Þjóðviljinn - 18.07.1963, Qupperneq 1
Fimmtudagur 18. ijúlí 1963 — 28. árgangur — 158. tölublað
Mjólkurfræðingar hafa
boðað verkfall
Ágreiningurinn stendur einkum
um aldursuppbót á laun
Iðnaðar-
menn enn í
samningum
★ Enn er ósamið við
nokkur félög iðnaðarmanna,
þótt samningaviðræður
muni hins vegar standa yf-
ir við flest þeirra sem ó-
samið er við. S.l. mánu-
dagskvöld var fundur með
samninganefndum trésmiða
og meistara og náðist ekki
samkomulag. Annar fundur
var boðaður í gærkvöld, og
var blaðinu ekki kunnugt
um niðurstöðu hans.
★ 1 fyrradag náðist sam-
komulag milli pípulagn-
ingamanna og meistara og
fá pípulagningamenn 13%
kauphækkun.
★ Þá samþykkti Félag ís-
Ienzkra rafvirkja einnig
nýja samninga á fundi í
fyrrakvöld, og hækkar kaup
þeirra um 13%. Einnig fá
þeir kr. 0.75 í verkfæra-
gjald á timann og er það
nýmæli í samningum
þeirra. Rafvirkjar með próf
frá rafvirkjadeild Vélskól-
ans fá 10% hærra kaup en
almenni textinn segir til
um. Einnig var samið í
fyrsta skipti um kaup
flokksstjóra (15% hærra en
sveinakaup) og nokkrar
aðrar lagfærlngar gerðar á
samningunum í heild.
■■■■>■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■«
Mjólkurfræðingafélag ís-
j lands hefur boðað vinnu-
■ stöðvun hjá Mjólkursamsöl-
: unni frá miðnætti aðfaranótt
j laugardags, ef ekki hafa tek-
■ izt samningar fyrir þann
j tíma. Sáttasemjari ríkisins
j hafði fund með deiluaðilum
: í fyrrakvöld og varð hann
j árangurslaus- Næsti fundur
■ er boðaður kl. 4 næstkom-
j andi föstudag.
■
■
: Þjóðviljmn hafði í gaer sam-
j band við Sigurð Runólfsson, en
■ hann er formaður Mjólkurfrseð-
■ ingafélagsins og jafnframt samn-
: inganefndar mjólkurfræðinga.
: Sigurður sagði að samkomulag
■ væri þegar orðið í meginatrið-
; um, ágreiningurinn stæði eink-
: um um aldursuppbót mjólkur-
j íræðinga. Lagði félagið mikla
j áherzlu á að fá þeim kröfum
j framgengt. Mjólkurfræðingar
j eru mjög bundnir af starfi sínu
j og meðal annars af þeim sökum
j teldu þeir eðlilegt, að þeir njóti
j aldursuppbótar á sama hátt og
aðrir fastir starfsmenn. Á það
má benda, að launahækkanir eft-
ir starfsaldri eru meðal megin-
atriða í úrskurði þeim, sem ný-
iega var kveðinn upp um kjör
opinberra starfsmanna.
Sigurður kv^ð félagið áður
hafa sett fram kröfumar um
aldursuppbót, og hefði félagið
nú tekið þær upp að nýju og
vænti þess að þeim yrði mætt
af skilningi.
Hvað gera Norðmenn
í húsnæðismálum?
1 skýrslu norska fuiltrúans
á norrænu húsnæðismálaráð-
stefmmni komu fram ýmsar
merkar upplýsingar um þró-
un húsnæðismála í Noregi.
Þar sem víðar er mikil eftir-
spum eftir húsnæði í borgum
og bæjum, og norska ríkið
hefur forgöngu um öfluga
lánastarfsemi og aðra fyrir-
greiðslu fyrir húsbyggjendur.
Einbýlishús og rað-
hús vinna á
Á síðustu árum hefur orðið
sú breyting á íbúðabygging-
um í Noregi, að einbýlishús
og raðhús hafa rutt sér mjög
til nims á kostnað húsa með
2—4 íbúðir, þar sem þver í-
búð er á hæð út af fyrir sig.
íbúðablokkir eru hins vegar
stöðugt mjög stór þáttur í
byggingunum, eða 30—37% á
árunum 1953—1958.
Stærri íbúðir
Þróunin gengur yfirleitt í þá
Íbuðirnar stækka
—hagkvæm lán
til langs tíma
átt að byggðar eru stærri íbúð-
ir, en nokkrar sveiflur eru ár-
lega í byggingunum hvað þetta
snertir. Árið 1956 voru 14,3%
lbúðanna 2ja herbergja, 39,5%,
3ja herbergja, 22,7%, 4ra her-
bergja og 17,4%, 5 herbergi og
þar yfir (auk eldhúss i öllum
tilfellunum), en árið 1961 voru
hlutföllin sem hér segir: 8,8%
voru 2ja herb., 26,8% voru 3ja
herb., 38,3% voru 4ra herb. og
19,3% voru 5 herb. Eins og sjá
má af þessu fækkar minni íbúð-
urri allverulega og hefur meðal-
stærð íbúða aukist á árunum
1951—1962 úr 62,8 fermetrum
vpp í 74,6 ferrri.
Tala fullgerðra íbúða í Nor-
egi 1956—1962 hefur verið sem
hér segrn
1956 27.281 íbúðir
1957 26.515 —
1958 26.494 —
1959 26.566 —
1960 26.773 —
1961 28.260 —
1962 27.767 —
Gert er ráð fyrir að svipuð
tala íbúða og sl. ár verði tekin
í notkun á þessu ári.
Lán til langs tíma
— lágir vextir
Ríkislán til íbúðabygginga i
Noregi nema ekki eins háum
hundraðshluta byggingarkostn-
aðar og t.d. í Sviþjóð og Dan-
mörku, en eru þó yfirleitt tveir
þriðju til þrír fjórðu hlutar af
byggingarkostnaðinum. Láns-
timi er 40—60 ár og vextir mjög
lágir; af húsnæðismálalánum rík-
isins 3,5%, en allt upp í 5%,
á almennum lánamarkaði.
Vanefndir á greiislum til kennara
Á síðasta ári gaf mennta-
málaráðuneytið út erindis-
bréf um starfsbætti kennara.
Voru í því ýms gagnleg á-
kvæði kennurum til hags-
bóta, en þegar til kastanna
kom reyndist ráðherrann
ekki hafa gert neinar ráð-
stafanir til að framkvæma
ýms fyrirheit erindisbréfs-
vinnutilhögun,
greiðslur fyrir aukavinnu og
biðtíma.
Stóð lengi í stímabraki af
ms
um
Útsölumaðurinn með blaðavagninn sinn
Munið atkvæða-
greiðsluna —
blaðamenn!
Blaðamenn eru minntir á að
allsherjaratkvæðagreiðslunni um
heimild til handa stjórn B.l. til
boðunar vinnustöðunuar fer fram
i skrifstofu félagsins, Vesturgötu
25, og lýkur kl. 3 síðdegis í dag.
þeim sökum eins og greint^
var frá hér í blaðinu, en
svo fór að lokum að ráðherr-
ann Jelldi úrskurð um
greiðslur til kennaranna-
Þrátt fyrir það er enn víða
svo ástatt að bæjarstjómir
þrjózkast við að greiða kenn-
urum það kaup sem þeir
eiga heimtingu á samkvæmt
þessum úrskurði, og eru
menn að vonum orðnir lang-
þreyttr á þessum síendur-
teknu vanefndum.
Aftur í bið
Ekki tókst Friðrik og Gligoric
að Ijúka biðskák sinni úr 8. um-
ferð Piatigorsky-mótsins í Los
Angelcs í annarri setu f fyrra-
dag.
Skákin fór aftur í bið, er alls
höfðu verið leiknir 75 leikir. Þá
hafði Friðrik hrók og tvö peð á
móti riddara og tveim peðum
Júgóslavans.
Biðskák þeirra Benkös og Res-
hevskys úr sömu umferð lauk
hinsvegar með jafntefli.
f 9. umferð tefldi Friðrik Ól-
afsson við Najdorf og hafði
svart.
Myndin hér að (ifan er af Pálma Sigurði Ólafssyni blaðsölumanni á Akureyri þar scm hann er
*ð selja blöð af fullum krafti úr vagninum sínum á Ráðhústorginu. Eins og kom fram í stuttu
viðtalii við Pálma, sem birtist í Þjóðviljanum í gær, hefur hann leikið keppinauta sína í þessari
grein hart; gárungamir segja að hann sé búinn að setja á hausinn fjórar blaðasölur á Akureyri
frá því í vor! — (Myndina tók Ijósmyndari Þjóðviljans G. M.).
Samningar málará—Sjá 2.síðu
Skálholtskirkja er verk
Harðar Bjarnasonar húsam.
Ýmsir urðu til þess í gær að svara þeirri spurningu hver
teiknað hefði Skálholtskirkju hina nýju, en í íslandshefti
norska blaðsins Norges Handels og Sjöfartsidende var
Magnus Poulsson arkítekt talinn höfundur hennar. Bar
svörunum saman um að frásögn norska blaðsins stafaði
af algerum misskilningi og hefði Hörður Bjarnason húsa-
meistari ríkisins teknað Skálholtskirkju.
Höfundur greinarinnar í norska
blaðsinu Mads Vibe Lund ljósm.
kom að máli við Þjóðviljann í
gær, og kvað missögnina sprottna
frá norska blaðinu Aftenposten;
hefði hann notað þá heimild án
þess að kanna málavexti. Þegar
hið rétta kom í ljós hefði Norg-
es Handels og Söfartstidende
birt leiðréttingu, og einnig kvaðst
Mads Vibe Lund hafa reynt að
koma leiðréttingu á framfæri
sem víðast, m.a. við íslenzku
blöðin. Ekki virðist slík leiðrétt-
ing þó hafa borizt Þjóðviljanum.
Hörður Bjamason húsameistari
ríkisins kom einnig að máli við
Þjóðviljann í gær og sagði frá-
sögnina í norska blaðinu mis-
sögn eina. Kvaðst Hörður, þegar
honum var falið að teikna kirkj-
una, hafa haft samráð við sér-
fróða menn innan lands og utan,
m.a. við norska arkítektinn
Magnus Poulsson sem var sér-
fróður um endurreisn kirkna í
Noregi, einnig við Sigurð heitinn
Guðmundsson arkítekt, skipu-
lagsstjóra og fleiri góða menn.
Hefði allra þeirra sem lagt hefðu
í té góð ráð og bendingar verið
getið þegar homsteinn var lagður
að kirkjunni. Hins vegar kvaðst
Hörður einn hafa teiknað kirkj-
una og vilja bera alla ábyrgð á
því verki hvort sem mönnum lík-
aði árangurinn betur eða verr.
Hörður benti einnig á að
spumingin um það hvort Magn-
Fullorðinn
maður varð
fyrir bíl
1 gær varð fullorðinn maður
fyrir bíl á Hverfisgötunni og
hlaut hann minni háttar meiðsli
á höfði. Maðurinn var fluttur á
Landakotsspítalann, og voru
meiðsli hans ekki talin alvarleg
usi Poulsson hefði verið boðið til
Skálholtshátíðarinnar svaraði sér
sjálf. Hann lézt semsé 1957 —
fyrir sex árum.
Sósíalistar
í Reykjavík
Vegna sumarleyfa verður skrif-
stofa Sósíalistafélags Reykjavík-
ur, Tjamargötu 20, aðeins opin
á næstunni kl. 6—7 siðdegis dag-
lega.
■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■I
■ ■
j Ný fram-
{ haldssaga
1 gær lauk hér í blaðinu I
framhaldssögunni „I ham- j
ingjuleit" eftir Gwen j
: Bristow, en sú saga naut ■
j mikilla vinsælda meðal lee- :
enda. Þjóðviljinn væntir j
■ þess að sú saga sem hefst ■
j í dag í blaðinu eigi einnig ■
j eftir að njóta almennra j
vinsælda. Sagan nefnist j
■ „Óboðinn gestur“ og höf- j
j undurinn er Charles Beau- j
: mont.