Þjóðviljinn - 27.06.1963, Side 5

Þjóðviljinn - 27.06.1963, Side 5
r Fimmtudagur 27. júní 1963 H6ÐVIUINN SÍÐA J KONAIGEIMFERÐ Valentína og Valerí á Rauða torginu; fyrir geimf.ugið. Þegar Valerí Bikovskí flaug út í geiminn á föstudaginn var spurðu menn hver annan: Hvað verður nýtt i þessu flugi? Að sjálfsögðu gerðu allir ráð fyrir því, að hinn nýi geimfari myndi fljúga lengur en félagi hans Nikolaéf, sem hingað til hefur átt heimsmetið (64 um- ferðir, 2,6 millj. km). En spurt var: Hvað kemur nýtt fram: enn eitt geimfar með einum geimfara eða tveimur — eða máske tvö geimför í viðbót? Svarið kom á sunnudaginn og gat satt að segja varla ver- ið merkilegra á þessu stigi málsins: sovézk stúlka hafði slegizt í hópinn. Á fjórða hringnum talaði hún við Krú- sjof í síma og var forsætis- ráðherrann í góðu skapi og sagði að kvenfólkið heima hjá sér væri svo stolt og ánægt, að það væri varla hægt að koma nálægt því. Du’arfullt dansgólf Valentína Téresjkova tókst á loft og eðlilega færðist allur þungi atihyglinnar yfir á hana af „bróðurnum" í geimnum, af Bikovskí, 29 ára gömlum flug- manni og fyrsta fulltrúa Moskvu i víðáttum geims- ins. Af Bikovskí, sem var með þeim fyrstu er stóðust allar raunir sem lagðar eru fyrir geimfara, sem fyrstur reyndi „skilvinduna", sem fyrstur gekk inn í klefa hinnar fullkomnu einangrunar frá öllum ytri á- hrifum. Auðvitað vita menn þetta allt af blöðum. vita að Bikovskí er mikill vinur Adr- íans Nikolaéfs og hefði komið í hans stað í fyrra hefði eitt- hvað mistekizt, vita að hann gifti sig í fyrra (án þess að bíða eftjr Adrían, en þejr höfðu ákveðið að gifta sig sam- tímis), að hann á son bráðung- an, að hann sagði við móður sína er hann kom heim í leyfi og hún spurði hvers vegna hann væri svo þreytulegur, hvar hann hefði ofreynt sig: Á dans- gólfinu, mamma .... En Valentína Teresjkova flaug af stað og tók til sín mestalla þá athygli sem liggur laus fyrir í heiminum. Ævisaga Ævisögur hinna fimm fyrstu geimfara eru að ýmsu leyti svipaðar: duglegir og fjörugir strákar sem snemma fengu á- huga á tækni, (Bikovskí smíð- aði ungur nokkurskonar þrýsti- loftshreyfil — sem sprakk áð vísu ásamt því smáskipi sem hann knúði áfram) gengu í flugklúbba. gengu í flugherinn reyndust öruggir flugmenn, fengu tilboð um að gerast geim- farar. Saga Valentfnu eða Völju — er eðlilega önnur. Hún er fædd í sveitaþorpi skammt frá Jaro- slavl. Faðir hennar var traktor- stjóri, en féll í byrjun styrj- aldarinnar. Þá flutti móðir hennar ásamt þrem börnum sínum til Jaroslavl og tók að vinna í vefnaðarverksmiðjunni „Krashni Perekop." Að loknu námi í barnaskóla vann Valja í hjólbarðaverksmiðju og síðan í sömu verksmiðju og móðir hennar — þar hélt hún áfram anna. Ein af þeim var Valent- ína Téresjkova. Það gat að vísu virzt ólíklegt að hún fengi jákvætt svar: í Sovétríkjunum er fjöldi reyndra flugkvenna. En samt fór það svo að bréfi hennar var gaumur gefinn. ! fyrra var hún tekin í hóp geim- fara. í fyrra hófst hin erfiða og margbrotna þjálfun sem þeir verða að ganga undir. Og gekk vel — því er jafnvel haldið fram að ýmsar þrautir hafi þessi unga stúlka leyst betur en karlmennirnir. Því var hún fyrir nokkrum dögum kölluð fyrir ríkisnefnd geimferða ásamt Bikovskí og þeim tilkynnt um brottfarardag, ásamt honum gekk hún út á Rauða torgið eins og geimfara er siður áður lagt er af stað. Á föstudag fylgdi hún Bikovski á startpallinn og kvaddi hann með kossi að rússneskum sið. Á laugardagskvöld lagðist hún til svefns í „húsi geimfarans” á því sama rúmi og Gagarín hafði hvílzt fyrir rúmum tveim árum; ráðskonan, gömul kennslukona og bolséviki hafði séð um að allt væri í röð og reglu og sett á borðið eftirlæt- isblóm Valintínu — baldurs- brár. Sterk sögn. Það vildi svo til að ég stóð fyrir utan stóra kirkju þegar hátalarar á torginu sögðu frá flugi Valentínu; gamlar svart- klæddar konur komu frá messu og signdu sig auðmjúk- ar fyrir margra alda gömlum tumum. Á þessum bakgrunni kom það sérstaklega skýrt fram, hve „sterk sögn” flug Téresjkovu er. Fyrsti geimfarinn sem ekRi ber einkennisbúning flughers. Fyrsta konan í geimfari . . . I heillaóskaskeyti frá Palm- iro Togliatti segir meðal annars: Þetta er enn ein sönnun þeirrar staðreyndar, að aðeins sósíal- isminn frelsar konuna fuil- komlega undan ójöfnuði og for- dómum, tryggir að hún sé virt sem maður, tryggir henni sæti í forystusveit þeirra sem vinna djarfasta sigra í starfi og vís- indum“. Margir myndu taka undir orð Togliattis, en fleiri heyra til .,Máfsins“ (en svo kalla loft- skeytamenn Valentínu) og hugsa um þýðingu þessara at- burða. Að vísu munu tíðindin Eftir ÁRNA BERGMANN líklega fara fram hjá þeim gömlu konum sem krossuðu sig við kirkjuna eða þeim konum sem faldar eru á bak við and- litsblæjur nálægari austurlanda — en þeim hefur Téresjkova sent kveðju sína. En aðrir munu vita af atburðinum — ekki sízt þær konur sem nú eru á leið til Moskvu til þátttöku í alþjóð- legu friðarþingi. Arni Bergmann Valentína í geimfarabúningi sínum. 1200 prófessorar eru með afvopnun Geimförunum fagnað í Moskvu. námi og lauk vefnaðariðnskólav með vinnu. Fyrstu kynni hennar af há- loftum urðu með þeim hætti, að hún gekkst fyrir stofnun fall- hlífaklúbbs stúlkna þar á vinnu- staðnum. Síðan þá hefur hún 126 fallhlífarstökk að baki sér — úr mikilli hæð og lítilli, næt- urstökk, vatnsstökk. nákvæmn- isstökk. Einhverju sinni var hennar getið í flugmálatímariti í sambandi við keppni fallhlífa- stökkvara og bróðir hennar Vo- lodja klippti út þessa klausu; varla hefur honum dottið í hug að hún yrði fyrsti dropinn í því fljóti blaðagreina og til- kynninga um systur hans. sem nú flæðir yfir heiminn ,Hlera má síma í brýnustu nauðsyn' Afdrifaríkt brcl'. Vorið 1961 gerast síðan þau tíðindi að Gagarín stýrirVostok — 1 umhverfis hnöttinn. Og geimferðaáhugi breiðist út með margföldum hraða — einkum meðal yngri kynslóðarinnar. Margir gengu um með miklar vonir, margir skrifuðu bréf i allar áttir: lýstu því yfir að þeir vildu einnig upp tilstjarn- Nýlcga var haldin í Ástralíu ráðstefna á vegum Sameinuðu þjóðanna og var þar f jallað um „Hlutverk Iögreglunnar varðandi varnir mannréttinda”. Fulltrúar á ráðstefnunmi urðu sammála um að Iögreglan ætti ekki að grípa til símahlerana nema brýna nauðsyn bæri til enda væru slíkar hleranir al- varleg skerðing á mannréttind- um, einkum hvað snertir einka- líf manna. Ráðstefnan fordæmdi eindreg- I ið allar eftirlitslausar hleranir Hinsvegar urðu fulltrúarnir sammála um að aðstæðunar gætu orðið þannig að slíkar rannsóknaraðferðir væru nauð- synlegar í þágu þjóðfélags- ins. En slíkt yrði að gerast samkvæmt lagasetningum og aðeins þegar um mjög alvarleg afbrot væri að ræða. Sem dæmi um slik afbrot var meðal annars nefnt: Samsæri gegn öryggi ríkisins, mannrán, eiturlyfjasala og fjárkúgun. Lögð var áherzla á að síminn gerði skipulagningu afbrota auðveldari og væri lögreglan hjálparvana ef hún gæti ekki gripið til hlerana. Ráðstefna þessi var ein af beim svæðisbundnu ráðstefnum um mannréttindi sem Samein- uðu þjóðirnar gangast fyrir. Þátt tóku í henni fulltrúar frá 17 löndum í Asíu og umhverfis Kyrrahaf. Ráðstefnan samþykkti að skora á U Þant að setja á lagg- irnar nefnd til að semja al- þjóðlegar siðareglur handa lögreglunni. „Vegna þess að við berum hag lands okkar og samborg- ara fyrir brjósti lýsum við hátíðlega yfir fullum stuðn- ingi okkar við þá bandarísku forystumenn sem munu skuld- binda sig tii að varðveita frið- inn og leggja niður vígbúnað. Við viljum að bægt sé frá dyrum hættunni á kjama- stríði“. Þannig segir í heilsíðuaug- lýsingu sem birt er í banda- ríska stórbla’ðinu „New York Tiirrés", 'én húri ’ ér undirrituð af f jölmörgum kunnum banda- riskum vísindamönnum, próf- essorum við háskóla og starfsmönimim við rannsókn- arstofnanir, en frumkvæðið á nefnd þeirra sem fjallað hef- ur. um vandamál afvopnunar. Þeir lýsa yfir andstöðu sinni við þá „ósveigjanlegu stefnu“ sem miðar að því að halda áfram birgðasöfnun kjarnavopna í aBndaríkjunum. „Ekkert vamarkerfi er til sem myndi geta varið Banda- ríkin fyllilega fyrir meirihátt- ar kjamaárás“, segja þeir. Frekari dreifing kjamavopna myndi aðeins auka enn á þá hættu sem vofir yfir banda- rísku þjóðinni sem og öðmm þjóðum heims. Því ætti að reyna allar hugsanlegar samningaleiðir til að draga úr striðshættunnd, segja vísinda- mennimir. Sérstaka athygli vekur að þeir em ósammála þeirri af- stöðu Bandarikjastjómar að fjöldi árlegra könnunarferða Kemur einn þá annar fer MOSKVA. BERLÍN 25/6 — Krústjoff, forsætisráðherra Sov- étríkjanna, kemur í heimsókn til Austur-Berlínar næstkomandi föstudag tilkynnir austurþýzk fréttastofa. Verður það aðeins tveim dögum eftir komu Kenne- dys Bandaríkjaforseta til borgar- innar. Miklar sögusagnir gengu í Moskvu í dag um væntanlegt ferðalag forsætisráðherrans. Þó var ekki talið að hann myndi fara til Berlínar helílur til Búk- arest. Hafa fréttamenn talið sig sjá merki þess, að Rúmenar væru ekki ánægðir með hlutverk sitt í verzlunarkerfi alþýðulýð- veldanna. til að fylgjast með fram- kvæmd banns við kjamatil- raunum skipti meginmáli. Eins og kunnugt er, hafa samningar um slíkt bann strandað á ágreiningi Sovét- ríkjanna og Bandaríkjanna um hve margar sllkar könn- unarferðir eigi að vera. Bandarfkjastjórn hefur krafizt sjö—átta slíkra ferða árlega, en sovétstjórnin ekki ríljað fallast á fleiri en þrjár. „Á- greininigur um fjölda könnun- arferða ætti ekki að verða til þess að koma í veg fyrir samning um meginatriði", segja hinir bandarísku vis- indamenn. Undir yfirlýsinguna rita 1.200 prófessorar og aðrir vísindamenn sem staifa við 84 háskóla og aðrar æðri menntastofnanir í Bandarikj- unium. ProfuenomáliS heldur áfram WASHINGTON, 25/6 — Vamar- málaráðuneytið í Washington til- kynnti það í dag, að þrír flug- menn, úr bandaríska flughernum séu lýstir saklausir af öllu sam- bandi við Christine Keeler. kyn- bombuna frægu úr Profumo- málinu. Flugmennimir vom kall- aðir heim til Washington til yfir- heyrslu, eftir að kvisaðist, að þeir væru við málið riðnir. Varavamarmálaráðherra Arth- ur Sylvester, lýsti því yfir í dag, að flugmennimir þrír hefðu „hvorki beint né óbeint" haft samband við ungf rú Keeler, rann- sóknin hefði ekkert grunsamlegt leitt í ljós, og Bandaríkjamenn- imir hefðu ekkert haft saman við Rússann ívanoff að sælda. Af Profumo-málinu er bað annars að frétta, að nú hefur enska hirðin látið frá sér fara tilkynningu, þar sem frá þvi er skýrt, að skottulæknirinn Step- hen Ward hafi teiknað hvorki meira né minna en niu meðlimi ensku konungsfjölskyldunnar. — Ward. sem þykir allgóður and- litsmyndamálari, situr nú fang- elsaður og er gefið símavændi að sök. Af þessum níu fyrirsæt- um skottulæknisins má nefna hertogann af Edinborg, hertoga- frúna af Kent, Margréti prins- essu og mann hennar jarlinn af Snowden, sem þekktari er undir nafninu Anthony-Armstron* Jones. t

x

Þjóðviljinn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.