Þjóðviljinn - 18.07.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 18.07.1963, Síða 1
Fimmtudagur 18. ijúlí 1963 — 28. árgangur — 158. tölublað Mjólkurfræðingar hafa boðað verkfall Ágreiningurinn stendur einkum um aldursuppbót á laun Iðnaðar- menn enn í samningum ★ Enn er ósamið við nokkur félög iðnaðarmanna, þótt samningaviðræður muni hins vegar standa yf- ir við flest þeirra sem ó- samið er við. S.l. mánu- dagskvöld var fundur með samninganefndum trésmiða og meistara og náðist ekki samkomulag. Annar fundur var boðaður í gærkvöld, og var blaðinu ekki kunnugt um niðurstöðu hans. ★ 1 fyrradag náðist sam- komulag milli pípulagn- ingamanna og meistara og fá pípulagningamenn 13% kauphækkun. ★ Þá samþykkti Félag ís- Ienzkra rafvirkja einnig nýja samninga á fundi í fyrrakvöld, og hækkar kaup þeirra um 13%. Einnig fá þeir kr. 0.75 í verkfæra- gjald á timann og er það nýmæli í samningum þeirra. Rafvirkjar með próf frá rafvirkjadeild Vélskól- ans fá 10% hærra kaup en almenni textinn segir til um. Einnig var samið í fyrsta skipti um kaup flokksstjóra (15% hærra en sveinakaup) og nokkrar aðrar lagfærlngar gerðar á samningunum í heild. ■■■■>■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■« Mjólkurfræðingafélag ís- j lands hefur boðað vinnu- ■ stöðvun hjá Mjólkursamsöl- : unni frá miðnætti aðfaranótt j laugardags, ef ekki hafa tek- ■ izt samningar fyrir þann j tíma. Sáttasemjari ríkisins j hafði fund með deiluaðilum : í fyrrakvöld og varð hann j árangurslaus- Næsti fundur ■ er boðaður kl. 4 næstkom- j andi föstudag. ■ ■ : Þjóðviljmn hafði í gaer sam- j band við Sigurð Runólfsson, en ■ hann er formaður Mjólkurfrseð- ■ ingafélagsins og jafnframt samn- : inganefndar mjólkurfræðinga. : Sigurður sagði að samkomulag ■ væri þegar orðið í meginatrið- ; um, ágreiningurinn stæði eink- : um um aldursuppbót mjólkur- j íræðinga. Lagði félagið mikla j áherzlu á að fá þeim kröfum j framgengt. Mjólkurfræðingar j eru mjög bundnir af starfi sínu j og meðal annars af þeim sökum j teldu þeir eðlilegt, að þeir njóti j aldursuppbótar á sama hátt og aðrir fastir starfsmenn. Á það má benda, að launahækkanir eft- ir starfsaldri eru meðal megin- atriða í úrskurði þeim, sem ný- iega var kveðinn upp um kjör opinberra starfsmanna. Sigurður kv^ð félagið áður hafa sett fram kröfumar um aldursuppbót, og hefði félagið nú tekið þær upp að nýju og vænti þess að þeim yrði mætt af skilningi. Hvað gera Norðmenn í húsnæðismálum? 1 skýrslu norska fuiltrúans á norrænu húsnæðismálaráð- stefmmni komu fram ýmsar merkar upplýsingar um þró- un húsnæðismála í Noregi. Þar sem víðar er mikil eftir- spum eftir húsnæði í borgum og bæjum, og norska ríkið hefur forgöngu um öfluga lánastarfsemi og aðra fyrir- greiðslu fyrir húsbyggjendur. Einbýlishús og rað- hús vinna á Á síðustu árum hefur orðið sú breyting á íbúðabygging- um í Noregi, að einbýlishús og raðhús hafa rutt sér mjög til nims á kostnað húsa með 2—4 íbúðir, þar sem þver í- búð er á hæð út af fyrir sig. íbúðablokkir eru hins vegar stöðugt mjög stór þáttur í byggingunum, eða 30—37% á árunum 1953—1958. Stærri íbúðir Þróunin gengur yfirleitt í þá Íbuðirnar stækka —hagkvæm lán til langs tíma átt að byggðar eru stærri íbúð- ir, en nokkrar sveiflur eru ár- lega í byggingunum hvað þetta snertir. Árið 1956 voru 14,3% lbúðanna 2ja herbergja, 39,5%, 3ja herbergja, 22,7%, 4ra her- bergja og 17,4%, 5 herbergi og þar yfir (auk eldhúss i öllum tilfellunum), en árið 1961 voru hlutföllin sem hér segir: 8,8% voru 2ja herb., 26,8% voru 3ja herb., 38,3% voru 4ra herb. og 19,3% voru 5 herb. Eins og sjá má af þessu fækkar minni íbúð- urri allverulega og hefur meðal- stærð íbúða aukist á árunum 1951—1962 úr 62,8 fermetrum vpp í 74,6 ferrri. Tala fullgerðra íbúða í Nor- egi 1956—1962 hefur verið sem hér segrn 1956 27.281 íbúðir 1957 26.515 — 1958 26.494 — 1959 26.566 — 1960 26.773 — 1961 28.260 — 1962 27.767 — Gert er ráð fyrir að svipuð tala íbúða og sl. ár verði tekin í notkun á þessu ári. Lán til langs tíma — lágir vextir Ríkislán til íbúðabygginga i Noregi nema ekki eins háum hundraðshluta byggingarkostn- aðar og t.d. í Sviþjóð og Dan- mörku, en eru þó yfirleitt tveir þriðju til þrír fjórðu hlutar af byggingarkostnaðinum. Láns- timi er 40—60 ár og vextir mjög lágir; af húsnæðismálalánum rík- isins 3,5%, en allt upp í 5%, á almennum lánamarkaði. Vanefndir á greiislum til kennara Á síðasta ári gaf mennta- málaráðuneytið út erindis- bréf um starfsbætti kennara. Voru í því ýms gagnleg á- kvæði kennurum til hags- bóta, en þegar til kastanna kom reyndist ráðherrann ekki hafa gert neinar ráð- stafanir til að framkvæma ýms fyrirheit erindisbréfs- vinnutilhögun, greiðslur fyrir aukavinnu og biðtíma. Stóð lengi í stímabraki af ms um Útsölumaðurinn með blaðavagninn sinn Munið atkvæða- greiðsluna — blaðamenn! Blaðamenn eru minntir á að allsherjaratkvæðagreiðslunni um heimild til handa stjórn B.l. til boðunar vinnustöðunuar fer fram i skrifstofu félagsins, Vesturgötu 25, og lýkur kl. 3 síðdegis í dag. þeim sökum eins og greint^ var frá hér í blaðinu, en svo fór að lokum að ráðherr- ann Jelldi úrskurð um greiðslur til kennaranna- Þrátt fyrir það er enn víða svo ástatt að bæjarstjómir þrjózkast við að greiða kenn- urum það kaup sem þeir eiga heimtingu á samkvæmt þessum úrskurði, og eru menn að vonum orðnir lang- þreyttr á þessum síendur- teknu vanefndum. Aftur í bið Ekki tókst Friðrik og Gligoric að Ijúka biðskák sinni úr 8. um- ferð Piatigorsky-mótsins í Los Angelcs í annarri setu f fyrra- dag. Skákin fór aftur í bið, er alls höfðu verið leiknir 75 leikir. Þá hafði Friðrik hrók og tvö peð á móti riddara og tveim peðum Júgóslavans. Biðskák þeirra Benkös og Res- hevskys úr sömu umferð lauk hinsvegar með jafntefli. f 9. umferð tefldi Friðrik Ól- afsson við Najdorf og hafði svart. Myndin hér að (ifan er af Pálma Sigurði Ólafssyni blaðsölumanni á Akureyri þar scm hann er *ð selja blöð af fullum krafti úr vagninum sínum á Ráðhústorginu. Eins og kom fram í stuttu viðtalii við Pálma, sem birtist í Þjóðviljanum í gær, hefur hann leikið keppinauta sína í þessari grein hart; gárungamir segja að hann sé búinn að setja á hausinn fjórar blaðasölur á Akureyri frá því í vor! — (Myndina tók Ijósmyndari Þjóðviljans G. M.). Samningar málará—Sjá 2.síðu Skálholtskirkja er verk Harðar Bjarnasonar húsam. Ýmsir urðu til þess í gær að svara þeirri spurningu hver teiknað hefði Skálholtskirkju hina nýju, en í íslandshefti norska blaðsins Norges Handels og Sjöfartsidende var Magnus Poulsson arkítekt talinn höfundur hennar. Bar svörunum saman um að frásögn norska blaðsins stafaði af algerum misskilningi og hefði Hörður Bjarnason húsa- meistari ríkisins teknað Skálholtskirkju. Höfundur greinarinnar í norska blaðsinu Mads Vibe Lund ljósm. kom að máli við Þjóðviljann í gær, og kvað missögnina sprottna frá norska blaðinu Aftenposten; hefði hann notað þá heimild án þess að kanna málavexti. Þegar hið rétta kom í ljós hefði Norg- es Handels og Söfartstidende birt leiðréttingu, og einnig kvaðst Mads Vibe Lund hafa reynt að koma leiðréttingu á framfæri sem víðast, m.a. við íslenzku blöðin. Ekki virðist slík leiðrétt- ing þó hafa borizt Þjóðviljanum. Hörður Bjamason húsameistari ríkisins kom einnig að máli við Þjóðviljann í gær og sagði frá- sögnina í norska blaðinu mis- sögn eina. Kvaðst Hörður, þegar honum var falið að teikna kirkj- una, hafa haft samráð við sér- fróða menn innan lands og utan, m.a. við norska arkítektinn Magnus Poulsson sem var sér- fróður um endurreisn kirkna í Noregi, einnig við Sigurð heitinn Guðmundsson arkítekt, skipu- lagsstjóra og fleiri góða menn. Hefði allra þeirra sem lagt hefðu í té góð ráð og bendingar verið getið þegar homsteinn var lagður að kirkjunni. Hins vegar kvaðst Hörður einn hafa teiknað kirkj- una og vilja bera alla ábyrgð á því verki hvort sem mönnum lík- aði árangurinn betur eða verr. Hörður benti einnig á að spumingin um það hvort Magn- Fullorðinn maður varð fyrir bíl 1 gær varð fullorðinn maður fyrir bíl á Hverfisgötunni og hlaut hann minni háttar meiðsli á höfði. Maðurinn var fluttur á Landakotsspítalann, og voru meiðsli hans ekki talin alvarleg usi Poulsson hefði verið boðið til Skálholtshátíðarinnar svaraði sér sjálf. Hann lézt semsé 1957 — fyrir sex árum. Sósíalistar í Reykjavík Vegna sumarleyfa verður skrif- stofa Sósíalistafélags Reykjavík- ur, Tjamargötu 20, aðeins opin á næstunni kl. 6—7 siðdegis dag- lega. ■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I ■ ■ j Ný fram- { haldssaga 1 gær lauk hér í blaðinu I framhaldssögunni „I ham- j ingjuleit" eftir Gwen j : Bristow, en sú saga naut ■ j mikilla vinsælda meðal lee- : enda. Þjóðviljinn væntir j ■ þess að sú saga sem hefst ■ j í dag í blaðinu eigi einnig ■ j eftir að njóta almennra j vinsælda. Sagan nefnist j ■ „Óboðinn gestur“ og höf- j j undurinn er Charles Beau- j : mont.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.