Þjóðviljinn - 30.07.1963, Síða 1
DKMIINN
Þriðjudagur 30. júlí 1963 — 28. árgangur — 168. tölublað.
LITILL AFLI
Síldveiðin var mjög treg
síðustu viku, enda var oftast
nær kalsaveður og bræla á
miðunum. Þó fór veður batn-
andi fyrir helgina og dálítil
veiði var þá í Reyðarf jarðar-
djúpi, Digranesgrunni og út af
Bjarnarey.
Samkvæmt skýrslu Fiskifé-
lagsins var vikuaflinn aðeins
48.247 mál og tunnur (rúml.
336 þúsund í sömu viku í
fyrra) og er heiidaraflinn nú
556.951 mál og tunnur, en var
1.187.600 mál og tunnur á
sama tíma í fyrra.
178 skip hafa nú aflað yfir
1.000 mál og tunnur.
Síldveiðiskýrslan:
Sjá 2. síðu
Hafa 1500 faríit?
Þegar síðast fréttist höfðu 810 menn fundizt látnir í Skoplje,
júgóslavnesku borginni sem nú er að miklu Ieyti í rústum eftir
jarðskjálftann sem dundi yfir á föstudaginn var. 700 manna er
saknað og hugsanlegt talið að alis hafi um 1500 manns látið lífið.
Auk þess slösuðust menn mcira og minna og á myndinni sjást
nokkrir hinna særðu á elnu torgi borgarinnar. Sjá fréttir af björg-
unarstarfinu á 3. síðu.
Ráðgiofar frá Noregi um
skógrœktarmál á fslandi
Eins og skýrt hefur verið frá í fréttum, dvöldust þrír Norðmenn,
sérfróðir um skógræktarmál, hér á landii um hálfs mánaðar skeið
á vegum Skógræktar ríkisins. Feríuðust þeir um landið og kynnt-
ust íslenzkum skógræktarmálum, og voru jafnframt til ráðgjafar
um fyrirkomulag væntanlegrar tilrauna- og rannsóknarstöðvar
Skógræktarinnar að Mógilsá, cn sem kunnugt er hefur verið ákveð-
ið að verja norsku þjóðargjöfinm — einni milljón norskra króna
— sem Ólafur Noregskonungur færði fslendingum er hann heim-
sótti landið fyrir tveimur árum til tilraunastöðvar þessarar. A
myndinni sjást Norðmenmrnir þrír. Frá vinstri: Próf. J. Lág, jarð-
vegsfræðingur og kennarl við Iandbúnaðarháskólann í Ási, próf.
Elias Maak, tilraunastjóri, og Toralf Austin, skrifstofustjóri í
norska skógræktarráðuncytinu. — (Ljósm. Þjóðv. G. O.)
Leitað tveggja ungra
manna úr Reykjavík
Um helgina hur'fu
tveir ungir menn úr
Reykjavík. að heiman
frá sér og hefur þeirra
verið leitað bæði úr
flugvél og á sjó frá því
sunnudag, þar sem
talið er að þeir hafi far-
ið á sjó á lítilli trillu.
Piltamir, sem leitað er að, eru
Jörgen Viggósson, Sólheimum 27
og Kristinn Ölafsson, Höfðatúni
5. Fóru þeir að heiman frá
Kristni á sunnudagsnótt um kl.
3.30, og voru þá í leigubíl.
Á sunnudagsmorgun voru þeir
ókomnir heim til sín, en þó var
ekki farið að undrast um þá, fyrr
en faðir Jörgens varð þess var,
að trillubátur þeirra feðganna
var horfinn frá Grandagarði, þar
sem hann var geymdur. Var
Slysavamafélaginu og lögregl-
unni þá þegar gert aðvart, þar
sem líkur þóttu benda til, að
þeir félagar haíi farið út á trill-
unni.
Strax og kunnugt varð um
hvarf þeirra Jörgens og Kristins
var hafin leit bæði á sjó og úr
flugvéL
Seint í gærkvöld hafði ekkert til
piltanna spurzt. Hafin er að þeim
víðtæk leit, bæði á sjó og landi,
en enn sem komið er hefur hún
engan árangur borið. Orðrómur
er um það í bænum, að piltamir
hafi sézt sigla út að McCormack
amerísku skipi, sem liggur utan
við Engey.
63 fórust i
fíugslysi
BOMBAY 29/7. Á laugardaginn
hrapaði egypzk farþegaþota í
hafið fyrir vestan Bombay á Ind-
landi. Um borð í þotunni voru
63 menn og er fullvíst talið að
þeir allir hafi farizt. Brak úr
vélinni og eitt lík hcfur fundizt.
KAUPHÆKKUNUM VELT
YFIR Á NEYTENDUR
Ar Verðlag heldur áfram að hækka
dag frá degi. Nýlega samþykkti verð-
lagsnefnd að velta kauphækkun þeirri,
sem iðnaðarmenn hafa fengið, út í
verðlagið, og fengu atvinnurekendur að
leggja hálfa álagningu á hækkun þá
sem þeir sömdu nýlega um við iðnaðar-
mannafélögin.
-A" Ekki þótti þó öllum nóg að gert;
fulltrúi Vinnuveitendasambands íslands,
Björgvin Sigurösson, lagði til að at-
vinnurekendum yröi leyfð full álagning
á hækkunina. Hlaut hann sérstakan
stuðning frá fulltrúa Framsóknar-
flokksins, Stefáni Jónssyni, en hann
heíur þá ófrávíkjanlegu afstöðu í verð-
lagsnefnd að greiða alltaf atkvæði með
þeím hækkunum á vöruverði sem
lengst ganga. Ekki náði þetta kappsmál
þeirra félaganna fram að ganga að
fullu í þetta skiptið, en þeir taka það
eflaust upp á nýjan leik fljótlega.
ir Eins og menn muna var það ein af
helztu stefnujrfirlýsingum núverandi
stjórnar að hún myndi engin afskipti
hafa af samningum atvinnurekenda og
launþega og yröu atvinnurekendur að
standa sjálfir undir þeim kauphækk-
unum sem þeir féllust á án aðstoðar
hins opinbera. Reynslan hefur orðið sú
að hverri kauphækkun er velt út í
verðlagið með aukauppbót til atvinnu-
rekenda!
FriBrík í 3.-4. sæti
Þau urðu úrslit Piati-
gorsky-skákmótsins í Los
Angeles í Bandaríkjunum,
að sovézku skákmennimir
urðu efstir og jafnir en í
3. og 4. sæti voru þeir Frið-
rik Ólafsson og Najdorf. Er
þetta einhver bezta frammi-
Fundur blaða-
manna í dag
Fundur verður haldinn í Blaða-
mannafélagi lslands kl. 3 sið-
degis í dag, þriðjudag, i Nausti
uppi. Umræðuefni: Kjarasamn-
ingarnir. Áriðandi að félagsmenn
fjölmenni. — Stjórnin.
staða Friðriks á skákmóti
til þessa, því að þarna voru
saman komnir nokkrir af
snjöllustu skákmeisturum
heims með sjálfan heims-
meistarann í fararbroddi.
I lokaumferð skákmótsins
vann Keres Gligoric, en aðrar
skákir urðu jafntefli, m.a. skák
þeirra Panno og Friðriks Ólafs-
sonar. Endanleg úrslit mótsins
urðu því þessi:
1.—2. Keres m
Petrosjan 8%
3.—4. Friðrik 7%
Najdorf IVí
5. Reshevsky 7
6. Gligoric 6
7.—8. Benkö 5%
Panno 5%
Kæra verkf ræðinga dómf est
Eins og Þjóöviljinn hefur
áöur skýrt frá hefur Stétt-
arfélag verkfræöinga ákveð-
ið að stefna samgöngumála-
ráðuneytinu fyrir brot á
vinnulöggjöfinni, en Vega-
gerð ríkisins hefur ráðið
fjóra meðlimi stéttarfélags-
ins til starfa í miðju verk-
falli. Verður málið dómfest
fyrir Félagsdómi í dag, en
lögfræðingur Stéttarfélags
verkfræðinga er Gunnar M.
Guðmundsson.
Framkvæmdastjóri Stétt-
arfélags verkfræðinga, Hin-
rik Guðmundsson, skýrði
Þjóðviljanum svo frá í gær,
að síðasti samningafundur
aðila í deilunni hefði verið
sl. föstudagskvöld en engan
árangur borið. Hefðu samn-
ingamenn verkfræðinga
bent á ýmsar hugmyndir
til lausnar deilunni, en þær
hefðu engar undirtektir
fengið hjá atvinnurekend-
um.