Þjóðviljinn - 15.08.1963, Blaðsíða 1
Nefndir launþega og atvinnurekenda
Verklýðssamtökin og samtök
atvinnurekenda haía nú skipað
nefndir til þess að fjalla um
rannsókn þá í efnahagsmálum í
sambandi við kaupgjaldssamn-
inga sem samkomulag varð um
fyrr í sumar. 1 nefnd Alþýöu-
sambandsins eiga sæti Bjöm
Jónsson, formaður verkalýðsfé-
lagsins Einingar á Akureyri,
Hjalti Kristgeirsson hagfræðing-
ur og Sigurvin Einarsson al-
þingismaður. í nefnd atvinnurek-
enda eru Björgvin Sigurðsson,
framkvæmdastjóri Vinnuveit-
endasambands íslands, Helgi
Bergs framkvæmdastióri frá
Vinnumálasambandi samvinnu-
félaga og Þorvarður Alfonsson,
framkvæmdastjóri Félags ís-
lenzkra iðnrekenda. Héldu
nefndirnar fyrsta sameiginlega
fund sinn í fyrradag; í gær voru
en sameiginleg fundarhöld.
HVALFJORÐUR KAFBATALÆ6I
06 0LIUBÍR6DAST0D NATO
■ Ríkisstjórnin hefur ákveðið að afhenda Atlanzhafs-
bandalaginu Hvalf jörð sem olíubirgðastöð og lægi fyrir
kafbáta og herskip. Verður komið upp 25—28 olíu-
geymum handa Atlanzhafsbandalaginu, byggð haf-
skipabryggja, og á 4—5 stöðum í firðinum verður
gengið frá skipalægjum fyrir herskip, þar á meðal
kjarnorkukafbáta. Eru verkfræðingar og herfræðingar
frá Atlanzhafshandalaginu nú að kanna aðstæður í
Hvalfirði, en að þeirri rannsókn lokinni verður samn-
ingurinn gerður. Hefur Atlanzhafsbandalagið þá náð
marki sem að hefur verið stefnt í heilan áratug; hafa
kröfur um Hvalfjörð verið bornar fram oftar en einu-
sinni á þessu tímabili en íslenzk stjórnarvöld hafa
jafnan hafnað þeim — þar til nú.
Guðmundur í. Guðmundsson viðurkenndi þessar s'tað-
reyndir allar í viðtali sem hann átti í fyrradag við fulltrúa
frá þingflokki Alþýðubandalagsins, Hannibal Valdimarsson
og Eðvarð Sigurðsson. Mótmæltu þeir þessum ráðagerðum
fyrir hönd Alþýðubandalagsins og kröfðust þess að engir
samningar yrðu gerðir án þess að alþingi væri kvatt sam-
an. Hét ráðherrann því að koma þeim mótmælum og kröf-
um á framfæri en kvað afstöðu ríkisstjórnarinnar þá að
gera þennan samning án þess að kalla saman þing.
Ríkisstjórnin ætlar að gera samning um stóraukn-
ar hernámsframkvæmdir án samþykkis Aiþingis
Frétt til að fela
staðreyndir
Fyrir rúmri viku, í miðju
blaðamannaverkfallmu, birti rík-
isstjórnin í útvarpsfrétt yfirlætis-
lausa fréttatilkynningu þess efnis
að Atlanzhafsbandalagið hefði
farið fram á að fá að bæta við
nokkrum olíugeymum í Hval-
firði. Fréttatilkynningu þessari
var auðsjáanlega ætlað að draga
úr umtali, eftir að sérfræðingar
frá Atlanzhafsbandalaginu höfðu
hafið rannsóknir sínar í Hval-
firði. Það var hins vegar þegar
ljóst að með tifkynnin^u sinni
var ríkisstjómin ebki að segja
fréttir heldur fela þær. Atlanz-
hafsbandalagið hefur ekki haft
neina olíugeyma í Hvalfirði,
heldur hafa þeir verið flormleg
eign Olíufélagsins h.f., en pað
hefur geymt olíu fyrir banda-
ríska hemámsliðið gegn greiðslu
í dollurum (eins og menn muna
frá síðasta gjaldeyrissvikamáli
félagsins). Hér var því ekki um
neina aukningu á fyrri aðstöðu
að ræða heldur nýjar fram-
kvæmdir. auk þess sem í ljós
kom að ráðamenn Olíufélagsins
h.f. höfðu ekki verið kvaddir til
neinna samninga um aukna
starfsemi í þágu hemámsins.
Einnig varð fljótlega ljóst að
rannsókn sérfræðinganna í Hval-
firði var ekki bundin við olíu-
geyma eina saman, og því duld-
ist ekki að verið var að undir-
búa sarrminga um miklu alvar-
legri framkvæmdir.
Utanríkismálanefnd
ekki talin til
Lögum samkvæmt skulu öll ut-
anríkismál borin undir utanríkis-
málanefnd Alþingis. Ríkisstjóm-
in hefur hins vegar lýst yfir þvr
að hún telji að sú nefnd sé ekki
til. þar sem umboð fyrri þing-
manna hafi fallið niður með
kosningunum í sumar og ný
nefnd hafi ekki enn verið kosin.
Þvi fóru þingflokkar stjórnar-
andstöðunnar fram á að fá vit-
neskju um samningana í Hval-
firði með öðru móti, og féllst
Guðmundur 1. Guðmundsson á
að eiga viðræður við fulltrúa frá
þeim. Eins og áður greinir ræddu
Hannibal Valdimarsson og Eð-
varð Sigurðsson við ráðherrann
í fyrradag, en áður höfðu farið
fram hliðstæðar viðræður við
fulltrúa frá Framsóknarflokkn-
um.
Þeir Hannibal og Eðvarð lögðu
fyrir ráðh.'irrann fjölmargar
spurningar um fyrirætlanimar í
Hvalfirði, og verða nú rakin
meginatriðin í framburði hans.
Olíustöð og haf-
skípabryggja
Ætlun Atlanzhafsbandalagsins
er sú að koma upp í Hvalfirði
25—28 stórum olíugeymum, en
ekki kvað ráðherrann hafa verið
rætt um að koma þar fyrir ann-
ars konar birgðum. I sambandi
við geymana verður byggð mikil
hafskipabryggja fyrir skip sem
koma með oliu og taka olíu til
flutnings og komið fyrir nauð-
BARA TTAN CEGN HVALFJARÐARSAM NINGUM
ÞAÐ HEFUR verið kunnugt
lengi að Atlanzhafsbandalagið
hefur stefnt að því að Ieggja
undir sig Hvalfjörð. Hefur sú
saga verið rakin hér í blaðinu
stig af stigi allt frá því að
fyrsta krafan var borin fram
fyrir um það bil áratug, en
henni var þá hafnað af ríkis-
stjóminni. Hefur Þjóðviljinn
vakið scrstaka athygli á því
hvernig viðbrögð islcnzkra
stjórnarvalda hafa breytzt
síðustu árin með lóranstöðinni
á SnæfcIIsnesi og með mæl-
ingunum á botni Faxaflóa;
þær ráðstafanir voru aðdrag-
andi þcirra samninga sem nú
á að gera.
SAMTÖK HERNAMSAND- I
STÆÐINGA hafa varað þjóð-
ina mjög alvarlega við fyrir-
ætlunum um Hvalfjörð. 23. og
24. júní í fyrra gcngust sam-
tökin fyrir mótmælagöngu úr
Hvalfirði til þess að vekja
fólk til andstöðu við fyrir-
ætlanirnar um kafbátalægi og
hcrstöðvar þar. Tók geysi-
inikill mannfjöldi þátt í mót-
mælafundinum að göngunni
lokinni. en myndin hcr á sið-
unni er tekin í Hvítanesi í
göngubyrjun. Áður höfðu
Samtök hernámsandstæðinga
gcngizt fyrir mótmælafundi á
Lækjartorgi, þegar yfirflota-
foringi Atlanzhafsbandalags-
ins kom í stjórnarráðið til
viðræðna við Guðmund í.
Guðmundsson um Hvalfjörð.
HERNAMSBLÖÐIN hafa ævin-
lega mótmælt frásögnum
Þjóðviljans og Samtaka her-
námsandstæðinga um Hval-
fjörð, og of margir hafa test
trúnað á mótmæli þeirra. Nú
sker reynslan enn einu sinni
úr um það hverjum megi
treysta.
synlegum tækjum f sambanði við
olíustöðina. Ekki kvað ráðherr-
ann afráðið hvar þessum mann-
virkjum yrði komið fyrir f firð-
inum, og ekki hefðu enn komið
fram nákvæmar óskir um stærð
bryggjunnar eða dýpi við hana.
Væru verkfræðingar frá Atlanz-
hafsbandalaginu nú í Hvalfirði
að rannsaka ailar aðstæður. og
yrðu ákvarðanir teknar í sam-
ræmi við niðurstöður þeirra.
Framhald á 2. síðu.
| Matvæli
| hafa
| hækkað
\um 59%
1 júlímánuði síðastliðn-
um hækkaði vísitalan fyfcir
matvöru um þrjú stig og
: var komlin upp í 159 stig
1. ágúst s.I. Hafa matvæli
þá hækkað mest af öllum
■ vörutegundum f grundvclli
: vísitölunnar, eða um 59%
á hálfu fjórða ári. Er það
: til marks um þá stefnu ríkis-
stjómarinnar að Iáta verð-
: bólguna koma harkalegast
1 fram á nauðþurftum al-
mcnnings, á sama tíma og
Iétt hefur verið undiir með
; hátekjumönnum og fyrir-
| tækjum með mjög veruleg-
um skattaívilnunum.
• ★ 1 flokknum „vörur og
■ þjónusta" varð sú breyting
: einnig í júii að liðurinn
■ „ýmis vara og þjónusta”
lækkaði um eitt vísitölustig,
niður í 154 stig án þess að
: kunnugt sé hvaðan sú dul-
: arfulia lækkun stafar.
Nemur þá meðalvísitalan
| fyrir vörur og þjónustu 152
: stigum, og hefur hækkað
um tvö stig frá fyrra mán-
■ uði. Almennt verðlag á
nauðsynjum vísitölufjöl-
| skyldunnar hefur þannig
| hækkað um 52% síðan í
j ársbyrjun 1960.
Af ððrum liðum fram-
» færsluvísitölunnar hafa op-
j inber gjöld vísitöluf jöl-
skyldunnar hækkað um dtt
s'^V unp í 112 stig. Borgar
■ vísitöluf jölskyldan þannig
; 12% hærri beln gjöld en
: hún gerði í upphafi við-
reisnar, og er það til marks
um þann áróður stjórnar-
; flokkanna að með viðrelsn-
j ínni hafi verið Iækkuð bein
: gjöld á almenningi.
★ Hin opinbera vísitala
* framfærslukostnaðar er svo
| fengin með því að draga
j frá fjölskyldubætur og
reikna ailtaf með óbreytt-
um húsnæðiskostn aði. Var
[ hún 1. ágúst 133 stig og
: hafði hækkað um eitt stig
frá næsta mánuði á undan.