði að hraða af-
greiðslu málsins.
Pétur kvað ómögulegt fyrir
sig að vera í þessari óvissu og
ef hann fengi ekki afgerandi
svar frá sendiráðinu fljótlega
myndi hann endurgreiða að-
göngumiða þá, sem þegar eru
seldir að hljómleikunum.
Askenansi ber fyrir önnum
heima fyrir.
Teikning af togaranum Múnchen, sem fórst í gær við Grænland.
Neita að birta
sératkvæðin!
r JT >
Ottast meirihluti Verðlagsráðs
sjávarútvegsins að álit minni-
hlutans komi fram?
Þjóðviljinn sneri sér í gær
til Sveins Finnssonar, fram-
kvæmdastjóra Verðlagsráðs
sjávarútvegsins, og innti hann
nánar eftir úrskurði þeim,
sem yfirnefnd verðlagsráðs
felldi um bræðslusíldarverðið
s. I. sunnudagskvöld. Eins og
Þjóðviljinn skýrði frá í gær,
mun úrskurður yfirnefndar-
innar ekki hafa verið felldur
samhljóða, — enda með þeim
hætti, að mikla furðu vekur,
þar sem lýsisverð hefur hækk-
að mjög erlendis að undan-
förnu. — Dagblaðið Vísir
skýrði hins vegar þannig frá
úrskurði yfimefndarinnar, að
„samkomuIag“ hefði náðst
um veröið á fundi nefndar-
innar.
Framkvæmdastjóri verðlags-
ráðsins viðurkenndi, að það
væri rétt, að sératkvæði hefðu
komið fram í yfirnefndinni,
þegar úrskurður hcnnar var
felldur. Hins vegar neitaði
hann með öllu að gefa nán-
ari upplýsingar, og kvað það
fasta venju i dómnum að
gefa ekki slíkar upplýsingar
um „störf nefndarinnar“. Þeg-
ar framkvæmdastjóranum var
bent á, að sératkvæði fulltrúa
í yfimefndinni væru hluti af
niðurstöðum hennar en ekki
„upplýsingar um störf henn-
ar“, — enda föst regla við
uppkvaðningu úrskurða sem
þessa, að birta einnig sérat-
þessa, sem fram koma, —
kvaðst hann samt sem áður
ekki mundu birta sératkvæð-
in nema fyrir lægi samþykkt
frá verðlagsráði um það!
Það mun vera algert eins-
dæmi, að sératkvæðum full-
trúa í gerðardómi sé haldiö
leyndum og neitað að gefa
upplýsingar um þau, enda
eiga umbjóðendur þeirra full-
an rétt á að fá að vita um
afstöðu sinna fulltrúa. Og það
er cnn þá fráleitara að neita
að gefa upplýsingar um þessi
atriði, nema fyrir liggi sam-
þykkt, — sem væntanlega yröi
að vera meirihlutasamþykkt,
— um að birta sératkvæði,
sem fram koma. Sératkvæði
eru sem fyrr segir hluti af
niðurstöðu, og bæði sá aðili,
sem sératkvæði skilar svo og
umbjóðendur hans eiga ský-
lausa kröfu til þess að þau
komi fram.
En meirihluti yfimefndar
virðist hins vegar svo hrædd-
ur vegna Þess rangláta úr-
skurðar, sem hann felldi, að
gripið er til þess að reyna að
gera minnibluta nefndarinnar
samábyrgan með því að
hindra birtingu þeirra sérat-
kvæða, sem fram komu við
uppkvaðningu úrskurðarins.
En að sjálfsögðu getur yfir-
nefndin þó ekki fellt „úr-
skurð“ um að fulltrúar gefi
þeim samtökum, sem hafa til-
nefnt þá í yfirnefndina, upp-
Iýsingar um afstöðu sína.
v