Þjóðviljinn - 26.07.1963, Side 1
I — Beðið „í ofvæni eftir I
W W |
| hermannasjónvarpinu" — |
1 Sjá 10. síðu j
Stórveldin ganga frá samningi um
bann við tilraunum með kjarnavopn
MOSKVU, LONDON og WASHINGTON 25/7. FuIItrúar Bandaríkjanna,
Bretlands og Sovétríkjanna undirrituðu í dag samning sem bannar allar
tilraunir með kjamavopn í andrúmsloftinu, úti í himingeimnum og und-
ir yfirborði sjávar. Bæði í austri og vestri hafa menn látið í ljós vonir
um að samningur þessi muni leiða til frekari afvopnunar, draga úr við-
sjám í alþjóðamálum og efla skilning þjóða í millum. Utanríkisráðherrar
Bandaríkjanna og Bretlands, þeir Dean Rusk og Home lávarður, munu
bráðlega fara til Moskvu og undirrita samninginn endanlega fyrir hönd
ríkisstjóma sinna.
Fulltrúar þríveldanna, þeir
Averell Harriman aðstoöarutan-
ríkisráðherra, Hailsham Iávarður
og Andreí Gromiko utanríkisráð-
herra, undirrituðu samninginn í
Spiridinova-höllinni í Moskvu
klukkan 16.15 að íslcnzkum tíma.
Aðalfulltrúarnir þrír ræddu um
stund við fréttamenn eftir undir-
ritunina. Lýstu þeir því yfir að
þeir teldu samninginn mjög mik-
ilvægan og kváðust fagna því
ákaflega að samkomulag skyldi
hafa náðst. Harriman skýrði
fréttamönnum frá því að Dean
Rusk og Home lávarður myndu
bráðlega koma til Moskvu og
undirrita samninginn ásamt Gro-
miko, utanríkisráðherra Sovét-
ríkjanna. Þeir Harriman og
Hailsham munu bráðlega halda
heim frá Moskvu.
Afvopnun markmiðið
í samningnum er kveðið á um
það að samkomulag þetta sé gert
til ótakmarkaðs tíma og að öll
ríki sem kæra sig um geti gerzt
aðilar að samningnum. Sérhvert
ríki sem undirritað hefur samn-
Maður lézt í
sund/auginni
64 ára gamall maður, Har-
aldur Ingvarsson lézt með
sviplegum hætti í Sundlaug
Vesturbæjar rétt fyrir hádegi
í gær. Haraldur var öryrki. en
kom stundum í laugina sér
til hressingar, var hann þá
vanur að hafa kút, svo var og
í gær. Allt í einu tók nær-
staddur maður eftir því, að
Haraldur var hættur að synda
og virtist eitthvað vera að.
Hann hraðaði sér til hans og
þegar hann kom að sá hann
að höfuð Haraldar hafði fallið
fram og í vatnið og var hann
örendur.
Liklegt þykir að Haraldur
hafi orðið bráðkvaddur, en
krufning á líkinu hafði ekki
farið fram í gær.
inginn getur sagt honum upp
ef það telur slíkt nauðsjmlegt
öryggis síns vegna. Samningur-
inn gengur í gildi um leið og
Framhald á 3. síðu.
Færeyska skipið Blikur
sekkur við Grænland
Skömmu fyrir miönætti á miövikudag rakst færeyska
flutningaskipiö Blikur á ísjaka og sökk. Þetta skeöi við
Hvarf á Grænlandi. Mannbjörg varö, og er þýzka skipiö
Poseidon væntanlegt til Reykjavíkur meö skipbrotsmenn
á morgun.
Poseidon er nú á leið til
Reykjavíkur með skipbrotsmenn-
ina. Svo fremi skipið fái gott
veður er það væntanlegt til
Reykjavikur síðari hluta dags á
morgun. Sér Lúðvík Jóhannsson,
skipamiðlari um alla fyrirgreiðslu
Ekki hafa enn borizt af því
fréttir hvernig slysið vildi tiL
Skipið var á leið frá Færeyinga-
höfn, sem er á vesturströnd Græn-
lands, skammt fyrir sunnan Godt-
háb, að Hvarfi. Áhöfn og far-
þegar björguðust um borð I
þýzka eftirlitsskipið Poseidon.
Voru þeir 35 talsins. Um borð í
Blikur voru einnig þrír eða fjór-
ir litlir fiskibátar, er voru eign
færeyskra fiskimanna.
þeirra hér.
Tilkynnt er, að mikill ís sé nú
á siglingaleiðum, og við strendur
Grænlands og í Julianeháb-fló-
anum eru miklir erfiðleikar sök-
um ísa.
Mynd þessi var tekin er ráft-
stefnan um tilraunabann hófst
í Moskvu hinn 15. þessa mán-
aðar og sýnir (frá vinstri)
Gromiko, utanríkisráðherra
Sovétríkjanna, Harriman, að-
stoðarutanrikisráðherra Banda-
ríkjanna, Krústjoff, forsætis-
ráðherTa Sovétríkjanna og
Hailsham lávarð, vísindamála-
ráðherra Bretlands. Að baki
þeim standa ýmsir ráðgjafar oe
sérfræðingar. f upphafi höfðu
fulltrúamir í frammi ýmsa
gamansemi með Krústjoff í
broddi fylkingar og gerðu menn
sér vonir um að það hoðaði gott
um árangur viðræðnanna. Þær
vonir rættust í gær.
Ætla að kanna gróður og berg obyggða
—munu dveljast hér / einn mánuð
í gærmorgun kom hingað
með Gullfossi hópur brezkra
skólanemenda frá Grammar
Technical School í Kent. Hóp-
ur þessi ætlar að dveljast hér
í einn mánuð undir leiðsögn
kennara sinna og kanna gróð-
urlif og berglög á svæðinu
milli Húsafélls og Geysis.
Frasðsluskrifstofa Reykjavíkur
hefur útvegað þeim gistingu
í Langholtsskólanum fyrstu og
síðustu nætumar, en á fjöllum
gista þeir í tjöldum. Þeir hafa
góðan viðleguútbúnað og næg-
ar vistir.
Jónas B. Jónsson fræðslu-
stjóri tjáði fréttamanni Þjóð-
viljans í gær. að það færist
sífellt í vöxt að hópar sem
þessi komi hingað. T. d. hafa
þegar komið milli 10 og 20
slíkir í sumar og verið útveg-
uð gistinr: í skólum borgarinn-
ar. Hópar þessir eru aðallega
frá Bretlandi. Jónas kvað sér
það mikla ánægju að greiða
fyrir þessum hópum, fram-
koma piltanna væri til fyrir-
myndar og umgengnin eins og
bezt verður á kosið.
Tveggja dálka myndin var
tekin þegar piltamir frá Kent
stigu á land í Reykjavík í
gærmorgun. Á hinni mynd-
inni, sem tekin var um svip-
að leyti, sést einn af farþeg-
unum með Gullfossi stiga á
reiðhjól andartaki ertir að
hafa sloppið í gegnum toll-
skoðunina. (Ljósmynd Þjóðv.
A. K.).