Þjóðviljinn - 23.07.1963, Síða 1
Þriðjudagur 23. júlí 1963 — 28. árgangur — 162. [tölublað.
Viðræðum sovézkra og kínverskra
kommúnista skotið á frest um sinn,
eru ekki taldar hafa borið árángur
■
Sjá tíundu síðu j
Flugvél hlekktist
á í lendingu
Á laugardagskvöldið' hlekktist lítilli flugvél á í
lendingu á flugvelilnurn fyrir botni Siglufjar'ðar.
í flugvéi'nní voru tveir Akureyringar, Einar
Björnsson flugmaður, og Hreinn Pálsson, og
sluppu þeir ómeiddir. Sést flugvélin hér á mynd-
inni, en hún skemmdist talsvert. (Ljósm. G.M.).
Nánari frétt á 10. síðu
Búizf viS undirrifun innan fvegg]a sólarhringa
Sáttmáli á næsta leíti um
bann vii kjarnatilraunum
MOSKVU og WASHINGTON 22/7 — Mönnum ber saman um að undir-
ritun sáttmála um takmarkað bann við kjamasprengingum sé nú á næsta
leiti og er jafnvel búizt við að sáttmálinn muni undirritaður á morgun,
en ekki síðar en á miðvikudag. Sérfræðingar samningamannanna eru nú
að leggja síðustu hendur á sáttmálann og í óstaðfestum fregnum er sagt
að fulltrúi Bandaríkjanna, Averell Harriman, muni fara heim til Washing-
ton á miðvikudag. Margir vænta þess að sáttmálinn muni marka tíma-
mót í samskiptum Sovétríkjanna og vesturveldanna og samningar um
önnur ágreiningsmál muni ganga greiðar að honum undirrituðum.
Samir'" '"mefndimar sátu á
fundi í ir klukkustundir í dag
og var það lengsti fundur þeirra
fram að þessu. Að fundinum
lokrium var sagt að á honum
hefði enn miðað í átt til fulls
samkomulags um bann við kjarn-
orkusprengingum.
Það þykir benda til þess að
viðræðurnar séu nú komnar langt
áleiðis, að formenn samninga-
nefndanna, þeir Harriman, Hails-
ham lávarður og Andrei Gromi-
ko, komu saman einir á fund
að loknum fundi nefndanna í dag.
Ekkert var þó látið uppi um
GENGID TIL SKALHOL TSKIRKJU
Myndin var tekin við kirkju-
Bræla á síldarmiðunum
og flotinn í höfn
■ SIGLUFIRÐI 22/7 — í gær og dag hefur verið rigning hér á Siglu-
firði og bræla á síldarmiðunum og liggur flotinn í höfn.
■ Brælan gaus upp kl. 3 í fyrrinótt, þegar hvessti á norð-austri, en síðan
hefur verið austan og norðaustan bræla á síldveiðimiðunum.
■ Allmörg veiðiskip liggja hér á Siglufirði, en aðalflotinn liggur inni á
Raufarhöfn og Seyðisfirði, svo og í Ólafsfirði. Húsavík og Neskaupst. G.M.
dyr í Skálholti sl. sunnudags-
morgun, er prestar og biskupar
gengu í prósessíu til kirkjunn-
ar. Fremst, lengst til hægri á
myndinni, sést einn sóknar-
ncfndarmanna, en síðan koma
þeir séra Gunnar Jóhannsson
héraðsprófastur og sr. Guðmund-
ur ÖIi Ólafsson sóknarprestur;
að baki þeim koma svo aðrir
vígsluvottar, þá sr. Bjarni Jóns-
son vígslubiskup og loks biskup-
inn yfir Islandi, hr. Sigurbjörn
Einarsson. (Ljóm. Þjóðv. A. K.).
Fleiri myndir
eru á 5. síðu,
*iá og 10. síðu.
hvað þeim hefði farið á milli,
en þess er getið til að þeir hafi
rætt um tillögu sovétstjórnarinn-
ar um að gerður verði griðasátt-
máli milli hernaðarbandalaga
stórveldanna.
Ganga frá orðalagi
Ráðunautar samninganefnd-
anna voru á fundi í allan morg-
un og að því bezt er vitað voru
þeir að ganga frá endanlegu
orðalagi sáttmálans. 1 Moskvu
eru menn sannfærðir um að til-
kynning um að samkomulag hafi
náðst muni gefin út eínhvem
allra næstu daga.
Innan tveggja sóarhringa
Franska fréttastofan AFP segir
að í Washington sé talið að sátt-
málinn muni undirritaður innan
tveggja sólarhringa.
Hinsvegar er þar með ekki
fullvíst að sáttmálin gangi í gildi
strax — og getur það dregizt á
langinn. Kennedy forseti hefur
ákveðið að bera sáttmálann und-
ir öldungadeild þingsins til full-
gildingar og þótt búizt sé við að
hann muni tilskildan meiri-
hluta þykir líklegt að harðar
umræður verði um fullgilding-
una.
Hörð andstaða
Herskáustu öflin í Bandaríkj-
unum halda því fram að ef slík-
ur sáttmáli, sem bannar allar
kjamasprengingar nema þær sem
gerðar em neðanjarðar, verði
gerður, muni það efla mjög víg-
stöðu Sovétríkjanna gagnvart
Bandaríkjunum, þar sem þau séu
nú komin lengra í smíði varnar-
flugskeyta, en Bandaríkjamönn-
um sé nauðsyn að gera tilraunir
í andrúmsloftinu með slík skeyti,
sem búin eru kjamahleðslum. ef
þeir eigi að jafna metin. Er búizt
við að þessi öfl muni berjast af
alefli gegn fullgildingu sáttmál-
En í Kína og í Albaníu kveður
við annan tón. Þar er því haldið
fram að með sáttmálagerðinni
séu Sovétríkin að láta undan síga
fyrir Bandaríkjunum sem jafnan
hafi notað kjamavopnin til að
neyða aðra til að láta að vilja
sínum. Tilgangurinn sé sá að
reyna að koma í veg fyrir að
Kína verði það afl sem staðizt
geti Bandaríkjunum snúning. líka
á sviði kjamavopnanna.
Von um frekari samninga
Bæði austan tjalds og vestan
eru menn á eitt sáttir um að
sáttmálinn um takmarkað bann
við kjamasprengingum geti orðið
til að marka tímamót í samskipt-
um stórveldanna. Vart fari hjá
því að sáttmálinn muni auðvelda
mjög lausn annarra deilumála,
en þetta hefur fengið misjafnar
undirtektir á vesturlöndum.
Þannig fara vesturþýzkir ráða-
menn ekki dult með þá skoðun
sína að varast beri alla frekari
samninga við Sovétríkin.
Sendiráðsmaður
USA biðst hælis
MOSKVU 22/7 — Einn af starfs-
mönnum bandaríska sendiráðs-
ins í Moskvu, Victor Norris Ha-
vilston að nafni, hefur beðið um
hæli í Sovétríkjunum sem póli-
tískur flóttamaður, segir mál-
gagn sovétstjómarinnar „Isvest-
ía“. Hann var sérfræðingur í
dulmálslyklum sendiráðsins.
Benkö með vinn-
ingsstöðu gegn
Friðrik í L. A.
Vegna veikinda Reshev-
skys og Keresar var 11.
umferð skákmótsins. í Los
Angeles frestað um helg-
ina, en 13. umferð tefld í
staðinn. tJrslit urðu þau
að Najdorf og Petrosjar.
gerðu jafntefli, en aðrar
skákir fóru í bið, þar á
meðal skák þeirra Friðriks
Ólafssonar og Benkös. Er
staða Friðriks í skákinni
talin vonlaus.
Bana-
slys
í gær
Laust eftir klukkan þrjú
í gær varð það hörmulega
slys í Reykjavík, að lítil
stúlka, aðeins fimm ára
gömul, varð fyrir bíl og beið
bana. Málsatvik eru bau,
að litla stúlkan var stödd
til móts við húsið nr. 18
við Mýrargötu, þegar bif-
reið var ekið vestur Mýr-
argötuna. Segir sjónarvott-
ur að slysinu, að litla stúlk-
an hafi hlaupið skyndilega
þvert út á götuna. Stúlkan
lenti fyrir hægra framhomi
bílsins og kastaðist i göt-
una. Var hún enn með lífs-
marki, en andaðist í Landa-
kotsspítala skömmu síðar.
Bifreiðinni, sem var fólks-
bíll af austur-þýzkri gerð,
ók ungur maður. Telur hann
sig hafa orðið telpunnar
var á gangstéttinni, en síð-
an ekki fyrr en slysið varð.
Ekki er vitað um neitt að-
gæzluleysi frá hans hálfu,
er orsakað gæti slysið.