Þjóðviljinn - 19.07.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 19.07.1963, Qupperneq 1
■miuu*><«HiiiHHuaiWHHUiHmiiuiHiimmimimM*inHuaiiuiniiHuiii»iimauuiiHuiiamiiiiiiiiinmiiiimiii«riM»> 'K fimrníu síðu blaðsins er grein um | rússneska fútúristann Vladimír Majakov- skí. Ámi Bergmann skrifar greinina og þýðir jafn'framt eitt kvæði Majakovskís: Vinsamleg afstaða |il hesta. Hreinasfa mildi að ekki varcS slys á mönnum Með endemum allt til loka ■ Eins og Þjóðviljinn skýrði frá í gær eru kennarar orðnir lang- þreyttir á að bíða eftir greiðslum fyrir biðtíma og eftirvinnu sem á- kveðnar voru með er- indisbréfi Gylfa Þ. Gíslasonar mennta- málaráðherra og síðan úrskurði hans, en kenn- arar unnu allan síðast- liðinn vetur án þess að staðið væri við fyrir- heit erindisbréfsins um þessi atriði. Að lokum úrskurðaði Gylfi að bæjarfélögin skyldu greiða þessar upphæðir en þau hafa víða tregðazt við eins og rakið var í blaðinu í gær. Ástæðan til þessara viðbragða bæjarfélaganna mun vera sú að ráðherr- ann hafði ekkert samráð við þau áður en hann lagði á þau greiðsluskylduna. Hafa bæ’jarfélögin kraf- ið fræðslumálaskrifstofuna og menntamálaráðherra svara um það hvernig þetta fyrirkomulag sé hugs- að og að hve miklu leyti ríkissjóður mundi endur- greiða þetta fé, en engin svör hafa enn borizt. Virðast vinnubrögð stjórnarvaldanna í þessu máli ætla að verða með sömu endemum allt til loba — og enn bíða kennarar víðast hvar eftir efndum á ársgömlum loforðum. Um ellefu leytið í gærkvöld varð gífurlegur eldsvoði í Reykjavík. Eld- ur kom upp í verksmiðjuhúsinu ísaga, sem stendur við Rauðarárstíg. Verk- smiðjan framleiðir acetylgas og súr- efni. Urðu svo gifurlegar sprengingar í gaskútum, að allt nötraði og skalf og logana bar við himin. I*ó tókst að verjast því, að eldurinn kæmist í súr- efniskúta, sem geymdir eru í bak- hýsi. Ekki varð tjón á mönnum í elds- voðanum og má það teljast mildi, því brotin úr gaskútunum flugu hátt og víða. Eins og að líkindum lætur fékk brunalið við ekk- ert ráðið. í' rúma klukkustund gall við hver sprengingin annari meiri er gaskútamir sprungu. Hringt var á S'ökkvistöðina alla leið ofan úr Borgamesi og spurt hvað væri eiginlega á seyði. Gr Kópavogi berast þær fréttir, að þar hafi jörð öll nötrað. Það var ekki fyrr en uppúr miðnætti, sem eidinn tók að lægja. Brunalið heldur strangan vörð um húsið enda ekki vanþörf á, því lengi gebur verið sprenginga von. Virðist einsætt, að tannað verði framvegis að staðsetja slikar verk- smiðjur inni í miðri borg, svo voðaleg eldhætta sem af þeim stafar. Sjónarvottum mun öllum bera saman um það, að það verði að teljast oinstök miidi, að ekki skyldi verða mannskaði í bruna þessum. Þjóðviljinn reyndi í nótt að ná tali af hafn- arstjóra Valgeiri Bjömssyni, sem er fram- kvæmdastjóri ísaga h.f. en tókst ekki. Verður því ekki með vissu sagt um tjón það, er hér hefur orðið, en víst er að það skiptir milljónum. Síðar um nóítina fckkst staðfesting á því, að tveir menn hafi fverið Iokaðir innj i bakhýsi því, er súrefni er geymt í. Sluppu þeir út heilir um hálf tvö leytið í nótt. Er hér enn einn vottur þess, hve voðalega hefði hér getað farið. Slysavarðstofan upplýsir það, að ekki hsfi orðið slys af völdum braksins, er þeyttist úr Samningafundurínn stóð / rúmiega 14 klukkustundir SamiS v7ð frésmiði, murara og rakarasveina Samninganefndir trésmiða og meistara undirrituðu á 12. tímanum í gærmorgun nýja samninga og hafði samninga- fundur þá sfcaðið frá því kl. 9 í fyrrakvöld. Samningarnir eru háðir samþykki félags- funda viðkomandi aðila, en í aðalatriðum eru þeir á sama grundvelli og samn- ingar þeir sem önnur iðn- aðarmannafélög hafa gert að undanfömu. Nánar verður skýrt frá samningunum í blaðinu, þeg- ar búið er að leggja þá fyrir félagsfundi viðkomandi að- ila til staðfestingar, en það verður trúlega um eða eftir helgina. Þá hafa einnig tekizt samningar með múrurum og múrarameisturum, og verða þeir samningar einnig lagðir fyrir félagsfundi viðkomandi aðila næstu daga. Rabarasveinar hafa einnig samið við meistara og fela samningarnir í sér um 16% kauphækkun. Samningarnir áttu að leggjast fyrir félags- fundi viðkomandi aðila i gær. húsinu. Rúður brotnuðu í næstu húsum, svo var loftþrýstingurinn mik- lill. Þjóðviljinn hefur spurnir ai því, að undir húsinu sé grafinn stór gasgeymir. Fari svo, að hann springi, þarf ekki að Iýsa hverjar afleiðingar geta orðið. (Ljósnt. bjóðv. A. K. tók myndina). Töluverð síld SIGLUFIRÐ 18/7 — Hér hefur verið töluverð síld, og er nú salt- að á átta plönum. Söltun hófst kl. hálf sex i morgun, og er verið að enn. Er þetta fyrsta verulega söltun hér. Síldin er mjög grunnt, í fjarðarkjaftinum, og er að henni aðeins um klukkustundar stím. Veður er ágætt. Sem dæmi um þessa sild má nefna það, að Jón Garðar salt- aði 500 tunnur í gær, 400 í dag og kemur með 350 klukkan 11 í kvöld. Garðar Þorsteins fór út síðari hluta dags og var búinn að fá 400 tunna kast eítir klukkutíma. Pétur Jónsson fór út kl. 7 og var búinn að kasta kl. 8. Hann fékk 350 tunn- ur. Margir bátar eru nú að á þessum slóðum.

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.