Þjóðviljinn - 05.07.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 05.07.1963, Qupperneq 1
Eykur útfíutningsverðmæti um 5—7 milljónir krónu Myndin hér að neðan er af soðkjarnastöð sem reist var í vor við síldarverk- smiðjuna Rauðku á Siglu- firði en talið er að soð- kjamavinnslan muni i með- alári auka útflutningsverð- mæti verksmiðjunnar um 5—7 milljónir króna og sést á því að hér er um mikils- verða endurbót á verk- smiðjunni að ræða. — (Ljósm. H.B.). 40 síldveiði- skipfenguum 20 þús. múl Síldarflotinn heldur sig nú aðallega út af Mel- rakkasléttu og á Reyðarfjarðardýpi og var saltað af miklu kappi á Raufarhöfn og Seyðisfirði í gær. Á norðaustursvæðinu var vitað um afla hjá 21 skipi með sam’t'als 12320 mál og fyrir austan hjá 21 skipi með samtals 7850 mál. Þessi skip höfðu eftirtalinn afla: Norðaustursvæðið: Fiskaklett- ur 250. Haraldur AK 350, Halkion 300, Jón Finnsson 600, Hugrún 350, Steinunn 700 Friðbert Guð- mundsson 120, Björgúlfur EA 350, Eldey 300, Fákur GK 200, Helgi Helgason 1500, Akraborg 500. Sæ- fari EA 850, Þorbjörn 1300, Faxa- borg 700. Ólafur Bekkur 1900, Baldur EA 900, Gullborg 300, Ólafur Magnússon 550 (fékk afl- ann þar sem önnur skip voru fyrir og fengu ekkert), Garðar EA 150, Heimaskagi 100. Reykjafjarðardýpi: Keilir 100, Hafþór RE 150, Ver AK 250, Höfrungur II. 300, Guðmundur Þórðarson RE 1400. Lómur 300, Jón Guðmundsson 500, Amar- nes 400 Sigurbjörg SU 180, Hringver 300, Halldór Jónsson 1100, Sæúlfur 250, Hoffell 400, Rán SU 250, Jón Gunnlaugsson 300, Baldvin Þorvaldsson 200, Sigurkarfi 200, GuUver 700, Ár- sæll Sigurðsson I. 400, Mánatind- ur 600. Miðstjórn pólska flokksins á fund VARSJÁ 4/7 — Miðstjóm Sam- einaða verkamannaflokksins pólska kom saman á fund í Varsjá i dag. Framkvæmdastjóri flokksins, Wladyslaw Gomulka, hafði framsögu um ideólógiskt starf flokksins, en hann er ný- kominn heim frá Austur-Berlín, þar sem hann ræddi við ýmsa aðra leiðtoga flokkanna í Aust- ur-Evrópu, m.a. Krústjoff for- sætisráðherra. Kaupfélagsstjóri ráðinu hjá KR0N í fyrradag var ráðinn nýr kaupfélagsstjóri Kaupfélags Reykjavíkur og nágrennis á stjórnarfundi félagsins og varð fyrir valinu Ingólfur Ólafsson. skrjfstofustj. KRON. Ingólfur er fæddur 8. ágúst 1927 að Hurðarbaki í Hval- fjarðarstrandarhreppi og eru foreldrar hans Þórunn Magn- úsdóttir og Ólafur Daníels- son bóndi þar. Ingólfur lauk prófi frá framhaldsdeild Sam- vinnuskólans vorið 1951 og réðst skömmu síðar til Kaup- félags Suðurnesja í Keflavik og starfaði þar um tveggja ára skeið. Haustið 1955 var liann ráð- inn skrifstofustjóri hjá KRON og hefur notið vinsælda í starfi fyrir prúðmennsku og dugnað. Við áttum stutt viðtal vi* nýja kaupfélagsstjórann i gær og var hann heldur fá- máll. Á þessum erfiðu tímamót- um vonaðist hann eftir góðu samstarfi við sfarfsfólk KRON og að félagsmenn Ingóifur Ölafsson stæðu saman um félag sitt. Hann kvað mikla eftirsjá að fyrirrennara sínum og erfið braut framundan að feta í fótspor þess mikilhæfa manns Reikningar Reykjavíkurborgar fyrir árið 1962 afgreiddir í borgarstjórn Hörð gagnrýni á ýms atriði í reikningunum og rekstrinum í gær fór fram í borg- arstjóm Reykjavíkur síðari umræða um reikn- inga borgarinnar fyrir árið 1962. Flutti Guð- mundur Vig’fússon þar harða gagnrýni á ýms atriði í reikningunum og í reksfri borgarinnar og fyrirtækja hennar og tóku fleiri borgarfulltrú- ar minnihlutaflokkanna í sama streng, einkum varðandi rekstur Raf- magnsveitunnar. Hér á eftir verður drepið á nokkur a’t'riði úr ræðu Guðmundar Vigfússon- ar en tillögur sem full- trúar Alþýðubandalags- ins fluttu varðandi reikningana eru birtar í heild á 10. síðu. Við íyrri umræðu reikning- anna í borgarstjórn fjallaði Guð-mundur Vigfússo-n um nið- urstöður reikninganna í heild en í ræðu sinni í gær fjallaði hann um nokkur einsfök at- riði í reikningunum sem hann taldi athugaverð. Verður drepið I Vesturbæjar 3,8 miilj. króna oglaðeins var unnið á árinu fyrir hér á hin helztu þeirra. vegna íþróttasvæðisins í Laug- 351 þús. kr. við sundlaugina Samkvæmt reikningunum ardal 7 milljónir króna eða í Laugardal o-g nemur óeydd skuldar íþróttasjóður ríkisins samtals 10,8 milljónjr. Þá bera fjárveiting 1962 sem geymd var borgarsjóði vegna Sundlaugar I reikninga-rnir það með sér að I Framhald á 2. síðu. KR sigraði finnska liðið HAKA með 6:2 1 íyrri hálíleik stóðu leikar 5:2 — Umsögn um leikinn verður í blaðinu á morgun.____________________________________ Öngþveiti í lóðarmálum Reykjavíkurborgar: Aðeins búið að úthluta lóðum undir 320 íbú&ir á þessu ári Við umræður í borgarstjórn í gær um lóðaút- hlutun ben'ti Guðmundur Vigfússon á þá stað- reynd að enn hefði aðeins verið úthlutað lóðum undir 320 íbúðir á þessu ári þrátt fyrir loforð borgarstjóra í febrúar sl. um það að á næstu 3 mánuðum yrði úthluíað lóðum undir 600 íbúðir og auk þess lóðum undir 200 íbúðir síðar á árinu. Guðmundur sagði að þetta væru lélegar efndir og bæru vott um algera uppgjöf borgaryfir- valdanna í lóðamálunum. Öum- deilanlegt væri að það þyrfti að byggja minnst 600—700 íbúðir ár- lega hér í Reykjavík til þess að fullnægja þörfinni og væri á- standið í lóðamálunum því allt annað en glæsilegt, þar sem enn væri ekki búið að úthluta lóðum nema undir helming beirra íbúða sem þyrfti að byggja. Guðmundur benti einnig á að af lóðaskortinum leiddi síaukið brask með lóðir og íbúðir í bygg- ingu, aukinn húsnæðisskortur og stórhækkað verð á íbúðum. Hér væri stefnt að algeru öngþveiti. Sagði hann að borgin yrði að tryggja sér mannkraft og bá sér- staklega tæknikrafta til þess að hægt væri að vinna að undirbún- ingi lóðaúthlunar eins og nauð- synlegt væri. Drap Guðmundur á verkfræðingaverkfallið og sagði að það væri dýrara fyrir borgina að láta vinnu tæknimenntaðra manna falla niður vikum og mánuðum saman heldur en að hækka kaup þeirra til þess að halda þeim í störfum þar sem allar framkvæmdir borgarinnar grundvölluðust á störfum þeirra og stæðu og féllu með þeim. Að loku flutti Guðmundur eft- irfarandi tillögu: „Borgarstjómin lýsir áhyggj- um sínum yfir því að ekki skuli á þessu ári hafa verið úthlutað lóðum fyrir nema um 320 fbúðir þrátt fyrir þá slaðreynd að í borginni þarf að byggja um 700 íbúðir á ári til þess að fullnægja þörfinni fyrir nýjar íbúðir og út- rýma á alllöngum tíma heilsu- spillandi húsnæði. Borgarstjóm- inni er ljóst, að sá skortur á í- búðum, sem hér er ríkjandi og nú fer óðum vaxandi, á sinn stóra þátt í óeðlilega háu verði á íbúðum og eykur þar með hús- næðisskostnað borgarbúa. Borgarstjómin telur því að leita beri allra tiltækra ráða til að hraða undirbúningi nýrra byggingarsvæða. svo að unnt sé að auka svo úthlutun lóða að íbúabyggingar þurfi ekki að dragast eins háskalega saman og nú horfir vegna lóðaskortsins. Sérstaka áherzlu leggur borar- stjómin á að ráðstafanir séu gerðar til að ljúka hið allra fyrsta undirbúningi fyrirhugaðra byggingarsvæða við Kleppsveg og Elliðavog. svo unnt sé að taka þau svæði til bygginga á þessu ári, svo og að hraða skipulaginu og öðrum undirbúningi Fossvogs- svæðisins." Tillögunni var vísað frá með 9 atkvæðum gegn 5.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.