Þjóðviljinn - 12.07.1963, Blaðsíða 1
Föstudagur 12. 'júlí 1963 — 28. árgangur — 153. tölublað.
Dauft yfir síldveiðunum
Dauft hefur veríð yfir síld- 1 gær komu t.d. aðeins 6 eða ur nú verið saltað í rúmlega
veiðunum fyrir Norðurlandi 7 skip til Sigiufjarðar og var 35 þúsund tunnur á Siglu-
undanfarna sólarhringa, enda hvert þeirra með frá 300 upp firði.
veður oftast nær óhagstætt. í 600 tunnur síldar. Alls hef-
Þær vinna vii humar í Hraifrystistöiinni Sáttafundur
i gær
með þrem félögum
Samkvæmt upplýsingum sem Þjóðviljinn fékk í gær
hjá Hinriki Guðmundssyni framkvæmdastjóra Stéttarfé-
lags verkfræðinga hafa nú nokkrir verkfræðingar hafið
störf hjá einstökum atvinnuveitendum og taka þeir kaup
samkvæmt nýjum ráðningarskilmálum sem félagið setti
1. þessa mánaðar-
f gær boðaði sáttasemjari rík-
isins svo til samningafundar
með fulltrúum Stéttarfélags
verkfræðinga og atvinnurekenda
og er það fyrsti fundurinn sem
sáttasemjari heldur með aðil-
um í þessari deilu en sl. laug-
ardag héldu aðilar sjálfir við-
ræðufund þar sem þeir gerðu
grein fyrir viðhorfum sínum í
málinu. Fundurinn í gær hófst
kl. 17.30.
Sáttasemjari boðaði eþinig til
sáttafundar í gærkvöld með
fulltrúum skipasmiða og Verka-
lýðsfélags Akraness annars veg-
ar og fulltrúum atvinnurekenda
hins vegar. Hafa skipasmiðir nú
staðið í verkfalli hátt í tvo mán-
Laxveiðiréttindi
í Gratarvogi
Á síðasta borgarráðsfundi er
haldinn var 9. þ.m. var lagt
fram bréf frá landbúnaðarráðu-
neytinu þar sem tilkynnt var
að ráðuneytið hafi heimilað
borginni innlausn réttinda til
laxveiða í Grafarvogi.
Myndin er af nokkrum stúlkum
sem vinna við humar í Hrað-
frystistöðinni í Reykjavík h.f. við
Tryggvagötu en aðaleigandi henn-
ar er Einar Sigurðsson ríki.
Stúlkurnar höfðu brugðið sér út
fyrir dyrnar út í sólskinið er
ljósmyndari Þjóðviljans átti þar
leið um í gærmorgun og notaði
hann tækifærið til þess að taka
af þeim eina mynd. — (Ljósm.
Þjóðviljans A. K.).
Friðrik í
fimmta sœti
1 fjórðu umferð á skák-
mótinu í Los Angeles vann
Keres Friðrik Ólafsson.
Najdorf vann Reshevsky,
en ólokið er skák þeirra
Pannos og Petrosjans, Þá
er og ólokið skák Pann-
os og Keres úr þriðju um-
ferð.
Fimmta umferð var tefld
á miðvikudagskvöld. Hafði
þá Petrosjan hvítt gegn
Friðrik Ólafssyni. Skákin
varð jafntefli eftir 40 leiki.
Lét Petrosjan svo ummælt,
að Friðrik kynni að hafa
unnið, ef áfram hefði ver-
ið teflt. Aðrar skákir úr
þessari umferð fóru í bið.
Að fimm umferðum lokn-
um er Najdorf efstur með
3 vinninga og biðskák.
Friðrik Ólafsson hefur 2
vinninga og er í fimmta
sæti. Sjötta umferð var
tefld í gær, og hafði þá
Friðrik hvítt gegn Benkö.
Berast væntanlega fréttir
af þeirri umferð í dag.
Samið við fjögur iðnaðar-
mannafélög síðustu daga
Uði en Verkalýðsfél.ag Akraness
hefur boðað verkfali 14. þ.m. ef
samningar hafa ekkj tekirt fyr-
ir þann tíma.
Loks virðist nú kominn nokkur skriður á
samningana við iðnaðarmannafélögin og hafa
vinnuveitendur gefizt upp á þeirri furðulegu
fyrirætlan sinni að láta iðnaðarmenn ekki
njóta a.m.k. svipaðra kjarabóta og önnur
verkalýðsfélög hafa samið um á þessu ári.
Prentarar og húsgagnasmiðir héldu félags-
fundi í gær og voru þar samþykktir nýir
samningar, en járnsmiðir halda fund í dag um
hina nýju samninga. Þá hafa bókbindarar og
samið. Staðfestu Bókbindarafélagið og vinnu-
veitendur samninginn í gær.
Samkomulag náðist milli Fé-
lags járniðnaðarmanna og Meist-
arafélags járniðnaðarmanna um
kjaramálin á fundi í fyrrakvöld
og gildir það til 15. október í
haust, eins og samningar ann-
arra félaga. Samningarnir voru
undirritaðir með fyrirvara um
samþykki viðkomandi félaga og
heldur Félag járniðnaðarmanna
fund um þá í dag.
Meginatriði hinna nýju samn-
inga munu vera svipaðar kaup-
hækkanir og verkalýðsfélögin
hafa fengið það sem af er þessu
ári og verður nánar skýrt frá
samningunum í blaðinu á morg-
un, eftir að félagsfundur hefur
tekið afstöðu til þeirra.
Húsgagnasmiðir
Samningar tókust einnig í
fyrrakvöld milli Sveinafélags hús-
gagnasmiða og meistara. Megin- I tíma, áður en næturvinna hefst, _ Samningamir voru samþykktir
atriði samninganna eru 15% en áður var eftirvinnutaxti borg- á fundi húsgagnasmiða sem
hækkun á öllum kauptöxtum og aður fyrir þrjá fyrstu tímana í haldinn var í gærkvöld.
eftirvinnutexti greiðist fyrir tvo I yfirvinnu. ' Framhald á 10. síðu.
Samningar
borgarstarfs-
manna eru
á döfínni
ÞJÓÐVILJINN átfci í gær tal
við Þórð Þórðarson formann
samninganefnðar Starfs-
mannafélags Reykjavíkur-
borgar og innti hann eftir því
hvað liði samningum við
borgina um kaup og kjör
borgarstarfsmanna.
ÞÓRÐUR SKÝRDI svo frá að
samninganefnd Starfsmanna-
félagsins hefði lagt fram til-
lögur sínar um niðurröðun
í Iaunaflokka síðast í júní en
hún hcfði ekki lagt fram
neinn launaskala enda kjara-
dómur þá ókominn. Vinnur
samninganefnd borgarinnar
nú að því að yfirfara þessar
tiilögur. Sagði Þórður að vart
myndi að vænta gagntillagna
af hálfu borgarinnar fyrr en
eftir helgi.
VARÐANDI Iaunaskalann sagði
hann að hann myndi vænt-
anlega verða mjög svipaður
og hjá ríkisstarfsmönnum.
AÐ IOKUM sagði hann að samn-
ingarnir kynnu að dragast
eitthvað á langinn vegna þess
hve erfitt væri að ná mönn-
um saman til viðræðna og
fundahalda á þessum tíma árs
þar sem margir eru í sumar-
fríi. Hins vegar er gert ráð
fyrir því að samningamir
gildi frá 1. júlí sl.
Kaup á Ananaustum
Borgarráð heimilaði á síðasta
fundi sínum að samið verði við
Alliance h.f. um kaup á húsinu
Ánanaustum.
i
Ennþá hefur ekki verið þinga& í
Brimnesmálinu
Þjóðviljinn sneri sér í gær til Loga Einarssonar
yfirsakadómara og innti hann eftir því hvenær væri
að vænta dóms í Brimnesmálinu svonefnda, en sem
ktmnugt er fyrirskipaði saksóknari ríkisins í vor að
höfða skyldi mál á hendur Axeli Krist'jánssyni vegna
viðskipta hans við ríkissjóð í sambandi við útgerð
hans á togaranum Brimnes sem þá var eign ríkissjóðs.
Yfirsakadómari skýrði svo frá að sökum annríkis
vegna flutninga sakadómaraembættisins í ný húsa-
!
kynni svo og vegna sáttasemjarastarfa í vinnudeilum I
í sumar hefði sér ekki unnizt tími til þess að þinga "
í málinu síðan ákæruskjalið var gefið út. Hins vegar
sagði hann að þingað yrði í málinu svo fljótt sem
hægt væri en á þessu stigi gæti hann ekkert um það
sagt hvenær dóms mætti vænta.
!
í