Þjóðviljinn - 31.07.1963, Qupperneq 1

Þjóðviljinn - 31.07.1963, Qupperneq 1
DMIUIN Miðvikudagur 31. júlí 1963 — 28. árgangur — 169. ’tölublað. r Brauðvörur hækka frá Valbiöm annar í tugþraut á NM fyrri daginn Norðurlandamcistaramótið í frjálsum íþróttum hófst i Gautaborg f gær með keppni f tugþraut. Eftir fyrri keppnisdaginn er Valbjöm Þorláksson í Z. sæti — Sjá frétt á Z. síðu. VERÐ- HÆKKUN í DAC 9-137« Samkvæmt tilkynningu, sem blaðinu barsj í gær frá verðlagsstjóra, hækkar verð á franskbrauðum og heil- hveitibrauðum um nær 9% frá og með deginum í dag að telja. Vínarbrauð hækka um tæp 13%, og hringir og tvibökur hækka einnig nokk- uð. Hið nýja verð er sem hér segir: Franskbrauð kostar nú kr. 6.30, (áður 5.80), heilhveitibrauð kr. 6.30, (áð- ur kr. 5,80), stykkið af vín- arbrauði kr. 1.75, (áður 1.55), kringlur kr. 20.30 kg. (áður kr. 18.00) og tvibök- ur kr. 28.50, Xáður kc 26.00 kílógrammið. Vb Fróðaklettur sökk eftir árekstur við Ægi í gærdag sökk vélbáturinn FróðakleTtur út aí Austfjörðum eftir árekstur við varðskipið Ægi. — Áhöfninni var bjargað um borð í varðskipið sem hélt með skipbrotsmenn til Seyðisfjarðar í gær- kvöld. 1 gærkvöld voru fregnir enn óljósar af óhappi þessu, eri* vitað var að þoka var mikil á þessum slóðum í fyrrinótt og gærmorgun. Nunna og hjúkrunar- kona HÚN HEITIR B. Holisová og er tékknesk leikkona , sem fer með eitt af aðalhlutverkunum í kvikmyndinni „Dauðinn heit- ir Enge'chen“. Þessi mynd var ein þeirra mörgu sem sýnd- ar voru á kvikmyndahátíð- inni í Moskvu fyrir skömmu og vakti athygli og umjal. ARNI BERGMANN segir frá kvikmyndahátíðinni í Moskvu á öðrum stað í blaðinu í dag. 5. síða Eftir því sem Þjóðviljinn fregnaði í gærkvöld, mun leki hafa komið að Fróðakletti í gær- morgun, er báturinn var staddur undan Austfjörðum. Sló hann úr sér, eins og sagt er, og kom sjór. í lúkarinn. Skipverjar höfðu þá samband við Vcirðskipið Ægi og báðu um aðstoð. Hélt varðskip- ið þegar á vettvang og munu skipin hafa lent saman með þeim afleiðingum að Fróðaklettur sökk síðar. Mun þetta hafa gerzt um kl. hálf tólf í gærmorgun. Áhöfninni á Fróðakletti var bjargað um borð í Ægi. sem síð- an sigldi til Seyðisfjarðar. Þang- að kom varðskipið í gærkvöld. 1 dag, miðvikudag, munu verða haldin sjópróf á Seyðisfirði vegna árekstursins. Vb. Fróðaklettur var 16 ára gamall eikarbátur, 80 tonn að stærð, smíðaður í Hafnarfirði. Eigandi: Jón Gíslason & Go. Hafnarfirði. 1 gær var haldið áfram leitinni að ungu mönnunum tveimur, sem saknað er síðan um helgi. Leitað var úr Iofti og gengið á fjörur. * Snæfugli hvolfdi, sökk á svipstundu Guðmundur Péturs bjargaði áhöfninni 5 mínútum síðar NESKAUPSTAÐ og SEYÐISF. í gærkvöld — Um klukkan 10.15 í kvöld hvolfdi vélbátnum Snæfugli frá Reyðarfirði um 7,5 sjómílur út af Skrúð og 5,5 sjómílur 'frá Seley í Reyðarfjarðardjúpi. Vb. Guð- mundur Péturs ÍS var nærs'taddur og heyrðu skipverjar á honum neyðarkall Snæfuglsmanna og sáu er báfurinn sökk. Brugðu þeir skjótf við og björguðu áhöfn Snæfugls, sem þá var komin í gúmbjörgunarbát. Allt gerðisf þefta á 'fáum mín- útum. Vonzkuveður hefur verið hér á miðunum í dag, sunnan og suðaustan rigning og sformur. Voru síld veiðibátarnir allir á heimleið, sumir með einHvem síldarafla. Snæfugl mun ha’fa yerið með um 600 til 700 [Eunnur innan borðs. Fimmti báturinn sem ferst Vb. Snæfugl var 79 ’tonna eikarbátur, smíðaður í Svíþjóð. Er hann fimmti báturinn af þessari gerð, smíðaður eftir sömu teikningunni, sem 'ferst með sviplegum hætti. Hinir fjórir voru: Borgey, Hamar, Bergur — fórsf í fyrra — og Erlíngur IV. sem fórsf á síðastliðnum vetri. Aðeins einn bátur samskonar mun nú vera ofansjávar —Sigurfari á Patreksfirði. — RS og GS. Ibúarnir á öllu fondimi voru 183.4781. des. árii 1962 Endanlegar tölur Hagstofu íslands um mann- fjöldann hér á landi l.desember sL, sýna að íbúar voru þá alls 183.478, þar af voru karlar 92.756 talsins eða rúmlega 2000 fleiri en konurnar, sem voru 90.722. f Reykjavík voru íbúar 1. desember sl. 74.978, þar af 36.529 karlar, en 38.449 konur. í öðrum kaupstöðum voru íbúarnir 48.972 og álíka margt af hvoru kyni (konur þó heldur færri)', en íbúar sveitanna voru 59.528 og þar vom karlar 31.500 talsins en konurnar 28.028. Hvað íbúafjölda í kaupstöðum snertir kemur Akureyri næst Reykjavík, en síðan Hafnarfjörð- ur og Kópavogur. fbúafjöldi kaupstaðanna var annars sem hér segir 1. desember sl.: Akureyri ................. 9152 Hafnarfjörður ............ 7490 Kópavogur ............... 7163 Vestmannaeyjar .......... 4820 Keflavík ................ 4819 Akranes ................ 4026 fsaf jörður ........... 2685 Siglufjörður ............. 2625 Húsavík ................ 1685 Neskaupstaður ............ 1457 Sauðárkrókur ............ 1302 Ólafsfjörður Seyðisfjörður 989 759 Flestir íbúar Amessýslu I sýslurum eru flestir íbúar í Ámessýslu, 7136, og næst er Gullbringusýsla með 5644 íbúa. Langfæstir eru íbúamir í Aust- ur-Barðastrandasýslu eða 528 talsins, en næstfólksfæsta sýslan er Dafasýsla, þar voru 1164 íbú- ar 1. desember sl., 606 karlar og 558 konur. Af einstökum hreppum er Sel- foss með flesta íbúa eða 1867, en næst kemur Seltjamameshrepp- Framhald á 2. síðu. ■■■■*■«■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Lítil síldveiði Nú er heldur dauft yfir síldveiðunum fyrir Norður- og Austurlandi. 1 fyrrinótt var vitað um afla nær 30 báta, sem fengu tæpar 10 þúsund tunnur síldar. I kvöld höfðu eng- ar fréttir borizt af síldveiði. Fimm bátar komu með síld til Vestmannaeyja I gær, samtals 3500 tunnur. Afiinn fengu bátamir við Eyjar. !■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■■ Vinningar og töp í Odense A skákmóti Norðurlanda í Odense í Danmörku er nú lokið 7—8 umferðum. Eftir 7 umferðir í meistaraflokki hafa íslenzku keppendumir, Lárus Johnsen og Sigurður Jónsson, hvor um sig hlotið 3V2 vinning. 1 meistaraflokki A hefur Jón Hálfdánarson hlotið 4 vinninga af 7 mögulegum en Gunnar Hvanndal á eina biðskák, hefur tapað öllum öðrum skákum sínum. Jón Ingimarsson er með 21/2 vinning og biðskák i meist- araflokki B og Bjöm Krist- jánsson hefur í sama flokki 4 vinninga. S/asaðist á Vespu Rétt eftir klukkan 5 í gærdag varð það slys á mótum Lauga- vegs og Laugamesvegar, að Vespubifhjól ók á vörubíl, sem var að aka inná Laugaveginn. Vespan lenti á hægra framhjóli vörubílsins og kastaðist ökumað- ur hennar á frambrettið. Hann var fluttur meðvitundarlaus á Slysavarðstofuna, en ekki var vitað nánar um meiðsli hans, þar sem þau voru ekki fullrann- sökuð, en þó var hann kominn til meðvitundar. Hallormsstað 30. júli — 1 gær átti flugvél frá Flugfélagi Islands að taka 19 Færeyinga á Egils- stöðum og flytja þá til Færeyja. Þegar flugvélin var komin út á brautarenda á flugvellinum kom tilkynning um að ekki væri hægt að lenda í Færeyjum og bíða því Færeyingamir enn og ólíklegt talið að fært verði í kvöld. — Sibl. 4

x

Þjóðviljinn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Þjóðviljinn
https://timarit.is/publication/257

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.