Þjóðviljinn - 28.07.1963, Síða 1

Þjóðviljinn - 28.07.1963, Síða 1
Mikil síld til Seyðisf jarðar Seyðisfirði 27. júlí — I gær var saltað hér i 5329 tunnur og er það mesia söltunin á einum degi í sumar. Heildarlsöltunin var orð- in á sl. miðnætti 20.991 tunna, og er saltað á sjö plönum. Sú sild sem fengizt hefur undan- farna daga hefur öll farið í sölt- un. Það hefur verið hálfleiðin- Iegt vcður og hafa aðeins þeir bátar sem nota kraftblakkir get- að athafnað sig á veiðisvæðinu. Aftur á móti hefur norski flot- inn Iítið sem ckkert gctað verið að í þrjár vikur og hefur legið hér á Seyðisfirði af og til. 1 dag eru hér milli 120 og 150 norsk- ir bátar. Síldin sem hingað hef- ur komið er að mestu af veiði- svæðinu út af Bjarnarey en £ gær veiddist mest á Reyðarf jarðar- dýpi, sunnan Da’.ajanga, en hún er meira blönduð. — GisIL :: m ...... ... ■-. > -* ' • ; ÍÉillÍí! Styðja Portúgala me5 hlutleysi NEW YORK 27/7 — Bandarík- in og England undirstrikuðu það i öryggisráðinu í gær, að þau geti ekki stutt ályktun þá, er Ghana, Marokkó og Fillips- eyjar hafa lagt fram um stefnu Portúgala i Afríku. í ályktuninni var Öryggisráð- ið hvatt til þess að krefjast nú þegar aðgerða af hálfu Portú- gala, er miði að því að veita nýlendum þeirra í Afríku sjálf- stjóm hið allra fyrsta. Portú- galar eru hvattir til þess að láta _■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■»■■■■■■■■■•■ | Tjaldbúðir j j áAkureyri \ • Það ber öllum ferðamönn- j j um saman um, að sú að- : j staða sem Akureyrarbær : j hefur skapað tii dvalar í ■ ■ tjaldbúðum þar i bæjar- : • landinu sé til mikiliar : i fyrirmyndar. Á efrí mynd- : 5 inni sést yfir tjaldstæðið ■ j á Akurcyri. Hin myndin cr j af einni fjölskyldunni, sem j i gisti í tjaldi þar á dögun- : i um. Það er Guðmundur ■ ■ ; ■ Eggertsson vörubílstjórl : ■ í Gnindavík, ásamt konu i i sinni Margrcti Guðmunds- \ i dóttur og börnum þeirra: • Jóhanni, Guðrúnu, Sjöfn • • og Steinunni Önnu. Mynd- j 5 Ir af fleirl ferðamönnum, j i innlendum og erlendum, ■ j scm gist hafa í Akureyrar- ■ ■ tjaldbúðunum, er að flnna j i í miiðopnu blaðsins í dag, j ásamt viðtölum. nú þegar af kúgun sinni og of- beldi, og draga til baka herstyrk sinn í Afríku. Fulltrúi Breta, Sir Patrick Dean, lét svo ummælt, er rædd var tillaga ríkjanna þriggja, að ályktunin væri byggð á þeirri forsendu, að ástandið í nýlend- um Portúgala í Afríku væri ógnun við heimsfriðinn. Hann kvað ensku stjórnina ekki geta verið þessu sammála, og því myndi hún ekki styðja tillöguna. Fulltrúi Norðmanna í ráðinu, Sivert Nielsen, lýsti þeirri skoð- un sinni, að það væri þakkar- vert af leiðtogum Afríkuríkja að leggja málið fyrir Sameinuðu þjóðimar í stað þess að hefja einhljða aðgerðir. Hann taldi, að nú væri tíminn kominn fyrir Portúgala að undirbúa íbúana i nýlendum sínum undir sjálfs- forræði. Hann kvaðst skilja mæta vel áhyggjur Afríkuleið- toga yfir vopnabúnaði Portúgala, og kvað Norðmenn fyrir löngu hafa hætt að láta þeim vopn í té. Ömurleg aðkome í Skoplje Um þrír fjórðu hlutar borg■ arinnar eru nú rústir einar ■ rnmUh. \ Manntjón þó talið minna, en fyrstu fréttir hermdu. Þúsundir manna við björgnnar- og hjálparstörf. í fréttum í gær var frá því skýrt, að talið væri, að tíu þúsund manns hefðu látizt eða væri saknað, eftir jarðskjálft- ann mikla í Skoplje. Ljósf er nú, að sú tala fær á engan hátt staðlzt, og mun ástæðan fyrir villmmi vera prentvilla í frétta- skeyti frá heimildarmanni NTB. Fréttnm ber enn ekki saman um mannfjónið, en fullvíst er, að mörg hundruð manns hafa látið Iíflð. Hvaðanæva að úr heiminum berast Júgóslövum samúðar- kveðjur og boð um aðstoð. Þannig he.fur norska stjórnin ákveðið að veita 100 þús. no.rsk- ar krónur tij björgunarstarf- seminnar. í>jóðhöfðingjar álf- unnar hafa margir hverjir sent Tito forseta gamúðarkveðjur sínar, og alþjóðlegar hjálpar- stofnanir hafa þegar hafizt handa. Hafa þær senf blóð- Framhald á 3. síðu. Kuldalegt í Fnjóskadal um hásláttmn ÓVENJDLEGT KULDAKAST hefur ríkt á Norðurlandi nnd- anfarna tuttugu daga og mik- ill loftkuldí stafað frá ís- breiðu skammt frá Iandinu. Fyrri slætti er víða lokið, en gras sprettur illa og kart- öflugras hefur jafnvel falUð í næturfrostum. I FN.TÓSKADAL er fyrri slætti ekki lokið og er meðfylgjandi mynd býsna kuldaleg þegar þess er gætt að hún er tekin í ofanverðum júlímánuði. Sjást hér Kinnafjöllin snasvi þakin og bóndabýUið Böðv- arsnes í forgrunni. BÓNDINN er að snúa flekknum með snúningsvél í sólskininu og er myndin tckin fyrsta sólskinsdaginn eftir knlda- kastið, eða síðastUðinn fimmtudag. (Ljósm. Þjóðv. G. M.). Vel tekið tilraunabanni Bandaríkiaforseti fagnar samkomulaginu í Moskvu WASHINGTON 27/7 — í ræðu, sem Kennedy Bandaríkja- forseti hélt í nótt og útivarpað var, lét hann svo um mælt, að samningurinn um takmarkað bann við kjarnorkutil- raunum væri sem sólargeisli, er ryfi myrkur Kalda stríðs- ins milli austurs og vesturs- Samkomulagið þýðir það ekki, að öll heimsins vandamál séu leyst, en er eigi að síður sigttf- mannkynsins, sagði forsetinn í rœðu sinni. Samkomulagið felur ekki í sér neinar tilslakanir af hálfu aðilanna, en er einfaldlega viðurkenning á þeirri hættu, sem áframhaldandi tilraunum er samfara. Forsetinn vitn- , aði í gamlan kínverskan málshátt, sem svo hljóðar, að / | jafnvel þúsund mílna leið 'hefjist með einu skrefi. Kennedy sagði ennfremur, að samkomulagið útrýmdi ekki ó- friðarhættunni, og þörfin væri jafn mikil eftir sem áður fyrir vopn og bandamenn. Þó væri samkomulagið mikilvægt skref í átt að friði og skynsamlegum heimi. Fyrir átján árum hefði at- ómsprengjan endað heimstyrj- öldina og gjörbreytt öllum að- stæðum. Á árunum eftir stríð hefðu Sovétríkin og Bandaríkin oftlega skipzt á grunsemdum og aðvörunum, en alltof oft hefðu fundir þessara þjóða endað í ö- Framhald á 2. síðu.

x

Þjóðviljinn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.