Þjóðviljinn - 04.07.1963, Síða 1
n,,,
| í | m
■;m/. /r//:•:■■■■ ■:•■
■
'wS/ÉMÉSÉMm
mmm:-
manna felldur í gær
um laun ríkisstarfs-
Kjaradómur að störfum. Frá vinstri: Svavar Pálsson endurskoðandi, Eyjólfur Jónsson skrifstofu-
stjóri, Sveinbjöm Jónsson hri, formaður dómsins, Bcnedikt Sigurjónsson hrl, varaformaður dóms,
og Jóhannes Nordal bankastjóri. — Ljósm. Þjóðv. A.K.
í gær kl. 4 síðdegis
felldi Kjaradómur úr-
Stakkaf
í þoku
1 gærmorgun varð harka-
iegur árekstur milli Grims-
bytogarans Ephesian GY
604 og vélbátsins Guðbjarg-
ar IS 14 í svarta þoku um
tíu sjómílur út af Norð-
fjarðarhorni. Engin meiðsli
urðu á mönnum. Borðstokk-
urinn á vélbátnum bak-
borðsmegin rifnaði og stefn-
ið brotnaði. Þá kom gat á
hvalbak togarans.
Allar eru þessar skemmd-
ir ofansjávar og fylgdi þó
togarinn bátnum inn að
Dalatanga og þóttist skip-
stjórinn ætla að koma á
eftir inn á Seyðisfjörö.
Togarinn hvaorf hinsvegar
í þokuna og hefur ekki
spurzt til hans meir þrátt
fyrir ítrekaðar tilraunir
umboðsmannsins I allan
gærdag að komast í sam-
band við togarann. Seinni
hluta dagisins í gær fór
Guðbjörg til Neskaupstaðar
og samkvæmt viðtali við
bæjarfógetann í Neskaup-
stað í gærkvöld hef jast rétt-
arhöld hjá málsaðilum kl.
9 I dag. Myndin hér að
neðan var tekin í gær af
Guðbjörgu ÍS 14, þar sem
hún Iá við bryggju í Seyð-
isfirði áður en hún hélt
til Neskaupstaðar. — (Lm.
G. S.).
skurð sinn í kjaradeilu vinnugreiðslur
opinberra s’tarfsmanna
en dómurinn fékk málið
til meðferðar 24. apríl
sl. er samningar BSRB
við ríkið höfðu strandað.
Átti dómurinn að ljúka
störfum 1. júlí sl. en
fékk frest til 4. júlí.
Eins og kunnugt er
höfðu samninganefndir
deiluaðila náð samkomu-
lagi um skiptingu opin-
berra starfsmanna í 28
launaflokka og kom því
aðeins til kasta Kjara-
dóms að ákveða föst laun
í hverjum launaflokki
svo og vinnutíma, yfir-
og onnur
starfskjör.
Skipting í launaflokka
svo og úrskurður Kjara-
dóms um launaupphæð í
hverjum flokki eru birt-
ar á 2. síðu, en frá dóm-
inum sjálfum, vinnutíma
og yfirvinnukaupi er
sagt á 10. síðu.
2. umræða
reikninga
I dag kl. 2.30 verður hald-
inn fundur í borgarstjórn
Reykjavíkur og fer þá m.
a. fram 2. umræða um
rcikninga borgarinnar fyrir
árið 1962. Þetta verður síð-
asti regiuiegur fundur borg-
arstjómar fyrir sumarfrí.
Hér bíða fulitrúar Bandalags starfsmanna ríkis og bæja utan dyra eftir niðurstöðu kjaradóms.
Lengst til vinstri er Teitur Þorleifsson kennari næstur honum Páll Hafstað stjórnarráðsfulltrúi.
L«mgst til hægrl er Kristján Thorlacius, stjönarrá ðsfulltrúi, formaður BSRB og næstur honum
Magnús Torfason prófessor. — Ljósm. Þjóðv. A.K.
Forystumenn samtaka opinberra starfsmanna um niðurstöður Kjaradóms:
Veruleg kjarabót, en staðfestíng á
meginstefnu BSRB er þýðingarmest
í heild teljum við að samtök okkar hafi unn-
ið talsverðan sigur og að þessi fyrsti kjaradómur
eigi að skapa okkur möguleika til að vinna að
kjarabótum ríkisstarfsmanna í framfíðinni, sögðu
forystumenn samtaka opinberra starfsmanna, er
Þjóðviljinn leitaði álits þeirra í gærkvöld á nið-
urstöðum Kjaradóms.
Málflytjendur Bandalags
starfsmanna ríkis- og bæja fyrir
Kjaradómi voru þeir Kristján
Thorlacius, Haraldur Steinþórs-
son og Guðjón B. Baldvinsson,
en málflytjandi fjármálaráð-
herra, fyrir hönd ríkissjóðs, var
Jón Þorsteinsson alþingismaður.
Veruleg bót
Þjóðviljinn hafði tal af ein-
um málflytjendanna í gærkvöld,
Haraldi Steinþórssyni kennara,
varaformanni Bandalags starfs-
manna ríkis- og bæja, og sagð-
ist honum svo frá:
— Vitanlegia er ég ekki fylli-
Iega ánægður með niðurstöðu
Kjaradóms, þar sem hann hefur
víða gengið alltof skammt til
móts við ' rökstuddar og réttlát-
ar kröfur opinberra stafsmanna.
Sé hinsvegar miðað við það
hvað kjör rikisstarfsmanna voru
orðin aftur úr cr kjaradómur
| inn veruleg bót fyrir opinberr
starfsmenn og ber að fagna því.
Þýðingarmest
— Þýðingarmest tel ég þó,
sagði Haraldur Steinþórsson
ennfremur, að í þessum fyrstu
samningum sem Bandalag
starfsmanna ríkis og bæja
hefur átt kost á hefur tek-
izt að fá staðfesta mcgin-
stefnu samtakanna. Með
fjölgun launaflokka er gert
mögulegt að taka aukið til-
lit til menntunar, ábyrgðar
og sérhæfingar í starfi, en
það eru einmitt baráttumál
BSRB. Og staðfesting Kjara-
dóms á fimm aldurshækkun-
um ofan á byrjunarlaun er
afar þýðingarmikil, en rík-
isstjórnin hafði aðeins Iagt
til að aldurshækkanir yrðu
brjár.
Lagfæringar
Og enn sagði Haraldur: —
Kjaradómurinn er tvíþættur.
Annarsvegar eru ákvarðanir um
kaup og hinsvegar um vinnu-
tíma og önnur starfskjör. Ýms-
ir starfshópar virðast hafa feng-
ið talsverða lagfæringu á sin-
um málum og má þar t.d. nefna
ákvæðin um næturvinnuálag hjá
vaktafólki, þótt ekki sé um að
ræða fullnægjandi afgreiðslu hjá
Kjararáði miðað við kröfur
Bandalags starfsmanna ríkis-
og bæja.
Síldin zð
færast vestur?
SIGLUFIRÐI 3/6. — I dag
kom hingað „Jón Finnsson"
með 6—700 tunnur af síld og
hafði fengið hana um 20
mílur norðaustur af Kol-
beinsey. Hefur þetta gefið
von um að síldin sé að fær-
ast vestur eftir og eru
menn hér á Siglufirði held-
ur bjartsýnni á vertíðina en
áður.
Aðrir bátar sem lönduðu
hér í dag voru: Svanur RE
300 t„ Framnes ÍS 5—600,
Haraldur AK 400, Gjafar
VE 5—600, og fór öll þessi
síld í söltun.
DimUINN
Fimmtudagur 4. júlí 1963 — 28. árgangur — 147. tölublað.
Örskurður Kjaradóms